Morgunblaðið - 22.08.1995, Side 4

Morgunblaðið - 22.08.1995, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGÚR 22. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Góður andi í blendnu veðri ÆT Islandsbankamót Dreyra er nú haldið í þriðja sinn og virðist vera búið að festa sig í sessi. Opin síðsumarsmót eiga vel upp á pall- borðið hjá hestamönnum. Hrossin komin í gríðarlega vmma^ &óða ÞJalfun eftir Kristinsson styttn eða lengn skrifar ferðalög og aðra sumarþjálfun. Mótið stóð yfir í tvo daga sem virðist hæfilegur tími, forkeppni fer fram á laugardegi, hestamenn hitttast og gera sér glaðan dag að kveldi og úrslit og verðlauna- afhending fer fram á sunnudegi. Allt gekk þetta vel fyrir sig hjá Dreyramönnum enda orðnir nokk- uð vanir. Gott veður var á laugar- deginum en ekki var útlitið gott út á sunnudeginum þegar byrjað var í hávaðaroki og rigningu, en fór sem betur fer batnandi þegar á daginn leið og hann hékk þurr megnið af deginum meðan dag- skrá stóð yfir þótt blési hlýjum suðaustan vindi. Framkvæmd mótsins gekk þokkalega fyrir sig, að vísu ekki búið fyrr en á tíunda tímanum á laugardagskvöldið sem er kannski fullmikið. A sunnudag var þetta á klassískum hraða, tímabært er að hestamenns setji meiri rögg í framkvæmd úrslita. Til dæmis þegar einum úrslitum er lokið mætti kalla inn á keppendur sem taka þátt í næstu úrslitum og hafa meiri stíganda þannig að hægt væri að hefja næstu keppni strax að lokinni verðlaunaafhend- ingu og spara með því tíma. Ekki var mikið lagt í móts- skrána sem er í sjálfu sér í góðu lagi ef allar nauðsynlegar upplýs- ingar eru til staðar. Ekki var því til að dreifa að þessu sinni. Ekki var getið um hvaða félagi hver keppandi tilheyrði og annað sem var öllu verra, að ekki var getið fæðingarstaðar hrossa sem er af- leitt. Mótið fór vel fram, góður andi ríkjandi og þegar svo er fara menn glaðir heim og tilgangnum er náð. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson SIGURBJÖRN Bárðarson og Gordon skiluðu góðu dagsverki báöa daga mótsins og ber hæst þar frábær árangur í gæð- ingaskeiði en hér tryggja þeir sér sigur í fimmgangi. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HIIMN grái „Svarti“ Svanur vann sig ásamt knapanum Lárusi Hannessyni upp um sæti í úrslitum fimmgangs. Nafnið hlaut hann við fæðingu, en þá var hann svartur. Sigurbjörn með sann- kallaða kennslustund Sigurbjörn Bárðarson fór sannkallaða sigurför á Skagann um helgina þegar hann vann í öllum greinum fullorðins- flokks og það með miklum yfir- burðum. Sömuleiðis Vaidimar var hann langefstur Kristinsson í íslenskri tvíkeppni, sknfar skeiðtvíkeppni og samanlögðu. Má segja að sá gamli hafi tekið ungu strákana sem öttu kappi við hann í kennslustund. Sigurbjörn vann þessi afrek á tveimur hestum, í tölti og fjór- gangi á hinum landskunna gæð- ingi Oddi frá Blönduósi sem virt- ist mjög frískur, væntanlega eftir góða hvíld frá íslandsmóti, og í fimmgangsgreinunum á Gordon frá Stóru- Ásgeirsá. Ekki hefur gengið vel hjá Sigurbirni í fimm- gangi á þessu ári en nú virðist hann kominn með hest sem vænta má mikils af á þessum vettvangi. Athyglisverður er árangur þeirra í gæðingaskeiði þar sem þeir skiluðu 112,5 stig- um með tveimur frábærum sprettum og verður ekki betur séð en Sigurbjörn sé í algjörum sérflokki í þjálfun og útfærslu gæðingaskeiðs. Keppnin í fullorðinsflokki stóð því um annað sætið þar sem þeir börðust bróðurlega ungu menn- irnir Adolf Snæbjörnsson, Páll Bragi Hólmarsson, Snorri Dal, Lárus Hannesson, Sigurður Sig- urðarson og Orri Snorrason svo einhveijir séu nefndir. Orri vann sig upp úr fimmta sæti í fjór- gangi í það þriðja og Lárus vann sig upp í þriðja sæti úr fjórða í fimmgangi. Magnea Rós fékk fimm gullverðlaun Árlegur lokasprettur í Varmadal KEPPNISTÍMABIL hestamanna styttist nú óðum í annan endann á laugradag verða harðarmenn í Kjósarsýslu með sinn árlega lokasprett sem nú er haldinn öðru sinni í Varmadal á Kjalar- nesi. Verður þar keppt í tölti, skeiði víðavangshlaupi og stökki. Sömu helgi verða Þytsmenn í Vestur Húnavatnssýslu með sitt árlega íþróttamót á Króksstaðamelum. í hestaalmanaki sem gef- ið er út af L.H. og H.Í.S. segir að mótið verði 28. og 29. ágúst sem er mánudagur og þriðjudagur en hið rétta er að mótið verður um helgina 26. og 27. ágúst. Suðurlandsmóti sem halda átti þessa helgi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ekki fengust upplýs- ingar um hvort eða hvenær mótið yrði haldið en verður væntan- lega kynnt. Ekki var Sigurbjörn einn um að sækja gull í greipar á Skagann því Magnea Rós Axelsdóttir sem keppti í ungiingaflokki sat ein að gullinu þar, vann í tölti og fjór- gangi á Vafa sínum Valdimar auk þess að vinna í Kristinsson fimmgangi ungmenna skrifar 0g var þrj5ja f gæð- ingaskeiði í sama flokki á Frey; góður árangur hjá prúðum knapa. Karen L. Marteinsdóttir og Sylvía Sigurbjörnsdóttir skiptu gull- unum með sér í barnaflokki en Sylvía varð stigahæst. I ungmenna- flokki börðust Edda Rún Ragnars- dóttir á Litla Leisti og Sigurbjörn Viktorsson á Hrefnu um sigurinn í tölti og fjórgangi og hlutu sitt gull- ið hvort, en Edda Rún vann í ís- lenskri tvíkeppni en Sigurbjörn aft- ur stigahæstur í samanlögðu. Þarna eru á ferðinni efniiegir knapar með talsverða keppnisreynslu sem nýta sér ungmennaflokkinn áður en þau hefja keppni í flokki fullorðinna. Það er annars umhugsunarvert hvers vegna þátttaka í þessum ald- ursflokki er svo lítil sem raun ber vitni. Mætti ætla að tiltölulega fáir á aldrinum 17 til 19 ára stundi hestamennsku en fróðlegt væri ef gerð yrði könnun á þvi hvað verður um alla krakkana sem keppa í barna- og unglingaflokkum en skila sér svo ekki upp í eldri flokkana. Stunda þau hestamennsku áfram en hætta að keppa eða hætta þau í hestamennsku tímabundið eða al- farið? >. Þótt þátttaka í yngri flokkunum hafi verið í dræmara lagi var keppni þar talsvert spennandi. Krakkarnir eru í stöðugri framför og má greina mun á þeim frá því í vor eða fyrr í sumar og að sama skapi eru hross- in hvað best síðsumar og eiginlega synd og skömm að keppnistímabil- inu skuli ljúka svo snemma þegar hrossin eru á toppnum. Hætta ber leik þá hæst hann stendur, segir máltækið, og má segja að hesta- menn geri það í orðsins fyllstu merkingu. EITT af fimm gullum í höfn hjá Magneu og Vafa lengst til vinstri eftir úrslit ENGIN breyting frá forkeppni í fjórgangi barna frá vinstri talið Sigríður á í fjórgangi, næst henni eru Benedikt á Hoffmann, Ásta á Nökkva, Sigurður á Glampa, Berglind á Fjöður, Viðar á Gormi, Sylvía á Galsa og sigurvegarinn Frey og Guðrún á Galsa. Karen á Manna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.