Morgunblaðið - 12.09.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
■ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER
BLAÐ
Woosnam í stað
Olazabals
BERNARD Gallacher, liðsstjóri Ryderliðs Evr-
ópu, sem mætir sveit Bandaríkjanna á Oak
Hill í Rochester 22. til 24. september, hefur
ákveðið að velja Ian Woosnam í liðið í stað
Jose Maria Olazabal. Olazabal tók þátt í móti
um helgina til að athuga hvort hann treysti
sér í Ryderkeppnina, en hann hefur átt við
meiðsli að stiða. Hann var ekki ánægður með
framfarirnar og ákvað að gefa ekki kost á sér
og var Woosnam þá valinn í staðinn.
Woosnam hefur leikið í síðustu sex Ryder-
mótum og var sigursælasti leikmaður liðs
Evrópu þegar það vann bikarinn síðast, á
Belfry fyrir tveimur árum. Olazabal hefur
einnig verið sigursæll í Ryder og hann og landi
hans Seve Ballesteros hafa sigrað 11 sinnum
og gert tvö jafntefli í þeim 15 fjórmenningum
og fjórleikjum sem þeir hafa leikið.
Kvenna-
landsliðið
valið
KRISTINN Björnsson hefur
valið 18 stúlkur í Iandsliðshóp-
inn fyrir landsleikinn gegn
Rússum 17. september nk. á
Laugardalsvelli.
Markverðir eru Sigríður F.
Pálsdóttir úr KR og Sigfríður
Sophusdóttir úr Breiðabliki.
Aðrir leikmenn eru: Guðlaug
Jónsdóttir, KR, Ásgerður
Ingibergdsdóttir, Guðrún Sæ-
mundsdóttir og Kristbjörg
Ingadóttir úr Val, Auður
Skúladóttir, Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir og Katrín Jónsdóttir
úr Stjömunni, Laufey Sigurð-
ardóttir, Jónína Víglundsdótt-
ir og Ingibjörg H. Olafsdóttir
af Skaganum og Blikastúlk-
urnar Margrét Olafsdóttir,
Helga Ósk Hannesdóttir, _
Vanda Sigurgeirsdóttir, Ást-
hildur Helgadóttir, Sigrún
Óttarsdóttir og Erla Hend-
riksdóttii'.
Bartova
með
heimsmet
TÉKKNESKA stúlkan, Dani-
ela Bartova, setti í gær enn
eitt heimsmet í stangarstökki
kvenna, er hún stökk 4,22 m
í Salgotaijan í Ungveijalandi
— gamla metið hennar var
4,21 m, sett í Linz í Austur-
ríki 22. ágúst. Bartova hefur
sett niu heimsmet á árinu,
síðan hún stökk 4,10 m í
Ljubljana í Slóveníu í maí.
„Gammur-
inn“ skoraði
í Mexíkó
EMILIO Butragueno, fyrrum
miðherji Real Madrid, eða
„Gammurinn" eins og hann
er kallaður, skoraði sín fyrstu
mörk fyrir Celaya. Lið hans
var undir, 0:2, þegar hann
skoraði bæði mörkin, 2:2, og
tryggði að Celaya er enn tap-
laust eftir þijár umferðir.
Annar kunnur kappi sem
fagnaði einnig í Mexíkó —
Osvaldo Ardiles, sínum fyrsta
sigri, sem þjálfai Guadalaj-
ara.
TORFÆRA
Hörkuslagur á Hellu
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
TORFÆRUJEPPI Akureyringsins Einars Gunnlaugssonar siglir yfir á af miklum krafti. Hann sigraði í lokamóti Islandsmótsins í
torfæru, eftir harða keppni í flokki sérútbúinna jeppa. Hann varð samt að láta íslandsmeistaratitilinn, sem hann vann í fyrra,
af hendi til Haraldar Péturssonar. Gunnar Guðmundsson tryggði sér meistaratitilinn í flokki götujeppa með slgri í lokamótinu,
eftir hnífjafna keppni.
KNATTSPYRNA
Raith með þvjá menn
í framlínunni gegn ÍA
Raith Rovers átti ekki möguleika
gegn Rangers í skosku úrvals-
deildinni og tapaði 4:0 á Ibrox í
Glasgow á laugardag. I.ogi Ólafs-
son, þjálfari lslandsmeistara ÍA,
fylgdist með leiknum en Raith Rov-
ers og ÍA mætast í 1. umferð Evr-
ópukeppni félagsliða og verður fyrri
leikurinn á heimavelli skoska fé-
lagsins í dag.
„Liðið lék ágætlega fyrstu tutt-
ugu til tuttugu og fimm mínúturnar
en síðan var Rangers miklu betra
enda klassamunur á Rangers og
öðrum liðum í Skotlandi,“ sagði
Logi við Morgunblaðið. Hann sagði
virðingarvert að lið Raith hefði
reynt að sækja gegn Rangers. „Það
spilaði 4-4-2 og reyndi alltaf að
spila fótbolta." Hann sagði ljóst að
Skotarnir gerðu sér grein fyrir því
að til að komast áfram yrðu þeir
að sækja á heitnavelli og því benti
allt til þess að liðið yrði með þtjá
menn i framlínunni. „Það verða
væntanlega Rogier, Crawford og
Graham, sem eru hættulegustu
menn liðsins og þeir menn sem við
þurfum að stöðva.“
Skagamenn æfðu ytra í fyrradag
og tvívegis í gær en seinni æfingin
var í flóðljósum á leikvangi Raith
Rovers. Logi sagði að allir leikmenn
ÍA virtust klárir í slaginn. Reyndar
hefði Bjarki Gunnlaugsson tekið því
rólega en hann virtist vera í lagi
og Þórður Þórðarson spilaði þrátt
fyrir að hafa verið veikur síðan
hann kom til Skotlands. Gengið
yrði út frá því að Skagamenn spil-
uðu eins og venjulega en sérstak-
lega yrði lögð áhersla á að byija
varlega. „Við verðum að fara var-
lega í upphafi en á góðum degi eig-
um við ágætis möguleika og við
getum farið kinnroðalaust í leik-
inn,“ sagði Logi.
TENNIS: NÍTJÁNDISIGUR STEFFIGRAF Á STÓRMÓTI / B12