Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 4
4 B FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
ISLENSKIR HUGVITSMENN
eru vafalítið fleiri en margur
heldur. Þar eru ekki á ferðinni
einhveijir stórfurðulegir sér-
vitringar með enn furðulegri hug-
myndir í kollinum heldur hafa Qöl-
margir þeirra mjög góðar hugmynd-
ir að mjög góðum markaðsvörum.
Þetta virðist í það minnsta vera
reynslan af Snjallræði, hugmynda-
samkeppni sem iðnaðarráðuneytið,
Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður og
Iðntæknistofnun hafa staðið tvívegis
fyrir á undanförnum árum.
Snjallræði var komið á fót fyrir
röskum þremur árum til þess að
gefa hugvitsmönnum tækifæri til
þess að koma hugmyndum sínum á
framfæri og stuðla með þeim hætti
að aukinni nýsköpun í íslensku at-
vinnulífi. Tvær slíkar samkeppnir
hafa nú verið haldnar og hefur af-
rakstur þeirra verið framar björtustu
vonum, að sögn Björgvins Njáls Ing-
ólfssonar, verkefnisstjóra Snjailræð-
is og starfsmanns Nýsköpunar- og
framleiðnideildar hjá Iðntæknistofn-
un. Þátttaka í þessari samkeppni
hefur verið mjög góð og margar
hugmyndir sem þar hafa orðið fyrir
valinu eru þegar komnar á markað
hér á landi. I sumum tilfellum er
verið að huga að útflutningi.
Fyrirkomulag Snjallræðis er
þannig að öllum er heimilt að senda
hugmyndir sínar inn svo fremi
að um sé að ræða afurðir . - ''
á sviði iðnaðar.
Allar ******
... hug-
myndir sem
berast eru lagðar fyrir
matsnefnd sem fær síðan
það erfiða hlutverk að velja átta
bestu hugmyndirnar úr. „Þess-
um hugmyndum er veittur
styrkur að hámarki 600.000 krónur
til þess að kanna hvort þær séu
nægjanlega hagkvæmar til fram-
leiðslu. Styrkurinn nemur 75% af
kostnaði við hagkvæmnisathugun-
ina en eigandi hugmyndarinnar
verður að útvega afganginn.
Við höfum heyrt því fleygt að
með þessu séum við að hafa fé af
hugvitsmönnunum sjálfum. Raunin
er hins vegar sú að þeir hugvits-
menn sem hingað til hafa komist
þetta langt hafa yfirleitt greitt sinn
hluta með eigin vinnuframlagi. Þeir
hafa líka verið sáttir við þetta fyrir-
komulag," segir Björgvin.
Þegar hagkvæmnisathugunum er
lokið eru valdar allt að fjórar hug-
Kveiktá
perunni
Hugmyndasamkeppnin Snjallræði hefur
veríð haldin tvívegis og er nú verið að
huga að þeirri þríðju. Samkeppnin hefur
þegar gefíð af sér ýmsar arðvænlegar
nýjungar eins og Þorsteinn Víglunds-
' son komst að þegar hann ræddi við
Björgvin Njál Ingólfsson, verkefnis-
stjóra Snjallræðis.
myndir af þeim átta sem hlutu viður-
kenningu í þeirri fyrri. Þessum hug-
myndum er veittur styrkur sem nem-
ur 50% af kostnaði við að þróa þær
áfram og ganga frá smíði frumgerð-
ar. Þessi styrkur má þó ekki vera
hærri en 1.500 þúsund krónur.
Framlag viðkomandi hugvitsmanns
nemur þá öðru eins og segir Björg-
vin það vera eðlilegt á þessu stigi
samkeppninnar. „Viðkomandi hug-
mynd hefur komist þetta langt sök-
um þess að hún er talin vera arðvæn-
leg. Þær tekjur sem kunna að skap-
ast af hugmyndinni renna að sjálf-
sögðu allar til hugvitsmannsins en
aðstandendur Snjallræðis fá ekki
beinan arð af okkar fjárfestingu og
því teljum við eðlilegt að eigandi
hugmyndarinnar komi að fjár-
mögnun hennar að töluverðu
leyti."
Björgvin leggur hins vegar
áherslu á að ekki megi líta á þessa
síu' sem einhvern áfellisdóm yfír
þeim hugmyndum sem heltast úr
lestinni. I bæði skiptin sem sam-
keppnin hafí verið haldin hafi
u.þ.b. 250 hugmyndir borist og í
hópi þeirra sé að fínna fjöldann
allan af góðum og gjaldgengum
hugmyndum en matsnefndin verði
hins vegar að velja úr þær hug-
myndir sem hún telur bestar
hveiju sinni. Fjármögnun verkefn-
isins setur mönnum hér nokkrar
skorður hvað varðar fjölda verk-
efna að sögn Björgvins.
Ódýr hugmyndasmiðja
Björgvin segir ekki mikinn
kostnað fylgja þessari samkeppni
ef miðað sé við afrakstur hennar.
„Heildarkostnaður við eina sam-
keppni er u.þ.b. 22 milljónir sem
koma til greiðslu á 2-3 árum. Þar
• •
Onnur
Snjallræði
• Hér gefur að líta fjórar hug-
myndir til viðbótar sem komist
hafa í síðari umferð Snjallræðis
og í kjölfarið settar á markað.
Þar ber fyrst að líta nýja snakk-
tegund, Gæðasnakk, sem Ulfar
Eysteinsson á hugmyndina að.
Snakkið er unnið úr fiskroði og
kryddað að hætti Úlfars.
• Súlan og ábreiðan fyrir heita
potta er hönnuð af Einari D.
Gunnlaugsyni. Súlan er undir
ábreiðunni og er lítið borð fest
við hana sem þjónar öryggistil-
gangi auk þess sem nota má það
undir glös og fleira.
• Raufafræsarinn er hönnun
Bjarna Harðarsonar. Hann er
notaður til þess að fræsa rauf-
ar fyrir innlímd stálhorn í
límtrésbita. Þessi hugmynd
er ætluð til útflutnings sökum
lítils markaðar hér á landi.
• Orn Marelsson hefur harin-
að mælitæki sem mælir
hversu oft einstakir ventlar
díselvéla snúast á minútu.
Tilgangurinn er að koma í
veg fyrir bruna á ventlum
vélanna með þvi að skipta
einungis um þann hluta sem
snýr ventlinum.
af greiða þátttakendur u.þ.b. 7 millj-
ónir.“ Hér er þó eingöngu verið að
tala um tiltölulega ódýr verkefni og
segir Björgvin það vissulega hafa
komið til tals að reyna að stuðla að
þróun hugmynda sem séu dýrari í
vinnslu en sem þessu nemur. „Gall-
inn er þó sá að með því að bjóða
upp á mismunandi styrkupphæðir
erum við að mismuna mönnum að
vissu marki auk þess sem kerfið
verður allt mun flóknara í fram-
kvæmd. Leiðin sem við höfum
valið í staðinn er að reyna
að dreifa því fjár-
magni sem
gengur * ódýr-
ari verkefnun-
um yfir á þau verkefni
þar sem fé skortir til þess að
ljúka þróunarvinnunni. Sú lausn hef-
ur skilað ágætum árangri. Fyrst og
fremst erum við þó að reyna að leysa
þessi verkefni á eins ódýran máta
og við treystum okkur til.“
Björgvin segir stærsta gallann við
núverandi fyrirkomulag vera að
ekkert skipulagt kerfi sé til staðar
til þess að aðstoða menn við mark-
aðssetningu á hugmyndunum. Það
sé þó oft á tíðum sá þáttur sem
mestrar aðstoðar sé þörf við. „Við
höfum reynt að leysa þetta vanda-
mál með því að reyna að koma
mönnum í samband við fyrirtæki
sem eru í aðstöðu til þess að koma
vörunni á framfæri. Við höfum t.d.
komið á tengslum við Hampiðjuna
og Byko sem hefur síðan leitt til
þess að þau fýrirtæki hafa keypt
þær hugmyndir sem í hlut áttu og
séð alfarið um markaðssetningu og
sölu þeirra. Þetta fyrirkomulag hef-
ur gengið vel og það er ljóst að
fyrirtæki af þessari stærðargráðu
eru mun betur í stakk búin til þess
að markaðssetja hugmyndir af
þessu tagi. Þau geta gefið sér góðan
tíma til þess að vinna vörunni mark-
að á meðan hætt er við því að ein-
staklingur myndi fljótlega vera til-
neyddur til að gefast upp ef salan
kemst ekki fljótlega af stað.“
Af þeim átta hugmyndum sem
komist hafa í seinni umferð sam-
keppninar eru sex nær fullbúnar nú,
að sögn Björgvins. Gert er ráð fyrir
því að vinnu við hinar tvær verði að
mestu lokið á næstu mánuðum.
Nokkrar hugmyndir eru jafnframt
komnar vel áleiðis í markaðssetn-
ingu.
Sem dæmi um eina slíka eru nýir,
vistvænir rafmagnsgirðingarstaurar
sem unnir eru úr endurunnu rúllu-
baggaplasti og netadræsum. Staur-
ar þessir hafa komið vel út í prófun-
um og t.d. reynst sterkari en hefð-
bundnir harðviðarstaurar auk þess
sem þeir hafa meira einangrunar-
gildi gagnvart útleiðslu. Hönnuður
þessara girðingastaura er Einar
Harðarson en það er Hampiðjan sem
sér um framleiðslu og sölu þeirra.
Björgvin segir að auk kynningar hér
á landi séu ýmsar þreifingar í gangi
varðandi útflutning á staurunum og
t.d. hafi aðili á Nýja-Sjálandi sýnt
þeim mikinn áhuga.
Annað dæmi sem Björgvin nefnir
er fjölnota súla fyrir heita potta.
„Þessi súla er sett í niðurfall potts-
ins og eykur hún notagildi og ör-
yggi pottsins. Á hana má festa borð
sem jafnframt er stuðningur fyrir
yngri notendur pottsins. Þá er einn-
ig hægt að breiða segl yfir pottinn
sem fest er á súluna og kanta hans,
en seglið kemur í stað hefðbundinna
loka á pottinn sem oft eru mjög
þung og ómeðfærileg. Dúkurinn
hefur reynst öruggur við prófun
hans og á hann að tryggja að börn
geti ekki dottið ofan í.“ Hönnuður
súlunnar er Einar D. Gunnlaugsson,
en Byko hefur keypt hugmyndina
og sér um sölu og dreifingu.
„Þetta eru aðeins tvær af þeim
sex hugmyndum sem eru klárar.
Hinar eru ekkert síður athyglisverð-
ar og er t.d. verið að kanna mögu-
leika á útflutningi nokkurra. Þær
sýna þá möguleika sem þessi sam-
keppni gefur okkur. Við erum nú
að vinna að því að koma þriðju sam-
keppninni af stað og höfum þegar
leitað til samstarfsaðila okkar um
fjármögnun á því verkefni. Við von-
umst til þess að þau mál muni ský-
rast á næstu vikum þannig að hægt
verði að ná hugmyndunum inn fyrir
áramót."