Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 B 9 -
VIÐSKIPTI
Nýr vöru-
listi frá
Smith &
Norland
ÚT ER kominn vörulisti Smith &
Norland þar sem í 10 köflum er
fjallað um þær vörur sem jafnan
eru til á raflagnaefnislager fyrir-
tækisins. í frétt frá Smith & Nor-
land segir að tiigangur listans sé
að upplýsa rafverktaka, raf-
magnsverk- og tæknifræðinga og
aðra þá sem vinna við hönnun og
uppsetningu raflagna um vöruúr-
val fyrirtækisins og gera þeim
hægara um vik við vai á því efni
sem nota á.
Um er að ræða 10 vöruflokka
sem ná yfir flest það efni sem
rafvirkjar nota í almennum störf-
um sinum, t.d. vír og strengi, dós-
ir, rafmagnsrör, tengi- og festi-
efni, lagnarennur, strengistiga,
rafmagnstöflur, varbúnað, rofa og
tengla, dyrasíma, rafmagnsofna,
hitakúta, lágspennurofabúnað,
raðtengi, mótora, lampa og perur.
Fram kemur að sl. ár hafi
starfsmenn Smith & Norland unn-
ið af kappi að útgáfu listans i sam-
vinnu við Tómas Jónsson auglýsin-
gateiknara. Lokaumbrot og öll
prentvinnsla fór fram í Prent-
smiðjunni Odda. Vörulistinn er
344 blaðsíður og eru í honum 1422
myndir.
Siemens fyrirferðamest
í fréttinni segir einnig að Smith
& Norland sé rótgróið innflutn-
ings- og verslunarfyrirtæki á raf-
orku- og rafeindasviði með öflug-
an hóp velmenntaðra fagmanna
sem sér um að veita viðskiptavin-
unum þá þjónustu sem þeir þurfa
á að halda. Smith & Noriand sé
þekktast fyrir að vera Siemens-
umboðið á íslandi en auk þess
skiptir S & N við fjölmörg önnur
fyrirtæki, einkum þýsk, norsk og
sænsk.
Hjá Smith & Norland starfa
rúmlega 30 manns, m.a. rafvirkj-
ar, rafeindavirlqar og rafmagns-
verk- og tæknifræðingar. Fyrir-
tækið hefur aðsetur í Nóatúni 4
og Borgartúni 22.
Það var Grímur Kolbeinsson,
verkefnastjóri hjá Odda, sem af-
henti- þeim Jóni Norland og Ósk-
ari Gústavssyni frá Smith og Nor-
land fyrsta eintakið af vörulistan-
um.
Flug'þing’
1995
FLUGMÁLASTJÓRN efnir hinn
19. október nk til málþings undir
heitinu FLUGÞING ’95 - Flug-
samgöngur á íslandi. Það er
nýjung í starfsemi Flugmála-
stjórnar að halda Flugþing og er
fyrirhugað að halda Flugþing
reglulega í framtíðinni og fjalla
um eitt afmarkað efni í hvert sinn.
Nú eru liðin 50 ár frá stofnun
Flugmálastjórnar og því þykir við
hæfi að helga fyrsta Flugþingið
málefnum innanlandsflugsins.
Flugþing ’95 hefst kl. 9 með
ávörpum Hilmars B. Baldursson-
ar formanns Flugráðs og Hall-
dórs Blöndal samgönguráðherra.
Frá kl. 9-11 verður fjallað um
flugsamgöngur innanlands. Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri gefur
yfirlit um flugsamgöngur á ís-
landi, Tómas Ingi Olrich alþing-
ismaður og yaraformaður Ferða-
málaráðs Islands fjallar um
framtíðarhlutverk flugsamgangna
á íslandi. Loks mun Snjólfur Ól-
afsson dósent við viðskiptadeild
Háskóla íslands ræða um hlut-
verk flugsins í samgöngukerfi
landsins.
Annar hluti Flugþingsins, milli
11-12:30, fjallar um framkvæmdir
í flugmálurr* Tveir framkvæmda-
stjórar hjá Flugmálastjóm flytja
erindi, Jóhann H. Jónsson um
framkvæmdir á íslenskum flug-
völlum og Haukur Hauksson um
þróun flugleiðsögubúnaðar á Ís-
landi. Þorgeir Pálsson flugmála-
stjóri fjallar síðan um fjármögnun
flugmálaáætlunar.
I síðasta hluta Flugþingsins,
milli 13:30-15:20, munu fulltrúar
flugrekenda og notenda gera
grein fyrir afstöðu sinni til innan-
landsflugsins. Á mælendaskrá eru
Leifur Magnússon fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum
hf., Sigurður Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri hjá Flugfélagfi
Norðurlands hf., fulltrúi frá Is-
landsflugi hf. og sveitarstjóm-
armenn.
Flugþinginu lýkur með hring-
borðsumræðum um flugsamgöng-
ur á íslandi. Að lokinni dagskrá
býður Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra til móttöku.
Fundarstjórar á Flugþingi ’95
verða Hilmar B. Baldursson for-
maður Flugráðs, Jón Birgir Jóns-
son ráðuneytisstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu og Anna Soffía
Hauksdóttir prófessor við verk-
fræðideild Háskóla íslands.
Flugþing ’95 verður haldið í
ráðstefnumiðstöð Scandic Hótels
Loftleiða frá kl. 9-17.
Þingið er opið öllum áhuga-
mönnum um flugmál.
RAÐSTEFNLSKRIFSTOFA ISLANDS
Simi 562 6070 - Fax 562 6073
Háskóli Islands
Endurmenntunarstofnun
Markaðslyklar
- markviss markaðssetning með samskiptum
við viðskiptavini
Þróun markaðssetningar. Hverju skila langtímasam-
bönd í samanburði við skammtímaviðskipti?
Að ráða trygga starfsmenn og laða trygga viðskipta-
vini að. Að læra á þarfir viðskiptavinarins og
breytingar á þeim. Hvemig getur verðlagning byggt
upp varanleg og trygg viðskiptasambönd?
Samnefnd bók fylgir.
Höskuldur Frímannsson rekstrarráðg. og
lektor við HÍ.
9. og 13. okt. kl. 13-17.
Umbætur og breytingar
í skipulagi fyrirtækja
Skipulag og stjórnun fyrirtækja, skipurit. Úttekt og
undirbúningur að skipulagsbreytingu og hagræðingu.
Stjómun breytingaferils og þátttaka starfsmanna í því.
Þórður Óskarsson vinnusálfr. KPMG.
ll.okt. kl. 8.30-12.30.
Innri gæðaúttektir í
fyrirtækjum og stofnunum
Þekking á ISO-9000 stöðlunum nauðsynleg.
Undirbúningur og framkvæmd gæðaúttekta skv.
1SO-9000 og aðferðir til þess að ná fram nauðsyn-
legum upplýsingum. Skráning, mat á niðursám
og eftirfylgni.
Einar Ragnar Sigurðsson hjá Ráðgarði hf. og
Kjartan J. Kárason framkvæmdastj. Vottun hf.
9.-10. okt. kl. 8-13.
Internet-kynning
Saga Internetsins, þróun og uppbygging.
Þjónusta sem stendur til boða á Intemetinu og hvemig
almennir notendur geta nýtt sér hana.
M.a. verður sýnd notkun á tölvupósti, netfréttum
og Veraldarvefnum (WWW).
18. okt. kl. 13.00-16.30, 19. okt. kl. 9.00-12.30.
7.800 kr.
Annað námskeið 21. október kl. 9.00—16.30.
Þriðja námskeið 29. október, kl. 10-18
Fjórða námskeið 2. nóvember, kl.9-17
Skráning og nánari upplýsingar f síma 525 4923. Fax: 525 4080. Tölvupóstur: endurm@rhi.hi.is
FUNDUR
framundan!
Tæknivæddir þingsalir í öllum stærðum.
Leitið upplýsinga og við sendum gögn um hæl.
SCANDIC
LOFTLEIÐIR
Sími: 5050 900 • Fax: 5050 905
Geisladiskur fylgir 100 ml rakspíra.
Safngripur - takmarkað magn.
in
O
“O
C
(P
XO
O)
ÚtsölustaSir:
Reykjavík:
Arbaejarapótek, Hraunbæ 102b; Bró, Laugavegi 66; Gullbró, Nóatúni 17;
Glæsibær, Álfheimum 74; Hóaleitisapótek, Hóaleitisbraut 68; Hygea,
Kringlunni; Hygea, Austurstræti 16; Laugarnesapótek, Kirkjuteig 21;
Laugavegsapótek, Laugavegi 16.
Landið:
Amaró, Akureyri; Apótek Ólafsvíkur, Ólafsvík; Bjarg, Akranesi; Kaupfélag
BorgfirSinga, Borgarnesi; Miðbær, Vestmannaeyjum; Rangórapótek, Hellu og
Hvolsvelli; Smart, Keflavík; Selfossapótek, Selfossi; Stjörnuapótek, Akureyri.
meðan