Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 12
12 C FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Stöð 3 fer brátt í loftið
Mikið úrval þátta
S T Ö Ð
ÚTSENDINGAR Stöðvar 3, sem verða að vera-
leika innan skamms, munu hefjast á virkum
dögum klukkan fímm með sjónvarpssápu. Að
því búnu verða sendir út alís kyns framhalds-
þættir, fréttaskýringar og bíómyndir og fastir
liðir virka daga era spjallþáttur Davids Letterman og
Simpson-flölskyldan. Um helgar verður meðal annars
sýnt frá þýska boltanum, það helsta úr þeim spænska
í þættinum „Football Mundial“, golf, og boðið upp á
gamanþætti af ýmsu tagi auk þess sem áður er nefnt.
„Hollyoaks“
Þessir þættir hófu göngu sína í
Bretlandi fyrir rúmri viku og
fengu framúrskarandi viðtökur. í
þeim er fylgst með sjö ungmenn-
um sem haldið hafa hópinn. Sum
þeirra hafa farið í háskóla, önnur
eru enn að hugsa sinn gang og tvö
eru farin að vinna. Öll upplifa svip-
aða hluti þegar kærustur, kærast-
ar, tiska, tónlist, farsímar og tölv-
ur eru annars vegar en bregðast
ekki við á sama hátt. Breskir sjón-
varpsgagnrýnendur hrósa þáttun-
um í hástert og gera ráð fyrir að
-i vinsældir þeirra komi til með að
aukast, enda eru þættirnir að
þeirra mati löngu tímabærir.
„Extreme Close-Up“
Nokkrar helstu stjörnur heims í
sýndar í nærmynd; Clint East-
wood, Jodie Foster, Sylvester
Stallone, Amold Schwarzenegger,
Sharon Stone, Whoopi Goldberg,
Cindy Crawford og Billy Crystal
í persónulegum viðtölum um allt
milli himins og jarðar, frægðina
og einkalífið.
„Jake’s Progress“
Það komast fáir með tæmar þar
sem Alan Bleasdale er með hæl-
ana, en þau Robert Lindsay og
Julie Walters em í aðalhlutverkum
í þessari nýju „tragíkómedíu" frá
honum. Mamma Jakes litla er allt-
af að vinna og hefur lítinn sem
engan tíma til að leika við hann.
Ekki skánar ástandið þegar Jake
eignast systkini og þarf að deila
athygli föður síns með þessum
nýja fjölskyldumeðlimi. Eiginlega
má segja að nútímafjölskyldan sé
sýnd í grátbroslegu Ijósi í þáttun-
um.
„Tales from
the Crypt“
Hefur þú kíkt undir rúmið þitt
nýlega? Hér eru á ferðinni fram-
úrskarandi vel gerðir „cult“ þætt-
ir, en þeir byggja á vinsælum
teiknimyndablöðum sem komu út
á fimmta áratugnum í Bandaríkj-
unum. I þáttunum eru stórstjörn-
ur í hverju skúmaskoti, en meðal
leikstjóra eru Tobe Hooper (Tex-
as Chainsaw Massacre), Richard
Donner (Superman) og William
Friedkin (The Exorcist). Fyrir
framan tökuvélarnar eru engir
aðrir en Tom Hanks og Michael
J. Fox og af öðrum stjórstjörnum
sem fara með hlutverk í þáttunum
má nefna Malcolm McDowell,
Treat Williams, stórfyrirsætuna
Kathy Ireland, Jon Lovits, Whoopi
Goldberg, Christopher Reeve,
Tim Curry, Joe Pesci og fleiri.
„Hollywood
One on One“
Þessir þættir hafa unnið til a.m.k.
níu Emmy-verðlauna. Farið er að
tjaldabaki í Hollywood og rætt
við stærstu stjörnurnar og ekki
má gleyma sjóðheitu slúðrinu.
Spjallað er m.a. við Tom Cruise,
Antonio Banderas, Madonnu,
Glenn Close, Robin Williams, Ro-
bert Redford, Michele Pfeiffer og
þannig mætti lengi telja.
„Madman of
the People“
Jack Buckner er blaðamaður sem
hefur skoðanir á velflestu og er
ekki hræddur við að láta þær í
(jós, hvort heldur á prenti eða í
orði. Hann stofnaði blaðið „Your
% Times“ á sínum tíma og er einn
„Tales from the Crypt“
Benny Hill og félagar
„Eurotrash"
Simpson-fjölskyldan
af fremstu dálkahöfundum þar.
Til þessa hefur honum tekist að
sporna gegn breytingum á blaðinu
og innihaldi þess í krafti hæfileika
sinna, en nú eru breyttir timar.
Stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið
að gera breytingar og halda Jack
„Hollyoaks"
„Hollywood One on One“
innanborðs, þrátt fyrir þver-
móðskuna í honumog þá er kjörið
að ráða nýjan yfirmann sem gefur
Jack ekkert eftir í því að hafa
skoðanir á hlutunum, nefnilega
hans eigin dóttur!
„The Byrds
of Paradise“
Hér eru á ferðinni vandaðir og
dramatiskir fjölskylduþættir sem
Steven Bochco framleiðir. Hand-
ritshöfundar eru Emmy-verð-
launahafarnir Charles Eglee (Mo-
onlighting) og Channing Gibson
(St. Elsewhere) og eiga þeir hug-
myndina að þáttunum. Timothy
Busfield (Thirtysomething) leikur
ungan fjölskylduföður, Sam Byrd,
sem ákveður að flytja til Hawaii
ásamt þremur börnum sínum.
Hann hefur verið ráðinn sem
skólastjóri en búferlaskiptin reyn-
ast fjölskyldunni ekki auðveld
„Bugs“
„Madman of the People“
„Extreme Close-up“
„Byrds of Paradise"
David Letterman
fyrst í stað því eyjaskeggjar eru
ekkert alltof hrifnir. Smám saman
taka hlutirnir að breytast og ekk-
illinn er tekinn í sátt ásamt börn-
unum sínum. Útisenur í þáttunum
voru kvikmyndaðir á eyjunni Oahu
og innisenur í Diamond Head
Studios á Honolulu, en þetta kvik-
myndaver er einna frægast fyrir
það að þarna voru allir „Hawaii
Five-0“ þættirnir teknir í gamla
daga.
„Bugs“
Nýir breskir spennuþættir með
þeim Craig McLachlan, Jesse
Birdsall og Jay Griffiths í hlut-
verki þríeykis sem berst gegn
glæpum með tækni, því byssur
eiga ekki beinlínis upp á pallborð-
ið hjá þeim. Einn þeirra er þyrlu-
flugmaður og alger ofurhugi, ann-
ar er með snjallari ökuföntum og
sá þriðji er á stundum ótrúlega
laginn við að koma þeim í kland-
ur. Tölvur eru þeim daglegt brauð
og þeir vinna fyrir hvern þann sem
er réttu megin við lögin. Það er
óhætt að fullyrða að þetta eru
breskir spennuþættir af bestu
gerð.
„Murphy Brown“ og
Simpson-fjölskyldan
Stöð 3 hefur fest kaup á nýrri
seríu í gamanmyndaflokknum um
fréttakonuna Murphy Brown sem
leikin er af Candice Bergen, en
þættirnir hafa notið mikilla vin-
sælda bæði hér heima og vestan
hafs. Þá mun Stöð 3 einnig sýna
gamanmyndaflokkinn „Married...
With Children" og það eru vafalít-
ið margir sem muna eftir hjóna-
komunum A1 og Peg Bundy og
ótrúlega fyndnu heimilishaldi hjá
þeim. Varla þarf að kynna Simp-
son-fjölskylduna fyrir íslenskum
sjónvarpsáhorfendum, en Stöð 3
mun sýna þessa vinsælu þætti frá
upphafi. Þá má einnig geta þess
að um helgar mun Stöð 3 sýna 30
mínútna gamanþætti með grínist-
anum óborganlega Benny Hill.
„Eurotrash“
Þessir þættir hófu göngu sína á
Channel 4 í Bretlandi fyrir um
tveimur árum og hafa vakið verð-
skuldaða athygli fyrir óvenjuleg
efnistök og fersk og nýstárleg
umfjöllunarefni. Þetta em þættir
fyrir þá sem hafa gaman af því
að sjá og heyra um „hina hliðina"
á málunum, en umsjónarmenn
þáttanna era engir aðrir en Ant-
oine de Caunes og tískumógúllinn
Jean Paul Gaultier.
Spjallþáttur Davids
Letterman
Af öðram þáttum sem eru vænt-
anlegir á dagskrá Stöðvar 3 má
nefna spjallþáttinn vinsæla með
David Letterman, spennuþættina
„Land’s End“ með Fred Dryer, eða
Hunter gamla, eins og við senni-
lega þekkjum hann best, breska
gamanmyndaflokkinn „Dressing
for Breakfast", sakamálamynda-
flokkinn „One West Waikiki" með
kvennagullinu Richard Burgi,
spennuþættina „Off Duty“ með
hjartaknúsaranum Don Johnson,
„Models Inc.“ með Dallas-stjörn-
unni Lindu Grey, spennumynda-
flokkinn „The Marshall“ með Jeff
Fahey og áströlsku sápuóperuna
„Shortland Street" en hún er frá
framleiðendum Nágranna og hef-
ur fengið frábærar viðtökur í
heimalandi sínu og Bretlandi. Síð-
astur en fráleitt sístur er svo saka-
málamyndaflokkurinn JAG. Ung-
ur lögfræðingur hefur þann starfa
að rannsaka glæpi, slys, hryðju-
verk og njósnir innan bandaríska
flug- og sjóhersins í þessum vönd-
uðu þáttum sem sumir banda-
rískra gagnrýnenda hafa Hkt við
Top Gun.