Morgunblaðið - 22.02.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1996 B 9
VIÐSKIPTI
Til hvers
er alnetið?
Tölvupistill
Fyrsta rafræna verslunarmiðstöðin hérlend-
is, Heimakringlan, var opnuð í vikunni.
Arni Matthíasson kynnti sér Heimakringl-
una og veltir því fyrir sér hvort verslun eigi
sér framtíð á alnetinu.
ALNETIÐ er til margra
hluta nytsamlegt, ekki
síst þess að afla upplýs-
inga, en ekki síst hentar
það til verslunar ýmiskonar, sér-
staklega í dreifbýlu landi og stóru
eins og íslandi. Nokkuð er síðan
Netkaup,. http://www.saga.is/net-
kaup, rafrænt útibú Hagkaupa,
komst á koppinn og gerir það víst
nokkuð gott, og á þriðjudag var
opnuð fyrsta rafræna verslunarm-
iðstöðin á Islandi, Heimakringlan,
með tilheyrandi húllumhæi. I
Heimakringlunni, sem Margmiðlun
hf. rekur, eru ýmsar verslanir og
ólíkar; Blómaval, B.T. tölvur, Ey-
mundsson, Fu-Man-Chu, Húsa-
smiðjan, Jón Bakan, Margmiðlun,
Oddi, Olís, Plús ferðir, Skátabúðin,
sparisjóðirnir, skóverslunin Stepp,
Svensson-listinn og Toyota-
umboðið. Verslun hefur slitið
barnsskónum á alnetinu, því víða
um heim eru verslanir sem selja
allt á milli himins og jarðar.
Alnetsverslun í uppsveiflu
Kannanir hafa sýnt að alnets-
verslanir geta dafnað prýðilega,
þó margir vilji meina að þær séu
dauðadæmdar. Hugbúnaður selst
vitanlega best, þá skemmtivarn-
ingur ýmiskonar og svo vélbúnaður
ef marka má könnun sem birtist í
mánaðaritinu Online Marcetplace
fyrir skemmstu. Þat' kemur og
fram að minnst af þessari verslun
hafi átt sér stað í rafrænum versl-
unarmiðstöðvum líkum Heima-
kringlunni. Kannski ræður þar
mestu sá siður vefnotenda að rása
um vefinn skipulagslaust, þvi rúm-
ur helmingur allrar verslunar fer
þannig fram að notandinn finnur
eitthvað nánast fyrr slysni.
Verslunareigendur tína ýmisleg
rök til þegar þeir hallmæla alnets-
verslun; fólk vilji hitta annað fólk
og það vilji skoða vöruna áður en
það kaupir hana. Þvert ofan í það
segja flestir þeir sem versla á net-
inu að þeim þyki það hentug og
þægileg leið til að versla aukinheld-
ur sem þeir kunna því vel að versla
þegar þeim hentar hvort sem það
er að nóttu eða degi. Verðlag þyk-
ir einnig hagstætt á vefnum, þó
enn eigi það eftir að mótast hér á
landi, en eflaust er ekki langt í það
að til verði verslanir sem einungis
eru til á vefnum, því þá er allur
kostnaður við verslunarreksturinn
í lágmarki.
Mikið hefur verið skrifað um hve
hættulegt sé að versla á alnetinu
og það hefur örugglega orðið auk-
inni verslun Þrándur í Götu. Fjöl-
miðlar hafa verið upp fullir með
fregnir um að óprúttnir geti kom-
ist yfir krítarkortanúmer sem send
séu yfir netið og svikið út fé. Þessi
hætta er mjög orðum aukin og
umfjöllunin iðulega byggð á van-
þekkingu. Hættan við að nota krít-
arkort á alnetinu hefur verið hverf-
andi og er nánast engin í dag,
ekki síst eftir að vefrýnar hafa
verið endurbættir og geta nú bren-
glað upplýsingar þannig að enginn
nema viðtakandi geti lesið. Heima-
kringlan nýtir þessa dulkofratækni
og notar svokallaðan 1024 bita
lykil. Til þess að brjóta upp slíkan
lykil þarf þvílíkt tölvuafl að sá sem
hefði aðgang að því væri ekki að
eltast við krítarkortanúmer og
enginn ætti því að vera feiminn
Morgunblaðið/Þorkell
STEFÁN Hrafnkelsson fram-
kvæmdastjóri Margmiðlunar
hf. og Gestur G. Gestsson
markaðsstjóri rýna í Heima-
kringluna.
við að skipta við fyrirtækin sem
þar eru.
Verslunar- og vefrýnir
Heimakringluna má nýta með
venjulegum vefrýni, en einnig er
hægt að sækja til Margmiðlunar
hf. svokallaðan verslunarrýni sem
fyrirtækið hefur hannað. Sá versl-
unarmáti hentar líklega helst fyrir-
tækjum og iðnaðarmönnum sem
birgja sig reglulega upp af sömu
vörunni eða gera svipuð innkaup.
Þeir geta þá tínt í „innkaupakörfu"
það sem þá vanhagar um án þess
að vera tengdir Heimakringlunni
og síðan sent pöntunina inn, til að
mynda með tölvupósti, aukinheldur
sem þeir geta verið með margar
slíkar innkaupakörfur í gangi sam-
tímis eftir því sem verkast vill.
Gera má ráð fyrir því að slíkir
verði einmitt fyrri til að taka við
sér en almenningur, sem eflaust
verslar helst fyrir forvitni sakir
framan af, en óhætt er að spá því
að þó alnetsverslun eigi ekki eftir
að gera út af við hefðbundið mang
á hún eflaust eftir að verða snar
þáttur í viðskiptum þegar fram líð-
ur.
Heimakringlan er á slóðinni
http://www.margmiðlun/heima-
kringla.
Athugasemdum og ábendingum um efni
má koma til amim@centrum.is eða arn-
im@mbl.is.
Upplýsingabyltingin
Sjónarhorn S|F ***
Það gildir hið gamla lögmál í viðskiptum
að standir þú við þín orð og gerir viðskipta-
vininn ánægðan, eru góðar líkur á að þú K " -Jí
eignist fleiri viðskiptavini, segir Frosti
Bergsson, og bendir á að þetta eigi svo Jk
sannarlega einnig við á sviði vélbúnaðar
og hugbúnaðar \..M
Frosti Bergsson
ir viðkomandi fyrir-
tæki og skrifi undir
trúnaðarsamning þar
að lútandi.
3) Val á vélbúnaði
er oft lokaskrefið og
háð vali hugbúnaðar.
Eðlilegt er að fá með-
mæli frá hugbúnaða-
raðilanum hvaða vél-
búnaðarlausn hefur
verið prófuð og hver
er reynslan. Það að
vera tilraunadýr nefur
oft reynst kostnaðar-
samt þegar upp er
staðið. Aðstæður geta
verið mismunandi frá
AÐ UNDANFÖRNU hafa
fjölmörg íslensk fyrir-
tæki endurnýjað sín upp-
lýsingakerfi. Áhugavert
er að staldra aðeins við og skoða
hvaða séreinkenni eru varðandi
þessar breytingar, sem nú eiga sér
stað.
Vegna síaukinnar samkeppni
gera flestir stjórnendur sér grein
fyrir þeirri þörf að hafa réttar upp-
lýsingar stöðugt við hendina á að-
gengilegu formi til þess að geta
tekið fljótt ákvarðanir. Fyrirtækin
endurskoða alla vinnuferla, hvað
getum við gert betur, erum við að
gera réttu hlutina, hvernig mætum
við nýrri samkeppni, hvað ef þetta
eða hitt gerist?
Þessi endurskoðun á starfsemi
fyrirtækja kallar á ítarlega þarfa-
greiningu og oft hefur þá komið í
ljós að gamla upplýsingakerfið virk-
aði sem hemill á alla framþróun í
fyrirtækinu. Nýrra og fullkomnari
upplýsingakerfa er þörf, oft duga
hin gömlu hefðbundnu bókhald-
skerfi ekki, heldur verður að fara
nýjar leiðir, þannig leita fyrirtækin
að ýmsum sérlausnum sem skapa
þeim forskot í hinni hörðu sam-
keppni. Þetta er ekki lengur verk-
efni tölvudeildar einnar heldur
þurfa æðstu stjórnendur að setja
sig vel inn í þessi mál og fylgja
þeim vel eftir.
Þannig sjáum við að fyrirtækin
fara í gegnum eftirfarandi 3 skref:
1) Þarfagreiningu, skipta fyrir-
tækinu upp i einingar (hagnaðar
eða kostnaðareiningar). Auðvelt
þarf að vera að setja þessum eining-
um markmið og að hægt sé að fylgj-
ast stöðugt með árangri. Skoða
þarf alla vinnuferla í fyrirtækinu
og spyija sig „erum við að gera
réttu hlutina?" Hið nýja'kerfi þarf
að hafa traustan og fullkominn
gagnagrunn, auðlærð notendaskil,
auðvelt að gera breytingar og fyrir
fram skilgreindur liópur notandi
þarf að geta spurt „hvað ef:?“
2) Val á hugbúnaðarlausn er síð-
an næsta skrefið. Fyrir stærri fyrir-
tæki er sjaldnast til pakki sem ekki
þarf að aðlaga verulega sérþörfum
fyrirtækisins. Það er því nauðsyn-
legt að auðvelt sé að byggja ofan
á grunnpakkann og gera þær sér-
lausnir sem skapa fyrirtækinu for-
skot á keppinautana, skapar fyrir-
tækinu sérstöðu á markaðnum.
Krafa er stundum sú að viðkom-
andi hugbúnaðarfyrirtækji vinni
ekki fyrir keppinautana eða sé með
starfsmenn sem eingöngu vinni fyr-
fyrirtæki til fyrirtækis, sumir vilja
nýta eldri búnað að hluta, aðrir
ekki. Góð regla er að fara í heim-
sókn þar sem sambærilegar upp-
setningar eru og sjá hvernig til
hefur tekist. I viðkvæmu viðskip-
taumhverfi þar sem aðgangur að
upplýsingakerfinu þarf að vera
traustur er ekki hægt að vera með
tilraunastarfsemi.
Þegar skoðaðar eru heildarfjár-
festingar í upplýsingakerfum kem-
ur oft í ljós að tvö atriði vega þyngst
en þau eru :
a) Vinna við gerð kröfulýsingar
og aðlögun hugbúnaðar að þörfum
fyrirtækisins.
b) Þjálfun starfsmanna þannig að
þeir hafí fullt vald á notkun kerfisins.
Það eru sem sagt ekki kaup á
grunnhugbúnaðinum eða kaup á
vélbúnaði sem vega þyngst. Undir-
búningur og þjálfun starfsmanna
eru oft vanmetin, flestir ef ekki allir
starfsmenn fyrirtækis sem end-
urnýjar sitt upplýsingakerfí þurfa
að nota hið nýja kerfi og jákvætt
viðhorf þeirra er nauðsynlegt til
þess að vel takist til.
Fyrirtæki sem eru að velja sér
upplýsingakerfi eru að leita að sam-
starfsaðilum sem hægt er að treysta,
hafa nægan mannskap til þess að
geta sinnt hinum nýja viðskiptavini
á þeim tíma sem óskað er eftir.
Oftast er valin einn samstarfsaðili á
hugbúnaðarsviði og annar á sviði
vélbúnaðar, því er það þýðingarmik-
ið að náið samstarf sé á milli þess-
ara aðila og tryggt sé með samningi
að þeir beri sameiginlega ábyrgð á
uppsetningu kerfisins.
Það gildir hið gamla lögmál í við-
skiptum að standir þú við þín orð
og gerir viðskiptavininn ánægðan
eru góðar líkur á að þú eignist fleiri
viðskiptavini, þetta á svo sannarlega
einnig við á sviði vélbúnaðar og
hugbúnaðar.
Höfundur cr framkvæmda-stjórr
Opinna kerfa hf.