Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 26
26 F MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Verkstæðis
heimsókn
Smiðjan
Þeir, sem annast viðgerðir á gömlum húsum,
þurfa að búa yfir góðri þekkingu á hand-
verki fyrri tíma, segir Bjarni Olafsson.
Verkefni þeirra eru oft fágæt og vandasöm.
Eg heimsótti nýlega tvo smiði sem
eru þekktir víða um landið fyr-
ir störf sín. Þeir heita Gunnar
Bjamason og Leifur Ebeneserson.
Löngum hefur það vakið með mér
aðdáun og gleði að kynnast góðu
handverki og ræða við listfenga
handiðnaðarmenn. Þeir vinna störf
sín án ræðuhalda og án þess að
mikið sé blásið í lúðra. Að þessu
sinni voru þeir félagar að smíða
fágæt og vandasöm verkefni.
Spjaldahurðir, á eldra máli „fulln-
ingahurðir".
Þessar hurðir eiga að notast í hús
sem byggt var á fyrsta tug þessarar
aldar. Gömlu hurðimar höfðu verið
téknar úr húsinu og þeim ekið á
mslahauga. Um tíma þótti það hæfa
betur þáverandi notkun hússins að
setja í það sléttar hurðir. Þeir vinna
sjaldan að fjöldaframleiðslu, verkefn-
in em oftast þannig að þau verða
að vera sérsmíðuð, hvert fyrir sig.
Nútíma verk
Stílgerð húsa og húsbúnaðar
breytist í sífellu. Þama sá ég smíðuð
sérlega vandasöm handrið þar sem
handlistinn hafði lögun sívalnings
en var beygður eftir stigabeygjum
og sveigjum. Þar hefði verið mun
einfaldara og ódýrara að kaupa
hæfilega vítt rör og sveigja það til.
En það er ólíkt að snerta og styðj-
ast við handlista úr májmi eða þann
sem gerður er af viði. í sveigjunum
þurfti að líma saman margar viðar-
þynnur sem vom síðan hefiaðar til
uns þær höfðu lögun rörsins. Þessi
handrið voru smíðuð í nýlegt safnað-
arheimili Laugarnesskirkju.
Gluggasmíðar
Hinn góði tími er genginn í garð.
Tími sólar og góðviðris, sá tími árs-
ins þegar hægt er að mála glugga,
bera á útihurðir, þvo rúður í glugg-
um, snyrta garða, sópa og prýða á
allan hátt.
Þetta er sá tími þegar margir
fara að leita uppi góða iðnaðarmenn
sem geta gert við sitthvað sem laga
þarf og jafnvel að endumýja. Eg
nefni sem dæmi endurnýjun á
gluggum.
STOKKAHÚS, sem Gunnar Bjarnason
og fleiri hjuggu til úr rekatijám.
Laugarneskirkju.
Það skiptir miklu máli frá hvaða
tíma húsið er, þegar smíða þarf
nýja giugga. Já, húsið er gamalt.
Hversu gamalt?
Það er liðin tíð að mestu leyti að
gluggum sé breytt mikið þegar
gömlu gluggarnir duga ekki lengur.
Að húsin séu augnstungin, eins og
það er oft nefnt. Þá er átt vð það
að sleppa því að hafa pósta í glugg-
um en hafa þess í stað eina heila
rúðu í þeim. Nú sækist fólk miklu
fremur eftir að færa húsin aftur til
þeirrar stílgerðar sem ríkjandi var
þegar húsin voru byggð. í þeim efn-
um hefur orðið mikil framför hin
síðari ár. Augu fólks hafa lokist upp
fyrir fegurð og gildi þess konar við-
gerða.
Hve gamalt er húsið?
Það er mikilsvert að þeir sem
teikna og smíða viðgerðir á gömlum
húsum búi yfir góðri þekkingu á
handverki fyrri tíma. Hús frá árun-
um 1930 til 1940 kann mörgum að
finnast gamalt hús. Eg spyr: er það
gamalt? Lengi má ræða hvað er
gamalt. Elstu hús hér á landi eru
frá miðri átjándu öld. Eftir íslensk-
um mælikvarða eru þau gömul.
Mælikvarði okkar breytist þó ef við
ferðumst suður um meginland álf-
unnar.
Þar stöndum við frammi fyrir
húsum sem enn eru í fullri notkun
enda þótt þau hafi verið byggð fyr-
ir árið eitt þúsund og til eru mikiu
eldri byggingar í ijarlægum lcndum.
Ég er þeirrar skoðunar að hvert hús
eigi að halda þeim stíl sem ríkti er
það var byggt og þar kem ég lokst
að spurningunni um gluggagerð.
Þrátt fyrir hið óumbreytilega hand-
verk, sem margir telja að ríkt hafi
í gegnum aldirnar, geta fróðir menn
rakið aldur húsa af ýmsum atriðum
sem leikmönnum kunna að finnast
ómerkileg smáatriði.
Tökum til dæmis strikun borða
og pósta. Brúnir eru oft strikaðar,
sem kallað er, það er að með brún-
inni er heflað strik til skrauts og
til þess að mýkja brúnina. Þess kon-
ar strikun þekkjum við t.d. af vík-
ingaskipunum og af byggingum frá
því að land okkar byggðist. Ég vil
skjóta því hér inn að Gunnar, sem
ég nefndi í upphafi þessarar grein-
ar, var yfirsmiður við smíði Söguald-
arbæjarins í Þjórsárdal, þegar hann
var byggður eftir hönnun Harðar
Ágústssonar.
Gamlir gluggar eru strikaðir með
mismunandi strikum, póstar,
sprossar og fög. Æskilegt er að
upprunaleg gerð fái haldist. Líku
máli gegnir um smíði hurða og dyra-
umbúnaðar í eldri hús.
Sérmenntun
Mikill samdráttur varð í nýbygg-
ingum fyrir um það bil tuttugu og
fjórum árum. Margir iðnlærðir bygg-
ingamenn leituðu sér þá starfa á
öðrum sviðum. Þá var hafrn kennsla
í viðgerðum á gömlum húsum fyrir
iðnaðarmenn. Það er því töluverður
fjöldi sérmenntaðra manna sem unn-
ið hefur allmikið að viðgerðum á
gömlum húsum. Þetta er vel og hafa
gömul hús víða um landið „lifnað
við“ og setja nú fallegan og menning-
arlegan svip á sitt byggðarlag.
Kjartan Ragnars hrl.
Löggiltur fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT 14. 3. HÆÐ (HÚS B&L) 7T 5 888 222 FAX 5 888 221
Opið 9-18- laugardaga 11-14
Einbýli - Raðhús
VANTAR
Höfum kaupanda að raðhúsi
eða einbýlishúsi semgefur
möguieika á tveimur íbúðum.
Verðhugmynd ca 13,0 millj.
SELTJARNARNES NÝ
Fallegt ca 240 fm einbýlishús.Einst. staðsetn.
ott tsýni. 4 svefnherb. Suðurverönd. Verð
17,5 millj. Skipti á raðhúsi á Seltjarnarnesi.
LINDARSEL
Giæsil. einb. ca 250 fm. Sérib. ájarðh. Verð
16,2 millj.
LANGHOLTSVEGUR - NÝ
Vorum að fá ca 117 fm hæð ásamt bíisk.
Góður garður. Öll þjónusta í næsta ná-
grenni. Verð 8,4 millj.
GNÍPUHEIÐI
Vorum að fá í sölu neðri sérh. Stór stofa.
Gott eldh. 3 Svefnherb. Þvherb. í íbúð. Bíl-
skúrsréttur. Verð 9,7 millj. Áhv. 6,3 millj.
EFSTASUND
Ca 80 fm sérh. I tvlbhúsi m. 30 fm bílsk.
Góður garður. íb. g hús í topp ástandi. Áhv.
ca 5,7 millj. Verð 9,2 millj.
4ra - 6 herb.
SELJABRAUT - NÝ
Vorum að fá I sölu ca 102 fm 4ra herb.
íbúð á 2. hæð ð stæði I bílag. Góð íbúð.
Hentar vel fjölskyldufólki. Verð 7,4 millj.
Áhv. 1,7 millj.
LJÓSHEIMAR
Vorum að fá I sölu góða 3ja - 4ra herb. íb.
4. hæð. Lyfta í úsinu. Skipti á minna kem-
ur til greina. Verð 6,8 millj.
AUSTURSTRÖND
Vorum að fá í sölu góða 103 fm ib.á 4. hæð.
Tvennar valir. Bílgeymsla, þvherb. á hæð.
Öll þjónusta við dyrnar. Skóli, sundl., ban-
ki, Hagkaup og Bónus. Verð 8,5 millj.
EYJABAKKI
Vorum að fá í sölu góða 4ra herb. íb.með
aukaherb., í kj., ameign nýl. tekin í gegn.
Nýtt gler. Þvherb. í íb. Verð 7,5 millj.
DÚFNAHÓLAR
Vorum að fá 103 fm 4ra til 5 herb. á 6. hæð.
Húsið nýlega einangrað og klætt. Gott út-
sýni. Sameign í góðu ástandi. Verð 7,5
millj.
KLEPPSVEGUR
Góð 4ra herb. íbúð á 4. hæð með miklu
útsýni. Auka herb. í risi. Parket á gólfum.
Laus strax. Verð 6,2 millj.
VANTAR
3-4 herb. ibúð á 1. eða 2. hæð í
Laugarnes eða Háaleitishverfi
fyrir kaupanda sem þegar hefur
selt sina eign. Verðhugmynd
6,5 - 7,5 millj.
GRENSÁSVEGUR - NÝ
Vorum að fá i sölu mikið endurn. 3ja herb.
íb. á . hæð m. miklu útsýni. Vel staðsett
íbúð. Verð 6,5 millj. Áhv. 3,0 millj.
NJÁLSGATA - NÝ
Vorum að fá í sölu 3ja-4ra herb.íb. ca 53 fm
miðsvæöis höfuðborginni. ibúðin býður upp
á mikla möguleika. Áhv. 3,2 millj. Verð
6,2 millj.
ASPARFELL
Vorum að tá í sölu 90 fm Ibúð á 7. hæð með
miklu útsýni. búðin er í góðu standi og hen-
ni fylgir bílskúr. Verð 6,2 millj. Áhv. 1,4 millj.
DRÁPUHLÍÐ - NÝ
Vorum að fá i sölu bjarta og rúmgóða 3ja
herb. kjíb. ca 7 fm með góðum garði. Góð
eign á einum besta stað í bænum. Verð 5,3
millj. Laus strax.
ÁLAGRANDI
Falleg ca 72 fm endaibúð á 3. hæð.Laus
1. júní. Suðvestur svalir. Parket óg flísar á
gólfum. Verð 6,2 millj
ENGIHLÍÐ
Vorum að fá í sölu á jarðh. snotra 60 fm
2ja herb. íb. m. sérinngangi. Góðir mögul.
Verð 4,5 millj. Áhv. 1,4 millj.
RAUÐÁS
Björt og falleg ca 64 fm kjíb. Bað ný stand-
sett. Gott útsýni. erð 5,2 millj. Áhv. 3,0
millj.
LANDSBYGGÐIN
KAMBAHRAUN - HVERAG.
Einb. ca 143 fm á einni hæð ásamt tvöf. bíl-
sk. Fallegur garðskáli. Góður garður.
Mögul. skipti á eign í Rvík. Verð 9,8 millj.
Netfang:
kjr@centrum.is
LÆGRIVEXTIR LÉTTA if
FASTEIGNAKAUP Félag Fasteignasala
Nútímaleg
svefnaðstaða
ÞETTA finnst belgíska arkitekt-
inum Jo Crepain heppileg svefn-
aðstaða fyrir nútímamanninn.
Sjónvarpið er í þægilegri hæð
og lýsingin góð. Ekki spilla rúm-
fötin ímyndinni.
Gluggi yfir
baðinu
ÞAÐ getur verið skemmtilegt að
hafa glugga yfir baðinu, einkum
ef gott er veður og umhverfið
þannig að óhætt sé að hafa
gluggann opinn.