Morgunblaðið - 25.07.1996, Page 1
fNmrjptnlifafcito
C
1996
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ
BLAD
OLYMPIULEIKAR I ATLANTA
FIMLEIKASTÚLKAN
Kerri Strug varð þjóð-
hetja í heimalandi
sínu, Bandaríkjunum,
eftir að hún tryggði
þjóð sinni fyrstu gull-
verðlaunin I liða-
keppni í fimleikum
með því að stökkva __
lokastökkið meidd. í
Iendingunni ökkla-
brotnaði hún. „Algóð-
ur Guð, vertu með mér
og aðstoðaðu mig að
þessu sinni,“ sagðist
hún hafa mælt fyrir
munni sér áður en hún
lagði af stað.
„Frammistaða
hennar er kraftaverki
líkast,“ sagði Bill Clin-
ton, forseti Bandaríkj-
anna, um frammistöðu
hennar. Faðir hennar
var í sjöunda himni
vegna frammistöðu
dóttur sinnar og sagði
hana vera þjóðhetju.
„Hún tók hagsmuni
liðsins fram yfir sína
eigin.“
■ Létslag ...C7
Reuter
Manchester United
vill krækja í
Jordi Cruyff
ENSKU meistararnir í knattspyrnu, Manchester
United, munu vera á höttunum á eftir hollenska
landsliðsmanninum Jordi Cruyff, syni hins góð-
kunna Johans, eftir því sem fregnir frá Eng-
landi herma. Knattspymustjóri United, Alex
Ferguson, flaug á þriðjudag til Spánar til við-
ræðna við forráðamenn Barcelona og talið er
að meistararnir séu tilbúnir að reiða fram um
150 miiyónir íslenskra króna fyrir Cruyff en
flestir hallast að því að kappinn, sem aðeins er
21 árs gamall, hafi þó nokkurn áhuga á að flytja
sig frá Barcelona i kjölfar brottreksturs karls
föður hans frá félaginu í lok síðasta keppnis-
tímabils.
Guðrún með 12.
besta tímann í 400
m grindahlaupi
GUÐRÚN Arnardóttir, sem keppir í 400 metra
grindahlaupi á Ólympíuleikunum, er skráð til
keppni með 12. besta tíma þeirra sem verða
með. Hún hljóp á 54,93 sek. í vor, sem var langb-
esti tími sem hún hafði náð og verði allt með
felldu hjá Guðrúnu á hún mjög góða möguleika
á að komast í undanúrslitin.
Kim Batten, heimsmethafi frá Bandaríkjun-
um, er skráð með besta tímann í grindahlaupið
— 52,61 sek., sem er heimsmet hennar frá þvi
á HM í Gautaborg í fyrra. Næst kemur landa
hennar, T. Buford-Bai, með 52,62 og þriðja
Deon Hemmings frá Jamaika með 53,48. Fleiri
hafa ekki hlaupið undir 54 sekúndna markinu.
Sanda Farmer-Patrick er á 54,07 og síðan koma
nokkrar í hnapp — þar á meðal Sally Gunnell,
fyrrum heimsmethafi frá Bretlandi, með 54,65.
Gunneil hefur verið meidd og keppti ekkert í
fyrra en er sögð á uppleið og fróðlegt verður
að sjá hvernig henni gengur. Hún setti heims-
met á HM í Stuttgart 1993 — h[jóp þá á 52,74
sek. og það var ekki fyrr en í fyrra að Batten
bætti það met.
Scott Miller setti
ólympíumet í 100 m
flugsundi
SCOTT Miller frá Ástralíu setti ólympíumet í
100 metra flugsundi þegar hann synti vegalengd-
ina á 52,89 í riðlakeppninni í gær. Anthony
Nesty frá Surinam átti fyrra metið, 53,00 fráþví
í Seoul 1988.
Rússinn Denis Pankratov, sem á heimsmetið,
52,32 frá því í ágúst í fyrra, fór á 52,96. Hann
synti án sundhettunnar sem hann er ávallt með
í úrslitasundum en millitiminn var innan heims-
metsins. Miller og Pankratov eru þeir einu sem
hafa synt 100 metra flugsund á innan við 53
sekúndum síðan Bandaríkjamaðurinn Pablo
Morales fór vegalengdina á 52,841986. Rafal
Szukala frá Póllandi, sem sigraði á HM og var
í öðru sæti á eftir Morales á Olympíuleikunum
í Barcelona 1992, fór á 53,41 og var í fimmta
sæti í riðlakeppninni.
Ivanisevic
er úr leik
KNATTSPYRNA
Blóðtaka hjá KR-ingum
Guðmundur Benediktsson úr leik
EINN allra besti tennismaður
heims, Króatinn Coran Ivan-
isevic, féll í gær úr leik í tennis-
keppni á Ólympíuleikunum er
hann varð að lúta í lægra haldi
fyrir óþekktum S-Afríkumanni,
Marcos Ondroska, í fyrstu um-
ferð. Öllum að óvörum hafði
Króatinn ekkert í Androska að
gera sem bar sigur úr býtum í
tveimur settum, 6-2,6-4. Fyrir
leikanna var Ivanisevic skráður
annar sterkasti tennismaðurinn
á leikunum í karlaflokki.
Markahæsti leikmaður 1. deildar
karla í knattspyrnu, KR-ing-
urinn Guðmundur Benediktsson,
meiddist illa á hné í leiknum gegn
Skagamönnum á dögunum og það
þykir nú ljóst orðið að Guðmundur
mun verða frá keppni í nokkurn tíma.
Þetta er gríðarleg blóðtaka fyrir
Vesturbæjarliðið, sem um þessar
mundir trónir á toppi deildarinnar,
því Guðmundur hefur verið iðinn við
kolann það sem af er sumri og þegar
gert níu mörk í jafn mörgum leikjum.
„Þetta er rosalega svekkjandi og
mér líður allt annað en vel þessa
dagana. Ég veit í rauninni ekki hvað
gerðist annað en það að hnéð gaf
sig þegar ég ætlaði að vippa yfir
Þórð [Þórðarson í marki Skaga-
manna] og ég einfaldlega bara lak
niður. Ég á að fara í speglun á þriðju-
daginn og það kemur í ljós þá hvort
þetta er liðþófinn eða eitthvað ann-
að, en hvað sem hefur gefíð sig þá
hugsa ég að ég verði ekki með aftur
fyrr en í fyrsta lagi í byrjun septem-
ber. Það þýðir þó ekkert annað en
að vera bjartsýnn og það kemur von-
andi maður í manns stað. Nú fer
Ási [Ásmundur Haraldsson] bara að
skora, hann skuldar okkur nokkur
mörk,“ sagði Guðmundur í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Það er því nokkuð öruggt að þessi
snjalli sóknarmaður mun að minnsta
kosti missa af næstu átta eða níu
leikjum KR-inga og einnig Evrópu-
leikjunum tveimur gegn hvít-rúss-
neska liðinu Mozyr, undanúrslita-
leiknum gegn ÍBV á sunnudaginn
og úrslitaleiknum sjálfum komist
bikarmeistararnir alla leið.
KNATTSPYRNA: SKAGAMENN ÁFRAM í UEFA-KEPPNINNI / C12