Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 12
12 C ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Á heilum
vagni heim
Smiðjan
Það vantar mikið, þegar ekki eru til stað-
ar stikur á vegbrúnum og engin strik á
—...........................^-----
vegum úti á landi, segir Bjarni Olafs-
son, sem hér fjallar um gildi vegmerkja.
Íloftinu liggur eftirvænting og
gleði blandin óþreyju. Sumar-
ferðin er að hefjast og nú er um
að gera að komast af stað.
Allmiklum farangri hefur verið
pakkað, nesti tekið með og nú er
bara eftir að gæta að því að ekki
sé straumur á eldavélinni eða öðru
tæki og hvort lokað sé fyrir vatns-
krana áður en húsinu er læst. Sum-
ir hafa fyrir fasta venju að fara
með stutta ferðabæn þegar lagt er
af stað í ferðalag. Það er góður
siður sem getur hjálpað huganum
að komast í jafnvægi eftir undir-
búninginn og gott er að vera guði
falinn á ferð sinni.
Hugarró ogjafnvægi er áríðandi
að fylgi sérhveijum bíl á vegunum.
Það er raunverulega eins nauðsyn-
Iegt og að nota stjórntæki bílanna,
stýri, hemla og önnur stjórntæki.
Hvernig gekk þér?
Mikil breyting er orðin á vegum,
þar sem þeir hafa verið klæddir
bundnu slitlagi. Það finnst best
þegar slíka vegkafla þrýtur svo bif-
reiðin tekur að hristast og hoppa á
holóttum og grófum malarvegi. Þá
er ekki um annað að velja en að
draga úr ökuhraða svo hann hæfi
þeim vegi sem ekið er eftir og þarf
þá stundum að fara löturhægt.
Segja má að það sé undur hvern-
ig íslenskir ökumenn gátu komist
Ieiðar sinnar áður, þegar ekki
þekktust upphækkaðir vegir með
bundinni klæðningu.
Þakkarvert er hvernig gengið er
frá vegum t.d. með jöfnum fláa er
hallar frá akbrautinni. Hvernig veg-
ir eru strikaðir, bæði jaðarlína á
báðum brúnum akbrautarinnar og
svo miðjulínur, ýmist heilar eða
brotnar línur.
Stikurnar með endurskinsmerkj-
unum við vegkantana eru einnig
afar hjálplegar og fínnum við það
best í dimmviðri, snjókomu eða
þoku. Ég heyrði fyrir löngu haft
eftir merkiskonu að hún nefndi stik-
urnar „englafingur" er hún hafði
ekið yfir heiði í slæmu skyggni og
dásamaði hve gott væri að hafa
stikurnar við vegkantinn.
Vegamerki
Fleiri merki má sjá við vegabrún-
imar en þessar ágætu stikur sem
nefndar voru hér á undan. A ég þá
við aðvörunarmerki ýmiss konar.
Þar má nefna merki er vara við
blindhæðum, hættulegum beygjum,
merki er gefa upp hámarkshraða á
hveiju svæði fyrir sig, hvar ekki
má aka fram úr öðmm bíl o.s.frv.
Einnig eru víða merki er vara við
steinkasti frá hjólum bílanna vegna
lagningar olíumalar á vegi. Þessi
merki em öll afar gagnleg þeim sem
hafa tamið sér að veita slíkum hjálp-
armerkjum athygli og gefa sér tíma
til að fara eftir þeim. Ný gerð merkja
er komin mjög víða á vegi. Það eru
merki sem vara ökumenn við ef
þeir nálgast brú sem er einbreið.
Það er mörgum kunnugt að
hræðileg slys hafa orðið við það
að tveir bílar mætast á allmikilli
ferð á brú sem er of mjó til þess
að hægt sé að víkja til hliðar. Því-
líkum árekstrum hefur fjölgað að
miklum mun á síðari árum. Akst-
urshraði hefur aukist töluvert á
vegunum eftir að lögð hefur verið
á þá olíumöl. Það er líkast því að
menn gleymi hreinlega að nota
hemla bílsins og fótur þeirra sé
fastur við inngjafarfótstigið.
Aðvörunarmerki við einbreiðar
brýr eru til mikilla bóta og hljóta
að draga úr slysatíðni á brúm.
Gildi merkja
Þegar merkin vantar getur svo
farið að maður skynji betur hve
nauðsynleg þau eru okkur við akst-
urinn. Ég átti leið suður yfir Holta-
vörðuheiði í myrkri og rigningu
föstudagskvöldið 30. ágúst sl. Það
er vægt til orða tekið er ég segi
að sá kafli ferðar minnar hafí verið
vandfarinn og erfiður!! Hver var
ástæðan? Auðvitað fyrst og fremst
myrkrið og veðráttan.
Þannig stóð á að unnið hafði
verið að því að leggja olíumöl á all
langan vegarkafla á heiðinni. Verk-
inu var ekki lokið og stikurnar, strik
og önnur merki vantaði.
Umferð norður yfir Holtavörðu-
heiði var ótrúlega mikil. Meðal ann-
ars voru þar á ferðinni íjölmargir
jeppar á háum og belgmiklum hjól-
börðum.
Ökuljós þeirra sitja svo hátt,
vegna hinna háu hjólbarða, að geisl-
arnir lýsa bókstaflega yfir litla bíla
sem koma úr gagnstæðri átt. Þessu
er öðruvísi farið með stóra vöru-
flutningabíla og hópferðabíla, þar
ÖKUMENN sem ekki vita
hvar hjólin á bílum þeirra fara
á vegum og götum eru hættu-
legir öðrum vegfarendum.
eru ljósin öðruvísi staðsett og stillt.
Við slæm akstursskilyrði þetta
kvöld varð ég hvað eftir annað að
stöðva bíl minn á vegbrún. Ástæða
þess var að á móti mér kom alltof
breiður bíll með ljósgeisla er blind-
uðu ökumenn bíla er á móti þeim
komu.
Með mér vöknuðu spurningar um
lög og reglugerðir um breidd bíla á
vegum og um breytingar á bílum.
Hversvegna þurfum við að eiga von
á að mæta jöklabifreiðum inni í
bæjum eða hvar sem er og hvenær
sem er? Hversvegna er mönnum
heimilt að breyta bílunum svo mik-
ið að þeir breikki um allt að hálfum
metra? Eða að hækka bílana um
40-50 sm. án þess að vera gert að
færa ljóskerin neðar á bílnum?
Reglur um þessi atriði voru mjög
ströng áður fyrr. Sennilega mætti
ég þarna mörgum áhugasömum
gæsaskyttum á leið til veiða á föstu-
dagskvöldi, eða jöklaförum.
Eg fann fyrir því hve mikið vant-
ar þegar ekki eru stikur á vegbrún-
um og engin strik heldur. Það er
áríðandi að gerðar séu breytingar
á ljósabúnaði margra bíla og mæld
breidd þeirra vegna þess að vinstri
hjól þeirra eru oft öfugu megin við
miðlínu vegarins er þeir mæta öðr-
um bílum.
Umhverfisviðurkenningar
á Seltjarnarnesi
NÝLEGA voru veittar viður-
kenningar fyrir snyrtilegt um-
hverfi á Seltjarnarnesi. Að sögn
Sigurgeirs Sigurðssonar bæjar-
stjóra var í ár ákveðið að veita
viðurkenningar fyrir sérstök
verkefni sem lúta að fegrun um-
hverfis og götumyndar bæjarins.
Eiðismýri var valin fegursta
gatan í ár. „Hún er í nýju hverfi
og er orðin mjög heilsteypt,“ sagði
Sigurgeir. „Fólk hefur gengið vel
frá kringum húsin sín og gatan
er öll orðin mjög snyrtileg. Nú
tökum við fyrir heillegri svæði og
veitum þeim viðurkenningu, en
áður var meira um að einstökum
görðum væri veitt viðurkenning.
Þetta er breytt stefna, a.m.k. á
næstunni. Við viljum reyna með
þessu að skapa metnað og sam-
heldni í hverfunum.
Húsið Grænamýri við Nesveg
fékk viðurkenningu. „Þar þótti
vel til takast að gera upp gamalt
hús,“ sagði Sigurgeir. „Þetta hús
var nýlega endurnýjað mjög
smekklega og án þess að breyta
arkitektúr og „karakter" hússins.
Grænamýri og Tjarnarmýri fengu
sérstaka viðurkenningu fyrir
grenndarsvæði F sem er sameig-
inlegur garður og leiksvæði íbúa.“
HÚSIÐ Grænamýri við Nesveg fékk viðurkenningu. Þetta hús
var nýlega endurnýjað mjög smekklega og án þess að arkitektúr
og „karakter" hússins væri breytt.
Bensínstöðin við Suðurströnd
fékk og viðurkenningu. „Hún
fékk viðurkenningu fyrir að vera
ávallt hrein og þokkaleg hvenær
sem að henni er komið og við
metum það mikils ef atvinnufyrir-
tæki ganga þannig frá í kringum
sig,“ sagði. Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri að lokum.
GRÆNAMÝRI og Tjarnarmýri fengu sérstaka viðurkenningu fyr-
ir grenndarsvæði F sem er sameiginlegur garður og leiksvæði íbúa.
BENSÍNSTÖÐIN við Suðurströnd fékk sérstaka viðurkenningu
fyrir umhverfi sitt.