Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 1
IRIPIUM
Símkerfi á braut
um jörðu/6
HÚSAVÍK
Matarbúrið fyrir
norðan /8
FLUTWIWCAR
Bílar gegn strand-
siglingum/11
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 BLAÐ
Isfélag
Fjölmargar beiðnir höfðu borist í
gær til Þróunarsjóðs sjávarútvegs
frá hluthöfum Búlandstinds hf. og
Meitilsins hf. um að nýta forkaups-
rétt að hlutabréfum sjóðsins í
þessum fyrirtækjum. Er því ljóst
að tilboð Isfélags Vestmannaeyja
hf. í bréfin nær ekki fram að
ganga.
Skandia
Skandia hf. hefur á fimm ára tíma-
bili fengið alls 821 milljón króna
frá móðurfélagi sínu í Svíþjóð,
samkvæmt nýrri Vísbendingu. Þar
segir m.a. að óvíst sé hvert þrek
erlendra eigenda FIB-tryggingar
verði til stuðnings við félagið. Er
vitnað til ummæla forráðamanna
Skandia árið 1994 um að ólíklegt
sé að hægt sé að setja á stofn hér
vátryggingafélag „upp úr engu“.
Hlutabréf
Þingvísitala hlutabréfa hefur
heldur áfram að hækka. í gær
nam hækkunin 0,25% sem rekja
má til hækkana á gengi hlutabréfa
í allmörgum félögum, þ.á.m. í
Skinnaiðnaði, Skagstrendingi,
Eimskip og Vinnslustöðinni. Hef-
ur vísitalan nú hækkað um 57,46%
frá áramótum.
SÖLUGENGI DOLLARS
Launavísitala 1994-1996
16,8%
Umreiknaðtil
0 árshækkunar m,
hækkun
Síðustu 3 mán. og
10% siðustu 12 mán
kunarm.v.
i vísitölunnar:
■5%
Des. 1988=100 ________________
-i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—V—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—
J FMAMJ J Á S 0 N D|J FMAMJ JÁ SOND
1994 1995
-i-1- .
JFMAMJJÁS
1996
_______________________
is% Vísitala neysluverðs 1994-1996
10%
JFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁSONOJFMAMJJÁS
1994 1995 1996
75%|Vísitala byggingarkostnaðar —
1994-1996
Jöfn og stöðug fjölgun tryggingafélaga
með leyfi til að starfa hér á landi
Um 60 erlend
tryggingafélög
með starfsleyfi
UM sextíu erlend tryggingarfélög
hafa fengið starfsleyfi hér á landi á
síðustu tveimur árum eða frá miðju
ári 1994 þegar tilskipanir um aukið
frelsi í tryggingarmálum gengu í
gildi innan Evrópusambandsins og
á evrópska efnahagssvæðinu. Fjölg-
unin hefur verið nokkuð jöfn og
stöðug allt tímabilið og ekki er út-
lit fyrir annað en að framhaldið
verði með sama hætti á næstu miss-
erum, samkvæmt upplýsingum Vá-
tryggingaeftirlitsins. Einungis inn-
an við tíu erlend tryggingarfélög
hafa hins vegar tekið upp virka
starfsemi hér á landi og starfa þau
fyrst og fremst á sviði líftrygginga,
fyrirtækjatrygginga og ökutækja-
trygginga.
Með þeim breytingum sem gerðar
voru á reglum um vátrygginga-
starfsemi innan Evrópusambands-
ins og á evrópska efnahagssvæðinu
og tóku gildi um mitt ár 1994 var
einfaldað mjög það sem til þurfti
til þess að hefja vátryggingastarf-
semi í öðru landi en heimalandi.
Samkvæmt upplýsingum Helga
Þórssonar, deildarstjóra hjá Vá-
tryggingareftirlitinu, þarf að til-
kynna með lögformlegum hætti í
heimalandinu að félagið hyggist
hefja tryggingastarfsemi í öðru
landi. Það er síðan í höndum vá-
tryggingaeftirlits í heimalandi
tryggingafélagsins að fullvissa sig
um að tryggingafélagið sé hæft til
að starfa á viðkomandi markaði.
Þannig veitir Vátryggingaeftirlitið
hér á landi ekki umsagnir um þau
erlendu tiyggingafélög sem hér fá
starfsleyfi heldur vátryggingaeftirlit
í viðkomandi löndum. Hins vegar
upplýsir Vátryggingaeftirlitið er-
lendu félögin um lögboðnar trygg-
ingar, gjöld sem skylt er að inn-
heimta og þess háttar.
Búið í haginn
Helgi sagði að mörg erlend tiygg-
ingarfélög virtust fremur vera að
afla sér starfsleyfís hér á landi forms-
ins vegna en að þau ætluðu að hefja
hér starfsemi. Þau væru að opna sér
öll landamæri og búa þannig í haginn
fyrir sig í framtíðinni. Þetta væri
heldur ekki mikið miðað við það sem
væri í öðrum löndum, því í stærri
Evrópulöndum skiptu erlend trygg-
ingarfélög hundruðum:
Helgi sagði að þau félög sem
hefðu tilkynnt sig hér á landi væru
af öllum stærðum og gerðum. Sum
þeirra væru mjög sérhæfð og störf-
uðu einungis á þröngum trygginga-
sviðum en önnur væru í flestum
tryggingagreinum. Fyrst til að til-
kynna sig hér á landi eftir breyting-
una hefðu verið bresk tryggingarfé-
lög, sem hefðu verið með einhveija
starfsemi hér áður og þekktu til frá
gamalli tíð. Nú væri svo komið að
tryggingarfélög í flestum Evrópu-
löndum hefðu tilkynnt sig hér. Það
gilti um öll Norðurlöndin, Þýskaland,
Frakkland, Austurríki, Irland, Hol-
land, Belgíu, Lúxemborg og Bret-
land eins og áður sagði, en Miðjarð-
arhafslöndin væru ekki í þessum
hópi.
1
Nafnávöxtun sl. 10 daga 6,74%
Nafnávöxtun sl. 1 mán. 5,65%
Nafnávöxtun sl. 2 mán. 5,38%
Nafnávöxtun sl. 3 mán. 5,47%
Peningabréf
- nýr skammtímaverðbréfasjóður
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði,
sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Sjóðurinn fjárfestir einungis í traustustu tegundum
verðbréfa á markaðnum, einkum skammtímaverðbréfum ríkissjóðs og bankastofnana.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupunum.
Hvenær sem er eftir það er hægt að leysa bréfin út samdægurs með einu símtali.
y LANDSBRÉF HF.
M. — -
if
Hringdu eða komdu... og nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar
í öllum útibúum Landsbanka íslands.
Löggilt verðbréfafyrirtæki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
$ U 0 URLANOSBRAU T s . 10 8 fttYKJAVÍK, S 1 IVI 1 5 8 8 9 2 0 0. B R t \ A S 1 M 1 5 H H 8598
mm