Morgunblaðið - 01.10.1996, Side 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 1. október 1996
Blað C
Líflegur
markaður
FASTEIGNAMARKAÐURINN
hefur verið líflegur að undan-
förnu, segir Grétar J. Guð-
mundsson í þættinum Markað-
urinn. En vaxtahækkun Seðla-
bankans eykur afföll af hús-
bréfum, sem dregur úr sölu,
þegar fram í sækir. / 2 ►
Timbur-
kirkjur
TIMBUR er valið sem bygging-
arefni í kirkjur m. a. vegna
þess, að kirkjugripir varð-
veitast betur í þeim en í stein-
kirkjum, segir Bjarni Ólafsson
í þættinum Smiðjan, sem fjall-
ar um Viðvíkurkirkju í Skaga-
firði. / 6 ►
Ú T T E K T
Víkur-
hverfi
NU eru húsin tekin að
rísa hvert af öðru í Vík-
urhverfi vestan Korp-
úlfsstaða og íbúamir þegar
fluttir inn í nokkrar af íbúðun-
um í fyrsta fjölbýlishúsinu. I
viðtalsgrein við Stefán Gunn-
arsson, framkvæmdasljóra
byggingafyrirtækisins Hús-
virki, sem byggir húsið, er
fjallað um þessar íbúðir.
Húsið stendur við Breiðuvík
20-24, en í því er 21 íbúð og
eru ellefu þeirra þegar seldar.
íbúðirnar eru ýmist 3ja eða
4ra herbergja og eru seldar
fullbúnar og með gólfefnum.
Verðið verður að teljast mjög
hagstætt.
Húsið er einangrað að inn-
an á hefðbundinn hátt og múr-
húðað að utan og íbúðunum er
skilað máluðum og fullfrá-
gengnum að utan, en gluggar
úr timbri og málaðir. Þak
verður klætt lituðu þakstáli.
Að sögn Sigrúnar Þor-
grímsdóttur, sölumanns hjá
fasteignasölunni Húsakaupum,
þar sem íbúðirnar eru til sölu,
hefur verð á nýjum íbúðum
lækkað töluvert og verðmun-
urinn á nýjum og notuðum
íbúðum er orðinn það lítill, að
fólk leitar frekar í nýjar íbúðir
nema þeir, sem eru tengdir
ákveðnum svæðum.
— Sala á nýjum íbúðum
hefur gengið vel að undan-
förnu, bæði í Víkurhverfi sem
annars staðar, segir Sigrún. —
Uppbygging Víkurhverfis
gengur hratt og það verður
ekki langt þangað til fólk flyt-
ur inn í fieiri hús á því svæði
og skólar og verzianir verða
teknar í notkun. / 18 ►
Húsbréfaútgáfan
í ár nú um 9
milljarðar
HEILDARÚTLÁN Húsnæðis-
stofnunar ríkisins námu 183,7 miUj-
örðum kr. um síðustu áramót og á síð-
asta ári námu lánveitingar hennar til
húsnæðismála rúml. 16,5 milljörðum
kr. Kom þetta fram á ársfundi Hús-
næðisstofnunarinnar í síðustu viku,
þar sem Sigurður E. Guðmundsson,
forstjóri stofnunarinnar, gerði grein
fyrir rekstri hennar á árinu 1995.
Húsbréfalán námu nær 12,4 miilj-
örðum kr. í fyrra, sem skiptust á 1.436
íbúðir í smíðum og 3.646 notaðai- íbúð-
h’. Úr Byggingarsjóði verkamanna
voru veitt peningalán að fjárhæð
rúml. 3,6 milljarðar kr. og úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins lán að fjárhæð 62
miljj. kr.
Á þessu ári hefur Húsnæðisstofn-
unin heimild til þess að gefa út hús-
bréf fyrir 13,5 milljarða kr. og nú í
septemberlok hafði hún gefíð út hús-
bréf fyrir um 9 milljarða kr.
Líklegt er, að góðærið nú muni
leiða til aukninna húsbygginga og
íbúðakaupa, sem síðan kemur fram í
aukinni eftirspurn efth- húsbréfalán-
um. Nýlegar aðgerðir Seðlabankans
gegn aukinni þenslu í þjóðfélaginu
kunna þó að hamla eitthvað gegn
þeh’ri þróun.
Það sem af er þessu ári hefur um-
sóknum um húsbréfalán fjölgað um
15-20%. Afgreiðslutími húsbréfa er
um þessar mundir aðeins fjórir dagar
og hefur því enn stytzt.
Þetta á rót sína að rekj a til breyttra
starfshátta húsbréfadeildar, sem fyn-
á þessu ári ákvað að grandskoða ekki
lengur hvert einasta greiðslumat, sem
henni berst frá bönkum og sparisjóð-
um, heldur líta svo á, að þau séu full-
unnin og þeim megi treysta í hvívetna.
í athugun er nú að taka upp veit-
ingu húsbréfalána tii byggingar á
leiguíbúðum, utan við félagsíbúða-
kerfið, sem yrðu til leigu á almennum
markaði.
Húsbréfadeild
1991 1992 1993 1994 1995
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS:
Fjöldi íbúða
sem lán var
veitt til
Byggingarsjóður
verkamanna
Kostir Fasteignalána Skandia
Lánstimi allt aö 25 ár.
Hagstæð vaxtakjör.
Minni greiðslubyrði.
Stuttur svartími á umsókn.
Dæmi um inánaðaitegar afborganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Skandia*
\i‘\tír<%) lOár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk verðbóta
IgtJiSkandia
LAUQAVEGI 170 • SlMI E5AO C5Q BO • FAX 540 30 01
VILTU SKULDBREYTA
EÐA STÆKKA \/lÐ ÞIC3?
Byggðu á Fasteignaláni Skandia