Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Bjarki Sigurðsson yfir 400 marka múrinn
með landsliðinu
Leikir
1987
1988133
1989 [22
1990Í35
1991
1992L21
1993 [~Í4
1994Q
1995 [j9
1996 flö
© TÍMAMÓTAMÖRK
1. Bandarikin 1987 Georgia 26:20]
100. Bandaríkin 1989 Seltj.nes 27:15 ]
200. Rússland 1991 Húsavík 26:31
300. Tékkóslóvakía 1993 Stokkhólmur 21:22 I
400. Danmörk 1996 Reykjavík 27:21
Þeir hafa skorað flest mörk með landsliðinu
Kristján Arason 1.089
Sigurður V. Sveinsson 730
Valdimar Grímsson 660
Júlíus Jónasson 628
Þorgils Óttar Mathiesen S67
Alfreð Gíslason 542
Geir Hallsteinsson 531
Sigurður Gunnarsson 489
Geir Sveinsson 420
Bjarki Sigurðsson 406
■ GEIR Sveinsson fyrirliði íslenska
landsliðsins, táraðist þegar hann varð
vitni að hinum mikla stuðningi ís-
lensku áhorfendanna er hann gekk
fyrir liði sínu inn á völlinn í Alaborg.
■ „ÉG átti verulega erfítt með mig
og vissi ekki fyrr en tárin fóru að
renna niður kinnarnar. Ég hef aldrei
áður upplifað aðrar eins móttökur
og það á útivelli,“ sagði Geir.
■ ÞRÍR fyrrum landsliðsmenn ís-
lands í handknattleik fóru í hópferð
ásamt á annað huhdrað landa sinna
að morgni sunnudags til að styðja
við bakið á landsliðinu í Alaborg.
Þetta voru þeir Guðmundur Guð-
mundsson, Páll Ólafsson og Sig-
urður Sveinsson.
■ ÞORBJÖRN Jensson er með
samning við HSÍ sem landsliðsþjálf-
ari fram til 1. júní á næsta ári en
þá lýkur HM í Kumamoto.
■ BORIS Bjarni Abkachev, að-
stoðarlandsliðsþjálfari, er einnig með
samning til 1. júní.
■ DREGIÐ verður í riðla á HM
síðar í þessum mánuði. „Um leið og
ég veit hveijir andstæðingar okkar
verða fer ég að afla mér allra upplýs-
inga um þá,“ sagði Þorbjörn. „Það
er því eins gott að hafa snör handtök
því tíminn fram að keppni er stutt-
ur,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
■ DÖNSKU sjónvarpsmennimir
sögðu í útsendingu sinni að engu
væri líkara en íslenska liðið væri á
heimavelli svo öflugir væri hinir 800
íslendingar sem hvettu liðið til dáða.
Dagblaðið B.T. tók undir þessi orð í
frásögn af leiknum á síðum sínum í
gær.
■ CLAUS Jacob Jenssen stór-
skytta Dana sagði í viðtali við B.T.
í gær að hann skilji ekki hvernig lið-
ið hafi farið að því að tapa tvisvar
fyrir íslendingum. „íslenska liðið
lék ágætlega en við eigum samt að
vinna það. Líklega hefðum við sigrað
ef við kynnum að sýna þolinmæði,"
sagði Jensen.
■ OLE Ravn blaðamaður B.T var
ekkert að vanda danska liðinu og
þjálfaranum kveðjumar í gær. „I
þriðja sinn mistekst Ulf Schevert
og hvolpunum hans að komast í hóp
hinna bestu. Schevert hefur búið til
taplið sem kann bara að sigra í leikj-
um sem engu máli skipta.
■ / SAMA dagblaði stóð í fyrir-
sögn; „Léku fyrir Guð, forsetann og
föðurlandið" og var þar átt við ís-
lenska liðið.
■ EXTRA-BLAÐIÐ segir að Geir
Sveinsson og samherjar hans í ís-
lenska liðinu hafi átt skilið að sigra
í leiknum. „Þeir brettu upp ermarn-
ar, fundu blóðbragðið og tapliðið
hans Scheverts varð þeim þessvegna
auðveld bráð.“
■ ULF Schevert landsliðsþjálfari
Dana er sænskur og að leikslokum
á sunnudag sagðist hann efast um
að leikmenn skildu sænsku-dönskuna
sem hann talar. „Eftir þennan leik
held ég að enginn vafi leiki á að ég
hef ekki notað rétta orðið fyrir þolin-
mæði og að enginn leikmanna minna
hefur skilið mig þegar ég bað þá um
að sýna þolinmæði er líða tók á leik-
inn.“
■ MORTEN Bjerre fékk rauða
spjaldið upp úr miðjum síðari hálfleik
fyrir brot á Konráð Olavssyni.
Dönsku blöðin í gær efuðust ekki
um réttmæti þeirrar ákvörðunar
dómaranna en sögðu hins vegar að
með brottrekstrinum hafi orðið
vatnaskil í leiknum og Danir ekki
átt sigurmöguleika eftir það.
GLEDI
Stemmningin fyrir leik íslend-
inga og Dana í Álaborg, í
leiknum og eftir hann, var lyginni
líkust. 150 stuðningsmenn ís-
lenska liðsins flugu gagngert frá
íslandi til að styðja við
bakið á „strákunum okk-
ar“ í baráttunni við Dani
í Álaborg. Stuðnings-
mennirnir hittu svo sann-
arlega ofjarla sma, þegar
þeir komu til Álaborgar.
Þeir hittu þar fyrir 650
íslendinga, sem eru búsettir og
við nám í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Göngugatan í miðbæ
Álaborgar á fullveldisdaginn var
sem Lækjargatan 17. júní.
Stemmningin var hreint ótrúleg.
Rútuferðir voru frá Kaupmanria-
höfn, Óðinsvé, Árósum og Hors-
ens, auk þess sem fjöldinn allur
kom á einkabifreiðum.
Stemmningin hófst á veitinga-
húsinu Over og under Uret í
miðbæ Álaborgar, þar sem ís-
lendingafélagið í Álaborg sá um
að mála menn í íslensku fánalit-
unum og einnig var dreift litlum
fánum. Upphitunin hófst klukk-
an eitt, tveimur og hálfum tíma
fyrir leikinn. Síðan var farið í
skrúðgöngu að íþróttahúsinu.
íslendingar stálu svo sannarlega
senunni í Álaborg og Danir gerðu
sér grein fyrir að íslendingar
„áttu húsið“ þegar leikurinn
hófst. „Hveijum datt í hug_ að
láta leikinn fara fram hér í Ála-
boig?“ spurði Ulf Schefvert,
landsliðsþjálfari Dana. Það var
ekki nema von að hann spyrði,
því að hvergi í Danmörku eru
Islendingar fleiri en á Norður-
Jótlandi.
„Strákarnir okkar“ héldu svo
sannarlega upp á fullveldisdag-
inn - nýtt tímabil er hafið hjá
landsliðinu, sem tekur þátt í HM
í Japan eftir sex mánuði. Þeir
slepptu ekki takinu sem þeir
hafa haft á Dönum. Þeir urðu
sterkari og sterkari eftir þvi sem
leið á leikinn og þegar Danir
fundu fyrir krafti íslensku leik-
mannanna og sáu að þeir réðu
ekkert við kvikuhlaupið sem
hafði myndast í herbúðum ís-
lendinga - kvikan kom upp á
yfirborðið þegar Dagur Sigurðs-
son skoraði 20:22 með glæsilegu
undirhandarskoti þegar þtjár
mín. voru til leiksloka. Það var
þá sem „eldgosið“ hófst á áhorf-
endapöllunum. 800 íslendingar
voru farnir að dansa og syngja
og sá dans barst síðan út á gólf-
ið eftir leikinn, þar sem landsliðs-
menn, þjálfari og aðstoðarmenn
stigu sannkallaðan stríðsdans.
Það var hreint ótrúlegt að sjá
þennan mikla og tryllta dans.
Það var svo sannariega við hæfí
að fyrstu danssporin á nýju tíma-
bili landsliðsins, væru tekin á
danskri grundu á fullveldisdegin-
umt 1. desember. Það voru stolt-
ir Islendingar sem dönsuðu -
áhorfendur þökkuðu leikmönnum
íslands fyrir spennandi leik og
leikmennimir þökkuðu áhorfend-
um fyrir ómetanlegan stuðning.
Eftir slæmt gengi í heims-
meistarakeppni á Íslandi, skuld-
uðu „strákamir okkar“ þjóðinni.
Þeir hafa heldur betur gert upp
þá skuld - bjóða þjóðinni upp á
„handboltafýllirí" í maí, beinar
næturútsendingar frá leikjum
þeirra á HM í Japan.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
800 íslendingar stigu
villtan og trylltan
stríðsdans í Alaborg
Hefurlandsliðsmaðurinn BJARKISIGURÐSSOIM alltafjafn gaman afhandbolta?
Stundum súrt
enoftarsætt
BJARKI Sigurðsson hornamaður átti mjög góðan leik á móti
Dönum á sunnudaginn og var markahæstur íslensku leikmann-
anna með fimm mörk. Bjarki er búinn að vera lengi í eldlín-
unni og hefur ávallt staðið sig vel. Þessi rólegi og yfirvegaði
leikmaður lætur ekki mikið yfir sér heldur lætur hann verkin
inni á vellinum tala. Hann er sannur íþróttamaður og fyrir-
mynd. Hann er nú kominn með yfir 400 mörk fyrir landsliðið
en lék fyrsta landsleikinn 1987, einmitt á móti Dönum.
Bjarki er upphaflega Víkingur
en spilar nú með Aftureldingu
í Mosfellsbæ. Þrátt fyrir að hafa
leikið marga lands-
Eftir leiki segir hann að
Val B. leikurinn gegn
Jónatansson Dönum sé einn sá
eftirminnilegasti á
ferlinum. „Ég er nú ekki viss um
hann sé sá besti sem ég hef spilað
en hann er líklega einn sá eftir-
minnilegasti. Við fengum frábæran
stuðning frá áhorfendum og það
virkaði sem áttundi maðurinn í lið-
inu og það gerði gæfumuninn. Við
trúðum því allan tímann að við
myndum vinna. Þetta var æðislegt."
Funduð þið fyrir miklum þrýst-
ingi á ykkur fyrir leikinn?
„Nei, það var enginn þrýstingur
á okkur, pressan var aðallega á
Dönum. Við vissum það fyrir leik-
inn að við þyrftum að vinna og lið-
ið veit það reyndar fyrir alla leiki.
Við vissum að ef við næðum að
halda þessu nokkuð jöfnu fram
eftir leik myndum við taka þá. Ég
var sannfærður um að við myndum
vinna frá því eftir miðjan fyrri
hálfleikinn.11
Nú eruð þið búnir að tryggja
ykkur farseðilinn á HM í Japan,
hvernig er sú tilfinning?
„Hún er frábær. Við erum
kannski ekki alveg búnir að átta
okkur á þessu ennþá. En þetta
þýðir bara eitt fyrir íslenskan hand-
bolta, að við erum komnir á efsta
pall aftur og nú eru bjartir tímar
framundan."
Nú ert þú kominn í 400 marka
klúbbinn hjá landsliðinu, er það
ekki ákveðinn áfangi?
„Jú, auðvitað er alltaf gaman
að skora og vera kominn með svona
mörg mörk fyrir landsliðið. Annars
hef ég ekki mikið hugsað um hve
mörg mörk ég hef skorað. Ég
hugsa fyrst og fremst um að spila
fyrir liðið og ná árangri, en það
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
BJARKI Sigurðsson hefur skorað 400 mörk með landsliðlnu.
er auðvitað ekki verra að skora
nokkur mörk.“
Er þessi leikur á móti Dönum
einn sá mikiivægasti og skemmti-
legasti sem þú hefur tekið þátt í?
„Hann er alltént mjög ofarlega
í huga mér á þessari stundu. Þetta
er skemmtilegasti leikur sem ég
hef leikið síðustu tvö til þijú ár.
B-keppnin í Frakklandi er mér allt-
af minnisstæð og er enn í fersku
minni. Við höfum í gegnum árin
upplifað margt skemmtilegt í hand-
boltanum. Það er með þetta eins
og margt annað að það er bæði
súrt og sætt í þessu. Ég neita því
ekki að þessi sigur er einn sá sæt-
asti.“
Nú ert þú búinn að vera í lands-
Iiðinu í 10 ár, áttu mörg ár eftir
enn í iandsliðinu?
„Það er auðvitað undir þjálfar-
anum komið, en hann hefur borið
traust til mín hingað til og ég ætla
ekki að bregðast því. Ég hef enn
mjög gaman af þessu og hef hug
á að komast til Japans með liðinu."
Það virðist eins og annað hugar-
far sé í liðinu núna en oft áður,
leikgleðin er til staðar. Hver er
skýringin á því?
„Það er annað hugarfar en var
til dæmis fyrir HM heima. Þá voru
menn yfirspenntir og kannski í
keppninni sjálfri líka. Núna er þetta
búið að vera mjög afslappað og ég
tala nú ekki um hér í Danmörku.
Það er frábær stemmning í liðinu
og leikmenn eru samstilltir í því
að standa saman í þessu verkefni.
Þetta er ein liðsheild og það er
enginn veikur hlekkur hjá okkur í
dag. Við förum áfram á baráttunni
og notum vöðvana ef með þarf.“