Morgunblaðið - 03.12.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 C 3
KNATTSPYRNA
Reuter
PATRICK Vieira og Paul Merson fagna 2:1 sigrlnum á Newcastle og efsta sætinu.
að hlið Arsenal
ÍÞiémR
FOLK
■ SVERRIR Sverrísson verður
leikmaður ÍBV á næsta tímabili
en hann hefur leikið með Leiftri
í Ólafsfirði. Gengið var frá samn-
ingum í gærkvöldi.
■ ARNAR Björnsson, íþrótta-
fréttamaður hjá RÚV var valinn
„KSÍ íþróttafréttamaður ársins"
af stjórn sambandsins og var til-
kynnt um það á ársþingi KSI um
helgina.
■ PSV keypti á sunnudaginn
rúmenska landsliðsmanninn Ovid-
iu Stinga frá spánska félaginu
Salamanca. Ekki var getið um
kaupverðið á hinum 24 ára gamla
miðvallarleikmanni.
■ ULF SCHEFVERT, landsliðs-
þjálfari Dana, sagði þegar hann
tók við þjálfun danska landsliðsins
1994 að hann setti stefnuna á
þriðja sætið á HM á íslandi og
síðan gullið á HM í Japan 1997.
Gengi liðsins á HM á Islandi var
ekki til að hrópa húrra fyrir enda
fór liðið heim strax eftir riðla-
keppnina. íslendingar sáu hins
vegar til þess á sunnudag að síð-
ara markmiðið næst ekki.
■ DÖNSKU blöðin fóru ekki
fögrum orðum um danska liðið í
gær, gáfu því ekki háa einkunn
og spurðust fyrir um stóru orðin
sem Schefvert hafði látið falla.
Danska Iiðið væri nú í myrkrinu
en Islendingar í sviðsljósinu.
■ FRANK Jörgensen lék síðasta
landsleik sinn fyrir Dani á sunnu-
dag. Hann ætlaði upphaflega að
vera með fram yfir HM í Japan
en þar sem Danir komast ekki
þangað ákvað hann að umræddur
leikur við íslendinga yrði sá síð-
asti. Jörgensen lék 212. landsleik
sinn á sunnudag, en hann er at-
vinnumaður hjá Teka Santander
á Spáni og rennur samningur
hans út í vor. Þá ætlar hann end-
anlega að leggja handboltaskóna
á hilluna.
Liverpool skaust upp að hlið
A.rsenal á toppi ensku úrvals-
deildarinnar þegar það vann Tott-
enham 2:0 á White Hart Lane í
London í gærkvöldi. Michael
Thomas gerði glæsilegt mark und-
ir lok fyrri hálfleiks, komst á auð-
an sjó hægra megin í vítateignum
eftir sendingu Johns Barnes og
skoraði niðri í hornið fjær. Steve
McManaman gerði seinna markið
í byijun seinni hálfleiks. Hann lék
á Carr rétt utan vítateigs, skaut
að marki en hitti boltann illa. Ian
Walker henti sér niður til að veija
en boltinn fór í þúfu rétt fyrir
framan hann og skoppaði yfir
hann. Furðulegt mark en eftir það
sáu heimamenn vart til sólar.
Tony Adams var rekinn af velli
um miðjan fyrri hálfleik en Ars-
enal lét það ekki á sig fá og vann
Newcastle 2:1. Lee Dixon skoraði
fyrir Arsenal á 11. mínútu en Alan
Shearer jafnaði og mínútu síðar
fékk Adams rauða spjaldið. Newc-
astle sótti stíft, en Arsenal varðist
og Ian Wright gerði sigurmarkið
um miðjan seinni hálfleik, 19.
mark sitt á tímabilinu.
„Ég verð aldrei hissa frekar en
nokkur annar á Englandi þegar
Ian skorar,“ sagði Arsene Wen-
ger, knattspyrnustjóri Arsenal.
„En þetta var leikur samstilltrar
liðsheildar og baráttan var frá-
bær. Ég verð að óska mönnum
mínum til hamingju. Við misstum
ekki tökin í vörninni.“
Sunderland stöðvaði Everton,
sem hafði leikið átta leiki í röð án
taps, og vann 3:1 á Goodison Park
í Liverpool.
Wimbledon vann Nottingham
Forest 1:0 og hefur leikið 17 leiki
í röð án taps.
Meistarar Manchester United
áttu ekki í erfiðleikum með Leic-
ester og unnu 3:1. Varnarmaður-
inn Gary Pallister, sem hefur verið
frá í fimm vikur vegna hné-
meiðsla, kom inn í liðið á ný og
lék á fullu. „Ég fann ekki fyrir
neinu í hnénu og vonandi er allt
í !agi,“ sagði hann. „Leicester kom
ekki til að sigra og það gerði mér
auðveldara fyrir. Það reyndi ekk-
ert á okkur í vörninni. Fólk hélt
að ég hefði átt í erfiðleikum á
móti Fenerbache vegna baksins
en í raun var hnéð að angra mig.
Aðgerð var ákveðin og nú er ég til
í slaginn á ný.“
Ian Rush skoraði loks fyrir Le-
eds sem vann Chelsea 2:0 en Brian
Deane gerði fyrra markið tveimur
mínútum fyrr.
Olajuwon
afturá
spítala
HAKEEM Olajuwon var flutt-
ur á ný á sjúkrahús um helg-
ina vegna óreglulegs hjart-
sláttar, en það er ekki nema
rúm vika síðan hann var síð-
ast lagður inn af sömu sökum.
Hann hvUdi sig í viku og
missti fyrir vikið af þremur
leikjum Houston, en það kom
ekki að sök því félagar hans
héldu uppi merki félagsins og
nú hafa Chicago og Houston
bæði sigrað i 15 leikjum og
tapað einum. Olajuwon gerði
17 stig og tók 13 fráköst gegn
Boston aðfaranótt laugardags
og var með 34 stig og tók 17
fráköst þegar Houston vann
Washington aðfaranótt
sunnudags. Hann flaug síðan
beint til síns heima til að kom-
ast á sjúkrahús. Læknar segja
hann við góða heUsu.
Fleiri
hjörtu slá
mishratt
OLAJUWON er ekki eini leik-
maðurinn i NBA sem hefur
óreglulegan hjartslátt því við
varamannabekk San Antonio
Spurs er sérstök vél til að
koma þjartslætti framherjans
Monty WUiiams í eðlilegan
takL Derrick Coleman þjá
76ers missti af fyrstu leikjun-
um í fyrra vegna óreglulegs
hjartsláttar og Reggie Lewis,
sem lék með Boston, hné nið-
ur í leik með liði sínu og lækn-
ar sögðu honum að hætta að
leika körfuknattleik. Hann
leitaði álits fleiri lækna og
einhverjir sögðu honum að
það væri í lagi að halda
áfram. Hann lést þremur
mánuðum síðar þegar hann
var að skjóta á körfu.
Sjö millj-
ónir stiga
ÍNBA
HERSEY Hawkins, bakvörð-
ur Seattle SuperSonics, fékk
heiðurinn af þvi að gera sjö
miiyónasta stigið I NBA-
deildinni. Nokkrir leikir fóru
fram á sama tíma og menn
vissu að áfanganum yrði náð
um kvöldið, en gekk Ula að
koma boltanum í körfuna.
Karl Malone gerði 30 stig frir
Utah Jazz þegar liðið skrapp
tíl Seattle og sigraði nokkuð
óvænt.
Sacchi fór aftur
til AC Milan
Arrigo Sacchi sagði í gær upp
landsliðsþjálfarastöðu Ítalíu
í knattspymu til að taka við AC
Milan, þar sem hann gerði áður
garðinn frægan. „Ég held að við
höfum gert rétt í því að fá Arrigo
Sacchi," sagði Silvio Berlusconi,
eigandi AC Milan. „Ég get ekki
sagt nei við Beriusconi,“ sagði
þjáifarinn.
Sacchi, sem var í fimm ár hjá
AC Milan áður en hann tók við
landsliðinu 1991, verður eftirmað-
ur Oscars Washingtons Tabarez
sem sagði starfinu lausu, en liðinu
hefur ekki gengið vel undir hans
stjóm að undanförnu.
Bollaleggingar um eftirmann
Sacchis hófust þegar og vom
nokkrir nefndir, þ.ám. Giovanni
Trappatoni, þjálfari Bayem
Munchen, og Fabio Capello, þjálf-
ari Real Madrid, en þeir sögðust
ekki hafa áhuga.
ísland beint í
riðlakeppni EM
SIGUR handknattleikslandsliðsins í riðlinum í undankeppni HM,
þýðir fleira en þátttökurétt á HM í Japan. Hann þýðir einnig að
íslenska liðið þarf ekki að taka þátt í forkeppni næsta Evrópu-
móts, sem verður haldið á Ítalíu 1998. Forkeppnin fer fram í
byrjun næsta árs og riðlakeppnin hefst síðan næsta haust. Is-
lenska liðið fer beint þangað en þá verður liðunum skipt í fimm
fjögurra liða riðla og komast tvö lið áfram til Ítalíu. í dag verður
dregið í riðla, bæði í forkeppninni, sem ísland sleppur við, og í
sjálfa riðlakeppnina.