Morgunblaðið - 04.12.1996, Page 6
6 D MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
MARKAÐIR
MORGUNBLAÐIÐ
F/skverð he/ma h
Þorskur
Kr./kg
Faxamarkaður
Fiskmarkaður
Hafnarfjarðar
Fiskmarkaður
Suðurnesja
s
Engar upplýsingar bárust um sölu á Fiskmarkaðinum í
Hafnarfirði í síðustu viku, en á Faxamarkaði var einungis á
laugardag seldur fiskur og þá aðrar fisktegundir en hér
eru nefndar.
Um Fiskmarkað Suðurnesja fóru alls 109,0 tonn af þorski
á 98,48 kr./kg. Af ufsa voru seld 21,1 tonn og meðalverðið
90,66 kr./kg og 42,7 tonn af karfa á 58,56 kr. hvert kíló. Af
ýsu voru seid 88,6 tonn og meðalverðið 84,12 kr./kg.
Þorskur««^» Karfi««» Ufsi
Eingöngu var seldur fiskur úr gámum í Bremerhaven, Þýskalandi, í síðustu
viku. Þar af voru 127,0 tonn af karfa seld á 146,96 kr./kg.
Eingöngu var seldur
fiskur úr gámum í
Bretlandi í síðustu
viku, samtals 634,2
tonn á 132,05 kr./kg.
Þaraf voru 133,4
tonn af þorski seld
á 129,80 kr./kg.
Af ýsu voru seld
255,0 tonná 112,26
kr./kg, 102,1 tonn af
kolaá 193,98 kr./kg,
15,0 tonnaf karfaá
85,21 kr./kg og 10,2
tonn af grálúðu á
233,48 kr./kg.
Vaxandi eftirspurn eftir
smokkfiski í Asíulöndum
KOLKRABBA- og
smokkfiskaflinn í
heiminum hefur
aukist mikið á síð-
ustu árum, eða úr
1,5 milljónum tonna
1980 í þrjár millj.
tonna 1994. Kom það fram á fjórðu alþjóðaráðstefnunni um veiðar og
vinnslu á þessum tegundum í New Orleans í Bandaríkjunum í lok októ-
ber sl. en þar var fjallað um allt, sem að þessari atvinnugrein lýtur,
með sérstakri áherslu á markaðsmálin í Evrópu og Asíu.
Aflinn í heiminum er nú
um þrjár milljónir tonna
o g fer minnkandi
Það er aðallega smokkfiskur-
inn, sem stendur undir aflanum
eða að 77%, og hefur aukningin
öll orðið í honum. Er kolkrabba-
aflinn um 300.000 tonn en hefur
farið minnkandi vegna aukinnar
friðunar í austanverðu Mið-Atl-
antshafi. Með nýlegu samkomu-
lag Evrópusambandsins og Mar-
okkó mun enn verða dregið úr
veiðinni. Veiðar á tíuarma smokk-
fiski hafa verið jafnar og stöðug-
ar í 240.000 tonnum árlega síð-
asta áratuginn og talið er, að svo
verði áfram.
Aukningin í smokkfiskveiðinni
stafar næstum eingöngu af því,
að ný mið fundust í Suðvestur-
Atlantshafi. 1980 komu þaðan 1%
heildaraflans en 19% 1994. Enn
sem fyrr kemur þó mest af kol-
krabba- og smokkfiskaflanum úr
Norðvestur-Kyrrahafí eða
960.000 tonn 1994.
Mest frá Argentínu
Japanir eru mesta veiðiþjóðin
með á bilinu 500.000 til 800.000
tonn og síðan Suður-Kóreumenn
með 380.000 tonn 1994, sem var
verulega minna en árin áður. Afli
Perúmanna, sem fóru fyrst að
stunda þessar veiðar 1980, var
200.000 tonn 1994 og var þar
aðallega um að ræða samstarf við
japönsk og s-kóresk fyrirtæki.
Kolkrabba- og smokkfiskút-
flutningur var ein milljón tonn
1994 á móti 350.000 tonnum
1982 og 540.000 tonn 1990. Er
Argentína mesta útflutningsland-
ið með 186.000 tonn 1994 og síð-
an Marokkó með 100.000 tonn,
aðallega kolkrabba til Japans.
Mest er flutt inn til Japans,
Spánar og Ítalíu en neyslan er
langmest í Japan eða 45% af
heimsframleiðslunni. Hefur
neyslan einnig verið að aukast í
öðrum Asíulöndum og er nú 34%
þar og um 13% í Miðjarðarhafs-
löndum. Eins og sjá má af þessu
eru helstu markaðirnir mjög
staðbundriir og neysla eykst mjög
rólega í Norður-Ameríku og
Norður-Evrópu.
Þótt heildarneyslan sé mest í
Japan hefur hún farið minnkandi
og er nú 6,5 kg á mann á ári.
Hefur hún einnig minnkað nokkuð
í Tævan og Spáni en á Ítalíu er
hún nokkuð stöðug eða um þijú
kg árlega á mann. Hún er hins
vegar langmest í Suður-Kóreu eða
um níu kg á mann.
Kolkrabba- og smokkfiskafli
ESB-skipa hefur verið á bilinu
160.000 til 250.000 tonn og var
213.000 tonn 1994. Veiddu
Spánveijar mest, 120.000 tonn,
ítalir 47.000 tonn og Frakkar,
Grikkir og Bretar skiptu afgang-
inum með sér. Hefur innflutning-
ur til Miðjarðarhafsríkjanna og
þá aðallega til Spánar aukist
mikið eða úr 173.000 tonnum
1984 í 373.000 tonn 1994. Hafa
Indveijar verið stórir í þessum
innflutningi, með 51.000 tonn
1995, og síðan Marokkómenn
með 32.000 tonn.
Eins og áður segir er innflutn-
ingurinn mestur til Japans en
hann hefur verið að aukast í öðr-
um Asíuríkjum, einkum í Suður-
Kóreu. Þótt neyslan hafi raunar
minnkað nokkuð í þessum ríkjum
þá hefur samdrátturinn í veiðum
þeirra verið enn meiri og því hef-
ur innflutningsþörfin aukist ár frá
ári.
Minni veiði
Vegna takmarkaðs framboðs
á kolkrabba hefur verð á honum
hækkað mikið á Japansmarkaði
og má rekja það eingöngu til
takmarkana á veiðum Spán-
verja. Veiðar Suður-Kóreu-
manna á kolkrabba- og smokk-
fiski hafa minnkað um nærri
100.000 tonn sl. fjögur ár og
veiðar Tævana hafa einnig
minnkað verulega. 1992 var
framboðið þar 11 kg á mann en
aðeins fimm kg 1994.
Kolkrabba- og smokkfiskiðnað-
urinn í Kína hefur verið í mikilli
sókn síðustu árin og búist er við,
að kínversk skip muni brátt leysa
alveg af hólmi þann flota austur-
evrópskra skipa, sem lengi hefur
stundað þessar veiðar við landið.
1992 veiddu Kínveijar um 80.000
tonn en 195.000 tonn 1994. Er
innanlandsneyslan enn mjög lítil,
aðeins um 150 g á mann, en fer
vaxandi.
í Malasíu er aflinn nokkuð stöð-
ugur, um 50.000 tonn, en neyslan
hefur minnkað nokkuð vegna
aukinnar áherslu á útflutning. Er
hún ekki nema eitt kg á mann,
sem er lítið í Asíu.
Fiskveiðisamningar
Noregnr og ESB semja
um niðurskurð á afla
NOREGUR og Evrópusambandið hafa gert tvíhliða samning um
veiðar í Skagarek og Kattegat fyrir næsta ár. Um er að ræða
verulega niðurskurð á aflaheimildum í þorski og síld.
Samkvæmt samningum verður Norðmönnum heimilt að veiða
tæp 5.000 tonn af rækju á þessum hafsvæðum. Heildarþorskkvóti
verður skorinn niður úr 23.000 tonnum í 16.100.
Þá var samkomulag um að draga verulega úr síldveiðum í sam-
ræmi við ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Heildarkvóti
á síld, sem veidd er til manneldis, verður 80.000 tonn og verður
hlutur Noregs 10.600 tonn. Þá er gert ráð fyrir því að 10.000 tonn
af síld komi sem aukaafli við veiðar á brislingi. Loks verður leyfi-
legt að taka um 20.000 af síld við veiðar á öðrum uppsjávarfiski
til mjöl- og lýsisvinnslu.
Eldi á skeldýrum og þara
iilí ar fra ml 5/C sla —
fæ kju afl
\
/
• T vu
'
Brú nn i bari
-----
Ra uðui rþar i
í firi hari
!■ i .'J ■—
HEIMSALFUR
Hlutfallslegt verðmæti
eldisafurða; skeldýra,
fisks og sjávargróðurs
eftir heimsálfum 1994
Suður-Ameiíka
0,5%
N-Ameríka
Fyrrverandi
Sovétr. 0,9%
Evrópa
Eyjaálla 0,6%
Fiskeldið
langmest í Asíu
ASÍA tekur öðrum heimsálfum
langt fram í eldi á fiski og
sjávargróðri. Mælt í magni er
hlutur Asíu tæp 87% heildarinn-
ar og um 70% verðmætanna.
Evrópa kemur næst með aðeins
7,2 % heildarinnar, en verðmæti
framleiðslunnar í Evrópu er
hins vegar 10,5%. Skýringin á
meira vægi ef mælt er í verð-
mætum er sú, að laxeldi er uppi-
staða f iskeldis í Evrópu og fæst
hlutfallslega hátt verð fyrir lax-
inn. Asía er á hinn bóginn mjög
umsvifamikil í eldi á rækju, sem
reyndar er seld á nokkuð góðu
verði og sjávargróðri, sem er
ekki eins verðmætur. Norður-
Ameríka er í þriðja sæti í eld-
inu, en þar er eldi á leirgeddu
orðið umtalsvert.
AFURÐIR
Magn eldisafurða 1994
fisks, skeldyra og
sjávargróours
tonn
4,2%
tonn
Aðrarleg. 0,3%
ELDI á fiski er uppistaðan í eld-
inu. Um helmingur heildarinnar
er fiskur, eða um 13 milljónir
tonna. Sjávargróðurinn er um
fjórðungur heildarinnar, tæp-
lega 7 miHjónir tonna og í þriðja
sæti, með 4,4 milljónir tonna,
er skel af ýmsu tagi. Árleg aukn-
ing á fiskeldi og eldi á skelfiski
er um 12,5% eða meira en tvær
milljónir tonna. Mest er alið af
rækju, af einstökum tegundum,
eða um 920.000 tonn árið 1994,
samkvæmt upplýsingum frá
FAO.