Morgunblaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • fHttjgntifcfafeifr Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 10. desember 1996 Blað D Réttur sameigenda ÓFRIÐARSEGGIR geta rýrt verðgildi fÍHÍða í fjöleignarhús- um, því að enginn vill slíka ná- granna, segir Sandra Baldvins- dóttir, lögfræðingur hjá Hús- eigendafélaginu. En hver eru úrræði húsfélags og einstakra íbúðareigenda? /13 ► Eldvarnir ÞAÐ er vissulega þörf á að minna á eldvarnir á þessum tíma, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Því miður hafa stundum orðið húsbrunar um jól og áramót. Þeir sem gera sér ljósa eldhættuna, vita einnig hvernig bregðast ber við. / 20 ► Sambyggð eldri borgara ELDRI borgarar þurfa að eiga þess kost að komast í íbúðir í lágri en þéttri byggð, segir Jón Ólafur Ólafs- son, arkitekt hjá arkitektastof- unni Batteriinu. Til þessa hafa slíkar íbúðir hins vegar verið byggðar í háliýsum fyrst og fremst, þó að lægri hús með slíkum íbúðum séu vissulega til. Fyrir þremur árum gerðu þeir hjá Batteríinu tillögu að nýjum valkosti í byggingar- málum fyrir eldri borgara, sem hlaut heitið Sambyggð eldri borgara í uppsveitum Ár- nessýslu. Byggðin átti að rísa í Laug- arási í Biskupstungum og var ætluð eldri borgurum í upp- sveitunum ásamt sumarbú- staðaeigendum, komnum á efri ár, sem gátu hugsað sér að eyða ævikvöldinu í friðsæld dreifbýlisins á gróðursælum stað, enda átti byggðin að heita Laufskálar. Jón Ólafur svarar afdrátt- arlaust ýmsum áleitnum spurningum svo sem varðandi lóðarnýtingu og aðgengi að þjónstumiðstöð innandyra. — Það er alls ekki hægt að full- yrða, að lóðarnýtingin verði betri í háhýsum, segir hann. — Það þarf miklu meira rými í kringum háhýsi en lág hús og það verður að taka með i reikninginn. Þegar upp er staðið, er alls ekki víst, að nýt- ingin sé svo miklu lakari, þeg- ar lág hús eru reist. / 16 ► Afföll húsbréfa fara minnkandi á ný ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa hefur farið lækkandi að undanfömu og var 5,67% hjá Landsbréfum sl. föstudag borið saman við 5,78% í lok október. Afföll við sölu bréfanna hafa lækk- að að sama skapi og fæst um 1% hærra verð fyrir bréfín á verðbréfa- markaði eftir þessa lækkun. Á fimmtudag fengust um 972.500 kr. útborgaðar fyrir húsbréf að nafnvirði 1 milljón kr. í nýjasta flokki 25 ára bréfa. Eins og sést á meðfylgjandi mynd hafa verið verulegar sveiflur í ávöxt- unarkröfu húsbréfa á þessu ári. Ávöxtunarkrafan lækkaði hratt framan af árinu og skörp lækkun varð á langtímavöxtum í vor þegar til- kynnt var um innköllun á stórum flokkum spariskírteina ríkissjóðs frá 1986 sl. Krafan tók að hækka um mitt sumar, lækkaði á ný í ágúst, en hækk- aði verulega í kjölfar aðhaldsaðgerða Seðlabankans hinn 23. september. Fram kemur í nýju fréttabréfí Landsbréfa fyrir fagfjárfesta að ein ástæða hækkunar ávöxtunarkröfu á langtímamarkaði hafí verið veruleg hækkun á ávöxtun ríkisbréfa í kjölfar hækkunar á ríkisvíxlum. Ríkisbréfin urðu þannig fýsilegri kostir í samanburði við önnur ríkis- tryggð bréf, þ.m.t. spariskírteini og húsbréf. Þetta dró aftur úr eftirspurn eftir verðtryggðum ríkisti'yggðum bréfum sem tóku að hækka. Hins vegar er bent á að áhugi á verðtryggðum bréfum hafi aukist til muna að undanförnu eftir lækkun á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. í útboði Lánasýslu ríkisins á 20 ára spariskír- teinum kom glögglega í ljós mikill áhugi fjárfesta á 20 ára spariskírtein- um, en alls var tekið tilboðum fýrir tæplega 1 milljarð kr. ogmeðalávöxt- un var 5,49% sem er 5 punkta lækk- un frá síðasta útboði. Landsbréf telja líklegt að ávöxt- unarkrafa lækki á næstunni meðal annars í ljósi þess að útlit er fyrir minnkandi framboð ríkistryggðra bréfa, ef dregur úr hallarekstri ríkis- ins. Ávöxtunarkrafa* húsbréfa sept. 1995 til 9. des. 1996 6,2% 5,52‘X 1995 1996 5,43% avöxtunarkrafa við kaup 5,67% 6,04% 5,78% Dæmi uin mánaðarlegaralboiKaniraf l .000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs* Vt*xtír(%) lOár 15 ár 25 ár Kynntii þér kosti Fasteignalána Fjárvangs hjá ráðgjöfum Fjárvangs í síma 5 40 50 60 Miðað cr við jafngrciðslulán. *Auk vcrðbóta Fjárvangur M Laugavegi 170, 105 Reykjavík, Sími 5 40 50 60, Fax 5 40 50 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.