Morgunblaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 14
14 D ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
íbúðir f lágþéttri byggð
æskilegur val-
kostur fyrir aldraða
JÓN Ólafur Ólafsson arkitekt á teiknistofu sinni,
Batteríið arkitektar.
FLESTAR íbúðir fyrir eldri borg-
ara hér á landi eiga það sam-
merkt að vera í háhýsum, þó að
lægri hús með slíkum íbúðum séu
vissulega til. Jón Ólafur Ólafsson
arkitekt er eindreginn talsmaður
íbúða í lágri en þéttri byggð fyrir
þennan aldurshóp. Hann hefur
skipulagt bæði íbúðir og íbúða-
hverfi og hefur orð á sér fyrir
mjög afdráttarlausar skoðanir í
skipulagsmálum og hönnun
íbúða.
Jón Ólafur lauk námi í arkitekt-
úr frá Arkitektaskólanum í Kaup-
mannahöfn 1983. Síðan hefur
hann starfað sem arkitekt bæði
hér á landi og í Danmörku. Frá
árinu 1988 hefur hann rekið arki-
tektastofuna Batteríið ásamt Sig-
urði Einarssyni arkitekt.
Jón Ólafur er einn af höfundum
bókarinnar Aðgengi fyrír alla, sem
kemur bráðlega út. Bókin er sam-
in að tilstuðlan Öryrkjabandalags
íslands og verður uppflettirit fyrir
fagfólk, svo sem hönnuði, skipu-
lags- og byggingaryfírvöld og þær
stéttir innan heilbrigðisgeirans,
sem vinna að málum fatlaðra og
aldraðra. — Þessi vinna gerbreytti
viðhorfum mínum til skipulags-
og byggingarmála og þá einkum
hvað varðar aðgengi, segir Jón
Ólafur.
Fyrir þremur árum gerðu þeir
hjá Batteríinu tillögu að nýjum
valkosti í byggingarmálum fyrir
eldri borgara, sem hlaut heitið
Sambyggð eldrí borgara í upp-
sveitum Árnessýslu. — Byggðin
átti að rísa í Laugarási í Biskups-
tungum og var ætluð eldri borgur-
um í uppsveitunum ásamt sumar-
bústaðaeigendum, komnum á efri
ár, sem gátu hugsað sér að eyða
ævikvöldinu í friðsæld dreifbýlis-
ins á gróðursælum stað, enda átti
Eldri borgarar þurfa
að eiga kost á að kom-
ast í íbúðir í lághýsum,
segir Jón Ólafur
Ólafsson arkitekt, en
skoðanir hans stangast
í mörgu á við ríkjandi
viðhorf. Magnús Sig-
urðsson kynnti sér
hugmyndir hans.
byggðin að heita Laufskálar, segir
Jón Ólafur.
Aukið öryggi mikilvæg
ástæða
— Ein mikilvægasta ástæða
þess, að eldra fólk vill flytja í þjón-
ustuíbúð er sú, að það það veitir
meira öryggi, heldur Jón Ólafur
áfram. — Þörfin fyrir öryggi er
afar mikilvæg, ekki sízt þegar fólk
eldist. Það er mikið öryggi fólgið
í því, að einhver sé nærri, þegar
þörf krefur t. d. vegna skyndilegra
veikinda eða ef slys ber að höndum.
Önnur ástæða er sú, að eldra
fólk óttast félagslega einangrun í
sínu eigin húsi eða íbúð, þegar
hreyfigetan og vinunum fækkar
og vill gjaman njóta elliáranna í
samvistum við aðra, sem eru á lík-
um aldri.
Eins og heiti þjónustuíbúða
fyrir aldraða ber með sér, þá
væntir fólk þess, að það fái þjón-
ustu í þessum íbúðum, umfram
þá þjónustu, sem það getur vænzt
í eigin húsi eða íbúð. Innra fyrir-
komulag margra íbúða er með
þeim hætti, að þær verða til ama,
þegar fólk er komið á efri ár.
Ibúðir eru oftar en ekki það stór-
ar, að dagleg þrif verða þungur
baggi. Stigar, þröskuldar, mjóar
dyr og þröng baðherbergi gera
lífið erfiðara.
Ymis störf reynast eldra fólki
erfið, sem áður voru létt. Það er
erfiðara að slá grasflötina, að
hugsa um garðinn og sópa inn-
keyrsluna. Sama máli gegnir um
viðhaid á húsinu eða íbúðinni. í
þjónustuíbúð er sjálfsagt að gera
ráð fyrir þjónustu í formi matseld-
ar, þrifa, rekstrar og viðhalds,
jafnvel umönnunar af einhveiju
tagi.
En hver er þá ástæðan fyrir
því, að fólk kýs að fara í litla
tveggja herbergja þjónustuíbúð
fyrir eldri borgara, sem kannski
er á sjöundu hæð í blokk? — Hún
er súj að fólk á ekkert val, segir
Jón Ölafur. — Háhýsi eru samt
ekki bezti kosturinn og geta varla
talizt góður kostur. Uti í hinum
stóra heimi verður æ algengara,
að háhýsi séu jöfnuð við jörðu
vegna þess, að þau hafa reynzt
slæmt sambýlisform.
— Að sjálfsögðu eiga ekki allir
að búa niður við jörð, heldur Jón
Ólafur áfram. — Það er ekki eini
valkosturinn. En framboð á þjón-
ustuíbúðum verður að vera fjöl-
breyttara en nú er, því að þarfir
eldra fólks eru ólíkar, bakgrunnur
þeirra, geta og heilsa getur verið
mismunandi. Fjölbreytni í íbúðar-
byggð er því nauðsyn.
I nágrannalöndunum hafa eldri
borgurum staðið til boða mun fleiri
valkostir en hér á landi, hvort sem
um er að ræða húsagerðir, íbúðar-
form, mismunandi sambýlisform
og þjónstustigið sjálft. Ég hef ekki
orðið var við mikla umfjöllun um
aðra kosti en þann eina, sem við
þekkjum.
Hjúkrunarheimili er forsenda
fyrir búsetu aldraðs fólks. En það
er ekkert óeðlilegt við, að eldra
fólk búi áfram í sínum uppruna-
legu híbýlum og í því umhverfi,
sem hefur verið umgjörðin um
allt þeirra líf í áratugi. En til
þess að það verði framkvæman-
legt, þurfa sveitarfélögin að efla
heimaaðstoð og félagslega þjón-
ustu við íbúana.
Það væri líka hægt að bjóða upp
á meiri blöndun t. d. með byggð,
þar sem ungir og aldnir, heilsu-
hraustir og veikburða, geta búið
í nánari samvistum hver við aðra.
Ennfremur væri hægt að bjóða
upp á einhvers konar form af sam-
býli aldraðra sbr. Sambýli fatlaðra.
Loks er hægt að bjóða upp á
byggingu þjónstuíbúða í nánum
tengslum við þjónustu-, félags- og
umönnunarmiðstöð. Notkun fé-
lagsmiðstöðvarinnar þarf ekki ein-
göngu að einskorðast við þarfir
aldraðra. Aðrir íbúar í viðkomandi
hverfi gætu líka nýtt hana.
Þurfa að henta
þörfum fatlaðra
Jón Ólafur telur, að íbúðir, sem
byggðar eru sérstaklega fyrir aldr-
aða, verða að henta þörfum fatl-
aðra. — Með byggingu þjónustu-
íbúðar fyrir aldraða er verið að
móta umgjörð um ævikvöld fólks,
segir hann. — Þjónustuíbúðin er
væntanlega síðasta íbúðin, sem
viðkomandi býr í. Hún verður því
að henta, þar til yfir líkur. Aldrað
fólk á erfiðara með ýmsar hreyf-
ingar og notkun ýmissa hjálpar-
tækja hefur aukizt. Margir hinna
eldri nota staf eða hjólastól og
sumir þurfa sérstök sjúkrarúm.
Líkurnar á nauðsyn aðhlynningar
í formi hjúkrunar eykst með aldr-
inum. Kröfumar til rýmis eru því
meiri en ella.
Byggingar endast yfirleitt
lengur en eigandinn. Þess vegna
má ekki einblína á þarfir eldra
fólks í dag. Ný kynslóð þarf að
búa í þessum húsum, þegar þar
að kemur. Hún þarf líka að eiga
val.
Fjölmörg tæknileg vandamál
fylgja háhýsagerð og sú umræða,
sem hefur átt sér stað að undan-
förnu um háhýsamengun, hefur
farið framhjá fáum. Hávaðameng-
un er ein ástæða þess, að ekki eru
byggðar íbúðir í háhýsum í ná-
grannalöndum okkar. Það er t. d.
hægt að byggja mun nær vegum
með þungri umferð, ef ekki er
byggt hærra en 1-3 hæðir.
Neikvæð áhrif bílastæða eru
mun meiri við háhýsi. Að nokkru
vegna fjölda þeirra og ef þau eiga
öll að vera í nánd við inngang, sem
LAUFAS
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
sím. 533-1111
FAX: 533-1115
Opið virka daga
frá kl. 9 -18.
Opið laugardga
frá kl. 11 -14.
SAMTENGD SÖLU-
Asbyrgi
HBiffl =as
2ja herbergja
BUSTAÐAVEGUR V. 5,7 M.
Dæmalaust notaleg 63 fm íbúð á
jarðhæð í þessu gróna hverfi. Sér
inngangur. Hús í mjög góðu ástan-
di, m.a. nýlegt gler. Verð 5,7 m.
Áhv. B.sj. 3,5 m.
KLEPPSVEGUR VIÐ BREKKU-
LÆK Björt og vel umgengin 55 fm
íbúð á þriðju hæð í litlu fjölbýli.
Inngangur við Brekkulæk. Sólar-
svalir. Mjög hentug fyrir par eða
einstakling. Verð aðeins 4,950 m.
SAMTÚNV. 3,9 M. Tæplega 50 fm
íbúð í kjallara tvíbýlishúss. Nýmál-
uð og snyrtileg íbúð, rúmgóð og
vel nýtt. Áhvílandi ca 2,5 m.
SKULAGATA V. 3,3 M. Mitt í mið-
bænum er til sölu 35 fm risíbúð í
nýlega viðgerðu fjölbýlishúsi. Park-
et á gólfum, gler endurnýjað að
hluta. Full lofthæð i stofu. Geymsla
í sameign.
3ja herbergja
ALFTAMYRIV. 5,9 M. Rúmiega 70
fm íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi.
Sérlega vel skipulögð. Gott að-
gengi. Suðursvalir. Frábært verð.
Húsbréf kr. 3,7 áhvílandi.
BARÐAVOGUR NYTT Reglulega
góð 80 fm íbúð á aðalhæð í þríbýl-
ishúsi. Eldhúsinnrétting er nýleg
svo og allar innihurðir. Skipt hefur
verið um pósta og gler í flestum
gluggum. Ibúðinni fylgir 30 fm bíl-
skúr og lóðin er frágengin og í
mjög góðu standi.
VIÐ SUNDIN BLA Björt 77 fm íbúð
í lyftuhúsi við Kleppsveginn. Stór
stofa. Svalir snúa í suður. Stutt í
alla þjónustu. Frábært útsýni i
norður. Verð 5,8 m.
ASGARÐUR m. bílsk. V. 6,6 M.
URÐARHOLT SU
RÉTTA FYRIR
ÞIG? Mjög falleg
risíbúð í Mos-
fellsbænum, í
Steni klæddu
steinhúsi. Svefnherbergi mjög
rúmgóð. Parket í stofu. Svalir snúa
í austur, frábært útsýni. Verð að-
eins 4,9 m.
LYSUM EFTIR EIGNUM
Lýsum eftir einbýlishúsum af
öllum stærðum og gerðum.
BUGÐUTANGI. MOS.NYTT Neðri
hæð i tvíbýlishúsi. Parket á gólfum.
Innihurðir úr eik. Stofa snýr á móti
suðaustri, verönd út af stofu.
4ra herbergja og stærri
FISKAKVISL V. 11,4 M. Sérlega
góð 5-6 herbergja íbúð á þessum
eftirsótta stað, 120 fm að stærð
ásamt innbyggðum bilskúr.
Beykiparket á gólfum. Allt nýtt í
eldhúsi! Gott skápapláss í herbergj-
um. Stórar suðursvalir. Ekki láta
þessa fram hjá þér fara.
HRAUNBÆR NYTT Rúmgóð fjög-
urra herbergja íbúð á góðum stað í
Árbænum. Franskar svalir eru i
hjónaherbergi svo og plássgott
fataherbergi. Stofa snýr í suður og
er þar frábært útsýni. Stutt í alla
þjónustu, verslun, skóla og i sund-
laugina.
KLEPPSVEGURV. 6,4 M. Góð íbúð
á 1. hæð í fjölbýli. Stofa og svalir
snúa í suður. Baðherbergi er ný-
standsett. Vönduð eldhúsinnréting.
Nýtt gler. Húsið er nýviðgert og
málað. Góð staðsetning - stutt í
alltl
OFANLEITI NYTT Ein góð á frá
bærum stað. Fjögur svefnherbergi,
öll með fataskápum. Gott sjón-
varpshol. Parket og dúkar á gólf-
um. Þvottahús í íbúðinni. Góðar
suðursvalir. Og bilskúr líka ...
Raöhús - Einbýli
HAALEITISBRAUTSKIPTI Einbýii/tví-
býli á tveimur hæðum ásamt inn-
byggðum bílskúr. íbúð með sér inn-
gangi á jarðhæð. Vandaðar innrétting-
ar. Stórar stofur, sex svefnherbergi.
Verð 17,9 m í beinni sölu en 18,4 m í
skiptum. ATH: Skipti á minni eða stær-
ri eign.
KR0KABYGGÐ NYnMjöggott
endaraðhús í Mosfellsbænum. Það
er 97 fm að stærð, á einni hæð, og
svefnherbergi eru tvö. Ljós viðar-
innrétting i eldhúsi. Parket á stofu
og eldhúsi, loft tekið upp í stofu.
DRAUMUR ST0RFJ0LSKYLD-
UNNAR Þrjár kynslóðir í sama
húsinu. Tvær íbúðir á fyrstu og
annarri hæð, tæplega 100 fm hvor,
og tæplega 80 fm íbúð á fyrstu
hæð (ekkert niðurgrafin). Tvær þær
stærri eru nú þriggja herbergja en
auðvelt er að bæta fjórða svefnher-
berginu við. Verð: 1. hæð 4,3 m. 2
hæð 6,9 m. og þriðja hæð 6,4 m.
Mýbyggingar
VÆTTAB0RGIR
V. 11,060 Þ.
Atvinnuhúsnæði
HELLUHRAUNNYTT Tæplega 240
fm atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð
ásamt ca 100 fm íbúð á millilofti.
íbúðinni fylgir forstofuherbergi á
fyrstu hæð. Selst í einu lagi.
Eignaskiptayfirlýsingar Laufás ávallt i fararbrodtli - NÝ ÞJÓNUSTA Er til eignaskiptayfirlýsing um húsið þitt? Frá 1. júní 1996 þarf löggildingu til að gera eignaskiptayfirlýsingar. Við á Laufási höfum slík réttindi og tökum að okkur gerð eignaskiptayfirlýsinga. æ Fjöldi annarra eigna á æ ** söluskrá okkar. " Hringið - Komið - Fáið upplýsingar