Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 7 MANNLÍFSSTRAUMAR TÆKNI/ Verbur spumingunni um lífþar svarad á ncestu áratugum? IMYNDAÐ farartæki, líkt einhveiju sem á að leggja Mars undir fót. REIKISTJARNAN Mars hefur alltaf höfðað til ímyndunarafls manna. Vísindaskáldsögur gerast þar. Marsbúinn á sér ákveðið útlit í hugum okkar. Ummerki á yfir- borði og síbreytilegt útlit voru fyrr- um talin merki siðmenningar. Nú er vitað að breyting útlits stafar af sandstormum í þunnum loft- hjúpi hnattarins. Mörg geimför, bandarísk og rússnesk eða sovésk, hafa lent, mjúklega eða brotlent, eða endað á braut um hnöttinn. Margt er vitað um landslagið. Við höfum séð myndir þaðan af lands- lagi sem í engu er frábrugðið nær- myndum úr Köldukvíslarbotnum. Enn þarf að kanna landslag miklu nánar til að finna góða lendingar- staði fyrir mjúkar lendingar næstu ára og áratuga og land undir sjálf- virk ökutæki sem fara í könnunar- leiðangra. NASA, geimferðastofn- unin bandaríska sendir á næstu árum mörg könnunargeimför sem er ætlað m.a. að hæðarmæla land mjög nákvæmlega með leysitækni. Árið 2003 er stefnt að því að Marsfarartæki geti farið í margra kílómetra könnunarferðir. að sem reynt hefur verið að svara fyrst og fremst með könnununum er hvort líf hafi verið (eða sé) til í einhveiju formi. Marsf- arið Víkingur annar frá 1976 náði að gera merkar athuganir, þar á meðal tilraunir er áttu að leiða í ljós hvort líf þrifist á lendingarstaðn- um, en niðurstað- an var neikvæð. Eitt þess er at- huga þarf í Mars- ferðum næstu áratuga er hvort þetta neikvæða svar sé endanlegt og eigi við hnöttinn sem heild. Enn önnur spurning er sú hvort líf hafi þrifist þar áður. En smæð hnattar- ins veldur þyngdarafli sem er einn þriðji af þyngdarafli jarðar. Því fylgir aftur að hnettinum helst verr á lofthjúpi sínum, og er þrýst- ingurinn innan við hundraðshluta af loftþrýstingi jarðar. En hafi loft- hjúpur, þ.á m. vatnsgufa verið að hverfa, merkir það einmitt að loft hafi verið þéttara áður og raki meiri. Vísindamenn sem eru að kveða á um markmið ómannaðra geimferða til Mars leggja þannig áherslu á þetta tvennt: Annarsveg- ar hvort líf sé nú fýrir hendi og hins vegar á hugsanlega fornleifa- fræði reikistjörnunnar, ekki síst í ljósi þess að hnötturinn er miklu óvirkari í jarðfræðilegum skilningi en jörðin, og ætti því miklu fremur að varðveita vel ummerki fyrra lífs. Mars virðist vera með eina heila stöðuga ,jarð“-skorpu, þar sem hins vegar margir flekar jarðskorp- unnar fljóta um ofan á misseigum jarðmöttli. Á tíu ára langri áætlun NASA um að senda mörg ómönnuð geimför, er ein ferð, árið 2005, sérlega mikiivæg. En í henni á að safna jarðfræðisýnum og ná þeim til jarðar. Heyrst hefur undanfarin ár í fjölmiðlum að mönnuð geim- ferð til mars verði næst á dagskrá innan allnokkurra ára. En stefna virðist tekin á núverandi áætlanir með margvíslegum ómönnuðum könnunargeimförum sem fara á braut eða lenda mjúkri lendingu. Þeim verði ætlað að skýra ástand mála, svo að betur sé vitað en nú hveiju verið sé að lenda á, auk þess sem margar ráðgátur er hægt að varpa ljósi á með sjálfvirkum fjarstýrðum tækjum án þess að hætta til mannslífum. Ragnheiður Óladóttir NÁMSKEIÐ UM MEÐVIRKNI verður haldið í Sjálfefli, Nýbýlavegi 30 í Kópavogi 4. mars kl. 20 og næstu þrjú þriðjudagskvöld. Fyrirlestrar, umræður, hugleiðsla, samskiptaæfingar. Framhaldsnámskeið um meðvirkni verður haldið um helgina 1. og 2. mars. Nánari upplýsingar gefur Ragnheiður Óladóttir í símum 897 7225 og 561 5035.________ Enn 3 laus pláss! Flýtið ykkur! Takið þátt í mannúðarstarfi í Zambíu! The Travelling Folk High School í Noregi þjálfar sjálfboðaUða hvaðanæva að tii að sinna tnannúðarstörfum í Afríku. Byrjað 1/4 (og 1/10). 6 ntánaða þjálfun í Noregi, 6 mánaða starf í Zambíu við að kenna bömun í þorpunum, setja upp hreinlætisaðstöðu og skóla, koma á laggimar HOPE-verkefninu til að hindra útbreiðslu alnæmis, koma upp verknámsskólum. 2ja mánaða upplýsingaúrvinnsla. Kröfur: Áhugi, vinnusemi, aðlögunarhæfni og vilji til að læra og vinna með öðmm. Uppihaldskostnaður við skóiann. Námsstyrkir mögulegir. Haflð samband við: TFHS, Homsj, 2636 0yer Iillehammer MB, Noregi. Fax: 00 47 6126 4017, E-mail: oneworld @online.no. Vefslóð http://home.sol.no/oneworld. Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarai málsins! Viðskiptastofu íslandsbanka hefur verið falið að selja hlutabréf í Glóbus-Vélaver hf., samtals að nafnverði 26.200.000 kr. sem er 26,3% af heildarhlutafé félagsins. Stefnt er að því að selja hlutabréfm í einu lagi. Tilboðum ber að skila til Vilhjálms Vilhjálmssonar forstöðumanns Viðskiptastofu Íslandsbanka eigi síðar en 6. mars 1997 kl. 16.00. Varðandi upplýsingar um Glóbus-Vélaver hf. er vísað til framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Reykjavík, 23. febrúar 1997. íslandsbanki hf. - Viðskiptastofa Kirkjusandi, 155 Reykjavík. ISLANDSI3ANKI SVIPMYNDIR Hverfisgötu 18, s. 552 2690 BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrir WIND0WS Sjáðu nýjan frábæran hugbúnað: gl KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Simi 568 8055 www.treknet.is/throun j 3af rótgrónustu byggingavöruverslunum landsins Málarinn, Veggfóðrarinn og Málning og járnvörur hafa verið sameinaðar af nýjum eiganda M.M.V. ehf. Nýja verslunin er til húsa í Skeifunni 8. Þar er í boði úrval vegg- og gólfefna ásamt málningarvörum á einum stað. ! SÆNG ÚTSALA ALLT AÐf7fiO/ AFSLÁTTUR / U /O MÁL&RINN SKEIFUNNI 8 • S: 581 3500 • 568 7171 EINA METRÓ VEGGFÓÐRARINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.