Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 32
32 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ v Dagbók Háskóla íslands DAGBÓK Háskóla íslands 24. febrúar til 1. mars. Allt áhugafólk er velkom- ið á fyrirlestra í boði Háskóla íslands. Mánudagurinn 24. febrúar: Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrun- arfræðingur hjá Landlæknisembætt- inu, flytur fyrirlestur í málstofu í hjúkrunarfræði í Eirbergi, Eiríksgötu 34, í stofu 6 á 1. hæð kl. 12.15- 13.00. Hún nefnir fyrirlestur sinn: „Kynning á störfum Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn- ar.“ Þriðjudagurinn 25. febrúar: Prófessor Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindi í Skólabæ, Suðurgötu 26, kl. 16.00 og nefnir hann það: „Gamla testamentið í boðun séra Frið- riks Friðrikssonar.“ Miðvikudagurinn 26. febrúar: Háskólatónleikar verða í Norræna húsinu kl. 12.30. Sigurður S. Þorbergs- son, básúna, Eiríkur Öm Pálsson, trompet og Judith Þorbergsson, píanó, leika verk eftir David Borden, Folke Rabe, Vincent Persichetti og Boris Blacher. Aðgangur 400 kr., ókeypis fyrir handhafa stúdentaskírteinis. Helgi Sigurðsson dýralæknir flytur erindi á fræðslufundi Tilraunastöðvar Háskóla íslands í meinafræði að Keld- um kl. 12.30. Hann nefnir fyrirlestur sinn: „Rannsóknir á spatti í íslenskum hestum." Fimmtudagurinn 27. febrúar: Tryggvi Þór Herbertsson forstöðu- maður Hagfræðistofnunar Háskóla Islands og lektor í viðskipta- og hag- fræðideild flytur fyrirlestur í rann- sóknastofu í kvennafræði í stofu 201 í Odda kl. 12.00. Fyrirlestur sinn nefndir hann: „Hagfræði mismunun- ar. Eru tengsl milli hagvaxtarogjafn- réttis." Jón Daníelsson flytur fyrirlestur í málstofu í hagfræði á kennarastofu viðskipta- og hagfræðideildar 3. hæð kk 16.00. Nefnir hann fyrirlestur sinn „Áhætta og vágreining." Framhaldsaðalfundur Aþenu, fé- lags kvenna í félagi háskólakennara, verður haldinn í Skólabæ og hefst kl. 20.30. Auk framhaldsaðalfundar- starfa stofnfundar verða flutt tvö er- indi. Sigrún Júlíusdóttir lektor mun ræða um stöðu kvenna í háskólasam- félaginu og Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur mun fjalla um störf jafnréttisnefndar HÍ. Áuk þess mun hún segja frá ráðstefnu sem haldin var í haust um jafnréttismál við há- skóla á Norðurlöndum. Piers Beime afbrotafræðingur frá University of Southern Maine heldur fyrirlestur í stofu 201 í Odda kl. 20:30. Erindið nefnir hann „Interspecies Sexual Assault" og verður það flutt á ensku. Föstudagurinn 28. febrúar: Sveinbjöm Gizurarson dósent í lyfjafræði flytur fyrirlestur í málstofu i líffræði kl. 12.20 í stofu G-6, Grens- ásvegi 12. Fyririesturinn nefnir hann: „Bólusetning um slímhúð." „Hafréttur, viðskipti og vernd auð- linda“ er yfirskrift á málþingi sem fer fram í stofu 203 í Lögbergi kl. 15.00- 17.00. Að þinginu standa Sjávarút- vegsstofnun og Alþjóðamálastofnun Háskóla íslands. Fundarstjóri verður Helgi Ágústsson ráðuneytisstjóri ut- anríkisráðuneytis. Fyrirlesarar sem þarna munu koma fram eru: Dr. Ro- bert Friedheim, prófessor í alþjóða- samskiptum, University of South Carolina, mun tala um Alþjóðleg áhrif Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóð- anna; Dr. Ted McDorman, prófessor í alþjóðalögum við University of Tor- onto, talar um Alþjóðlega viðskipta- löggjöf og umhverfismál; Peter Örebech, lögfræðingur og kennari í lögfræði sjávarútvegs við_ háskólann í Tromse, mun ræða Úthafsveiði- samninginn og samkomulag um út- hlutun úr flökkustofnum og loks mun dr. Gunnar Schram, prófessor í stjórn- skipunar- og þjóðarrétti, fjalla um mikilvægi alþjþðlegra umhverfis- samninga fyrir ísland. Laugardagurinn 1. mars: „Whaling in the North Atlantic, economic and political perspectives" er yfirskrift á ráðstefnu sem haldin er á Hótel Loftleiðum frá kl. 9.00 til 18.00 og er á vegujn Sjávarútvegs- stofnunar Háskóla íslands og High North Alliance. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra setur ráðstefnuna, en mikill flöldi innlendra og erlendra fyrirlesara mun ræða ýmiss hagræn og pólitísk sjónarmið sem máli skipta þegar íslendingar gera upp hug sinn hvort þeir hyggjast hefja aftur hval- veiðar. Ráðstefnan er öllum opin, fyr- irlestrar og umræður verða á ensku en túlkað verður jafnóðum á íslensku. Aðgangseyrir er 2.500 kr. með hádeg- isverði. Handritasýning Árnastofnunar í Árnagarði verður opin á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 14.00 til 16.00. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum þessa sömu daga ef pantað er með dags fyrirvara. Námskeið á vegum Endurmennt- unarstofnunar HI vikuna 24. feb.-l. mars. 24. og 25. feb. kl. 8:30-12:30. EKG - túlkun (lífeðlisfræði, tækni og túlk- un). Kennari: Christer Magnússon hjúkrunarfræðingur á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. 24.-25. feb. kl. 13-16. Námskeið um upplýsingalög. Kennari: Páll Hreinsson lögfræðingur, aðstoðar- maður umboðsmanns Alþingis, en hann átti sæti í nefnd þeirri er samdi frumvarp til upplýsingalaga. 24. feb. 8-12 og 25. feb. kl. 8-15. Skráning hjúkrunar - nýtt tölvukerfi fyrir skráningu hjúkrunar. Umsjón: Ásta Thoroddsen, lektor í námsbraut í hjúkrunarfræði HÍ. 24. og 25. feb. kl. 12-16. Gæða- kerfi í lyfsölu. Uppbygging og rekst- ur. Kennarar: Jón Freyr Jóhannsson ráðgjafi hjá Skrefi - í rétta átt ehf. o.fl. 24. feb. kl. 13-18. Hópvinnukerfi (Groupware). Ný aðferð til að auð- velda samstarf innan fyrirtækja og yfirsýn stjórnenda. Kennarar: Ólafur Daðason framkvæmdastjóri hjá Hug- viti hf. og Jóhann P. Malmquist pró- fessor í tölvunarfræði við Háskóla íslands ásamt gestafyrirlesurum sem hafa reynslu af notkun hópvinnu- kerfa. 25. feb. kl. 8:30-13:00. Grunnur að gæðastjómun og mótun gæðastefnu. Kennari: Davíð Lúðvíksson verkfræð- ingur, Samtökum iðnaðarins. 26. feb. kl. 13-17:30. Heilbrigðislög- fræði fyrir stjórnendur heilbrigðis- stofnana. Kennari: Dögg Pálsdóttir hrl. Mið. 26. feb.-19. mars kl. 8:15-12: 15, (4x), alls 16 st. Lífeðlisfræði hjarta og blóðrásar. Kennari: Dr. Jón Ölafur Skarphéðinsson prófessor. Ericsson GH 388 er einn minnsti GSM handsíminn á markaðnum og vegur aðeins 170 g með rafhlöðunni sem fylgir. Rafhlaða endist í 1 klst. og 55 mín. í stöðugu tali eða 33 klst. í biðstöðu. Sendistyrkur er 2 W 99 nöfn í skammvalsminni ■ 10 númera endurvalsminni - Innbyggð klukka, vekjari og reiknivél m — Möguleiki á tengingu við i tölvu og faxtæki en til þess þarf I aukabúnað (PCMCIA kort). Ericsson 388 er einnig til með flipa Þetta er raunstærð! Hann er ekki stærri en þetta. Ericsson GH 388 POSTUR OG SIMI HF Einn nettur Söludeild Ármúla. 27, sími 550 7800 • Söludeild Kringlunni, simi 550 6690 Þjónustumiðstöð i Kirkjustræti, sími 800 7000 og á póst- og símstöðvum um land allt. 26. -27. feb. kl. 13-17. Unix 1. Kennari: Helgi Þorbergsson, Ph.d., tölvunarfræðingur hjá Þróun ehf. Mið. 26. feb.-23. apríl kl. 20:15-22: 15. (9x). Byrjendanámskeið í kín- versku. Kennari: Hjörleifur Svein- björnsson, nam við Pekingháskóla ’76-’81. Fim. 27. feb.-17.apríl (frí 27. mars) kl. 20:15-22:00 (7x). Ritlist - að skrifa skáldskap I. Kennari: Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og bók- menntafræðingur. 27. feb. kl. 8:30-12:30 og 28. feb. kl. 13-17. Stjórnun birgða og inn- kaupa. Kennari: Páll Jensson prófess- or í véla- og iðnaðarverkfræðiskor HÍ. 27. feb. kl. 8:30-16:00. Stjórnun nýsköpunar í fyrirtækinu (Innovation in the Enterprise). Kennari: Dr. Sean McCarthy frá írlandi sem þar hefur með góðum árangri veitt ráðgjöf í fjölda fyrirtækja, auk ráðgjafar við stjórnvöld og stofnanir Evrópusam- bandsins. 27. feb. kl. 13:30-18:30. Beinþynn- ing: Hvað er unnt að gera í forvörnum og meðferð,, Umsjón: Gunnar Sig- urðsson prófessor. Fimmtud. 27. feb.-20. mars kl. 16-20 (4x). Horft fram á við - Mark- aðsmál, gæðastjórnun. Kennari: Magnús Pálsson frkvstj. ráðgjafarfyr- irtækisins Markmiðs. 18.-19. mars kl. 9-17. AutoCAD - framhaldsnámskeið. Kennari: Magn- ús Þór Jónsson prófessor HÍ. 1. mars kl. 10-14, 7. mars kl. 14-18 og 8. mars kl. 10-14. Áföll og missir í grunnskóla. Kennarar: Margrét Arn- ljótsdóttir og Margrét Ólafsdóttir báð- ar sálfræðingar í Félagi um áfalla- og stórslysasálfræði. Skráning á námskeiðin er hjá End- urmenntunarstofnun Háskóla íslands í síma 525 4923 eða fax 525 4080. Dagbókin er uppfærð reglulega á heimasíðu Háskólans: http://www. rhi.hi.is/HIHome.html SEMENTSBUNDIN FLOTEFNI 147 PR0NT0 154 PRESTO 316 REN0V0 Smiðiuuegur 72,20Q Kópavogur Símar: S641 V40, 8924.170, Fax: 5S41;7Wa AUKIN ÖKURÉTTINDI - AUKIN ATVINNA! meir/ mm^rn leigubifreið • vörubifreið ðáuskétmn E-mail: adaloku&ismcnnt.is • Netfang: www.ismcnnt.is/vefir/adalokuskolinn Afangakerfi Aöalökuskólans gerir þér mögulegt aö hefja nám aila mánudaga. Veröiö veldur ekki vonbrigðum. Hringiö og fáið upplýsingar. hópbifreiö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.