Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 DÆGURTÓIULIST FÉLAGARNIR í U2 hyggjast ekki setjast í helgan stein, þó þeir þyrftu ekki að dýfa hendi í kalt vatn framar. í næstu viku kemur út breiðskífan Pop og í kjölfarið fylgir mikil heimsreisa með tilheyrandi hamagangi eir félagar í U2 stefna á tónleikahald frá því í apríl og vel fram á næsta ár. Á þessu ári eru á dag- skrá tónleikar í 62 borgum í tuttugu löndum, en í des- ember verður tekið jólafrí og svo haldið af stað aftur eftir áramót. Tónleikaförin hefst í Bandaríkjunum, en með í för verður heljamikið batterí af tólum og tækjum, þar á meðal stærsti sjónvarpsskjár heims, gerður úr 35 kíló- metrum af rafmagnsvír, 21.000 rafrásaspjöldum, 120.000 tengjum og 150.000 ljóseiningum sem gerðar eru samtals úr 1.000.000 ljósdíóðum. Skermurinn verður 700 fer- metrar og þtjátíu tonn. Morgunblaðið/Golli MÚLDÝRIÐ gaf upp öndina fyrir skemmstu og kvaddi með sjötommu. Hópurinn sem skipaði sveitina var ósamstæður og að sögn Svavars P. Eysteinssonar, eins Múldýra, var hún skipuð fólki sem hefði aldrei átt að vera í hljómsveit saman. Svavar leikur á gítar á sjötommunni, Kristinn Gunnar Blöndai leikur á trommur, Kristín Jónsdóttir syngur, Helgi Örn Pétursson leikur á bassa og Einar Þór Kristjáns- son á gítar. Þannig skipuð var Múldýrið í lok árs 1995, en upptökurnar biðu síðan mjög lengi þar til útgáfan Skakka- manage tók sveitina upp á sína arma og gaf út. Að sögn Svavars var framtíð Múldýrsins óljós þegar platan kom út, skömmu fyrir jól, en eftir ára- mót var síðan ákveðið að nóg væri komið og hljómsveitar- menn fóru hver í sína áttina. „Það gekk ýmislegt á við upp- tökurnar á sinum tíma og þvi fannst okkur rétt að koma plötunni út. Þó Múldýrið sé búið að vera er ný hljómsveit í bígerð, skipuð nokkrum félögum úr Múldýrinu og Bag of Joys,“ segir Svavar en leggur áherslu á að sú sveit sé varla komin af stað, rétt verið teknar nokkrar æfingar. Múldýrið var ríflega þriggja ára þegar það þraut örendi, byijaði sem pönktríó 1993, „en vegna þess að við kunnum ekki að spila almennilega, breyttum við um stefnu", segir Kristinn Gunnar og Svavar bætir við: „Síðan höfum við spiiað gamal- dags kerlingapopp og þar er á þessari plötu okkar.“ Þeir félagar segja að hópurinn sem þátt tók í upptökum hafa verið mjög svo ósamstæð- ur og reyndar fólk sem hefði ekki átt að vera í hljómsveit saman. „Nýja hljómsveitin er samstæðari og kannski hægt að reka hana meira áfram og þá gefa meira út en Múldýrið gerði.“ Gamaldags kerlingapopp Grípandi háspennurokk BANDARÍSKA pönk- sveitin The Offspring sló óforvarandis í gegn um allan heim á síð- asta ári með breiðskíf- unni Smash. Þegar upp var staðið hafði skífan selst í hálfri níundu milljón eintaka og Offspring orðin helsta hljómsveit heims sem var á mála hjá óháðri útgáfu. Bravúr Pönkaðir milljón- ungar í Offspring. Pop um allan heim Níulíf Aerosmith Ikjölfar vinsælda Smash gerðust Offspring-liðar svo ópönklegir að ganga á hönd risafyrirtæki, gerðu langtímasamn- ing við Columbia- útgáfuna, og sendu fyrir stuttu frá sér íýrstu breiðskífuna á vegum Columbia. Sú skífa heitir Ixnay on the Hombre, telst fjórða breiðskífa Offs- pring og öllu meira er í hana lagt en plöturn- ar á undan. Tónlistin er þó óbreytt, grípandi háspennurokk sem Bandaríkjamenn kalla gjaman pönk. Yrkis- efni þeirra Offspring- liða er og álíka og forðum, firring og uppgjöf vegna markaðshagkerf- ishremminga. Ný út- gáfa sveitarinnar ger- ir sér vonir um að end- urtaka Smash-ævin- ÞAÐ VERÐUR ekki af bandarísku rokksveitinni Aerosmith skafið að hún hefur haldið velli betur og lengur en nokkur hefði spáð fyrir tveimur áratugum eða svo. Þá var málum svo kom- ið að liðsmenn voru ör- þreyttir á rokklíferni og hverjum öðrum; sérstak- lega gekk illa samstarf leið- toganna Stevens Tylers og Joes Perrys. Eftir nokkurra ára eyðurmerkugöngu náðu þeir félagar áttum að nýju og sneru aftur í sviðsljósið. Helsti djöfull Aerosmith var dópið; það eitraði líf liðsmanna og spillti. Þá var það að Tyler og Perry fóru í meðferð og síðan félagar þeirra í sveitinni, og tóku til við að byggja upp sveit- ina að eftir Árna nýju, byij- Motthíasson uðu á núlli ef svo má segja eftir að hafa leitt vinsælustu hljóm- sveit Bandaríkjanna í ára- tug. Enn heldur Aerosmith velli og merkilegt hvernig sveitinni hefur tekist að halda vinsældum og heldur auka við þær þrátt fyrir miklar og örar breytingar í tónlistarmálum víða um heim. Þeir Tyler og Perry kunna formúluna; blús- grunnað léttþungarokk með karlagrobbtextum í bland við alvarlegra efni, og vita af langri reynslu að á meðan þeir halda sig við hana er þeim borgið. Fyrir skemmstu kom út breiðskífa Aerosmith sem kallast Nine Lives, eða níu týrið og leggur mikið fé í auglýsingar og kynningar, aukinheldur sem þeir Offspring-liðar leggja upp í heljarinnar heimreisu með miklum brav- úr. Hvort það eigi eftir að tryggja vinsældir sveitar- innar er ekki gott að segja; þvi ræður tónlistin. ■ Hróarskelduhá tíðin er helsta rokkhátíð Evr- ópu og jafnan fjöl- menna íslendingar á hátíðina. Undanfarin ár hafa verið skipulagðar ferðir til Hróarskeldu og margir verið um hit- una. í sumar býður Ferðaskrifstofa stúd- enta ferðir á Hróar- skeldu, fjórar alls, en lagt verður upp 23., 24. eða 25. júní, og ýmist komið heim 30. júní eða 1. júlí. Þess má geta að uppselt var á síðustu Hróarskelduhátíð nokk- uð löngu áður en hún fór fram. Ferðaskrif- stofa stúdenta býður einnig ferðir á tvær helstu tónlistarhátíðir Breta, Tribal Gather- ing, sem er mikil dans- hátíð 24. maí og Read- mg-rokkhátíðina, sem haldin verður 26. júní. UÞEIR SEM ekki hafa efni á að bregða sér til útlanda fá sitt hér heima, þó nú sé Ijóst að fyrirhugaðir tónleik- ar Suede á skírdag verði ekki. Ekki er ljóst hvort sveitin kemur síð- ar á árinu, en vinsældir hennar í heimalandinu komu í veg fyrir að hún ætti heimangengt. Tón- leikahaldarar haf leitað til ýmissa sveita og tón- listamanna annarra um að heimsækja land og þjóð, þar á meðal Pave- ment, Fat Boy Slim, Cypress Hill, Sting, The Prodigy og Prop- ellerheads, og svo mætti telja. Fregnir hafa einnig borist af því að verið sé að undirbúa útitónleika eða jafnvel einhverskonar rokkhá- tíð í sumar og þá frekar þrjár en eina. líf. Sú sver sig í ætt við aðrar Aerosmith-skífur; upp full af rokki og rytmablús, cajungrodda og þungapoppi, en að sögn Tylers vísar heiti plötunnar til þess að skammt er síð- anÁerosmith var á heljar- þröm, einu sinni enn, og að þessu sinni vegna véla- bragða váskeytts umboðs- manns. Á endanum var umbanum sparkað, en hann hafði lapið í eyrun á félögum Tylers að hann væri enn kominn á kaf í heróín og legði á ráðin um að reka þá einn af öðrum. Tyler segist mest hafa sárnað að hljómsveitarfé- lagar hans til tveggja ára- tuga hafi lagt trúnað á lygi- málið, en þegar greitt var úr vefnum urðu þeir allir vinir að nýju og hálfu meiri vinir er áður. Þannig segir hann ljóst að Nine Lives sé fráleitt einhver enda- punktur, Aerosmith hafi verið að í á þriðja áratug og eigi eftir að halda áfram lengi enn, því allir unni þeir félagar rokkinu eins og sjálfum sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.