Morgunblaðið - 23.02.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 23
Prentsmiður/
skeytingamaður
Steindórsprent Gutenberg óskar eftir að
ráða skeytingamann. Þarf að vera vanur lit-
skeytingu á borði.
Um vaktavinnu er að ræða.
Nánari upplýsingar hjá Ráðningarþjón-
ustunni.
m RAÐNINGARÞJONUSTAN
Jón Baldvinsson, Háaleitisbraut 58-60
Sími 588 3309. fax 588 3659
FJÓROUNQSSJÚKRAHÚSIO
A AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
Stjórnunarstöður -
aðstoðardeildarstjórar
Lausar eru til umsóknar tvær stöður aðstoð-
ardeildarstjóra á lyflækningadeild 1 og á
hjúkrunardeildinni Seli á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri. Um er að ræða 100%
stöður. Stöðumar veitast frá 1. apríl nk.
Aðstoðardeildarstjóri ber, ásamt deildarstjóra,
fag-, stjórnunar- og rekstrarlega ábyrgð á
hjúkrun deildarinnar (verkefnaskipting).
Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill deild-
arstjóra.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega
þekkingu, frumkvæði og reynslu í stjórnun,
ásamt hæfileikum á sviði samskipta, sam-
vinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Umsóknarfrestur er til 12. mars nk.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu sendartil Ólínu Torfadótt-
ur, hjúkrunarforstjóra. Nánari upplýsingar
gefur Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri
hjúkrunar, í síma 463 0273.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
- reyklaus vinnustaður-
Heilsugæslustöðin Patreksfirði
Hjúkrunarfræðingur
á Bfldudal
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á Patreksfirði er laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% stöðu við H-stöð á
Bíldudal og innan Patreksfjarðarlæknisum-
dæmis. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarfræðing-
urinn yrði búsettur á Bíldudal. Staðan veitist
frá 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi.
Heilsugæslustöðin á Pareksfirði þjónar íbú-
um Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps.
íbúar eru um 1700.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 1997.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist Viðari Helgasyni, fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss og heilsugæslu-
stöðvar Patreksfjarðar, Stekkum 1,450 Pat-
reksfirði.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Kol-
finna Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri í
síma 456 1110. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ráðið hefur verið.
Heilsugæslustöðin á Patreksfirði.
Reyklaus vinnustaður.
Blómabúð
Vanur starfskraftur óskast í blómabúð.
Þarf að geta að geta unnið sjálfstætt við
allar alhliða skreytingar.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. merktar:
„B - 1223“ fyrir 3. mars.
Hjúkrunarforstjóri
Laus er staða hjúkrunarforstjóra við Heilsu-
gæslustöðina Kópaskeri.
Húsnæði og staðarsamningur í boði.
Upplýsingar í síma 465 1109, Heilsugæslu-
stöðin Kópaskeri, og 465 1163 Birna stjórn-
arformaður.
Varnarliðið, tölvudeild,
óskar að ráða
tölvunarfræðing/
kerfisfræðing
Um er að ræða starf í einni af stærri tölvu-
deildum landsins, sem hefur yfir að ráða um
800 PC tölvum, 12 Novell staðarnetum og
víðneti, sem tengir flest staðarnetin saman.
Starfið er krefjandi og mjög fjölbreytt og fel-
ur m.a. í sér að setja upp nýjan vél- og hug-
búnað, greina bilanir í PC vélum og netum,
og aðstoð við notendur.
Kröfur
Umsækjandi þarf að hafa sem víðtækasta
þekkingu og reynslu á sviði vél- og hugbún-
aðar og er þar um að ræða MS-DOS,
Windows 3.11, 95 og NT, og Microsoft
Office. Æskilegt er að viðkomandi hafi einn-
ig þekkingu á NetWare 3.12 og 4.1 netkerfum
og TCP/IP samskiptastaðli.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt,
eiga gott með að umgangast fólk og hafa
mjög góða enskukunnáttu.
Starfið er tímabundið til 29. september 1997.
Skriflegar umsóknir berist til Varnamálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, ráðningadeild,
Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ, eigi síðar
en 3. mars 1997.
Starfslýsing liggur frammi á sama stað og
er nauðsynlegt að væntanlegir umsækjend-
ur lesi hana.
Garðyrkjustjóri
Hveragerðisbær auglýsir
lausa til umsóknar stöðu
garðyrkjustjóra
Garðyrkjustjóri vinnur náið með umsjónar-
manni verklegra framkvæmda og bæjar-
tæknifræðingi að skipulagningu opinna
svæða. Auglýst er eftir garðyrkjumenntuðum
einstaklingi.
Starfssvið garðyrkjustjóra felst m.a.
í eftirfarandi:
• Tillögugerð að skipulagningu óræktaðra
og óskipulagðra svæða.
• Umsjón með opnum svæðum og skóg-
rækt í landi bæjarins.
• Umsjón með skrúðgarði, hveragarði og
lóðum stofnana bæjarins.
• Umsjón með vinnuskóla bæjarins og
skólagörðum.
Skilyrði fyrir umsókn er að umsækjandi hafi
lokið verklegu og bóklegu námi frá Garðyrkju-
skóla ríkisins eða öðru sambærilegu námi.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Sigurðsson
á skrifstofu Reksturs og ráðgjafar ehf. og
skal umsóknum skilað þangað fyrir
17. mars nk.
Iffi Rekstur og Ráðgjöf ehf.
Austurstræti 14, Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf,
pósthólf 261,121 Reykjavík. áætlanagerð, verkefnaskipu-
Sími 562 6530, fax 562 6532. lagning, réðningarþjónusta o.fl.
Barnfóstra óskast
Reyklaus barnfóstra óskast til að gæta 6
mánaða barns hluta úr degi 3 daga vikunnar.
Upplýsingar í síma 561 9469 eða 511 3744.
Aukastarf - sölustarf
Óskum eftir duglegum sölumönnum um allt
land til að selja vandaðar bækur um vinsælt
efni. Góð sölulaun.
Upplýsingar í síma 554 4958.
Röntgentæknir
Óskum að ráða röntgengtækni við Sjúkrahús
og heilsugæslustöð Vestmannaeyja tíma-
bundið í 1 ár eða skemur frá og með 1.
apríl nk.
Um er að ræða 75% starf auk afleysinga
og bakvakta. Húsnæði á staðnum.
Umsóknir sendist til:
Sjúkrahús Vestmannaeyja,
box 400, 902 Vestmannaeyjar.
Allar nánari upplýsingar gefur framkvæmda-
stjóri í síma 481 1955.
Sjúkrahús og heilsugæslustöð
Vestmannaeyja.
Rafeindavirki
-tæknimaður
Ef þú ert þokkalega klár á eftirfarandi sviðum
þá höfum við mikinn áhuga á að heyra frá þér.
Töivuviðgerðir (PC), tölvuuppsetningar,
sjónvarps- og útvarpsviðgerðir, netlagnir,
hugbúnaður ásamt uppsetningum og hugs-
anlega einhverja reynslu á sviði rafeinda-
tækja í skipum og bátum.
Við leitum að áhugasömum aðila í yngri kant-
inum sem hefur sæmilegt vald á ofangreindu
og er jafnframt vinnufús og með góða þjón-
ustulund. Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál og öllum verður svarað.
Meðeign hugsanleg.
Sendið skriflegar umsóknir ásamt viðeigandi
gögnum til:
Tölvuþjónusta Húsavíkur ehf., Héðinsbraut
1, 640 Húsavík, eða með tölvupósti á:
thhus@est.is
Heilsugæslan í Reykjavík
Stjórnunarsviö
Barónsstíg 47,101 Reykjavík
Sími 552 2400 Fax562 2415
Laus staða
hjúkrunarforstjóra
við Heilsugæslustöðina
í Efra-Breiðholti
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfor-
stjóra við Heilsugæslustöðina í Efra-Breið-
holti.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
störfum í heilsugæslu og við stjórnun. Nán-
ari upplýsingar um starfið gefa Pálína Sigur-
jónsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Efra-Breiðholti, í síma 567
0200, og starfsmannastjóri Heilsugæslunnar
í Reykjavík, sími 552 2400.
Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra á
þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá
starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykja-
vík, sendist Heilsugæslunni í Reykjavík.
14. febrúar 1997.
Heilsugæslan í Reykjavík,
stjórnsýsla,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.