Morgunblaðið - 08.04.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997 B 5
ÍSLANDSMÓTIÐ í FIMLEIKUM
Rúnar og
Elva Rut í
fararbroddi
RÚNAR Alexandersson úr
Gerplu og Elva Rut Jónsdóttir,
Björk, voru sigursæl á íslands-
mótinu ífimleikum um helgina.
Þau urðu bæði íslandsmeistar-
ar í fjölþraut, en að auki sigr-
aði Rúnar á öllum áhöldum og
Elva Rut á tveimur af fjórum
mögulegum.
Íslandsmótið fór fram í Laugar-
dalshöll. Á föstudag fór fram
liðakeppni, en einstaklingskeppni
var haldin á laugar-
dag og sunnudag.
Rögnvaldsson Keppt var í fjölþraut
skrífar a laugardag, en
daginn eftir fór
fram keppni á einstökum áhöldum.
Gerpla sá um framkvæmd mótsins
að þessu sinni og tókst vel upp.
Gerpla sigraði í liðakeppni karla
á föstudag. Rúnar Alexandersson
var í fararbroddi Gerplumanna og
hlaut liðið alls 144,750 stig, en lið
Ármanns fékk 129,750 stig. Sveit
Gerplu skipuðu þeir Jón Trausti
Sæmundsson, Dýri Kristjánsson,
Sigurður Freyr Bjarnason og Vikt-
or Kristmannsson auk Rúnars.
Sveit Bjarkar sigraði í liðakeppni
kvenna og hlaut liðið 98,895 stig.
Ármenningar fengu 92,030 stig og
höfnuðu í öðru sæti, en lið Keflvík-
inga lenti í þriðja sæti með 83,613
stig. Lið Bjarkar var skipað þeim
Elvu Rut Jónsdóttur, Hlín Bene-
diktsdóttur, Tinnu Þórðardóttur,
Evu Þrastardóttur og Elísabetu
Birgisdóttur.
Yfirburðir Rúnars
Keppt var tvívegis á hverju
áhaldi í einstaklingskeppninni í fjöl-
þraut. Um leið og keppendur
reyndu með sér í liðakeppninni á
föstudag, gilti árangur þeirra sem
fyrri umferð í fjölþrautinni, sem
lauk á laugardag. í henni bar Rún-
ar Alexandersson höfuð og herðar
yfir keppinauta sína og hlaut
103,800 stig. Félagar hans í
Gerplu, þeir Jón Trausti Sæmunds-
son og Dýri Kristjánsson komu
næstir. Jón Trausti fékk 92,350
stig, en Dýri hlaut 91,600 stig.
Rúnar var ekki ánægður með
frammistöðu sína á gólfi, en í þeim
æfingum var hann með 8 stig að
meðaltali. Þrátt fyrir það var hann
efstur allra keppendanna í þeirri
grein. Hann var eigi að síður í ess-
inu sínu á bogahestinum og var
með 9,275 stig að meðaltali fyrir
frammistöðu sína á honum.
Elva Rut Jónsdóttir úr Björk
varð hlutskörpust í fjölþraut
kvenna og fékk 68,690 stig. Ár-
menningurinn Elín Gunnlaugsdótt-
ir varð önnur - fékk 62,365 stig,
en Eva Þrastardóttir úr Björk fékk
60,277 og hafnaði í þriðja sæti. í
fjölþraut kvenna er keppt á fjórum
áhöldum, en sex áhöld eru notuð í
keppni karla og er það skýringin á
miklum stigamun karla og kvenna
í fjölþraut. Elva Rut sýndi sérstak-
lega góð tilþrif á slá í fjölþraut-
inni, enda er það hennar hennar
sterka hlið.
Keppni á einstökum áhöldum fór
fram á sunnudag, eins og áður
segir. Rúnar Alexandersson sigraði
á öllum áhöldunum, en hörðustu
keppnina fékk hann á gólfi og í
stökki. Á gólfi fékk Rúnar 8,250 stig, en Dýri Kristjáns-
son hlaut 8,050 stig. í stökkinu var keppnin eilítið jafn-
ari, því Jón Trausti Sæmundsson fékk 0,1 stigi minna
en Rúnar, sem hlaut 8,350 stig fyrir stökk sín.
Elva Rut Jónsdóttir sigraði með nokkrum yfirburðum
á tveimur áhöldum af fjórum í kvennaflokki. Hún hlaut
8,362 stig fyrir stökk og 8,412 stig fyrir æfingar sínar á
tvíslá. Henni gekk þó ekki vel á besta áhaldi sínu, slánni.
Hún gerði slæm mistök í tvígang og varð að sætta sig
við annað sætið. Lilja Erlendsdóttir úr Gerplu bar því sig-
ur úr býtum og fékk 7,675 stig. Elín Gunnlaugsdóttir,
Ármanni, sigraði á gólfi, en þá varð Elva Rut einnig í
öðru sæti. Elín fékk 8,062 stig, en Elva Rut hlaut 7,650 stig.
Morgunblaðið/Golli
RÚNAR Alexandersson úr Gerplu hafði mikla
yflrburAI á íslandsmótinu um helglna og slgraAI
á öllum áhöldunum auk þess aA verAa Islands-
melstar! f fjölþraut og elga sætl í slgursveitinnl
f llðakeppni.
Morgunblaðið/Golli
ELVA Rut Jónsdóttir, sem gerir hér æfing-
ar á slá, varö hlutskörpust í fjölþraut og
var elnnig í slgursveit Bjarkar í liöakeppn-
inni. Hún sigraði einnig á tveimur áhöldum
á sunnudag.
Viktor stal
senunni á
tvíslánni
Þrátt fyrir að Rúnar Alexandersson hafi sigrað
á tvíslá á sunnudag, vakti Viktor Kristmanns-
son úr Gerplu mesta athygli í þeirri grein. Hann
er aðeins á þrettánda aldursári og komst í úrslit
eftir góðan árangur á föstudag, en þá fékk hann
hæstu einkunn allra keppenda fýrir æfingar sínar
á tvíslánni, eða 8 stig. I úrslitum á sunnudag stóð
hann sig enn betur, fékk 8,250 stig og hafnaði í
öðru sæti á eftir Rúnari, sem hlaut 8,650 stig.
Viktor mætti snemma á mótsstað og beið lengi
eftir að röðin kæmi að keppni á tvíslánni, sem er
uppáhalds áhaldið hans. „Eg átti auðvitað ekki von
á sigri, en ég vonaðist til að ná öðru sætinu og
það tókst. Rúnar er bara svo góður að það er eigin-
lega ekki hægt að vinna hann,“ sagði Viktor, sem
byrjaði að æfa fimleika þegar hann var fjögurra
og hálfs árs gamall.
Fleira ungt fimleikafólk lagði sitt af mörkum á
íslandsmótinu. Lilja Erlendsdóttir úr Gerplu er einn-
ig á þrettánda aldursári og sigraði á slá. Hún varð
einnig önnur í stökki og hafnaði í fímmta sæti í
fjölþrautinni.
Er í framför
RÚNAR Alexandersson var
raunsær þrátt fyrir að hafa
sigrað í öllum mðgulegum
greinum á íslandsmótinu. „Ég
bjóst alveg við þessu, en ég
er ekki alveg sáttur við árang-
ur minn á mótinu. Ég hefði
vijjað gera betur á gólfinu.
Ég er samt í framför og það
eru keppinautar mínir hér á
íslandi líka. Þannig hjálpa
þeir mér Iíka að bæta mig,“
sagði Rúnar, en hann heldur
út fyrir landsteinana í byrjun
mai til að taka þátt i æfinga-
keppni á Spáni.
Held áfram að bæta mig
Elva Rut Jónsdóttir er 18
ára gðmulog æfir hjá Björk.
Hún varð íslandsmeistari í
fjölþraut og sigraði auk þess
á tveimur áhöldum, en vildi
samt gera betur. „Eg er
ánægð með árangur minn á
föstudag og iaugardag, en ég
stóð mig ekki nógu vel á
slánni í dag [sunnudag] og
datt tvisvar," sagði Elva Rut.
Hún varð einnig í öðru sæti á
gólfi, en sagðist ekki hafa
búist við sigri í þeirri grein.
„Elín [Gunnlaugsdóttir úr
Armanni] er með D-æfíngu,
en ekki ég. Þess vegna sigr-
aði hún,“ sagði hún, en D-
æfing er ákveðin erfið-
leikagráða sem ekki er á allra
færi.