Morgunblaðið - 08.04.1997, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Möller og Kohler meiddir
ÞÝSKU meistaramir í Dortmund
urðu fyrir miklu áfalli í gær þeg-
ar í ljós kom að tveir af bestu
mönnum þess - Jiirgen Kohler
og Andreas Möller - eru meiddir
og óvíst er hvort þeir geta verið
með í fyrri leiknum gegn Man-
chester United í undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða á
morgun.
Kohler, reyndasti varnarmað-
ur Þjóðverja, var stokkbólginn á
ökla og í meðferð vegna þess
og miðvallarleikmaðurinn Möller
fór til Frankfurt til sérfræðings
vegna meiðsla í vöðva á fæti.
Vandræði Dortmund voru næg
fyrir; Matthias Sammer, aftasti
vamarmaður liðsins, er I leik-
banni og verður því ekki með og
brasilíski varnaijaxlinn Julio Ces-
ar hefur ekki enn náð sér af
hnémeiðslum, eins og vonast
hafði verið til.
FIFA vill að dómar-
ar verði atvinnumenn
SEPP Blatter, framkvæmdastjóri Alþjóða knattspyrnusambandsins, segir
tíma til kominn að dómarar verði atvinnumenn og greindi frá átaki í þá
átt vegna HM í Frakklandi. Blatter sagði að nóg væri til af peningum til
að greiða dómurum og áréttaði að dómarar hefðu ekki vísvitandi rangt við.
Að sögn Blatters vill FIFA kalla dómarana sem dæma á HM saman í
viku { mars á næsta ári til að leggja línurnar og aftur í þijá daga áður
en keppnin hefst.
Tveir snjall-
ir nýliðar
TVEIR leikmenn vom með
Derby í fyrsta skipti um helg-
ina, þegar liðið sigraði Man.
Utd. Markvörðurinn Mart Poom
sem félagið keypti frá Flora
Tallinn, sem Teitur Þórðarson
þjálfari í Eistlandi, og Paulo
Cesar Wanchope frá Costa Rica.
Báðir stóðu sig afbragðsvel.
21 markí
24 leikjum
ALAN Shearer skoraði fyrir
Newcastle gegn Sunderland á
laugardag, aðeins 39 dögum
eftir uppskurð vegna meiðsla í
nára. Hann hefur verið nokkuð
frá í vetur vegna meiðsla, en
hefur engu að síður gert 21
mark í 24 deildarleikjum. Newc-
astle á sjö leiki eftir og nú bíða
menn spenntir hvort þessum
mikla markaskorara tekst að
gera 30 mörk í deildinni fjórða
veturinn í röð.
Gullit æfur
„ÞEIR urðu sjálfum sér til
skammar og mér einnig,“ sagði
Ruud Gullit, stjóri Chelsea eftir
0:3 tapið gegn Arsenal. „Leiki
menn ekki af ástríðu, sýni þeir
ekki hvað þeir geta, er andstæð-
ingunum gert auðvelt fyrir.
Þetta var mikilvægur leikur fyr-
ir okkur. Leikur sem átti að
færa okkur Evrópusæti. Þeir
ættu að skammast sín,“ sagði
GuIIit.
Þetta var aðeins annað tap
Chelsea á heimavelli í deiidinni
í vetur. Áður hafði liðið tapað
2:4 fyrir Wimbledon í október.
Kjúklingur
og pasta
ARSENE Wenger, knatt-
spymustjóri Arsenal, skipaði
mönnum sínum að snæða kjúkl-
ing og pasta fyrir leikinn gegn
Chelsea. Þetta er á matseðlinum
fyrir hvem leik, og þó svo þessi
hæfist kl. 11.15 að staðartíma
samanstóð morgunverðurinn
ekki af komflögum og ristuðu
brauði eins og menn eru líklega
frekar vanir.
Bergkamp
íham
DENNIS Bergkamp hefur leikið
mjög vel með Arsenal upp á
síðkastið. „Dennis líður mjög
vel andlega hjá Arsenal og það
eykur sjálfstraustið. Hann er
mjög snöggur og það er glæsi-
leiki yfír því sem hann gerir.
Hann er 28 ára, á þeim aldri
sem knattspymumanni fmnst
hann vera á toppnum, vegna
þess að þá hefur hann öðlast
reynslu og skilur muninn á al-
vöm vandamálum, sem leik-
menn geta lent í, og ímynduð-
um,“ sagði Arsene Wenger.
jT
Otrúleg helgi í úrvalsdeild á enska knattspyrnuleiksviðinu
Handrítið sem draum-
ur Arsenal-aðdáenda
HALDA mætti að harður
stuðningsmaður Arsenal
hefði skrifað handritið að
leikjum ensku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu um helg-
ina. Liðið sigraði Chelsea ör-
ugglega á iaugardagsmorgun,
3:0, Manchester United tap-
aði fyrir Derby á heimavelli í
eftirmiðdaginn, 2:3, og á
sunnudaginn urðu leikmenn
Liverpool - sem áttu mögu-
leika á að komast í efsta sæt-
ið - að sætta sig við tap, 1:2,
á heimavelli gegn Coventry,
sem var í neðsta sæti. United
er sem fyrr á toppnum en
Arsenal og Liverpool fylgja
fast á eftir og nú bendir ekk-
ert til annars en einvígi þess-
ara þriggja stórvelda haldi
áfram þar til flautað verður
til leiksloka í síðustu umferð-
inni ívor.
Paulo Cesar Wanchope frá
Costa Rica lék með Derby í
fyrsta skipti á laugardaginn og
stal senunni á Old Trafford. Lagði
upp fyrsta mark Derby og skoraði
það næsta eftir glæsilegan einleik.
Wanchope gekk til liðs við Derby
í síðasta mánuði og hefur nýlega
fengið atvinnuleyfi í Englandi.
Ashley Ward skoraði fyrir Derby
á 29. mín. eftir að Wanchope skall-
aði knöttinn til hans og sex mín.
síðar skoraði framheijinn frá Costa
Rica á eftirminnilegan hátt; fékk
knöttinn á eigin vallarhelmingi og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
varnarmanna United til að stöðva
andstæðinginn komst hann inn í
vítateig og skoraði. Glæsilega gert
en varnarmenn United voru ein-
kennilega illa á verði.
Eric Cantona minnkaði muninn
strax eftir hlé en þrátt fyrir linnu-
litla sókn tókst heimamönnum ekki
að jafna. Þegar stundarfjórðungur
var eftir nýtti Dean Sturridge sér
hins vegar óvenjuleg mistök
danska markvarðarins Peters
Schmeichels og jók muninn á ný.
Varamaðurinn Ole Gunnar Sol-
skjaer gaf United mönnum von
með marki skömmu síðar en þrátt
fyrir stanslausa sókn síðustu mín-
úturnar tókst meisturunum ekki
að jafna.
Ótrúlegt
Liverpool gat komist á toppinn á
sunnudaginn en leikmenn liðsins
létu það tækifæri sér úr greipum
ganga. Coventry, sem var í neðsta
sæti, kom í heimsókn og gestirnir
virtust ekki ætla að ríða feitum
hesti frá viðureigninni því Liverpool
sótti linnulítið og fékk ákjósanleg
færi til að skora. Staðan var þó
markalaus í leikhléi sem var í raun
ótrúlegt miðað við gang mála.
Það var Robbie Fowler sem braut
ísinn eftir hlé með 29. marki sínu
i vetur; skoraði með bylmingsskoti
utan úr teig eftir sendingu Johns
Barnes. Flestir héldu að eftir þetta
Reuter
PAULO Cesar Wanchope var með Derby í fyrsta skipti og
byrjaði með látum. Hér fagnar hann glæsimarki sínu.
Bergkamp frábær
Chelsea byijaði vel gegn Arsenal
og Gianfranco Zola átti glæsilegt
skot af stuttu færi sem fór rétt
yfir mark gestanna. Eftir að Ian
Wright kom Arsenal yfir á 22. mín.
var hins vegar allur vindur úr
heimamönnum og leikmenn Arsenal
sigruðu örugglega. Chelsea stjórn-
aði leiknum framan af og leikmenn
liðsins voru einmitt með knöttinn á
miðsvæðinu, á leið fram völlinn,
skömmu áður en fyrsta markið
kom; þeir misstu hann klaufalega,
knötturinn barst til Hollendingsins
Dennis Bergkamp sem sendi strax
á Ian Wright, hann stakk vörnina
af og skoraði örugglega. Einfalt
mark og vel að verki staðið hjá
Arsenal en heimamenn voru aftur
á móti steinstofandi.
Bergkamp átti einnig þátt í öðru
markinu; sendi fram vinstri kantinn
á Wright, hann gaf fyrir markið
og David Platt skoraði af stuttu
færi. Hollenski landsliðsmaðurinn,
sem fór á kostum í leiknum, gerði
þriðja markið á 80. mín. eftir skelfi-
leg mistök í vörn Chelsea.
Botnbaráttan
Aston Villa sigraði Everton, 3:1,
og Nottingham Forest tapaði
heima, 1:3, fyrir Southampton.
Bæði lið eru í botnbaráttunni; Midd-
lesbrough er nú í þriðja neðsta
sæti, Forest í því næstneðsta og
Southampton er neðst. Liðin hafa
lokið misjafnlega mörgum leikjum,
Middlesbrough stendur nokkuð vel
að vígi en staða Forest er afar
slæm. „Ég get ekki bent á hina
leikmennina þó að þeir hafi ekki
staðið sig vel því ég gerði slæm
mistök - sem kostuðu tvö mörk,“
sagði Stuart Pearce, leikmaður og
knattspymustjóri Forest, að leiks-
lokum.
Slakt á Wembley
fengi ekkert stöðvað heimamenn
en Coventry jafnaði 13 mín. síðar,
þar var að verki Noel Whelan með
skalla eftir homspyrnu. Stan Colly-
more fékk dauðafæri til að koma
Liverpool yfír á ný á 75. mín. en
skaut framhjá opnu marki úr miðj-
um markteignum og á síðustu mín-
útunni gerði Dion Dublin svo sigur-
markið, sem einnig kom eftir hom-
spymu. David James markvörður
Liverpool gerði hræðileg mistök og
Dublin átti auðvelt með að pota
honum í markið. Tvær mín. og 55
sek. vom komnar fram yfir venju-
legan leiktíma þegar Dublin skoraði
og flautað var til leiksloka fáeinum
andartökum síðar.
„Þetta er hálfvandræðalegt. Við
áttum að vera búnir að tryggja
okkur sigur löngu áður en þeir
gerðu sigurmarkið," sagði Roy
Evans, knattspymustjóri Liverpool.
„Það kemur alltaf ein og ein
svona ótrúleg helgi í ensku knatt-
spyrnunni. Vonandi verða þær fleiri
hjá okkur,“ sagði Gordon Strachan,
stjóri Coventry.
Middlesbrough og Leicester
áttust við í úrslitaleik deild-
arbikarkeppninnar á Wembley leik-
vanginum í London á sunnudag.
Liðin skildu jöfn, 1:1, eftir fram-
lengdan leik og mætast að nýju á
miðvikudag í næstu viku, á Hills-
borough í Sheffield.
Leikurinn á Wembley olli mikl-
um vonbrigðum. Hann var ekki vel
leikinn, hvorugt lið þorði að taka
mikla áhættu lengi framan og lítið
var um færi.
Fabrizio Ravanelli, ítalski lands-
liðsmiðheijinn hjá Middlesbrough,
náði forystunni þegar fímm mín.
voru liðnar af framlengingunni.
Eftir að Brasiliumaðurinn Juninho
hafði pijónað sig í gegnum vörn
Leicester barst knötturinn út í teig-
inn af vamarmanni og Ravanelli
þrumaði í gegnum þvögu leik-
manna og í markið - óveijandi
fyrir Bandaríkjamaninn Kasey
Keller markvörð.
Það var svo hinn 18 ára Emile
Heskey sem jafnaði er þijár mín.
voru eftir. Eftir fyrirgjöf skallaði
hann í þverslá, knötturinn hrökk
niður á marklínuna, varnarmönn-
um tókst ekki að hreinsa frá og
Heskey náði að pota í netið.
Það voru einmitt markaskorar-
arnir sem fengu bestu færi liðanna
í venjulegan leiktíma; Heskey
skallaði ofan á þverslána á 65.
mín. og Ravanelli átti svo glæsileg-
an skalla í stöng á 79. mín. Var
sannarlega óheppinn að ná ekki
forystunni þá.
Aðurnefndur Juninho, sem alla
jafna er maðurinn á bak við sóknar-
leik Middlesbrough, gat ekki haft
sig mikið í frammi. Svíinn Pontus
Kámark hafði hann í strangri gæslu
og stóð sig geysilega vel.