Morgunblaðið - 08.04.1997, Qupperneq 12
faámR
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI KARLA
Bjarki sem „indíáni"
með eitraðar ön/ar
Duranona eins
og eldflaug
ÞEGAR Sobastían Alexand-
ersson, markvörður Aftureld-
ingar, varði vítakast frá Ser-
gei Zisa, spyrnti hann knettin-
um upp í loft, þannig að úr
varð dómarakast. Julian Rób-
ert Duranona og Einar Gunn-
ar Sigurðsson kepptu um
knöttinn þegar Stefán Arn-
aldsson kastaði honum upp á
miðjum veUi. I fyrstu virtist
Einar Gunnar sterkari, að
hann næði að slá knöttinn. Svo
varð ekki, því að Duranona
var eins og eldflaug - greip
knöttinn með annarri hendi
og sendi hann til Leós Arnar
Þorleifssonar, sem skoraði,
18:16.
Átta leikmenn
KAinná
BJARKI Sigurðsson var í aðal-
hlutverkinu þegar Afturelding
lagði KA að velli ífyrsta leik
liðanna í úrslitarimmunni um
íslandsmeistaratitilinn. Bjarki
var svo sannarlega í hlutverki
„indíánahöfðingjans" - hann
lék fremstur í vörn Afturelding-
ar, fyrir utan punktalínu til að
trufla sóknaraðgerðir KA-
manna. Þá var hann með eitr-
aðar örvar i' pyngju sinni,
spennti bogann af mikilli fimi,
hitti mark KA átta sinnum, sjö
sinnum með langskotum og
einu sinni eftir að hann hafði
fiskað knöttinn og brunaði
fram í hraðaupphlaup. KA-
menn réðu illa við Bjarka og
tvisvar í leiknum tóku þeir það
til ráðs að setja mannhonum
til höfuðs - fyrst Leó Örn Þor-
leifsson ífyrri hálfleik og þá
Sergei Zisa undir lok leiksins.
Allt kom fyrir ekki, Afturelding-
armenn fögnuðu sigri, 27:25,
eftir að hafa náð mest sex
marka forskoti.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Það var strax ljóst í byijun leiks
að leikmenn Aftureldingar
ætluðu að selja sig dýrt, þeir léku
vörnina mjög fram-
arlega - Bjarki
fremstur sem „indí-
áni“ og við hlið hans
voru Páll Þórólfsson
og Þorkell Guðbrandsson sem fóru
út fyrir punktalínuna til að sækja
að Björgvini Björgvinssyni og Julian
Róbert Duranona. Það var mikil
keyrsla á varnarmönnum Aftureld-
ingar - spurningin var hvort þeir
myndu halda út leikinn, því að
hreyfanleikinn sem var í vörn þeirra
tekur mikinn toll.
Þannig varnarleikur getur verið
tvíeggjaður því að með því að fara
svo langt út á völlinn, geta opnast
miklar glufur. Það má segja að
línumenn og hornamenn andstæð-
inganna fái „ferðaleyfi" eftir lín-
unni, fyrir aftan varnarmennina.
Það var þó enginn ferðahugur í
leikmönnum KA, þeir nýttu sér
ekki þá möguleika sem boðið var
upp á. Sjaldan sáust leikmenn á
SÓKNARNÝTING
Fyrsti leikur liðanna í úrslitum
íslandsmótsins, leikinn I Mosfellsbæ
sunnudaginn 6. ap
* „
Afturelding KA
Mörk Sóknir %_Mörk Sóknir %
16 23 62 F.h 12 23 52
11 26 42 S.h 13 27 48
27 49 55 Alls 25 50 50
10 Langskot 9
5 Gegnumbrot 3
5 Hraðaupphlaup 1
1 Hom 2
: 3 Lína 6
3 Víti 4
1997.
Aftureldingu knöttinn, Sigurður
Sveinsson skoraði eftir gegnum-
brot, 26:22.
Óvænt spenna undir lokin
Spennan var mikil, spennufall
hjá Aftureldingu, en KA-menn
gerðu örvæntingarfulla tilraun til
að klóra í bakkann. Duranona skor-
aði með langskoti og bætti öðru
marki við úr vítakasti, 26:24, þeg-
ar 59 sek. voru eftir. Afturelding
missir knöttinn, Duranona á línu-
sendingu á Leó Örn Þorleifsson
sem skorar, 26:25. 24 sek. eftir
og spennan mikil.
KA-menn fara að leika maður
gegn manni, freista þess að ná
knettinum, jafna og komast í fram-
lengingu. Leikmenn Aftureldingar
fara í sókn, tveir leikmenn þeirra
eru með knöttinn við vítateigslínu,
þeir voru hræddir, sendu knöttinn
á milli sín, ekki tvisvar heldur þrisv-
ar. Það var þá sem Sigurður Sveins-
son tók af skarið og skoraði, 27:25,
- sex sek. eftir af leik, þær dugðu
ekki KA-mönnum.
Aftureldingarmenn voru vel að
sigrinum komnir - þeir léku betur,
voru grimmari og ákveðnari í öllum
aðgerðum sínum. Bjarki Sigurðsson
var bestur þeirra, þá gerði Ingi-
mundur Helgason vel, Bergsveinn
Bergsveinsson varði vel í seinni
hálfleik og þá sýndi Gunnar Andrés-
son góðan kafla. KA-menn náðu sér
aldrei vel á strik, hvorki í sókn né
vörn. Sergei Zisa og Leó Örn voru
bestir þeirra.
LIÐSSTJÓRI KA-liðsins gerði
mistök, þegar staðan var
12:10. Eftirlitsdómarinn,
Kjartan Steinbeck, stöðvaði
leikinn, þar sem átta leik-
menn KA-liðsins voru inná.
Áttundi leikmaðurinn var
kallaður af leikvelli og einum
leikmanni KA var visað af
velli.
Varði þrjú skot
Aftureldingar-
manna í röð
GUÐMUNDUR A. Jónsson,
markvörður KA, náði sér á
strik undir lok leiksins, en of
seint. Hann varði þrjú skot í
röð í einni sókninni - fyrst
skot úr homi, þá skot af línu
og aftur skot af línu.
Bjarki nálgast
markametið
BJARKI Sigurðsson, Aftureld-
ingu, nálgast markametið í
úrslitakeppninni í handknatt-
leik. Bjarki hefur skorað 186
mörk fyrir Víking og Aftur-
eldingu frá því að úr-
slitakeppnin var tekin upp
1992. Metið á Valdimar Gríms-
son, sem skoraði 199 mörk
fyrir Val og KA. Ólafur Stef-
ánsson kemur næstur á blaði,
skoraði 190 mörk fyrir Val.
Morgunblaðið/Golli
SIGURÐUR Sveinsson (9), Alex Trúfan og Sigurjón Bjarnason
fagna síðasta marki Aftureldingar, sem Sigurður skoraði
eftir samleik hans og Trúfans.
ferðinni í „línudansi“ og það var
ekki oft sem KA-menn nýttu sér
leikfléttur tveggja manna til að
riðla vörninni hjá Aftureldingu -
snöggum leikfléttum, sem hefðu
hæglega getað endað með send-
ingu inn á leikmann, sem vari á
auðum sjó fyrir framan markið.
Þannig fléttur hefðu rekið varnar-
menn Aftureldingar til baka og við
það opnað færi fyrir „fallbyssu-
skot“ Duranona. Það var ekki laust
við að mig langaði inn á völlinn,
til að fá „ferðaleyfi" - það er önn-
ur saga, snúum okkur að gangi
leiksins.
Afturelding með yfirhöndina
Aftureldingarmenn náðu fljót-
lega yfirhöndinni, sóknarnýting
þeirra var góð til að byija með.
Þeir náðu mest fjögurra marka for-
skoti, 10:6, og staðan í leikhléi var
16:12. Það var ekki fyrr en staðan
var 11:8 að Duranona náði að skora.
Það var greinilegt að varnarleikur
Aftureldingar hafði slegið KA-
menn út af laginu.
Markverðir liðanna höfðu sig lítið
í frami í fyrri hálfleik, vörðu örfá
skot. Bergsveinn Bergsveinsson fór
aftur á móti á ferðina í seinni hálf-
leik og átti mikinn þátt í að Aftur-
elding náði sex marka forskoti,
22:16, eftir að staðan var 18:16 og
KA-menn að gera sig líklega til að
koma inn í leikinn af fullum krafti.
Þegar hér var komið sögu tók
Gunnars Andrésson til sinna ráða,
skoraði tvö mörg eftir gegnumbrot
og eitt með langskoti, staðan orðin
25:19 og sigur Aftureldingar virtist
í öruggri höfn. Svo var þó ekki,
Guðmundur A. Jónsson kom aftur
í mark KA og fór að verja, leik-
menn KA skoruðu þijú mörk í röð
- Sverrir A. Björnsson tvö og stað-
an orðin 25:22 þegar 4,38 mín.
voru til leiksloka. Þá var Gunnari
Andréssyni vikið af leikvelli fyrir
að stöðva Alfreð Gíslason í hraða-
upphlaupi. KA-menn einum fleiri,
en slæm sending Duranona færði
„Mínir menn
andlausir"
Þannig vörðu þeir
Bergsveinn Bergsveinsson, Aftureldingn: 14
(Þar af sex skot sem knötturinn fór aftur til
mótherja). 7 (2) langskot, 4 (1) úr horni, 2 (1)
eftir gegnumbrot, 1 af línu.
Sebastian Alexandersson, Aftureldingu: 1/1. 1
(1) vítakast.
Guðmundur A. Jónsson, KA: 7 (þar af þrjú sem
knötturinn fór aftur til mótherja). 3 langskot, 3
(2) af línu, 1 (1) úr horni.
Hermann Karlsson, KA: 5. 2 langskot, 2 úr horni,
eitt af línu.
Það var dauðaþögn í búningsklefa
KA-manna eftir leikinn, menn
voru niðurlútir og Alfreð Gíslason
var óhress. Þegar hann var spurður
hvort að varnaraðgerðir Aftureld-
ingar hefðu komið honum á óvart —
og hvers vegna leikmenn hefðu ekki
nýtt sér veikleika þannig varnar,
sagði hann: „Ég vissi það fyrirfram,
að Afturelding myndi leika þannig
varnarleik — leikmenn liðsins myndu
koma langt út á völlinn til að hindra
sóknarleik okkar. Við náð-
um okkur aldrei á strik,
leikmenn voru andlausir
og reyndu lítið að hreyfa
sig án knattar til að riðla
vörn Aftureldingar. Það
er einkennilegt að við
þurfum sextíu mínútur til
að ná áttum gegn mótheij-
um okkar. Við töpuðum
fyrsta leiknum gegn
Stjörnunni og einnig
fyrsta leiknum gegn
Haukum, en unnum síðan tvo leiki
í röð. Ég ætla að vona að sagan
endurtaki sig gegn Aftureldingu, að
leikmenn mínir herði sig upp og
geri ekki sömu mistökin aftur. Við
fórum illa með færin okkar, þegar
við áttum aðeins markvörðinn eftir.“
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aft-
ureldingar, var ánægður með sigur-
inn. „Ég veit vel að varnarleikurinn
sem við lékum tekur mikinn toll,
leikmenn eru á fullri ferð bæði í
vörn og sókn. Varnarleikurinn hélt
gegn KA og við höldum áfram að
leika hann á meðan hann gefst vel.
Við erum einnig með önnur varnar-
kerfi uppi í erminni."
Er það ekki áhyggjuefni hvernig
þið missið niður öruggt forskot —
sex marka forskot gegn KA, niður
í eitt mark? „Jú, ég er að sjálfsögðu
ekki ánægður með það. Það er eins
og leikmenn fari að slaka á og vanda
ekki skotin. Við verðum að setja
undir þennan leka.“
ENGLAND: 2 1X 121 122 X12X