Morgunblaðið - 13.04.1997, Page 6

Morgunblaðið - 13.04.1997, Page 6
6 B SUNNUDAGUR 13. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING TIÖNAMAÐUR IDNMENNTUNÁSAMT REKSTRARMENNTUN Tryggingafélag í Reykjavík óskar eftir að ráða tjónamann til starfa. Starfs- og ábyrgðarsvið Starfið er fjölbreytt og krefjandi á sviði bíla- og eignamála. Móttaka á tilkynningum, tjónaskoðanir og matsstörf, úrskurðir um bótaskildu og samningagerð, afgreiðsla bóta, frágangur skjala og skýrslugerð. Menntunar- og hæfniskröfur • Iðnmenntun, ásamt rekstrarfræði- eða iðnrekstrarfræðimenntun eða reyndur vátryggingamaður. • Hröð og vönduð vinnubrögð. • Lipurð í samskiptum ásamt festu í samningum. • Góð íslensku- og tölvukunnátta. • Aðeins reyklaus einstaklingur kemur til greina. Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon eða Jón Birgir Guðmundsson hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 I síma 533 1800. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs, á eyðublöðum er þar liggja frammi, merktar: "Tryggingafélag - tjónamaður” fyrir 19. aprll nk. RÁÐGARÐURhf SHÍSÍNUNARCKíREKSIRARRÁEXJfCS7 Furugsrtl 5 108 Ruykjavlk Sfml 533 1800 Fam 833 1808 Nutfang: rgmi4lun«tr*kn*t.i« Helmsalða: http://www.treknet.ls/raUaarUur Markaðsstarf Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða metnaðarfullan, hugmyndaríkan starfsmann, sem hefurfrumkvæði og getur unnið sjálfstætt að markaðs- og sölumálum. í boði erfjölbryett og krefjandi starf í flestu því sem viðkemur markaðs- og sölumálum fyrirtækisins s.s. markaðsrannsóknum og vera sölustjórum fyrirtækisins til aðstoðar við fram- kvæmd á kynningum og söluherferðum. Sjá einnig um auglýsingamál og samskipti við fjöl- miðla varðandi birtingar á auglýsingum. Við- komandi þarf að vera vanur vinnu í excel og word tölvuvinnslu. Krafist er háskólaprófs í viðskipta- eða markaðsfræðum. Laun eru samkomulag. Áhugsamir sendi greinargóðar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf til af- greiðslu Mbl., merktar: „Egils 1997" fyrir 22. apríl nk. Upplýsingar eru ekki veittar í síma. Farið verður með allar umsóknir, sem trúnað- armál og þeim öllum svarað. Ölgeröin Egill Skallagrímsson ehf. er stofnuð 1913. Ölgerðin framleiði mikið úrval öls, gosdrykkja og þykknis. Erlendir samstarfsaðilar eru Pepsí, Tuborg, Carlsberg, Schweppes og Guinnes. Megináhersla er lögð á gæði hráefna og framleiðsluferils til að skila gæðavöru. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins er 115. Vantar strax! Erum að leita að 5 einstaklingum til sölustarfa. Reynsla ekki nauðsynleg, bara viljinn til að læra Þú færð sölu- og tækniþjálfun. Þú þarft ekki að fjárfesta í neinu, því að vió fjárfestum í þér. Þeir sem verða valdir geta byrjað strax. Bíll skilyrði. Ef þú ert tilbúin(n) til að leggja á þig vinnu til að ná árangri, pantaðu þá viðtal í síma 565 5965. Skólastjóri Laus ertil umsóknar staða skólastjóra Grunn- skóla Eyrarsveitar í Grundarfirði frá og með 1. ágúst nk. Umsóknir sendist sveitarstjóranum í Grundarfirði, Grundargötu 30, 350 Grundar- firði, fyrir 28. apríl nk. Nánari upplýsingar gefur Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri í síma 438 6630. Kennarar Grunnskóli Eyrarsveitar óskar eftir að ráða kennara í almenna bekkjarkennslu, stærðfræði, raungreinar, handmennt og myndmennt á næsta skólaári. Umsóknir sendist sveitarstjóranum í Grundarf- irði, Grundargötu 30, 350 Grundar- firði, fyrir 28. apríl nk. Nánari upplýsingar gefur Gunnar Kristjánsson skólastjóri í síma 438 6619. Húsvörður Laus er til umsóknar staða húsvarðar við Grunnskóla Eyrarsveitar, íþróttahús og sund- laug. Þarf að geta hafið störf í byrjun júní. Leitað er að handlögnum og röskum starfs- manni, sem á gott með að umgangast fólk. Einhver verkmenntun kæmi sér vel. Umsóknir sendist á skrifstofu Eyrarsveitar, Grundargötu 30, 350 Grundarfirði fyrir 1. maí 1997. Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 438 6630. Grundarfjörður er kauptún á norðanverðu Snæfellsnesi, í tæplega 3ja stunda akstursfjarlægð frá Reykjavík (enn styttra þegar Hvalfjarð- argöngin verða tilbúin). Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg atvinna. í Grundarfirði búa um 950 manns og hefur íbúum fjölgað um 25% síðustu 10 árin. í Grunnskóla Eyrarsveitar eru í dag rúmlega 180 nemendur- og fer fjölgandi! Unnið er að stækkun skólabyggingarinnar og ennfremur er að fara í gang stefnumótun i skólamálum. Við leitum að skólastjóra og kennurum sem vilja taka þátt í að gera góðan skóla betri. Leikskólakennarar Ennfremur vantar leikskólakennara til starfa á Leikskólanum Sólvelli, en þar starfa um 90 börn á tveimur deildum. Nánari upplýsingar gefa leikskólastjórar í síma 438 6645 og sveitarstjóri í síma 438 6630. Sjúkraþjálfari, málari, bakari! Langar ekki sjúkraþjálfara að koma og vinna hjá okkur í Grundarfirði? Góð aðstaða á nýrri heislugæslustöð í Grundarfirði. Upplýsingar gefur Hallgrímur Magnússon heilsugæslulæknir í síma 438 6682. Ennfremur gullið tækifæri fyrir málara og bak- ara að setja upp starfsstöð! Sveitarstjórinn í Grundarfirði. Mosfellsbær Mosfellsbæ búa um 5000 íbúar og eru börn og unglingar fjölmennur tldurshópur. Félagsmálasvið Mosfellsbæjar annast starfsemi á sviði élagsþjónustu s.s. félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, barnavernd, 'élagslega heimaþjónustu, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, félags- eg húsnæðismál, áfengisvarnarmál og vinnumiðlun. Félagsmálasvið sinnir ennfremur sérfræðiþjónustu við grunnskóla á sviði sálfræði- jg ráðgjafaþjónustu. Félagsráðgjafi Auglýstar eru lausartil umsóknartvær stöður Félagsráðgjafa viðfjölskyldudeild, um er að ræða hlutastörf, 75% og 50%. Starfið býður jpp á afar fjölbreytt starfssvið. Æskilegt er að jmsækjandi hafi reynslu af starfi á félagsmála- stofnun og þekkingu á fjölskylduvinnu. Um- sækjandi þarf aðvera löggiltur félagsráðgjafi. Hann þarf að hafa reynslu á sviði félagsþjón- jstu og vinnu með fjölskyldur. Starfið gerir <röfu um frumkvæði, skipulagshæfileika og næfni til samvinnu. Laun eru skv. kjarasamn- ngi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitirfélagsmálastjóri í 5Íma 566 8666. Félagsmálastjóri. giiiitdiiii lIliIISElli IlIEIIEIIII migiiii EIIiEIlII iciiaiiEi Háskóli Islands Heimspekideild Við heimspekideild Háskóla íslands eru laus til umsóknartvö lektorsstörf. Annars vegar er um að ræða lektor í dönsku máli og bókmenntum. Umsækjandi þarf að geta sýnt fram á fullnægj- andi kunnáttu í íslensku til að taka virkan þátt í stjórnunarstörfum. Hins vegar er starf lektors í spænsku máli og bókmenntum. Umsækjandi skal hafa háskólapróf á sviði mál- vísinda og bókmennta spænskumælandi þjóða. Æskilegt er að umsækjandi geti sýnt fram á kunnáttu í íslensku til að taka virkan þátt í stjórnunarstörfum eða sé reiðubúinn til að læra íslensku. Reiknað er með að ráða í störfin frá og með 1. ágúst 1997. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur ertil 5. maí. Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um vísindastörf, ritsmíðarog rannsóknir umsækj- anda, svo og vottorð um námsferil hans og störf. Með umsókn skulu send þrjú eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj- anda, birtum og óbirtum, sem hann óskar eftir að tekin verði til mats. Standi fleiri en einn höf- undur að ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauð- synlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefn- um umsækjandi hafi unnið að, að hverju hann sé að vinna og hvaða áform hann hafi ef til ráðningar kæmi. Ennfremur er ætlast til þess að umsækjandi láti fylgja umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögrium skal skila á starfsmannasvið Háskóla íslands, Aðalbygginu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Starfsmanna- svið mun svara öllum umsóknum og greina umsækjendum frá því hvort og þá hvernig starfinu hafi verið ráðstafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir. Siri A. Karlsen, lektor í dönsku, gefurfrekari upplýsingar um lektorsstarfið í dönsku máli og bókmenntum í síma 525 4720 eða í tölvu- pósti sirik@rhi.hi.is. Margrét Jónsdóttir, lektor í spænsku, gefur frekari upplýsingar um lektorsstarfið í spænsku máli og bókmenntum, í síma 525 4716 eða í tölvupósti jonsdotr@rhi.hi.is. Einnig gefur María Jóhannsdóttir, skrifstofu- stjórij upplýsingar um störfin í síma 525 4401 eða í tölvupósti mariaj@rhi.hi.is. Heilsugæslustöðin Patreksfirði Hjúkrunarforstjóri Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Patreksfirði er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu við H2-stöð á Patreksfirði og innan Patreksfjarðarlæknisumdæmis. Stað- an veitist frá 1. maí nk. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur ertil 22. apríl. (Endurbirting úr 8.4. sl.) Heilsugæslustöðin á Patreksfirði, rekur heilsu- gæslustöðvar á Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði og þjónar íbúum Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. íbúar á starfssvæðinu eru um 1.700. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Viðari Helgasyni, framkvæmda- stjóra Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar, Patreksfirði, Stekkum 1, 450 Patreksfirði. Náriari upplýsingar um stöðuna veitir Kolfinna Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 456 1110. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðið hefur verið. Heilsugæslustöðin á Patreksfirði. Reyklaus vinnustaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.