Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Þ EGAR gestir ganga inn í veit- ingastaðinn Ítalíu við Laugaveg ganga þeir inn í anna.i heim. Ur íslenska vetrarveðrinu (eða sumarkuldanum) inn í hið hlýja andrúmsloft Mið- jarðarhafsins. Hávær kliður, hlátrasköll og ilmur af ólívu- olíu og hvítlauk umlykur gesti strax í anddyrinu þar sem gestir verða gjaman að dvelja um stund vegna ann- ríkis í veitingasalnum. Salurinn sjálfur er um flest dæmigerður fyrir ítölsk veitingahús utan Ítalíu, veggir og loft hlaðin skreyt- ingum og munum sem í bland við hina þröngu borð- skipan mynda náið andrúms- loft. Gestir sitja þétt á Ítalíu og viftumar og loftræstingin geta stundum átt fullt í fangi með gestafjöldann og pizzu- ofninn. En auðvitað er það það sem gerir sjarmann er fólk sækist eftir. Matseðillinn samanstend- ur fyrst og fremst af pizzum og pasta-réttum sem flestir kosta í kringum þúsund krónur. Eflaust er það hið hófstillta verðlag sem ýtir undir vinsældir staðarins meðal yngri kynslóða og það virðist ekki hafa breyst frá menntaskólaárum mínum að MATUR OG VÍN bréfumbúðum, sem stundum em einnig bomar fram ineð matn- um, gefa sömu- leiðis nokkuð ódýrt yfirbragð. Einungis það að taka stangimar úr umbúðunum áður en þær era settar á borðið væri skárra. Rigatone-rör með Gorgonzola- sósu leið nokkuð fyrir að bragðmik- ill mygluosturinn var greinilega orð- inn vel þroskaður og hafði sósan úr honum keim af ammoníaki sem spillti töluvert fyr- ir. Áþekkt pasta í ISLENSK Morgunblaðið/Ásdís ÍTAT.TA Ítalía er einn vinsælasti stað- urinn sem fjölmennt er á fyrir skólaböll og árshátíðir og getur þetta stundum sett sterkan svip á gestahópinn. Auk pizzu og pasta er einnig úrval forrétta, fisk- og kjöt- rétta auk eftirrétta í boði þótt fjöldi rétta í þessum flokkum sé mun minni. Carpaccio úr nautakjöti samanstóð af fallegum, nokkuð þykkum og stóram kjötsneiðum er bragðmikilli ólívuolíu hafið verið hellt yfir. Stór Parmegiano-stykki þöktu kjötsneiðarnar og einnig var á diskinum að fínna gróft skorið grænmeti, jöklasalat, gúrkur og tómata og sítrónusneiðar. Carpaccio er einfaldur réttur sem byggist alfarið á hráefninu, sem hér var óaðfínnanlegt. Kjötið meyrt og fínt, ostur- inn mátulega harður og sal- atið brakandi ferskt. Biðja varð sérstaklega um pipar- kvöm. Sveppir í hvítlaukssósu var ágætlega útilátinn for- réttur en nokkuð hlutlaus þegar að bragðinu kom. Steiktir sveppirnir fljótandi í bragðlítilli sósunni og með borið fram rifíð grænmeti. Pastaréttirnir vora bomir fram í stóram skálum og skammtar vel útilátnir, greinilega með það í huga að einn skammtur eigi að geta mettað. Ofan á skálun- um var hins vegar að fínna sneið af snittubrauði með bræddum osti er hefði gjarn- an mátt missa sín að mínu mati. Óspennandi og óvið- eigandi. Verksmiðjufram- leiddar Grissini-stengur í Rótgrónasti Italíustaður Islands er Ítalía við Laugaveg. Steingrímur Sigurgeirsson segir matargerðina hlutlausa en staðinn einn þann bamavænasta í borginni. fjögurra ostu sósu var hins vegar hæfilega bragðmikið, þokkalega bragðgott en fremur hlutlaust. Enginn ostanna fjögurra virtist ná því að setja mark sitt á sós- una og ekki var tekið fram sérstaklega hverjir þeir vora. Hálfmánar með kónga- sveppasósu var einnig þokkalega bragðgóður rétt- ur með vel útilátnum skammti af sveppum en líkt og í mörgum öðram pastas- ósum staðarins var ijóminn greinilega ekki sparaður við matargerðina, sem gerir réttina allþunga í maga. Canelloni-rúllur með bo- lognese-sósu vora jafnframt stór og mikill réttur en frem- ur bragðdaufur. Þunnar nautasneiðar í tómatsósu voru ekki síður hlutleysið uppmálað. Tómatsósan, sem í mátti greina þurrkaðar kryddjurtir, það mild að hið hálfa hefði verið nóg. Með réttum er ávallt borið fram gróflega niðurskorið eða sneitt grænmeti, stund- um með ediksósu. Það er undantekningariaust óað- fínnanlega ferskt og fallegt en framsetning þess aftur á móti frekar groddaleg og samsetningar ómarkvissar. Oft virðist sem grænmetinu sé hent með án þess að nokk- ur sérstök hugsun liggi að baki önnur en að hafa græn- meti með. Þjónustufólk Ítalíu er flest ungt og þjónustan er hlý og vinsamieg. Þá fær Ítalía stóran plús í kladdann fyrir hið vinalega viðmót og þjón- ustu sem yngstu viðskipta- vinimir fá. Böm era greini- lega ekki einungis velkomin heldur ýmislegt gert til að koma til móts við þárfír þeirra og óskir þannig að þau uni sér vel meðan á heim- sókninni stendur. í þeim efn- um er Ítalía svo sannarlega ítölsk út í gegn. Staðurinn lætur sér ekki nægja að bjóða upp á bamastóla held- ur Iítur greinilega svo á að börn eigi sama rétt og aðrir viðskiptavinir. Ítalía býður upp á sérinn- fluttann ítalskan bjór í flösk- um, Birra Moretti, sem mér fannst fremur bragðlítill, en einnig þokkalegan vínseðil sem á er að finna nokkur allgóð ítölsk vfn, sum þeirra sérinnflutt. Álagning á vin- um er jafnframt sanngjöm, að minnsta kosti miðað við það sem gengur og gerist á íslenskum veitingahúsum. Rauðvín era hins vegar und- antekningarlaust borin fram allt of heit og vínglös staðar- ins era í einu orði sagt hræði- leg. Þessi ágætu vín sem þama era seld ættu betra skilið. Ítalía er að mörgu ieyti ágætur staður er þjónar sínu hlutverki. Hlutverki sem greinilega er þörf fyrir í ljósi þeirra vinsælda sem hann hefur notið í vel á annan ára- tug. Veitingastaðurinn er eins konar suðrænn griðastaður þar sem hægt er að fá and- rúmsloft sólarlandaferðanna fyrir vægt verð í eina kvöld- stund. Verðlag er hóflegt og því geta fjölskyldur snætt þarna saman án þess að tæma budduna. Matargerðin er vissulega mjög hlutlaus, líklega til að fínna þann samnefnara sem höfðar til sem flestra. Ákveð- in óþörf atriði, er ég hef nefnt, fínnst mér jafnframt gera að verkum að staðurinn setur meira niður en þörf væri á. Ég hef hins vegar stundum fengið allgóðan mat á Ítalíu, ekki síst þegar kjöt er annars vegar, þótt kálfakjötsréttur seðilsins hafi ekki verið fá- anlegur síðustu skiptin sem ég hef heimsótt staðinn. Það er greinilega metnaður lagður í sum hráefni, ekki síst kjöt og grænmeti. Þá era pizzur staðarins yfirleitt góðar og alveg lausar við þá ameríkan- iseringu sem einkennt hefur íslenska pizzu-markaðinn. Einn og einn réttur þar sem hin unaðslega matargerð þessa heillandi lands fær að njóta sín betur óútþynnt væri hins vegar vel þeginn. 1U.Í, W Nýleg reynslu- vín LÍKT OG venjulega bætast við um hver mánaða mót ný vin af öllu tagi í reynslusölu. Að undanfömu hafa verið að koma nokkur vín í hillur ÁTVR í Kringlunni, á Eiðistorgi, Stuðlahálsi og Akureyri, sem em þess vel virði aðjgefa gaum. I fyrsta lagi ber að nefna portú- galska hvítvínið Albis 1995 frá José Maria de Fonseca. Portúgalar hafa verið í mikilii sókn í víngerð undanfar- in ár og nú loks hafa á undanfömum misserum verið að birtast nokkur mjög athyglisverð vín þaðan á ís- lenska reynslulistanum. Albis er eitt þeirra en það er framleitt úr þrenns konar þrúgnm, Arinto, Malvasia og Moscatel. Það er síð- astnefnda tegundin (er flestir þekkja sem Muscat er ræður ferðinni og gefur víninu krydd- aðan og blómakenndan keim. Vínið er létt og lipurt, vekur upp sumarkenndir í huganum og hinar þrúgumar tvær gefa víninu ögn spennu og tempra Moscatel-þrúgurnar, sem eiga það til að verða nokkuð yfir- þyrmandi einar og sér. Áf- bragðs kaup. Það sama á við um sérríið Jarana Fino frá Emilio Lu- stau. Lustau er athyglisverður framleiðandi er framleiðir breiða og fjölbreytta línu af gæða-sérríi. Jarana er tví- mælalaust í þeim flokki. Ferskur ilmur þar sem ávextir (mjög þroskuð græn epli) og flor-ger mynda sérstaka og heillandi blöndu í blandi við pecan-hnetu og möndluilm. Fylling er góð og vínið ferskt og langt. Fino-sérríin hafa því miður átt erfitt uppdráttar á íslandi og alltof margir drekka þau enn líkt og sætu sérríin, það er volg, og fara þar með gjörsamlega á mis við þennan unaðslega drykk. Fino er einhver magnaðasti fordrykkur sem völ er á og hentar einnig vel í stað hvítvíns með t.d. súpum, flestum fiskréttum, tapas- réttum ogjafnvel unnum kjötvörum á borð við góða skinku og pylsur (þvi miður er Jabugo ekki enn fáanlegt hér á landi). Fino-sérrí ber hins vegar að drekka köld og gæta ber að þvi að geymsluþolið er ekki það sama og hjá sætu Cream-sérríunum. Eftir að búið er að opna flöskuna fer vínið að missa einkenni sín og ekki ætti að hafa flöskuna opna í ísskáp miklu Iengur en í 1-2 vikur. Fino er ferskvara, sem ekki á að geyma. Cotes du Luberon La Font de l’Orme 1995 (850 kr.). Ungt og berjaríkt vín frá suð- urhluta Frakklands þar sem óþroskuð rauð ber og rabar- bari eru áberandi í ilmi. Mjúkt og Beaujolais-Iétt vín sem ætti að henta ágætlega sem ódýrt grillvín, nú þegar vorið virðist vera í augsýn. Vina Izadi 1991, er Crianza-vín frá Vina Villabu- ena í Rioja Alavesa á Spáni. Litur vínsins er bjartur og rauður, ögn farinn að sýna þroska við brúnina. Hmur mjúkur, kanill og krydd, sult- aður ávöxtur með mildri eik. í munni ögn sýra en þetta er þó mjög þægilegt vín. Vel gerður Rioja og týpiskur. Þetta er enn eitt Ri- oja-vínið sem reynir fyrir sér á reynslu- listanum (flest hafa þau haft erindi sem erfiði) og alls ekki það versta. Vín sem kemur þægilega á óvart og vissulega er það gæðamerki að framleiðandinn skuli velja að skilgreina vinið sem Crianza þótt lagalega séð ætti það rétt á að kallast Reserva. Frá Búrgundarhéraði kemur svo loks Hautes-Cotes-de-Nuits 1993 „Téte de Cuvée“ frá Les Caves de Hautes Cotes. Alllétt vin þar sem fremur óþroskuð hindber og rauð skógarber einkenna ilm. Bragð er nokkuð sýrumikið og létt en vínið hreint og tært og í allgóðu jafn- vægi með þokkalega endingu. WSfitT.M-: IWI-SCOISM# * ' xm t VlFlA IZADI w COStCIIA IVÍi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.