Morgunblaðið - 13.04.1997, Síða 31

Morgunblaðið - 13.04.1997, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ vel. Það tók mig næstu árin að vinna síðan úr bessu öllu. Leiklistarskólinn er alltaf að verða betri og betri. Skólinn er að mínu mati mjög góður skóli. Hann hefur sannað það og sýnt. Úr honum hafa útskrifast mjög góðir leikarar en auðvitað er það undir hveijum og einum komið hvernig hann vinnur úr sínu.“ Og fljótlega eftir að þú útskrifað- ist frá Leiklistarskólanum ertu kom- in í hlutverk hjá leikhúsunum? „Já. Ég byrjaði strax að leika, byijaði nú rólega. Debúteraði í Ar- dísi, í Hart í bak eftir Jökul Jakobs- son, í Iðnó. Þaðan fór ég síðan upp í Þjóðleikhús í Gæjar og píur, Bene- dikt Árnason leikstýrði því. Svo byij- aði ballið." Og þá ertu orðin fastráðin leik- kona? „Nei, nei. Ég hef aldrei verið fastráðin utan tvisvar sinnum, eitt ár í senn. Það var ekki í tísku þá að vera fastráðin, ég var bara laus- ráðin. Jú, jú, ég hafði verkefni yfir veturinn, síðan liðu kannski nokkrar vikur að minna var við að vera. Ég vann mikið á Galleríi Borg á sumrin til að eiga peninga yfir sumartím- ann“. Er það ekki um eða eftir miðjan níunda áratuginn að þú ert í tveim íslenskum kvikmyndum og í stórum hlutverkum í þeim báðum? „Jú. Ég var með í tveim kvik- myndum sumarið 1985, Svart og sykurlaust og Eins og skepnan deyr. Leikhópurinn Svart og sykurlaust stóð að gerð myndarinnar ásamt Lutz Konermann, þýskum leikstjóra. Við ferðuðumst um Ítalíu vítt og breitt við tökur á myndinni og þetta var frábær reynsla og skemmtilegur tími í alla staði. Eins og skepnan deyr var að mestu tekin fyrir aust- an, á Loðmundarfirði. Aðstæður við tökur voru alveg hörmulegar. Við vorum að kúldrast þarna tuttugu manns í alltof litlum húsakynnum. Það voru mjög erfiðar aðstæður, slæmt veður og mjög erfitt um vik. En, þegar maður lítur til baka, góð reynsla. Eftir að ég hafði verið með í Gæjar og píur fékk ég svo stórt hlut- verk í leikriti Ólafs Hauks Símonar- sonar, Milli skinns og hörunds, haustið 1985. Þá fór ég að starfa með Hinu leikhúsinu í Hryllingsbúð- inni, en það var fijálst leikhús og rekið af Siguijóni Sighvatssyni og Páli Baldvini Baldvinssyni. Það var dálítið af öðrum toga. Þarna kom leikhús sem bjó utan um sig verk- smiðju. Þetta varð feikilega vinsæl sýning, sýningar urðu yfir eitt hundrað og það var sýnt í Gamla Bíói. Þarna byijaði ég að syngja. Þegar sýningum lauk á Hryllings- búðinni hófust sýningar á Rauðhóla Ransí, bresku leikriti og þar lék ég Rauðhóla Ransí og þurfti að iæra wrestling-tækni. Það var svo árið 1987 að ég var með í sjónvarpskvik- mynd hjá ríkissjónvarpinu og það sama ár er ég svo í stóru hlutverki í Djöflaeyjunni sem sýnd var í skemmu Leikfélagsins, þar sem Bæjarútgerðin hafði áður verið til húsa, og fyrir fullu húsi eina tvo vetur. Þá tók við hlutverk í Vesaling- unum, jólaleikriti Þjóðleikhússins um jólin 1987. Árið eftir lék ég Columb- ínu í Lygaranum, ítölsku verki sem fékk hræðilega útreið og litla að- sókn. Þetta var mjög krefjandi hlut- verk sem gaman var að fást við. Sumarið 1988 var tekið upp sjón- varpsleikrit eftir Svövu Jakobsdótt- ur, Næturganga, og þar var ég í stóru hlutverki. Það var síðan á dag- skrá hjá ríkissjónvarpinu þá um haustið og það sama haust er ég með hlutverk í Sveitasinfóníunni, eftir Ragnar Arnalds, í Iðnó. Og síð- ar um veturinn í Sjang og Eng sem fjallar um síamstvíbura sem voru skemmtikraftar og það var undir lokin í Iðnó, rétt áður en Leikfélagið flutti yfir í Borgarleikhúsið." Var það ekki lærdómsríkt fyrir þig, unga leikkonu að fá að starfa í Iðnó og kynnast þessu rótgróna leikhúsi? „Jú, það var mjög ánægjulegt og lærdómsríkt. Það þurfti ekki alltaf mikla peninga og stóra sali til að gera þar skemmtileg verk. Ég sá þar ýmsar ákaflega skemmtilegar sýningar eins og t.d. Saumastofuna, Kirsubeijagarðinn, Dag vonar og Sölku Völku. Guðmundur Pálsson og Sigríður Hagalín voru góðir vin- ir mínir. Við störfuðum mikið saman SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 B 31 _____,________________________ í Skemmunni t.d. í Djöflaeyjunni. Það var ómetanlegt. Svo var flutt í Borgarleikhúsið haustið 1989. Ég lék þá Vegmeyju í Höll sumarlands- ins, í opnunarsýningunni á stóra sviðinu. Mér fínnst stóra sviðið í Borgarleikhúsinu alveg stórkostlegt og það er gaman að standa á því sviði. Það er erfitt, sviðið er breitt og það er djúpt, en að sama skapi er það ögrandi og það er þannig sem mér finnst að leiksvið eigi að vera. Þetta var spennandi tími og að stíga þar fyrstu skrefin á nýju sviði, í nýju leikhúsi var stórkostlegt." Hélstu síðan áfram að leika í Borgarleikhúsinu? „Jú, síðar, en árið 1990 fer ég á fastan samning í eitt ár hjá Þjóðleik- húsinu og var með í Rómeó og Júl- ía og lék þar söngkonu. Það hefur verið sérstakt ánægjuefni að fá að taka þátt í íslenskum söngleikjum sbr. Evu Lúnu en Egill Olafsson samdi tónlistina, hún var frábær. Mér fannst Egill stórlega vanmetinn fyrir sinn þátt í verkinu. Sumarið 1990 fór ég til Rúss- lands og var þar í fimm vikur að kynna mér leiklist. Ég fékk þá Ste- faníustyrkinn, úr minningarsjóði Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu, og ég fór og skoðaði leikhús í Moskvu og Leningrad. Það var mjög lærdómsrík för. í Þjóðleikhúsinu lék ég eftir áramótin 90-91 í leikriti Þórunnar Sigurðardóttur, Elín, Helga og Guðríður. Þá um vorið 91 byijuðum við að æfa leikrit eftir Jim Cartwright, Stræti. Um sumarið rifti ég samningi af þeirri einföldu ástæðu að ég var ósammála Þjóð- leikhússtjóra og svo pakkaði ég saman og fór mínar eigin leiðir. Fór ég þá aftur til Borgarleikhúsins og lék þar Elmíru í Tartuffe eftir Moli- ére. Síðan var ég áfram í Borg- arleikhúsinu næsta vetur 92-93 og með hlutverk í Spanskflugunni og í Evu Lúnu og þaðan fór ég svo til fijálsa leikhússins Frú Emilíu og réð mig þangað í tvö ár og átti þar ákaflega gott samstarf við Guðjón Petersen, Guðjón Reynisson, Haf- liða Amgrímsson, Helgu Stefáns- dóttur og Elín Éddu Árnadóttur. Þar lék ég Lady Macbeth og Vöiju í Kirsubetjagarðinum í leikstjórn Guðjóns Petersen og síðast en ekki síst í óperu eftir Hjálmar Ragnars- son, Rhodemenía palmata, sem einnig var stórlega vanmetin og við texta eftir Halldór Laxness, þar lék ég aðalkvenhlutverkið. í mínum huga er það menningarslys að Frú Emilíu skyldi ekki vera gert kleift að halda áfram með sína metnaðar- fullu starfsemi í Héðinshúsinu. Og þaðan lá leiðin aftur í Borgarleik- húsið þar sem allur leikhópurinn ásamt leikstjóra setti upp söngleik- inn Kabarett og ég lék Sallý Bow- les. Eftir að þeirri sýningu lauk eða um haustið 95 er ég aftur komin til Þjóðleikhússins og þá í hlutyerki Helgu í Þrek og tár, leikriti Ólafs Hauks, og þá um veturinn er ég einnig í tveim öðrum leikritum í Þjóðleikhúsinu, lék Elvíru í Don Juan og Seliu í Sem yður þóknast í leikstjóm Guðjóns Petersen. Þá hef ég leiklesið heilmikið í teikni- myndum fyrir myndbönd og stærri myndir eins og Áladdín, Lion King og Hringjarann, Stöð 2 og Sjónvarp- ið og nýlega er búið að taka upp nýjan framhaldsþátt á Stöð 2, Forn- bókabúðin, og þar er ég með hlut- verk. Guðmundur Ólafsson og Jó- hann Sigurðsson sömdu handritið og Jóhann leikstýrir. Fyrsti þáttur- inn var sýndur núna um páskana. Sumarið 1996 lék ég í finnsk- fransk-íslenskri sjónvarpsþáttaröð. Þetta era þættir fyrir unglinga og ijalla um fólk á hestaferð yfir há- lendi íslands." Söngkona Auðvitað verður ferill Eddu Heiðrúnar í leikhúsinu ekki rakinn án þess að minnst sé sönginn, eins ríkur þáttur og hann hefur verið í gegnum árin í ýmsum verkum sem hún hefur tekið þátt í og þegar hann barst í tal brosti Edda Heiðrún og rifjaði upp margar ánægjulegar stundir: „Það er skemmst frá því að segja að söngurinn fór að stjórna mínu lífi að nokkra leyti þegar ég byijaði í Hryllingsbúðinni. Svo stofnaði ég vorið 1990 sönghóp sem hét Blái hatturinn, ásamt Ásu Hlín Svavars- dóttur, Jóhanni G. Jóhannssyni, Agli Ólafssyni og Jóhanni Sigurðar- syni og við störfuðum mjög ötullega í þijú ár og gerðum t.d. sjónvarps- þátt sem fluttur var um jólin 1994. Við ferðuðumst víða um landið og fóram nokkram sinnum í söngferða- lög til útlanda. Hópurinn varð til þegar minnst var 50 ára hersetu á Islandi. Við bjuggum til prógram sem var flutt í Norræna húsinu af því tilefni og dagskrá sem við nefnd- um Lög og ljóð í stríði og var nokk- urs konar samanburður á því hvað menn vora að yrkja og svo dægur- lagamúsík sem flæddi yfir heiminn frá Ameríku á stríðsárunum. Við gerðum fleiri dagskrár. Við sungum íslenskt efni frumsamið, t.d í sjón- varpsþáttum. Þetta var góður hópur hæfileikafólks og samstarfið ein- staklega gott; Þá hef ég sungið inn á nokkrar plötur t.d á barnaplötu og plötur hafa verið gefnar út í tengslum við söngleikina sem ég hef tekið þátt í, Hryllingsbúðina, Kaba- rett og Evu Lúnu. Það er svo sem ágætt að hafa þetta í bakhöndinni, gott að hafa sönginn með, hann er stór þáttur í leiklistinni. Ég hefði viljað læra meiri söng. Ég var einn vetur í Söngskólanum og í píanó- námi“. „Hún er einn af okkar bestu og eftirsóttustu leikurum“ Hvert nýtt hlutverk sem Edda Heiðrún túlkar vekur jafnan athygli leikhúsáhugafólks. í leikdómi um hina vönduðu og áhrifamiklu upp- færsiu Þjóðleikhússins á leikriti Henriks Ibsen, Villiöndinni, segir Soffía Auður Birgisdóttir í Morgun- blaðinu 28. desember síðastliðin: „Edda Heiðrún Backman leikur Gínu eiginkonu Hjálmars Eklands af reisn og fagmennsku. Gína er í túlkun hennar hlý, umhyggjusöm og raunsæ eiginkona og móðir sem vill sínum allt það besta og slær striki yfir augljósa veikleika eigin- mannsins. Edda Heiðrún er mjög trúverðug í hlutverkinu.“ Og Auður Eydal segir í leikdómi í DV: „Edda Heiðrún og Steinunn Ólína veita körlunum sterkan mótleik. Konum- ar hans Ibsens era sem endranær aflvaki og kvika verksins og hér era hlutverkin sannarlega í góðum höndum". Jón Viðar Jónsson, leik- listargagnrýnandi Dagljóss í ríkis- sjónvarpinu segir aðspurður um leikkonuna Eddu Heiðrúnu Back- man : „Edda Heiðrún hefur í raun og vera alla kosti sem prýða einn leikara. Hún hefur feikilega örugga „ tækni sem hún kann að beita af smekkvísi, tilfinningalegt næmi og innsæi eru í góðu lagi, svo er hún greind. Hún veit að hvert hlutverk verður að vinna á þess eigin forsend- um og að leiklistin snýst ekki um að halda sýningu á persónu leik- arans, hversu töfrandi eða áhuga- verð sem hún kann að vera. Hún er auðmjúk gagnvart verkefninu sem því miður er meira en hægt er að segja um alla kollega hennar. Hún á sjálfsagt eftir að ná meiri tilfinningadýpt en hún hefur gert hingað til, það er nokkuð sem kemur 'tf með þroska og aldri. Ég er reyndar ekki viss um að leikhúsið hafí alltaf búið nógu vel að henni, kannski er það eitthvað að breytast núna. Ef svo er efast ég ekki um að við eigum eftir að sjá hana gera mjög góða hluti í nánustu framtíð." Ása Hlín Svavarsdóttir, leikstjóri og samstarfskona Eddu Heiðrúnar til margra ára, segir um kynni sín af leikkonunni: „Edda Heiðrún vin- kona mín hefur óvenjumarga hæfí- leika og það er þjálfunarefni fyrir meðaljónu eins og mig að fyllast ekki minnimáttakend nálægt henni. Það er eitt í hennar fari sem ég hef sérstakt dálæti á og það er kímni- gáfa hennar. Nú, Edda syngur eins < og engill, það vita nú allir. Hún er mjög góður dansari. Edda er heid ég einn besti kokkur sem ég hef komist í tæri við. Edda pijónar bet- ur en ég og pijóna ég þó vel. Sem Ieikari hefur Edda náð langt og verð- skuldar það svo sannarlega. Hún hefur það sem sönnum listamanni sæmir, er tilbúin að leggja allt í sölurnar, kastar sér fram af bjarg- brúninni, hvenær sem þörf krefur og hún uppsker svo sannarlega sem hún sáir. Hún er einn af okkar bestu og eftirsóttustu leikurum." Egill Ólafsson, leikari og söngvari hefur mikið starfað með Eddu Heiðrúnu á liðnum árum. Hann seg- ir aðspurður um samstarf þeirra: „Edda Heiðrún er frábær listamað- ur. Hún hefur lag á að gera ávallt betur en vel. Hún hefur fallega af- stöðu til vinnunnar og er stöðugt að. Mér er minnisstætt hvemig hún hefur komplimenterað fáeina söngva sem ég hef samið fyrir leikhús og hún hefur sungið. Hún er fágætur leikari sem hefur flest á valdi sínu, hefur brimandi skaphöfn, en er engu að síður hlý og aðlaðandi.“ Þegar ég kvaddi Eddu Heiðrúnu sá ég ekki betur en að hún væri þegar farin að lifa sig inn í hlutverk t~' Goldu í Fiðlaranum á þakinu sem er framsýnd í Þjóðleikhúsinu um miðjan aprílmánuð. Hún er listamað- ur sem sannarlega er að gera góða hluti . . . SMAAUGLYSINGAR fítmhjálp Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Mikill og fjölbreyttur söngur. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburðir. Barnacjæsla. Ræðumaður Óli Agústsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. YMISLEGT Athugið! Ertu þreyttur í baki, öxlum, áttu erfitt með að komast fram úr á morgnana? Þá er þetta rétta stof- an fyrir þig. Býð upp á alhliða lík- amsnudd, losun á vöðvafesting- um, punkta- og svæðanudd, sogæðanudd, jöfnun á orku- svæðum og slökun. Er með margra ára reynslu i nuddi. Sér- hæfð í öxlum og baki. Nudda einungis upp úr íslenskum jurta- vörum. Trim-form, 10 morgun- tímar, einungis 5.900 kr. Nudd fyrir heilsuna, Skúlagötu 40, Barónstigs- megin sími 561 2260. KENNSLA HEILSUSETUR ÞÓRGUNNU Ungbarnanudd Námskeið fyrir foreldra með börn á aldrinum 1-10 mánaða. Gott fyrir öll börn, hjálpar t.d. vif magakveisu, lofti í þörmum og órólegum svefni. Námskeiðið byrjarfimmtudaginn 17. apríl. Upplýsingar og innritun á Heilsusetri Þórgunnu, Skúlagötu 26, sími 562 4745, milli kl. 11.0C og 13.00. DULSPEKI Námskeið — Lífsaugað Lífsaugað heldur námskeið í heilun. Farið verður í gegnum þætti eins og heilun með litum og tónlist. Hugleiðsla verður einnig tekin fyrir. Þetta er til að kynnast þér og þínum innra manni. Einn þáttur að betra markmiði. Tímasetning 19.-20. april kl. 10-16 báða dagana. Verð kr. 3.500. Hægt er að fá keyptan heitan mat, verð kr. 1.300. Staðsetning á Suðurlandsbraut 46, 3. hæð, btáu húsin. Kennari verður Þórhallur Guð- mundsson, miðill. Upplýsingar í síma 5534488 frá mánudegi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.