Morgunblaðið - 29.04.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 B 3
Kristján þjálfar FH,
Bjarfci enn óákveðinn
Hálfdán Þórðarson samningsbundinn bæði FH og Aftureldingu
KRISTJÁN Arason var ráðinn þjálfari 1. deildar liðs FH um
helgina. Afturelding hafði einnig áhuga á að fá Kristján sem
þjálfara, en þegar hann kaus að halda á heimaslóðirnar snéru
Mosfellingar sér til Bjarka Sigurðssonar, leikmanns liðsins,
og óskuðu eftir því að hann yrði þjálfari þess. Bjarki hefur
enn ekki gefið svar - sagðist ígærkvöldi ætla að hugsa málið
betur. Drammen í Noregi hefur gert Bjarka tilboð um að leika
ytra og enn kemur til greina af hans hálfu að taka þvítilboði,
og svo gæti einnig farið að hann léki áfram með Afturelding
þó hann verði ekki þjálfari.
Kristján Arason hefur verið
þjálfari í Þýskalandi undan-
farin þrjú ár en hann þjálfaði FH
áður en hann hélt út - gerði liðið
m.a. að íslandsmeistara vorið 1992.
„Þetta er öðruvísi verkefni en ég
hef áður sinnt, því fyrst og fremst
verður um uppbyggingarstarf að
ræða,“ sagði Kristján við Morgun-
blaðið.
„Stefnan er að byggja upp sjálfs-
traust hjá leikmönnum og stuðn-
ingsmönnum, fá stemmningu aftur
í kringum liðið.“
Kristján þjálfaði FH 1991 til
1994 og þá varð liðið einu sinni
íslandsmeistari, einu sinni deildar-
meistari og tvisvar bikarmeistari.
„Liðið var sterkara þá en það er
núna en efniviðurinn er góður. FH
hefur oft átt góða yngri flokka en
of fáir hafa skilað sér sem lykil-
menn í meistaraflokki og því viljum
við breyta. Við hugsum ekki um
titil en aðalatriðið er að byggja upp
leikgleði og taka eitt skref í einu.“
Kristján sagði ennfremur að reynsla
eldri manna liðsins hefði mikið að
segja og Guðjón Ámason yrði í stóru
hlutverki. „Segja má að hann verði
framhald af mér inni á vellinum."
Afturelding vildi einnig fá Krist-
ján sem þjálfara en hann valdi FH
að vel athuguðu máli. „Staða FH
er ekki góð og mér fannst ég skulda
félaginu. Ég og stjórnin þurfum að
rífa FH upp úr öldudal og til þess
er leikurinn gerður," sagði Kristján.
Óljóst hvaö Hálfdán gerir
Hálfdán Þórðarson, línumaður í
FH, skrifaði á sunnudag undir
samning til þriggja ára við Aftur-
eldingu að sögn Jóhanns Guðjóns-
sonar, formanns handknattleiks-
deildar félagsins. Hálfdán rifti í
framhaldi af því skriflega leik-
mannasamningi sínum við hand-
knattleiksdeild FH í gærmorgun.
Þegar leið á daginn í gær hafði
Hálfdáni hins vegar snúist hugur
og sagði við Morgunblaðið seint í
gærkvöldi: „Það eina sem er öruggt
er að ég fer ekki í Aftureldingu.“
Meira vildi hann ekki láta hafa eft-
ir sér, en jafnvel kemur til greina
að hann leiki alls ekki næsta vetur
skv. heimildum blaðsins.
Sigurjón þjálfar Selfoss
Handknattleiksdeild UMF Sel-
foss og Siguijón Bjarnason, sem lék
með Aftureldingu í vetur eftir að
hafa áður verið línumaður Selfoss,
hafa gert með sér samkomulag um
að hann taki við þjálfun meistara-
flokks félagsins sem féll í 2. deild
á liðnu tímabili. Hann tekur við af
Guðmundi Karlssyni og er samning-
urinn til þriggja ára.
Morgunblaðið/Golli
BJARKI Sigurðsson á lands-
IIAsæfingu í gær. Hann velt-
Ir því nú fyrlr sér hvort hann
eiga að taka að sér þjálfun
Aftureldingar eða ekki.
Andrés
þjálfar lið
KRog
Gróttu
Gunnar fór í Fram
Essen
býður
Patreki
nýjan
samning
Patrekur Jóhannesson stóð sig
vel með Essen í þýska hand-
boltanum í vetur og vill félagið
gera nýjan samning við hann í sum-
ar en hann gerði samning til tveggja
ára í fyrra. „Ég gerði alls 128 mörk
í deildinni sem þykir gott hjá nýliða
og félagið er ánægt,“ sagði Patrek-
ur við Morgunblaðið en hann var í
19. sæti yfir markahæstu menn
fyrir síðustu umferðina. Hann var
með tvö mörk í síðasta leiknum
þegar Essen tók á móti meisturum
Lemgo sem unnu 27:28. „Þetta var
ekki góður leikur og ég var óánægð-
ur með sjálfan mig en Lemgo er
með besta liðið og það var gaman
að spila fyrir troðfullu húsi, milli
sex og sjö þúsund manns voru í
höllinni. Þetta hefur líka verið
ánægjulegt tímabil og ég tek örugg-
lega tilboði Essen um nýjan samn-
ing.“
Héðinn Gilsson gerði fimm mörk
fyrir Fredenbeck sem tapaði 28:27
fyrir Sigurði Bjarnasyni og sam-
heijum í Minden en Fredenbeck var
fallið fyrir leikinn. „Þetta er það
lægsta sem ég hef upplifað í boltan-
um,“ sagði Héðinn. „Það er mjög
sárt að falla en ég get huggað mig
við það að slíkt hefur komið fyrir
bestu menn.“
Héðinn gerði samning til tveggja
ára í fyrra og sagðist frekar eiga
von á að vera áfram hjá félaginu.
„Ég hef ekki fengið tilboð um ann-
að en nokkrar fyrirspurnir."
Róbert Sighvatsson og samheijar
í Schuttei'wald töpuðu 40:33 í Kiel
og féllu en Róbert á möguleika á
að leika áfram í efstu deild. Hann
hefur gert samning við Dormagen
sem leikur um sætið við Bad
Schwartau eða Dutenhofen, en
þessi lið, sem urðu í 2. sæti í riðlun-
um í 2. deild, mætast fyrst.
Hameln, sem Alfreð Gíslason
tekur við, slapp ineð skrekkinn og
hélt sæti sínu á markatölu.
GUNNAR Berg Viktorsson,
landsliðsmaður í handknattleik,
undirritaði í gær eins árs samn-
ing við Fram um að leika með
félaginu. Gunnar hefur til þessa
dags leikið með IBV en hyggur
á nám í Reykjavík á næsta
hausti og taldi það ekki ganga
að leika með Eyjamönnum sam-
hliða því. Hér á myndinni er
Gunnar til vinstri en hægra
megin er Brynjar Freyr Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri
handknattleiksdeildar Fram,
sem er að vonum glaður með
liðsmanninn sem næsta vetur
mun klæðast peysunni sem þeir
halda á.
ANDRÉS Gunnlaugsson verð-
ur þjálfari sameinaðs 1. deild-
ar liðs Gróttu og KR í hand-
knattleik kvenna á næsta
tímabili en um helgina gerði
hann samning til þriggja ára
um þjálfun liðsins og hefjast
æfingar 1. maí. „Þetta er
framtíðarlið og spennandi
verkefni,“ sagði Andrés við
Morgunblaðið en hann hefur
þjálfað yngri flokka hjá HK
í Kópavogi undanfarin ár með
góðum árangri. Hann tók við
átta ára gömlum drengjum
fyrir sex árum og hefur þjálf-
að þá síðan en undanfarin
þijú til fjögur ár hafa þeir
verið í 1. til 3. sæti á íslands-
mótum. Andrés, sem er 36
ára, var aðstoðarþjálfari
meistaraflokks HK áður en
Sigurður Sveinsson tók við
liðinu. Hann lék með HK, ÍR
og í Belgíu þar sem hann var
í námi í íþróttahóskóla í Lo-
uvain. Hann hefur sótt þjálf-
aranámskeið í Júgóslavíu,
Þýskalandi og síðast í Noregi
þar sem hann fylgdist ma.
með æfingum norska kvenna-
landsliðsins.
Þess má geta að Gunnlaug-
ur Hjálmarsson, faðir Andr-
ésar, var um árabil einn
fremsti handknattleiksmaður
landsins en Guðný móðir hans
lék með KR á árum áður.
„íslendingaherdeildin" í Þýskalandi tryggði sér sæti í 1. deild
Bikarinn afhent-
ur á ráðhústorg-
inu íWuppertal
VIGGÓ Sigurðsson stýrði Wup-
pertal til sigurs í 2. deild þýska
handboltans og leikur liðið því í
1. deild næsta tímabil. Wuppertal
sótti Spandau heim í Berlín í loka-
umferðinni og vann 25:18. Bad
Schwartau, sem var stigi á eftir
Wuppertal, vann 37:23 í síðasta
leik, en var með lakari markatölu
en Wuppertal sem hefði nægt
jafntefli í Berlín til að halda efsta
sætinu.
„Mikil taugaveiklun einkenndi
leik okkar í byijun en eftir að
hafa verið undir 9:8 tókst okkur
að snúa dæminu við, staðan var
11:9 okkur í vil í hléi og síðan
komumst við i 23:13 og þar með
var þetta afgreitt," sagði Viggó
við Morgunblaðið.
„Við vorum með mi’kið betra lið
og áttum þetta skilið,“ sagði Dag-
ui- Sigurðsson, sem gerði fjögur
mörk. „Þetta var tæpt þar til í
lokin þannig að við þurftum að
bíða fram á síðustu stundu með
fagnaðarlætin," sagði Ólafur
Stefánsspn sem var með 8/2
mörk. „Ég fór út með því mark-
miði að spila í efstu deild og nú
er því náð, ég fæ að spila á með-
al þeirra bestu.“ Dimitri Filippov
skóraði tvö.
Mikil spenna var í síðustu um-
ferðunum og gerði Bad Schwartau
allt sem félagið gat til að koma
Wuppertal úr jafnvægi. Það hét
mótheijum liðsins hveiju sinni
50.000 mörkum í leikmannasjóð
fyrir sigur á Wuppertal auk þess
sem það keypti 300 miða á leikinn
í Berlín og gaf þá íbúum í borginni.
„Spennan hefur verið ógurleg,"
sagði Viggó. „Ekki aðeins inni á
vellinum og í baráttunni um stigin
heldur I öllu umhverfi félagsins.
Liðið er ekki nógu sterkt til að
leika í 1. deild og því var ákveðið
að færi það upp yrði bætt við fjór-
um til fimm mönnum. Menn hafa
því beðið í 34 umferðir en fyrst
núna er ljóst að hópurinn verður
styrktur verulega enda liggur fyr-
ir að styrktaraðilar leggja meiri
pening í dæmið vegna breyttrar
stöðu.“ Geir Sveinsson hefur þeg-
ar gert samning við félagið en
Viggó sagði að fyrst og fremst
vantaði vinstri hornamann.
Leikmenn Wuppertal flugu frá
Berlín og var tekið á móti þeim
eins og þjóðhöfðingjum. „Fleiri
þúsund manns biðu eftir okkur á
ráðhústorginu og borgarstjórinn
tók sérstaklega á móti okkur,"
sagði Viggó. „Þarna fengum við
bikarinn afhentan við mikinn
fögnuð borgarbúa og gleðin var
gífurleg. Þetta er í fyrsta sinn sem
félagið verður meistari og tilfinn-
ingunni má líkja við andrúmsloft-
ið sem ríkti þegar ég varð Islands-
meistari með Víkingi 1975 í fyrsta
sinn.“