Morgunblaðið - 04.05.1997, Side 7

Morgunblaðið - 04.05.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997 B 7 Morgunblaðið/Halldór MÍKLÓS Dalmay píanóleikari og kórstjórinn Edit Molnár frá Ungverjalandi ásamt börnum sínum. mikið af nútímatónlist og kammer- tónlist, sem meðleikari, í tríóum og með sinfóníuhljómsveitinni - en aldrei fjórhent með konunni minni.“ Annað sem bíður Míklósar í maí eru æfíngar á Tunglskinseyjunni, óperu Atla Heimis Sveinssonar sem frumsýnd var í Pekíng í mars, en hún verður sýnd fimm sinnum í Þjóðleikhúsinu á bilinu 21. til 30. maí. „Það hefur verið mjög gaman að vera með í þeirri uppfærslu,“ segir Míklós, „þetta er góður hópur og skemmtilegt að takast á við verkið.“ Þann 1. júní halda þau Míklós og Edit með börnin þijú til Sopron í Ungvetjalandi þar sem þau dvelja í sumar. En hvernig lít- ur næsti vetur út?' „Edit heldur áfram uppbygg- ingu á söngstarfínu og ég minnka eitthvað við mig kennsluna til að geta tekið meiri þátt í tónleikum. Það stendur til að ég taki þátt í tónleikaröð á vegum Kam- meractica, vegna hundrað ára dán- arafmælis Brahms og tvö hundruð ára fæðingarafmælis Schuberts. Síðan er eitt og annað á viðræðu- stigi, en ekki komnar neinar end- anlegar ákvarðanir, svo það er best að tala sem minnst um það.“ En verðið þið áfram á Flúðum? „Já, það er allt útlit fyrir það,“ segir Míklós, en það er ekki neinn armæðutónn í svarinu. „Okkur lík- ar vel hér og höfum nóg að gera - of mikið ef eitthvað er. Það er mjög rólegt hérna og ef ég hleð ekki of mikilli kennslu á mig, hef ég gott næði til að æfa mig.“ „Hér er mjög gott að vera,“ segir Edit, „líka vegna barnanna. Það getur stundum verið æði erfitt fyrir okkur að samhæfa tíma okk- ar og það hefur komið fyrir að Míklós verður veðurtepptur, eða þarf að fara á æfíngar eftir kennslu, fyrir sunnan. Hér eigum við enga ættingja, en þetta er fá- mennt samfélag og hér er gott fólk, sem við höfum getað reitt okkur á.“ Míklós er sammála þessu og þegar hann er spurður hvort honum fínnist hann ekki vera að fórna sér, til þess að konan hans geti unnið að sinni köllun, hristir hann hrokkinn kollinn. „Nei. Ég er ekki ástríðumaður í píanóleik. Ég er tónlistarmaður. Við erum það bæði. Hér getum við unnið - og átt fjölskyldu. Svo höfum við sumrin í Ungveijalandi." Það vantar ekki lukkuna fyrir okkur íslendinga að fá svona fólk til liðs við okkur í tónlistaruppeldi þjóðarinnar, hugsa ég með mér, þegar ég kveð þessa glaðlegu fjöl- skyldu - sem fínnst hún ekkert síður hafa ýmislegt til okkar að sækja. spilar bara tuttugu og fjóra tíma á sólarhring. En ég er tónlistarmaður, ekki „fanatic“. Ég vil lifa fjölskyldulífi og það er mjög margt sem mér fínnst skemmtilegt. Ég kenni auð- vitað of mikið, eins og er en það stendur til bóta. Þessi tvö ár, frá því að ég flutti á Flúðir, er ég ekki heldur bara með byijendur. Eg er með nemendur á 7. og 8. stigi líka.“ Hefurðu komið fram á tónleik- um í Evrópu frá því að þú fluttir til íslands? „Nei, bara á listahátíðinni í Sopron. ísland er auðvitað dálítið einangrað og lokað, þótt það hafi lagast. En svo hefur það líka mik- ið að segja, að ég sækist ekki eft- ir að koma fram á tónleikum. Ég tek aldrei upp símann og segi: Ég vil halda tónleika. Ef, hins vegar, einhver biður mig að spila, þá er ég alltaf tilbúinn - og það er smám saman að hlaða utan á sig hér á landi.“ Saknarðu þá einskis? „Jú, jú, það er margt sem við söknum, en við erum búin að velja. Ef sá dagur kemur, hins vegar, að okkur finnist þetta ekki nógu gott, þá förum við aftur.“ Ekki virðist þeim Míklósi og Edit þó lík- legt að sá dagur sé í nánd. „Edit er að byggja upp tónlistarstarf á Flúðum," segir Míklós og Elísabet bætir við til skýringar: „Það er mín köllun að byggja upp frá grunni, eða næstum frá grunni, eins og hefur verið hér. Ég vil það frekar en að kenna í háskóla og hér eru tækifærin næg.“ Og það er óhætt að taka undir það, vegna þess að þegar þau Mík- lós og Edit fluttu á Flúðir fyrir tveimur árum, var þar einn starf- andi kirkjukór. Hún sá auglýst, í Morgunblaðinu, eftir organista og kirkjukórsstjóra á Flúðum og sótti um. Þetta var 100% staða, sem organisti, kórstjóri, kennari í grunnskóla og tónlistarskóla. Heil staða fyrir Edit, ekkert fyrir Míklós. Hann tók því kennslu í Keflavík, Hafnarfirði og Reykja- vík, auk þess að kenna á Flúðum og í Reykholti. Núna, tveimur árum síðar, er Edit í 200% starfi og Míklós verður að minnka við sig til að geta sinnt píanóleiknum. „Þetta gerðist svo hratt og hleð- ur stöðugt utan á sig,“ segir Míklós. Og enn er ekkert lát á annrík- inu. Þann 8. maí verður haldin Sönghátíð Hrunamanna í Félags- heimilinu á Flúðum. Sönghátíð þessi var haldin í fyrsta sinn vorið 1996 og tókst svo vel að ákveðið var að endurtaka hana í ár. Edit verður með fjóra ólíka kóra á hátíð- inni og Míklós verður undirleikari þeirra allra. Efnisskráin er ólík því sem hann hefur átt að venjast, því auðvitað vilja íslendingar helst syngja ættjarðarlög þegar þeir eru komnir í kór. Og þótt Edit hafi tekist að byggja upp efnisskrá með erlendum, aðallega ungverskum, lögum í bland, þá er meginhluti hennar íslenskur. Þar að auki munu þau hjónin leika Qórhent á sönghátíðinni. „Við höfum aldrei spilað saman áður,“ segir Míklós. „Ég hef leikið Fyrir byrjendur og lengra komna. Hlaupió verður 3 sinnum i viku. Mánud. og miðvikud. kl. 18:00. Laugardaga kL 10:30. Spinning Frábærir „Spinning" tímar fyrir aila. „Tour de France“ fyrir lengra komna. Sundleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness Léttar leikfimiæfingar í lauginni. Einnig geta gestir farið í almennt sund, heita potta og í gufubaó eftir hentugleikum. Allt þetta fyrir aóeins kr. 2.475,- á mánuói ef þú byrjar strax. Kortið gildir til 31. ágúst. Hringdu strax í síma 561 3535 eóa komdu í Frostaskjól 6 og láttu skrá þig. fwmsrnstm Sumarskokk meó Mörtu Ernstdóttur hefst á morgun 5. maí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.