Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 4

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 4
4 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 4/5 -10/5 ►SÍÐASTA meginsending íslenzkra handrita frá Áma- safni í Kaupmannahöfn kom til landsins með danska varð- skipinu Vædderen. Von bráðar verður haldin sýning á handritunum. ►ÍSLENZKIR aðalverktak- ar voru harðlega gagnrýnd- ir á Aiþingi vegna meintra óeðlilegra undirboða á vikri á Þýskalandsmarkaði. Finn- ur Ingólfsson iðnaðarráð- herra og nokkrir þingmenn Sunnlendinga sögðu fyrir- tækið hafa beitt því fyrir sig á óeðlilegan hátt að rík- ið væri meirihlutaeigandi í fyrirtækinu til að vinna traust kaupenda. ►ÁVÖXTUN hlutabréfa í fimm hiutafélögum sem skráð eru á Verðbréfaþingi og Opna tilboðsmarkaðnum er orðin meira en 100% frá áramótum og gengi margra annárra félaga hefur hækk- að verulega. Hæsta ávöxt- unin er hjá Fiskmarkaði Suðurnesja, tæp 164%. ►TÆPLEGA 3.000 skammtar af LSD fundust í bréfi frá Belgíu, sem rann- sakað var á pósthúsi. And- virði efnisins er talið á bii- inu þrjár til fimm og hálf milijón króna. Þetta er stærsta LSD-sending, sem verðir laganna hafa komið höndum yfir. ►STÚLKA á 18. ári, sem hugðist synda i Bláa lóninu að næturlagi ásamt félögum sínum, lézt af slysförum í lóninu. Lögregla telur að- gang að svæðinu of auðveld- an og gæzlu of litla. Sátt í lífeyrismálinu? FORSVARSMENN ASÍ og VSÍ hafa óskað eftir þvf við ríkisstjórnina að afgreiðslu frumvarps um starfsemi líf- eyrissjóða verði frestað til hausts. ASÍ og VSÍ telja eftir viðræður undanfarna daga að mögulegt sé að ná víðtækri sátt um aukinn sveigjanleika í kerfmu fyrir almennu lífeyrissjóðina og sér- eignarsjóði. Samtökin hafa kynnt hug- myndir um að í stað þess að lágmarks- viðmiðun fyrir samtryggingu lífeyris- réttinda verði ákveðin krónutala á mánuði verði miðað við svokallaða lág- markstryggingavernd. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur umfjöll- un sinni um frumvarpið áfram á mánu- dag. Kennarar vilja ógilda stærðfræðiprófið Á FUNDI stærðfræðikennara um sam- ræmt próf í stærðfræði varð niðurstað- an sú að prófíð hefði verið of viðamik- ið. Auk þess hefði ýmislegt athugavert verið við framsetningu verkefna á próf- inu og nægileg rök væru fyrir því að dæma prófið ógilt. Harðar deilur hafa orðið um stærðfræðiprófíð. Nýjar Schengen- viðræður SAMKOMULAG er í augsýn um að Schengen-vegabréfasamstarfíð verði innlimað í Evrópusambandið. Fari svo er gert ráð fyrir nýjum viðræðum við ísland og Noreg um aðlögun að breyttu samstarfí, en ríkin hafa gert samstarfs- samninga við Schengen-ríkin. Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra segir að verði vegabréfasamstarfið fært und- ir yfirþjóðlegar stofnanir ESB, sé þátt- taka Islands sennilega úr sögunni. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segist hins vegar sjá tækifæri f stöð- unni. Mobutu og Kabila til viðræðna á ný MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, og Laurent Kabila, leiðtogi uppreisn- armanna, féllust á föstudag á að ræðast við í suður-afrísku herskipi á miðvikudag fyrir milligöngu Samein- uðu þjóðanna. Sögusagnir um að Mobutu hygðist ekki snúa aftur til Kinshasa fengu byr undir báða vængi þegar hann héit ekki á brott frá Gabon, en sonur forsetans og tals- maður, Nzanga Mobutu, hélt fram að hann færi heim í dag. Haft var eftir heimildarmönnum innan Sam- einuðu þjóðanna að Frakkar hefðu samþykkt að veita Mobutu hæli, en frönsk stjórnvöld vildu engin svör gefa um málið. Thabo Mbeki, vara- forseti Suður-Afríku, er í Gabon til að ræða við Mobutu, en fyrr í gær ræddi hann við Kabila í Lubumbashi í suðausturhluta Zaire. Mobutu ræddi á fimmtudag við fimm Afríkuleiðtoga í Gabon. Að loknum viðræðunum var gefíð út skjal þar sem Mobutu hvatti her Zaire til að undirbúa kosningar. Einnig var tekið fram að Mobutu, sem er með ristilkrabbamein, væri of veik- ur til að sækjast eftir kjöri sjálfur. í skjalinu var hins vegar hvergi minnst á Kabila, né að Mobutu mundi segja af sér og leyfa bráðabirgðastjóm eins og uppreisnarleiðtoginn hefur krafíst. Gegn hagsmunum íslands að hefja hvalveiðar MARSHALL P. Adair, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandarikjanna, sagði í Morgunblaðinu í gær, að bandarísk stjórnvöld væru þeirrar skoðunar að það þjónaði ekki hags- munum íslands að hefja aftur hval- veiðar. Efnahagslega væru íslend- ingar mun berskjaldaðri en Norð- menn þar sem olía væri uppistaðan i utanrikisverslun þeirra síðar- nefndu. ►T0GER Seidenfaden, ritstjóri danska blaðsins Politiken, hlaut í fyrradag tuttugu daga skilorðs- bundinn fangelsisdóm fyr- ir að birta dagbækur Ritt Bjerregaard án samþykkis hennar. ►HÁTÍÐ kvikmyndanna í Cannes í Frakklandi hófst á miðvikudag og var þess minnst að 50 ár eru liðin frá því hún var haldin f fyrsta sinn. ►LÖGREGLANíNew York hefur fengið hug- mynd að nýju vopni úr teiknimyndabókum um Kóngulóarmanninn til að klófesta glæpamenn sem reyna að flýja. Byssa, sem hún tekur senn í notkun, skýtur neti á glæpamenn- ina. ►TVEIR þriðjuhlutar franskra kjósenda eru ósáttir við frammistöðu Jacques Chiracs forseta. Þá telur 41% þjóðarinnar að hann eigi að segja af sér, vinni vinstrimenn sig- ur í komandi kosningum. Skoðanakannanir benda til þess að stjórnin muni halda meirihluta sínum, ná 301 sæti en vinstriflokk- arnir fái 254 sæti. ►VÍSINDAMENN skýrðu frá því sl. mánudag, að þeim hefði tekist að breyta yfirborði rauðra blóð- korna þannig, að unnt yrði að búa til einn blóðflokk, sem gengi hjá öllum án tillits til blóðflokkagrein- ingar. Aætlun um hvernig staðið er að móttöku flóttamanna A RAÐSTEFNU sem Rauði kross íslands gekkst fyrir um málefni flóttamanna í Norræna húsinu sl. fímmtudag, á Alþjóðadegi Rauða krossins, kom m.a. fram að í undir- búningi væri gerð áætlunar um hvernig standa eigi að móttöku flóttamanna til landsins. Myndað hefur verið Flóttamannaráð á vegum ráðuneytanna og á Rauði kross ís- lands þar áheymarfulltrúa. Jakobína Þórðardóttir, ráðgjafi hjá Rauða krossinum, sagði að Hans Thulen, forstöðumaður flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna { Stokkhólmi, hefði farið yfír ástandið almennt og rakti hann mismunandi ástæður fyrir flóttamannavandanum og mismunandi stöðu flóttamanna gagnvart lagabókstafnum. Sigrún Árnadóttir,_ framkvæmda- stjóri Rauða kross Islands, fjallaði um þátt íslendinga í alþjóðastarfínu og starf Rauða króssins í tengslum við móttöku á flóttamönnum. Páll PéturSson, félagsmálaráð- herra, rakti aðgerðir stjómvalda og greindi frá myndun Flóttamannaráðs hérlendis. Flóttamannaráðið á að vera ráðgefandi í sambandi við mót- töku á flóttamönnum. I máli hans kom fram að í burðarliðnum væri áætlun um hvernig staðið yrði að þessum málum í framtíðinni. Jakobína segir að engin áætlun sé til um móttöku flóttamanna ef undanskildir eru svokallaðir kvóta- flóttamenn. „Við höfum ekki staðið okkur sem skyldi í þeim málum því við höfum undirgengist vissar skyldur í sam- bandi við móttöku á flóttamönnum," sagði Jakobína. Jakobína sagði að þess hefði verið vænst síðastliðið haust að dómsmála- ráðuneytið legði fram tillögu um lausn á þessu máli. Flóttamaður frá gömlu Júgósiavíu, sem kom til íslands í fyrra, lýsti sinni sögu og síðan var efnt til pallborðs- umræðna með þátttöku þriggja þing- manna. Jakobína sagði að í máli þingmannanna hefði komið fram vilji til þess að íslendingar gerðu betur í þessum málum. Þegar gengið hefði verið á þá um svör við því hvers vegna stæði á framkvæmdum svar- aði Einar Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Vestfjarðakjör- dæmi, því til að þar væri um að kenna „þverpólitískum aumingja- skap“. Veittir hafa verið fjórir styrkir úr Minningarsjóði Sveins Björnssonar. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti ís- lands, afhenti styrkina, alls 950.000 kr., við upphaf ráðstefnunnar. Út- hlutað var úr sjóðnum í annað sinn en hann var stofnaður árið 1994 til minningar um Svein Björnsson, fyrsta forseta lýðveldisins og fyrsta formann Rauða kross íslands. Til- gangur sjóðsins er að styrkja rann- sóknir sem lúta að mannréttinda- og mannúðarmálum. Snorri Guðjón Bergsson hlaut 350.000 kr. styrk fyrir verkefnið Flóttamenn á íslandi 1935-1947, Dögg Pálsdóttir hlaut ,150.000 kr. styrk fyrir verkefnið Réttindi sjúkl- inga sem fjallar um rétt sjúklinga til heilbrigðisþjónustu og almanna- trygginga. 300.000 kr. styrk fyrir verkefnið Almennar og sérstakar reglur um flóttamenn í alþjóðlegum mannúðarlögum og Þorbjörg Jóns- dóttir hlaut 150.000 kr. styrk fyrir verkefnið Staða kvenna og karla í alþjóðiegum mannúðarlögum og ís- lenskum refsirétti. SAMGÖNGURÁÐHERRARNIR Halldór Blöndal og Peter Gronvold Samuelsen virða fyrir sér tignar- legan ísbjörninn þegar þeir ganga inn á Grænlandssýninguna . Þó að björninn virðist stór og mik- ill, segir grænlenski ráðherrann hann þó langt frá því að vera fullvaxinn. Beðið hagstæðr- ar veðurspár Grænlandssýning í Perlunni Grænland sem ferða- mannaland GRÆNLAND '97 er yfirskrift ferðasýningar sem hófst á föstu- daginn í Perlunni og lýkur síð- degis í dag. Um 30 ferðaþjónustufyrirtæki eru með bása á sýningunni, þar sem þeir kynna þjónustu sína. Má þar nefna hundasleðaferðir, vélsleðaferðir, siglingar, útsýnis- flug, veiðiferðir og sögu- og menningarferðir. Einnig er þar kynning á grænlensku hand- verki, svo sem listmunum út- skornum í bein ogtönn. Um 30 ferðaheildsalar víðsvegar að úr Evrópu eru mættir á sýninguna, auk þess sem hún er opin öllum almenningi. Peter Gronvold Samuelsen, samgönguráðherra Grænlend- inga, segir samstarf grannland- anna Grænlands og Islands I ferðamálum afar þýðingarmikið og að það fari sifellt vaxandi. Til dæmis séu flugsamgöngur landanna á milli alltaf að verða meiri og betri, til mikils gagns fyrir ferðaþjónustu, samgöngur og viðskipti. ÍSLENSKU Everestfararnir vonast eftir að geta lagt af stað á topp Everest á morgun, en það er háð því að veðurspá bendi til þess að veður fari batnandi við topp fjallsins. Björn Ólafsson, einn leiðangursmanna, sagði að veðurspámar hefðu staðist nokkuð vel fram að þessu, en í upp- hafi hefði hann verið vantrúaður á ágæti þeirra. Bjöm sagðist vera bjartsýnn á að þeim tækist ætlunarverk sitt þrátt fyrir að veður hefði tafið för. Babu, sem er í forystu fyrir Sherpunum, hefði sagt við sig í gær að það hefði oft komið fyrir að veður hefði ekki skánað á toppi Everest fyrr en 15. maí. Hann hefði sagt íslendingunum að hafa ekki áhyggjur. Björn sagðist treysta þessum orðum enda hefði Babu farið sex sinnum á tind Ever- est og þekkti fjaliið betur en flestir aðrir. JHann sagði það mikinn styrk fyrir íslendingana að Babu myndi fara með þeim upp. Löng bið í grunnbúðum Islensku íjallgöngumennirnir hafa farið í stutta göngutúra undanfarna daga til að halda sér í formi, en þeir hafa þurft að bíða í grunnbúðum marga daga eftir að réttar aðstæður sköpuðust fyrir þá til að fara upp. í fyrradag aðstoðuðu þeir við að koma Sherpa úr öðrum leiðangri í björgun- arþyrlu, en hann hafði veikst og þurfti nauðsynlega að komast á sjúkrahús. Það er víðáttumikil lægð yfír Ind- landi sem veldur hvössum vindum og kulda á tindi Everest. Bjöm sagði að það væri ekki fyrr en lægðin færði sig úr stað sem búast mætti við Betra veðri á Everest. Allar veður- breytingar gerðust hægar hér en heima. Hann sagði að fjallgöngu- mennimir sem lögðu af stað sl. þriðjudag hefðu verið óheppnir vegna þess að ef þeir hefðu lagt af stað einum degi fyrr hefðu þeir að öllum líkindum komist á toppinn. Tíma- setningar skiptu því miklu máli þeg- ar gengið væri á Everest. Sjá Everestsíðu Morgunblaðsins: http://www.mbl.is/everest/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.