Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 40

Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 40
40 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens } M'S 'A „ Í7ÓNAtí>MUN6~ I Mcjtrpv. L Grettir SJöUNPi P/t60R MeöeoNAei. INNAR. OF53ÓN1RNAR. WKlA) Tommi og Jenni Ljóska (ftljiðþid gera&i i/tuto ptð gerai ástrifiincLur v ao þessu, V áímariiö?r Etctert tr verrp, ert, ai verocLfiafacLb ) V £*'pálj6m Mundu ef flugbolti kemur til þín, gleymdu þá ekki að gera ráð fyrir vindinum! Ég er að reyna það! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavik • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Ferð að gosgjánni í Vatnajökli aHæliSflilfe Frá Einari B. Pálssyni: í MORGUNBLAÐINU þann 6. maí sl. er grein frá för manna úr ferðaklúbbnum 4X4 að gosgjánni í Vatnajökli. Á ljósmynd með grein- inni sjást tveir mannanna í hinu hrikalega umhverfi. í greininni er þess getið, að svæðið sé víða stór- hættulegt og ekki mælt með því, að hver sem er fari þangað, en þeir félagar hafi allir verið í bönd- um og með viðeigandi búnað. En var það svo? Á myndinni sést vel, hvernig mennirnir tveir voru bundnir saman, einkum þó sá, sem nær er. Hann bregður jöklabandinu utan um mittið og hnýtir það rétt ofan við vinstra mjaðmarlið. Þyngdarpunktur lík- amans er þá væntanlega ofan við hnútinn. Félli maðurinn í jökul- sprungu eru því miklar líkur á, að hann yrði þar á höfði og skakk- ur og gæti lítt beitt höndum eða handleggjum. Og erfitt yrði að ná honum upp. Getur nú hver sem er reynt að hugsa þetta til enda. Aðferð jöklamanna er að binda bandið um sig uppi undir handar- krika og hafa hnútinn framan á bringubeininu, vel ofan við þyngd- arpunkt líkamans. Til þess að bandið tolli þannig getur þurft að halda því uppi með sérstöku snæri yfir aðra öxlina. Þegar gengið er í röð er þægilegast að maður leggi bandið að næsta manni á eftir yfir öxl á sér; þá flækist það síður fyrir á göngunni. Ef snjór er a skriðjökli er oft tryggara að ganga á skíðum, vegna þess hversu þung- inn af manni dreifist mikið. En hvort sem skíði eru notuð eða ekki er sjálfsagt að ganga við tvo skíðastafi, þótt ekki væri nema til þess að geta reynt fyrir sér. EINAR B. PÁLSSON, Ægisíðu 44, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið. FULLBUNAR ÍBÚÐIR á frábæru verði Eigum nú þegartil afhendingar nokkrar fullbúnar 2ja og 3ja herbergja íbúðir á besta stað í Hafnarfirði, v/Suðurbæjarlaugina. Hér er verið að bjóða hágæðaíbúðir. Sumar þessarar íbúða henta sérlega vel fyrir eldri borgara. Lóð og aðkoma fullfrágengin. Sjón er sögu ríkari. Frábært verð og greiðslukjör. Allar frekari upplýsingar hjá Sigurði og Júlíusi ehf. í símum 565 0644 & 893 3569 svo og hjá fasteignasölunni Hóli, Hafnarfirði í síma 565 5522, Hraunhamri í síma 565 4511 og Valhúsum í síma 565 1122. Sigurður og Júlíus ehf. Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.