Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 7

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 F 7 HÚSIÐ & GARÐURINN Vítamíntöflur náttúrunnar FINNSK börn kynnast dásemdum villtra ávaxta strax í æsku við að þræða marglit ber upp á strá í háls- men. Árviss berja- og sveppaup- pskera finnsku skóganna er í engu minni metum en trjátekjan og allir sem vettlingi geta valdið mega tína, nema ef vera kynni í einstaka hluta Lapplands. Ber eru barmafull af vítamínum og steinefnum sem koma í góðar þarfir á dimmum vetrardögum og Finnar hafa á reiðum höndum ýmiss konar snjallræði við nýtingu uppskerunnar. Fyrst koma jarðaberin, síðan bláber, sem borðuð eru strax með mjólk út á og það sem ekki rennur niður í maga er nýtt í bláberjaböku og bláan safa. Margir íþróttamenn taka Plá- berjasúpu fram yfir margan heilsu- drykkinn og sumir Finnar borða slíka súpu í morgunmat. Finnar í norðurhlutanum búa til ás- tarseið lapplenskrar nornar, en svo nefnist kolsýrt bláberjavín þar um slóðir. Sólberjasafi þykir allra meina bót, sérstaklega gegn kvefi, og Finnar líta ekki við fjöldaframleidd- um trönuberjaafurðum en búa til sínar sultur sjálfir þar sem eimir eftir af votlendi og síðsumri á tungunni. Berjavodka og skærlitar sósur Reyniber, týtuber og sólber eru líka notuð í sultur og hlaup og borin fram daglega með héra-, hreindýra-, elgskjöti og villibráð. Framsæknir kokkar búa síðan til skærlitar sósur úr pressuðum berjum. Finlandia lætur sitt ekki eftir liggja og fram- leiðir margskonar berja-vodka sem líka er hægt að búa til heima með því að skella handfylli af berjum út í vod- ka með hefðbundnu bragði og gey- ma í ísskáp í nokkrar vikur ef þolin- mæðin er fyrir hendi. Framleiðsla á berjavíni hefur verið lögleidd og 20 nýir vínframleiðendur keppast við að búa til líkjöra úr trönu-, jarðar-, sól-, rifs-, reyni-, múltu- og brómberjum. Múltuberin eiga bragðið að þakka eilífum sólargeisium norðurhlutans og sama magn af C-vítamíni í teskeið af múltuberjum og heilli appelsínu. Morgunblaðið/Golli FINNAR nota bláber í súpur og vín. Þessi eru íslensk. Gómsæt ókeypis og heilsubætandi týtuber, eins og á innfelldu myndinni, nota Finnar í sultu og hlaup. GULA línan gefur upplýsingar frá átta til sex virka daga og tíu til fjögur laugardaga. Utan þess tíma er hægt að nálgast upplýs- ingar á internetinu. Gula línan upp- lýsir hús- og garðeigendur MEÐ SUMRINU gera vart við sig alls kyns óboðnir gestir sem fólk getur verið í mestu vandræðum með að losna við. Guia línan er tíu ára í júní og hefur undanfarin ár veitt hús- og garðeigendum, sem öðrum, upplýsingar um flest milli himins og jarðar og án endur- gjalds. Fimm stúlkur sitja fyrir svörum frá átta að morgni til sex á kvöldin virka daga og tíu til fjögur laugar- daga, og segir Bergdís Eggerts- dóttir þjónustufulltrúi að fólk geti hringt í Gulu línuna og leitað svara við hvaðeina sem tengist görðum, gróðri, húsinu; hverjir veiti hvaða þjónustu og selji hvaða vöru. Gula línan er með um 1.000 ein- staklinga og fyrirtæki á skrá segir Bergdís og áætlar að þar af teng- ist 200 garði og garðvinnu og alls kyns framkvæmdum. „Segjum sem svo að viðkomandi fái geit- ung eða vespu inn um gluggann hjá sér eða sé í vandræðum með starra. Fólk hefur oft ekki hug- mynd um hvert það á að hringja til þess að láta fjarlægja þessa gesti og getur því hringt í okkur,“ segir hún. Ánamaðkar og hvað sem er Bergdís nefnir ennfremur að Gula línan hafi allar upplýsingar um iðnaðarmenn, hvað þeir taki að sér, síma- og faxnúmer. „Eða hverjir eru með sólpallana, garð- húsgögnin, garðverkfærin, sláttu- vélar, eða hver geri við og hver þjónustar. Jafnframt höfum við upplýsingar um verktaka, lands- lagsarkitekta, hverjir selja hellur, ánamaðka eða bara hvað sem er.“ Þá er hægt að nálgast upplýs- ingarnar á internetinu en netfang- ið er midlun.is/gula og tölvutengd- ir geta því flett upp allan sólar- hringinn. „Ef við höfum ekki í gagnagrunni sem fólk er að biðja um leitum við að því og hringjum aftur í viðskiptavininn. Það kostar €:kkert,“ segir Bergdís loks. pJMP&W ■■■ ^ f* fjftelfikift 'iSi 'iU1 .éjsjfeS.ý ' & mi MB ifryHVi f & ▼ lœM .. | I l,,i, Hf . Éi iP' / /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.