Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 13

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 F 13 HÚSIÐ & GARÐURINN Gljávíðir eða salix? RÖGNVALDUR við gljávíðinn formklippta. Með markvissri klippingu hafa grenitrén orðið þétt og tekið á sig fullkomið grenitrjáaform. EITT af mörgu sem vekur at- hygli íverðlaunagarði Rögnvalds Finnbogasonar á Garðaflöt 17 í Garðabæ er rúmlega 20 ára gamall formklipptur gljávíðir, sem er eiginlega eins og kerta- logi í laginu og teygir sig rúma tvo metra upp í loft. Rögnvaldur setti niður tvo gljávíði hlið við hlið og leyfði þeim að vaxa í 3-4 ár. Síðan hefur hann klippt og mótað víð- inn á hverju hausti og plantan er þétt og falleg, laufgast á ystu greinar og er sannkallað augna- yndi. Fyrir þann sem hefur komið í garðinn segir það sig sjálft að hann vekur mikla athygli þeirra sem leið eiga hjá. Rögnvaldur segir að margir hafi viljað fá að koma og skoða, ekki síst þetta óvenjulega, formklippta hekk. „Þegar konurnar spurðu hvað þetta væri og ég sagði gljávíðir þá settu þær upp svip og þótti það ekki mjög fínt. Svo ég fór að segja að þetta væri salix, sem er latneska heitið á gljá- víði. Þá sögðu þær, nú já, vex hann svona," segir Rögnvaldur hlæjandi. Annað skemmtilegt í garði Rögnvalds eru grenitrén. Hann segir að þau hafi verið há og gisin þegar hann tók um 1,5 metra ofan af þeim og fór að klippa þau til á hverju hausti. Á nokkrum árum fóru þau að þétta sig og breyta lögun og nú eru þau í laginu eins og frummynd greriitrjánna; mjókka upp eins og keila og þarrið er svo þétt að hvergi sér í stofninn. Garðræktarferill Rögnvalds hófst á Sauðárkróki. Þar ræktaði bæjarritarinn og bæjarstjórinn árum saman fallegan garð í bar- áttu við napra hafgolu og laus- gangandi búfé. 1972 fluttist hann til Garðabæjar og fór að rækta garðinn sinn þar. Rögnvaldur segir að fljótlega eftir að hann fór að eiga við garðyrkju fyrir norðan hafi áhug- inn orðið brennandi. Hann segist lítið vera gefinn fyrir hálfkák. „Menn sem ekki hafa áhuga á garðrækt eiga ekkert að vera eiga við þetta en þeir vita þá ekki hvað þeir fara mikils á mis. Ég hef alltaf litið svo á að lífið sé hreyfing og hef hagað mér í samræmi við það," segir Rögnvaldur Finnbogason. Nýstárlegir gluggahferar í JÓNSHÚSI við Miðtún smíða systkinin Ruth og Jón Haildór alls kyns íslenskar trévörur, málaðar með gömlum litum, til dæmis gluggahlera og fuglahús. Glugga- hlerarnir eru notaðir til skrauts í eldhús eða sólstofur og li'fga upp á umhverfið séð utan frá og inn- an. Segir Ruth hlerana draga hlýj- una úr garðinum inn íhús. Gildra fyrir mýs MÝS geta gert mikinn usla í sum- arbústöðum og ýmsar leiðir fær- ar til að vinna bug á þeim. Gísli Sveinbergsson hjá Litalandi í Hafnarfirði hefur hannað músa- gildru í samstarfi við annan sem þykir gefa góða raun. Um er að ræða plastfötu, stiga og hjól með þunnum krossviðarspöðum. Á hverjum spaða er teygja þar sem komið er fyrir æti sem laðar mýsnar upp stigann. Þegar upp er komið og mýsnar stfga á spað- ann snýst hjólið svo þær detta niður í fötu með þremur lítrum af vatni. Ef fatan er f ókyntu húsi er hálfum lítra af frostlegi bætt í 2,5 Iftra af vatni. NÝ, SPENNANDI HÚSGÖGN ÚRGEGNHEILUM HARÐVIÐI FYRIR ÍSLENSKA VEÐRÁTTU OG ÞÍNA PYNGjU! Nú er rétti tíminn til að leggja drög að skemmtilegum sumarstundum úti í garði í góðra vina hópi. Náttúruvænu húsgögnin frá okkur falla vel að fegurð gróðursins og skapa gestum þínum aðlaðandi umgjörð og þægindi. Og þau eru ekkert hrófatildur, sem ekki má taka inn í hús, eða endist bara í eitt sumar. Hér eru á ferðinni húsgögn úr völdum tekkviði frá plantekrum í Indónesíu. Viðurinn er þurrkaður sérstaklega til að þola öll veður, og nýtast jafnt úti sem inni. Þér og þínum til yndisauka. Komdu í heimsókn til okkar á Nýbýlaveginn. SJÁÐU! SNERTU! PRÓFAÐU! UPPLIFÐU! j|i|lliliW NÝBÝLAVEGl 30, KÓPAVOGI DALBREKKUMEGIN, SÍMI 554 6300 GLERÁRGÖTU 28, AKUREYRI, SÍMI 461 3361

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.