Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 F 11
HÚSIÐ & GARÐURINN
Hávaði
eða hljóð?
HÁVAÐI frá umferð veldur fólki víða ama og jafnvel heilsutjóni. Með
breytingum á gluggum og gleri má bæta hljóðvist inni í ibúðum.
UMFERÐARHÁVAÐI og margs
konar annað áreiti úr umhverfinu
er mörgum til ama sem búa í
grennd við fjölfarnar götur eða á
mörkum íbúða- og athafnahverfa.
Sums staðar eru vandamálin sjálf-
sagt þess eðlis að meiriháttar að-
gerða á vegum sveitarfélaga er
þörf til að finna varanlegar úrbæt-
ur. í samtali við Stefán Guð-
johnsen, hljóðtæknihönnuð- og
ráðgjafa, kom hins vegar fram að
í mörgum tilvikum er hægt að sigr-
ast á hávaða sem berst inn í íbúð
með tiltölulega einföldum og ódýr-
um úrbótum á gluggum og gleri.
Misþykkt gler
Það þykir sjálfsagt hér á landi
að hafa tvöfalt gler í gluggum þar
sem það hefur betra einangrunar-
gildi en einfalt gler. Málið snýst
hins vegar við þegar kemur að
hljóðeinangrun, því að tvöfalt gler
gefur lítið eitt verri hljóðeinangrun
en einfalt ef bæði glerin eru jafn-
þykk, að sögn Stefáns.
„Það er vegna þess að í tvöföldu
gleri lendir svokölluð samfallstíðni
á bilinu 125-250 rið sem er sú tíðni
þar sem umferðarhávaöinn há-
markast en þá leiðir hann best í
gegnum glerið. En ef við bætum
við þriðja glerinu vinnum við aftur
verulega á í hljóðeinangunartölu
fyrir gluggann," segir Stefán.
Hann segir að það skipti líka
verulega máli þegar um tvöfalt gler
er að ræöa að glerin séu misjafn-
lega þykk til að koma í veg fyrir
að samfallstíðni þeirri falli saman.
Þriðja rúðan og
ísog íholrúmi
„Ef við höfum langt bil á milli
glerja og höfum þar á milli ísog,
t.d. gatað stál og steinull þar á
bakvið, .gleypist hljóð sem berst
inn um annað glerið í þessu hol-
rúmi. Oft er þannig háttað til í
þessum gluggum að þaö eru þykk-
ir karmar og væri pláss fyrir þriðja
glerið. Þá er t.d. hægt að nota
gluggakarminn innanverðan sem
fals, þriðja rúðan er felld þar að
og listi settur í kring. Einnig er
hægt að útbúa opnanlegt fag við
innanverðan gluggakarm á sam-
bærilegan hátt. Loftrúmið milli yrti
rúðanna og hinnar innri hefur þá
verulegt einangrunargildi og með
því að nota sér einhvers konar
ísogsmöguleika á milli glerja, t.d.
með steinull, væri hægt að auka
hljóðeinangrunargildið verulega."
Stefán segir að til þess að koma
í veg fyrir að hávaði berist inn um
opna glugga sé einnig hægt að
láta loka glugga varanlega en
koma þess í stað upp við hann
hljóðdeyfðri loftrás. „Það er op
sem er oftast þannig gert að í
henni er hljóðgleypiefni, steinull
eða slíkt. Hljóðið þarf að fara
krókaleið í gegnum þessa loftrás
og deyfist á leiðinni en loftið kemst
óhindrað í gegn. Þetta er sú leið
sem er verið að fara núna í nýbygg-
ingum til þess að svara kröfum um
hljóðeinangrun frá umferðargöt-
um.“
Hljóðdeyfð loftrás
Hljóðdeyfðar loftrásir eru til
fjöldaframleiddar sem staðlaðar
einingar, og er auðvelt að koma
þeim fyrir þegar t.d. er skipt um
glugga í eldri húsum. ( stað þess
að opna og loka glugga er þá rennt
frá og fyrir loka til þess að hleypa
inn hljóðdeyfðu, fersku lofti.
Stefán segir erfitt að gefa vís-
bendingar um hvað breytingar af
þessu tagi gætu kostað fyrir eig-
endur íbúða en segir að einfald-
asta og kostnaðarminnsta breyt-
ingin sé sú að setja þriðju rúðuna
og hafa hana opnanlega og það
kosti lítið vilji fólk sætta sig við að
hávaðinn berist inn um stund þeg-
ar gluggi er opnaður.
Vandamál íbúa sem búa við fjöl-
farnar umferðargötur á höfuðborg-
arsvæðinu hafa verið til mikillar
umræðu að undanförnu og t.d. á
Miklubraut þykir Ijóst að markmið
yfirvalda um úrbætur náist ekki
nema með því að útbúa neðanjarð-
argöng eða -stokk fyrir umferð.
Ekki hefur komið til umræðu að
borgaryfirvöld styrki eða kosti end-
urbætur á húsum til þess að bæta
hljóðeinangrun og jafnvel loftræst-
ingu þar sem hávaði og mengun
er yfir hættumörkum.
30 db jafngildishávaði
Stefán segist aðspurður ekki
vita til þess að einstakir íbúar t.d.
við Miklubraut hafi fengið hljóð-
tækniráðgjafa til að leysa fyrir sig
vandamál vegna umferðarhávaða.
Hins vegar viti hann til þess að
margir (búar hafi þar ráðist í endur-
bætur á gluggum sem snúa að
Miklubraut og jafnvel lokað glugg-
um og leyst loftunarvandann í
gegnum íbúðir með vélrænum loft-
ræstikerfum en það er nauðsyn-
legt þegar um miklar umferðargöt-
ur er að ræða.
í þéttbýli um ailan heim býr fólk
við hávaða og mengun frá fjölförn-
um umferðargötum. Stefán segir
að mannseyrað deyfi best lága
tíðni, en umferðarhávaði liggur á
því bili og þess vegna ættum við
að geta leyft okkur að hafa meiri
hávaða á lágum tíðnum. Best á
maðurinn með að venjast hávaða
þegar um er að ræða stöðugan
nið, áhrifin eru margfalt verri þegar
hávaðanum slotar á milli.
íslensk lög miða við að mest sé
leyfilegt að hafa 55 desibela há-
vaða við glugga án undanþágu en
Stefán segir að mestu skipti að
ekki sé meira en 30 desibela jafn-
gildishávaði frá umferð inni í íbúð-
um. Alls staðar á Norðurlöndum
þar sem hávaði við opnanlega
glugga fer yfir 65 desibel hefur
verið ráðist í aðgerðir í umhverfinu
til að draga úr hávaða.
Þar til á síðustu árum hafa ís-
lendingar lítið hugað að hljóð-
tæknilegum ráðstöfunum þegar
húsbyggingar og endurbætur eru
annars vegna enda á þéttbýli sér
ekki langa sögu hér á landi og
vandamál af þessu tagi voru til
samms tíma óþekkt hér á landi.
Breytingar hafa þó orðið á þessu
síðustu ár, segir Stefán Guðjohn-
sen.
Hann lýsir viðhorfinu núna
þannig að „í stærri byggingum og
hjá þeim sem byggja í alvöru,, er
farið að huga að þessum málum,
jafnvel á þann hátt að titringur frá
umferð í bergi er mældur og einn-
ig annar hávaði í umhverfinu með-
an byggingar eru á frumhönnunar-
stigi. Ut frá niðurstöðum slíkra
mælinga er grunnur og byggingin
sjálf hönnuð og jafnvel ráða slíkar
niðurstöður því hvaða form eru
ákveðin. En innanstokks í íbúðum
er einnig að mörgu að huga varð-
andi hljóðeinangrun. Harðir fletir,
flísar á gólfum, hörð loft, glugga-
tjöld, allt getur þetta haft áhrif á
hljóðvist.
SKÓGAR OG GARÐPLÖNTUR íMIKLU ÚRVALI
GARÐTRÉ
KASMÍRREYNIR
KR. 890-
I FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-18. Sími
564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RAÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
GEISLASÓPUR
KR. 590-
Einnig sumarblóm, verkfæri, mold o.fl. o.fl.
Kynntu þér úrvalið.
Sendum um allt land.
SKÓGARPLÖNTUR
RUNNAR
RÚSSALERI
KR. 1.290* bk.'
L
pHS
á
fRBWTgtltlltljtfrÍfr - kjarni málsins!