Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 8

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 8
8 F SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ HÚSIÐ & GARÐURINN PLASTSANDKASSI sem þolirfrost. Vel valin leik- tæki þroska börnin MIKILVÆGT er að rólusetur og keðjur séu vottaðar. staðnum MM Sólstofur GJerið ver gegn ofhitun sólslcins, og heíiur margfallt einangrunar- gildi gegn kulda og hellst því kjörhiti inni. Svalaglerhýsi ... #ö*ii Hnl «síí?7 Tæknisalan Kirkjulundi 13 - Garðabær - sími 365 6900 Ekið frá Vífilstaðavegi ELÍN Ág- ústsdóttir og Hrafn Ingimundar- son hófu rekstur Barnasmiðj- unnar fyrir 11 árum. Plasthúsið er gert i Bandaríkj- unum og búið farsíma þurfi smá- fólkið, eða dýrin, að hringja. LITLAR manneskjur sem vilja taka til hendinni fá hanska og verkfæri. Þeir sem vilja fljúga finna farartæki við sitt hæfi því leikföng Barnasmiðjunnar eru vottuð í stóru sem smáu. Leiktækjastaðall á næstu grösum SÍÐUSTU ár hefur verið lögð mikil vinna í Evrópu i sameigin- lega staðla fyrir leikföng og leiktæki. Staðalvinnu um merk- ingar leikfanga er lokið og stutt er í leiktækjastaðalinn. „Segja má að staðlar séu í sjálfu sér neytendavernd og með EES- samningnum höfum við skuld- bundið okkur'til þess að gang- ast undir sömu staðla og ESB- löndin, segir Hrafn Ingimundar- son. Hrafn hefur átt sæti í ís- lensku tækninefndinni sem starfað hefur undir forystu Herdísar Storgaard nokkur undanfarin ár. í öllum EFTA og ESB-löndunum hafa verið starfandi tækninefndir skipað- ELÍN Ágústsdóttir og Hrafn Ingimundarson hófu rekstur Barna- smiðjunnarfyrir 11 árum og segja að mörgum hafi þótt hálfskrýt- ið að stofna fyrirtæki sem sérhæfði sig í smíði leiktækja. Það gætu allir gert. Einnig þótti sumum undarlegt að leggja til grundvallar við smíðina gildandi staðla í Evrópu um öryggi, verið væri að gera einfalda hluti flókna. „Víða má sjá þess dæmi að foreldrafélög hafi í góðri trú sameinast um helgi og smíðað leiktæki fyrir skólalóð, talið sig vera að spara umtalsverða fjármuni vegna leiktækja- kaupa en ekki hugað nógu vel að því hvað einstakt slys kostar og hverjum tækin eru ætluð,“ segja þau. Við smíðina leggja þau til grundvall- ar væntanlegan leiktækjastaðal og fyrir tveimur árum hófst samstarf við stærsta leiktækjaframleiðanda í heimi, Kompan í Danmörku. „Stærð fyrirtækisins gerir að verkum að Kompan hefur á að skipa stórum hópi sérhæfðs starfsfólks sem hefur gagnast okkur mjög vel í innra eftirliti á eigin framleiðslu. Vottun í stóru sem smáu Það er ákaflega mikilvægt að hlutir og efni sem notað er við samsetning- una sé vottað, til dæmis gormar, rólusetur, handföng, keðjur, fúavörn, málning og kaðlar ásamt ýmsu sem notað er við samsetningar. Meira að segja verður krossviðurinn að uppfylla ákveðna kröfur um efnainnihald." Hægt er að nálgast drög að leiktækjastaðlinum hjá Staðlaráði íslands að þeirra sögn. Elín og Hrafn veita faglega ráðgjöf við val á leikföngum og leiktækjum. Elín er leikskólakennari að mennt og jafnframt starfar grunnskólakennari hjá Barnasmiðjunni. „Með vel völdum leiktækjum er verið að þjálfa samhæf- ingu, rökræna hugsun, formskynjun, hæðarskyn, litaskyn, jafnvægi og sam- vinnu, og þau eru því sá efniviður sem látinn er börnunum í té til þroska," segir hún. Val á leikföngum í garðinn ræðst meðal annars af fjölda barna sem koma til með að nota tækin og aldri sem og því hvort leiksvæðið er hellu- lagt, malar- eða grasflötur, hvernig aðkoman er og fleira. „Við erum til dæmis með 15 mismunandi gerðir rennibrauta og því mikilvægt að kanna hvað kemur að bestum notum hverju sinni. Þannig má líka spara umtals- verðar fjárhæðir. Þá má ekki gleyma hlutverki landslagsarkitekta og garð- yrkjumanna við hönnun og frágang lóða. Góður landslagsarkitekt getur sparað heilmikið og gefið leiksvæðinu heildarmynd," segja þau. Svo vikið sé aftur að staðlinum er líka fjallað um yfirborð leiksvæða og kannanir sýna að 10% slysa þar verði af völdum leiktækjanna. Því skiptir máli að allur frágangur sé góður og ekki þarf meira en misgengna hellu- lögn til þess að valda slysi segja Hrafn og Elín en Barnasmiðjan er með vottaðan búnað til prófunar á yfirborði leiksvæðisins. Algengt er að einkaheimili kaupi sandkassa, rólur, rennibrautir og lítil hús og það sem Barnasmiðjan framleiðir ekki sjálf er keypt frá bandaríska fyrirtækinu little tykes, sem er brautryðjandi í gerð sterkra leikfanga og leiktækja úr plasti segja þau að lokum. ar fagfólki sem hefur tekið þátt í þessari vinnu að hans sögn. „Vegna þess hversu lýðræð- isleg staðlavinnubrögðin eru hefur lokafrágangur staðalsins viljað dragast á langinn og sagt hefur verið til gamans að lengri tíma hafi tekið að semja staðal um geymslu kjarnorkuúrgangs en um leiktæki," segir Hrafn. Við gerð leiktækjastaðalsins hefur verið stuðst við gildandi staðla í Evrópu og fyrirliggjandi slysaskráningar og verður hann endurskoðaður regiuiega með tilliti til slysa gerist þess þörf. Veiðivörur - ókeypis upplýsingar GIIU 562-6262

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.