Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 16
16 F SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HÚSIÐ & GARÐURINN
Klæðningar fyrir
nýtt og gamalt
ÍSLENDINGAR kynntust utan-
hússklæðnirigum sem lækninga-
meðali þegar steypuskemmda-
faraldurinn stakk sér hér niður
fyrir aldarfjórðungi eða svo. í
húsagerð eins og á öðrum svið-
um færir þjóðin sig smám saman
nær alþjóðlegum háttum og nú
er orðið alsiða að nýbyggingar
séu einangraðar og klæddar að
utan en klæðningar ekki aðeins
notaðar til viðgerða.
Hér verður gefin nokkur inn-
sýn í nokkrar helstu tegundir sem
eru í boði á markaðnum. Verðin
sem eru nefnd eru ekki að fullu
sambærileg, því einstakir aðilar
gátu aðeins gefið upp verð á
klæðningarefni en ekki t.d. list-
um, nöglum að ógleymdri ein-
angrun. Endanlegt verð allra
klæðninga fer að miklu leyti eftir
húsagerðinni, reglan er sú að því
beinni veggir og færri gluggar
því minni kostnaður.
STO er vestur-þýsk akrýlmúr-
- klæðning á stein eða timbur sem
seld hefur verið á 140 þúsund
fermetra hér á landi undanfarin
10 ár, ýmist á viðgerð hús eða
nýbyggingar. Hægt er að velja
um 400 liti og klæðningin er sam-
skeytaiaus múrklæðning sem
breytir ekki ytra útliti húsa. T.d.
er hægt að klæða austurgafl
húss án þess að útlit hans verði
frábrugðið útliti annarra veggja.
STO klæðning kostar 7.000-
8.000 krónur á fermetra, þ.e.
efni, einangrun og vinna, en verð
á gluggalausan gafl gæti verið
um 6.000 kr. fermetrinn. Þá er
við það miðað að klætt sé utan
á plasteinangrun en einnig er
hægt að klæða yfir steinull, sem
er dýrara, eða þá á óeinangraðan
vegg, sem er ódýrara, segir
Hörður Guðmundsson, í Vegg-
prýði, umboðsmaður STO
klæðninga segir akrýlið hentugt
vegna þess að það er eftirgefan-
legt og höggþolið og því myndist
sprungur ekki auðveldlega.
Húsið mótað í plast
Vinna við STO hefst á því að
hús er háþrýstiþvegið til að fjar-
lægja lausa málningu og óhrein-
indi. Að því loknu er húsið grunn-
að til að tryggja límfestu og síðan
er límd á vegginn tregbrennanleg
plasteinangrun og húsið mótað
í einangrunina. Sé einangrað
með steinull þarf að negla 8
múrtappa á fermetra. Síðan er
styrktarlag með glertrefjaneti og
fylliefni lagt yfir einangrunina og
yfir það er sett klæðningarkápan.
Hún er blanda af akrýlefnum og
náttúrulegum steinmulningi og
gefur margs konar áferð, fína eða
grófhraunaða.
Við glugga og hallandi fleti eru
sett sérstök vatnsbretti sem eru
til í ýmsum útfærslum og úr t.d.
blágrýti, marmara, áli eða stáli.
Meðal húsa sem klædd eru
STO má nefna Frímúrarahúsið í
Hafnarfirði og blokkir í Arahólum
og Dúfnahólum. Tveir múrarar
eru í um það bil mánuð að heil-
klæða eitt einbýlishús. Talsverð
reynsla er komin á STO hér á
landi, því 11. sumarið er nú að
hefjast.
STENI-klæðningin, sem BYKO
selur, hefur hins vegar verið til á
markaðnum hér á landi í meira
en 20 ár en hún á sér yngri tví-
fara í Stoneflex, sem Húsasmiðj-
an er umboðsaðili fyrir.
STENI er norsk útveggja-
klæðning. Þetta eru sterkar,
veðrunar- og höggþolnar trefja-
plötur með hrauni úr steinmuln-
ingi eða sléttar. Til eru yfir 30
litir en séu pantaðir meira en 150
fermetrar er hægt að blanda
hVaða lit sem er, miðað við lit-
blöndunarkerfi, segir Pétur Andr-
ésson hjá BYKO.
Þetta eru loftræstar útveggja-
klæðningar sem þýðir að það
verður að lofta á bak við plöturn-
ar svo að rakinn í veggnum geti
leiðst í burtu en stoppi ekki í plöt-
unum. Ekki má loka þvert fyrir
loftunina og þvf verður helst að
vera opið undir og upp úr klæðn-
ingunni. Hús er klætt þannig að
lóðréttri timburgrind er slegið
upp á vegginn og fest með múr-
boltum eða skrúfnöglum. Sé ein-
angrun sett á milli er grind fest
á vegginn til að bera steinullina.
Síðan er pappi settur yfir ein-
angrunina og loftunargrind þar
Fegrar
og bætir
garðinn
Þú færð allskonar grjót hjá
okkur, sand og sérstakan
sand í sandkassann.
Við mokum efninu á bíla eða
kerrur og afgreiðum það líka
í sterkum plastpokum, sem
þú getur sett í skottið á
bílnum þínum.
Simi: 577-2000
íigursteinar
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
ÞETTA fjölbýlishús viö Funalind er með álklæðningu.
GRANDASKÓLI er klæddur með samskeytalausri
ÍMÚR útveggjaklæðningu.
utan á. Á hana eru steniplöturnar
negldar með ryðfríum nöglum í
sama lit. Undir glugga og við
brúnir er loftun tryggð með vönd-
uðum frágangi og á hallandi fleti
er sett Steni eða bretti úr þeim
efnum sem húseigendur velja.
Fermetrinn af STENI-plötum
kostar um 1.900 krónur en kom-
in upp kostar klæðning með ein-
angrun 6-7.000 krónur með öllu
á hvern fermetra. Steni er ein-
hver útbreiddasta klæðningin á
markaðnum. Hraunað Steni má
m.a. sjá á blokkum við Engjasel
65-67 og Hátún 12 er klætt með
sléttu Steni.
Fjöimargar aðrar tegundir
klæðninga eru til á markaðnum.
ÍMÚR er íslenskt kerfi, sam-
skeytaiaus utanhússmúrklæðn-
ing fyrir nýbyggingar eða til við-
gerða. ÍMÚR hefur verið notað í
11 ár hér á landi og er komið á
um 120 þúsund fermetra.
ÍMÚR er gjarnan sléttpússuð
með sama útliti og múrhúðaðir
útveggir og er þvíekki síst vinsæl
þar sem þörf er á að klæða einn
útvegg eða gafl án þess að
breyta upprunalegu útliti, en
einnig er ÍMÚR til með hraun-
áferð, perlumúr eða steinsalla
úr marmara, kvartsi o.fl. Aðal-
steinn Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri ÍMÚRs sagði í
samtali við Morgunblaðið að
verðið á fullklæddum vegg með
ÍMÚR lægi yfirleitt á bilinu
6-9000 krónur og ylti á byggingu,
þykkt einangrunar og yfirborðs-
meðhöndlun.
Meðal húsa sem eru klædd
ÍMÚR má nefna Sjúkrahús ísa-
fjarðar og Framhaldsskólann í
Vestmannaeyjum, auk Granda-
skóla í Reykjavík, húss Alþýðu-
flokksins á horni Laugavegar og
Höfðatúns og Breiðuvíkur 5-7 í
Grafarvogi.
Þar sem ÍMÚR klæðning er
sett á útveggi eru einangrunar-
plötur fyrst festar með múrtöpp-
um í vegg og síðan er galvaniser-
að stálnet fest á múrtappana.
Að því loknu er undirmúr spraut-
að í gegnum netið. Síðan tekur
við yfirborðsmeðhöndlun, þar
sem annað hvort er sléttpússað
eða gróft yfirborð. Þá er yfirmúr
sprautað yfir og pússaður en efn-
ið er verksmiðjuframleitt og með
því fylgir vél sem er tengd við
rafmagn og vatn á byggingarstað.
Hún hrærir efnið og dælir .því á
flöt.
Héðinn hf. er annar íslenskur
framleiðandi utanhússklæðninga
en fyrirtækið hefur frá 1977
framleitt og selt utanhússklæðn-
ingar, bæði hefðbundið litað stál
eða ólitað bárustál og éinnig
nýja gerð sem kölluð er Garðap-
anell. Meðal húsa með íslenskri
stálklæðningu eru SS-húsið eða
Listaskólinn í Laugarnesi, sem
er með sérhannaðri klæðningu,
og hús B&L í Ármúla, þar sem
klæðningin er stöðluð, auk ný-
legra fjölbýlishúsa. Stálklæðn-
ingin hefur einnig notið nokkurra
vinsælda til viðgerða.
Sérhannaðar lausnir
Ármann Guðjónsson hjá
Héðni segir að fermetrinn í stál-
klæðningu kosti um 770-2.200
krónur, eftir hvort um er að ræða
bárustál eða garðastál eða -pan-
el, litað eða ólitað. Þá athugast
að eftir er að taka mið af verði
á trélistum, festingum og ein-
angrun, auk vinnulauna en sam-
kvæmt heimildum blaðsins er
ekki fjarri lagi að ætla að nefna
um 6.000 krónur sem algengt
verð á fullklæddum vegg með
einangrun og vinnulaunum.
Við uppsetningu eru listar
boltaðir á vegginn og smíðuð
grind, veggpappi settur utan á
grindina, yfir einangrun ef hennar
er þörf. Að því loknu er klæðnirrg
negld á með ryðfríum kamb-
saumi. Gengið er frá við glugga
og horn með sérstökum listum
og hallandi undirstykkjum. Auk
hins staðlaða frágangs býður
Héðinn sérhannaðar lausnir.
Hellulagnir -
ókeypis upplýsingar
---gum
562-6262