Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 21

Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 F 21 I ! I J ] j j i J y i i i < < < < I < HÚSIÐ & GARÐURINN Giuggahlerar LÍFRÆNAR varnir auka á mótstöðu plantna gegn sjúkdómum. Hlandfor, lík- brennsla og bjór Morgunblaðið/Steinn Kárason PELARGONIA, garðanál og bjórglas handa ölkærum sniglum. STEINN Kárason garðyrkjufræðing- ur nefnir í inngangi að kafla um líf- rænar varnir gegn meindýrum í bók sinni Trjáklippingar, að löngum hafi verið uppi andóf hérlendis gegn notkun sterkra eiturefna í görðum og leggur til aðrar lausnir. „Margir hafa hætt úðun alfarið en því miður oft setið eftir með sárt ennið og horft á meindýr éta upp árangur margra ára ræktunarstarfs á fáein- um dögum." Steinn segist líka þeirrar skoðunar að lífrænar varnir auki á heilbrigði plantna og mót- stöðu gegn sjúkdómum. „Margt bendir til þess að illgresiseyðirinn geri hið gagnstæða þótt það hafi ekki verið sannað. Ég er sjálfur á því að sumar tegundir sem notaðar eru í trjárækt veiki mótstöðuna." Steinn er spurður hvaða meindýr hrelli garðeigendur helst. „Á mat- jurtum eru það fyrst og fremst blað- lúsin og kálflugan á kálmeti. Hægt er að nota hlandfor gegn kálflug- unni, en þegar ræðir um hlandfor er átt við sambland af kúahlandi og kúaskít. Hlandforin er borin í kringum rótarháls plantnanna sem fælir fluguna í burtu og kemur í veg fyrir að hún verpi. Akrýldúkur getur líka virkað hamlandi og þá er um að ræða gegndræpan dúk sem settur er yfir sem veðurhlíf og dregur úr ásókn flugunnar. Gegn blaðlús hafa menn líka notað kúahland," segir hann. Steinn nefnir líka trjámaðk, sem sækir í tré eins og nafnið ber með sér, og snigla. „Sniglar valda yfir- leitt mestu tjóni á grænmeti og fjöl- ærum plöntum. Þeir sækja líka í jarðarber og hið sama gildir um ranabjöllu en skaði eftir hana virðist í fljótu bragði svipaður og eftir snig- il. Munurinn er hins vegar sá að sniglarnir skilja eftir sig slím sem líkist silfraðri slóð þegar það þorn- ar. Síðan má nefna furu-, álm- og grenilús," segir hann. Kúahlandið hefur verið notað gegn lúsunum en Steinn nefnir líka til sögunnar þangvökva, sem not- aður hefur verið með góðum ár- angri. „Hann er notaður til úðunar og er ekki bara lúsafæla, því í hon- um eru næringarefni sem plönturn- ar sjúga upp gegnum blöðin. Þang- vökvinn er blandaður í hlutföllunum 1 á móti 200 eða 400 en fólk þarf að prófa sig áfram með hann.“ Ölkærir sniglar Hægt er að verða sér út um þangvökva með því að kaupa þör- ungamjöl sem unnið er úr Breiða- fjarðarþara. „Út af fyrir sig er hægt að búa til lög úr þesu mjöli og nota sem iífrænan áburð í garða. Síðan er til í verslunum sérstakur þang- vökvi, sem nefnist Maxicrop." Ekki er hlaupið að því fyrir íþúa í þéttbýli að útvega hlandfor til ráðstöfunar en Steinn segir líka mögulegt að nýta sér jurtir til þess að fæla skordýr. „Klóelting er notuð gegn ryðsveppi sem leggst gjarnan á rótarháls sáðplanta. Með því að nota seyöi af eltingunni má fyrir- byggja rotnun hans. Hið sama gild- ir um tóbakslög sem fenginn er með því að leysa eitt bréf af pípu- tóbaki upp í 2-3 lítrum af vatni. Þegar búið er að kreista allan vökv- ann úr tóbakinu er afraksturinn notaður sem blanda í hlutföllunum einn á móti átta," segir hann. Alþekkt ráð gegn sniglum er að grafa litla dollu niður í jarðveginn þannig að brún hennar nemi við yfirborð og hella í bjór eða pilsner. „Þá renna sniglarnir, sem eru mjög ölkærir, á lyktina og detta ofaní. Einnig er því haldið fram að með því að tína saman sniglana, brenna og dreifa öskunni um staði sem þeir halda sig á megi fæla þá í burtu." Steinn segir líka hægt, verði menn varir við snigla í matjurta- garði sínum, að vökva beð með sjóðandi heitu vatni til að drepa egg sniglanna. „Alþekkt aðferð í gróður- húsum er að sótthreinsa með gufu og þá er hreinlega drullumallað með heitu vatni og breiddur yfir plastdúkur svo hitinn haldist sem lengst í jarðveginum. Sniglaeggin eru í efsta lagi jarðvegsins og ef maður vökvar smástund með heitu vatni þannig að 5-10 efstu sentí- metrarnir hitni vel og breiðir síðan plast yfir ætti maður að ná að tor- tíma einhverju magni af eggjum. Þetta verður auðvitað að gera á vorin áður en sett er niður því heitt vatn drepur plöntur líka ef þær eru nálægt." Límborði gegn lirfum trjámaðks Sögunni víkur aftur að trjámaðk- inum en Steinn segir hægt að setja klístur eða límborða á einstofna tré í lok ágúst til þess að koma í veg fyrir að lirfurnar nái að skríða upp. Inni í gróðurhúsum er margt sem angrar garðeigandann og því koma ránskordýr í góðar þarfir. „Blaðlýs eru mjög. algengar í gróð- urhúsum og gegn henni má nota sníkjuvespu sem verpir eggjum sínum í búk blaðlúsanna. Þau klekj- ast síðan út og éta blaðlúsina inn- an frá. Þessar vespur er hægt að kaupa innfluttar hjá nokkrum fyrir- tækjum og sleppa lausum í gróður- húsin. Þær eru í plastflöskum, pínulitiar með dökkan búk og líkj- ast helst rykmýi." Einnig má nefna roða- eða- spunamaur sem þrífst best í hita og trekki. „Gegn honum má nota innflutta ránmaura í umslögum sem éta spunamaurinn og deyja þegar honum hefur verið útrýmt þar sem þeir nærast ekki á neinu öðru," segir Steinn. „Líka má nefna skor- dýr sem í daglegu tali er kölluð hvíta flugan en heitir mjöllús réttara nafni. Þetta er agnarsmá fluga með hvíta vængi og sníkjuvespur duga einnig á hana. Hvíta flugan er hins vegar mikið óalgengari en blaðlús og roðamaur." Steinn segir erfiðast að eiga við kögurvængjuna með lífrænum að- ferðum eins og þær tíðkast hér. „Lífsferill kögurvængjunnar er bæði í moldinni og á plöntunni og þótt ránmaurinn dugi á lirfurnar ér erfiðara að eiga við hana í mold. Ef fólk er með plöntu heima í stofu þar sem kögurvængjan hefur kom- ið sér fyrir er ekki um annað að ræða en að henda plöntunni eða nota sterkt eitur, því miður." Loks nefnir Steinn að hægt sé að nota plöntur sem halda meindýr- um frá. „Til dæmis regnfang og kryddjurtir á borð við tímían og myntu og flauelsblóm. Þeir sem rækta á lífrænan hátt nýta sér einn- ig að vera ekki með einsleita rækt- un heldur blanda saman tegundum plantna svo hver verji aðra.“ tSNSVTT á Isianeli fflQDH°¥°[L(D©DS* Hágœða lyklakorfí EINN LYKILL - endalausir möguleikar ðryggiskerfi sem uppfyllir allar kröfur um öryggi f kerfislæsingum. Skútuvogi 1 0E • S(mi S88-0600 undirstaðan er það sem skiptir mestu máli METPOSÍ Með METPOST stálstólpum er hœgt aðíiítbúa skjólveggi og sólpalla á fljótlegan og ein- faldan hátt. Ymist rná reka niður METPOST stólpa, sleypa þá eða bolta niður. Þegar METPOST stólpa hefur verið komið fyrir er sett í hann stoð og viðkomandi sól- pallur / skjólgirðing sett upp. Einfalt, öruggt, fljótlegt. Söluaðilar: Málningarþjónustan Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi, Mctro-Árval fsafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri, Kaupfélag Þingeyinga Húsavfk, TF-Búðin Egilstöðum, KASK Höfn, SG Búðin Selfossi, Húscy Vestmannacyjum, Húsasmiðjan Keflavík, BYKO Keflavík. Á höfuðborgarsvæðinu: BYKO, Húsasmiðjan, Björninn og MR Búðin. METPOST stálstólpl tll aö raka nlöur METPOST stálstólpl í steypu HELUIR &ÞREP &KANT STEINAR Við eigum ávallt á lager hellur, þrep, kant- og hleðslusteina í ýmsum stærð- um og gerðum. Hellur í gangstéttir, bílastæði, innkeyrslur, leiksveeði, úti- r vistarsvæði o.fl. Hleðsluefni í úrvali til ýmissá nota. Þrepin og kantsteinninn henta hvar sem er. Hyrjaitiölða 8,110 Reykjavík - Sími 686211. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.