Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ný bók fyrrum leiðtoga aðskilnaðar- sinna í Kanada vekur deilur Hugðist lýsa yfir sjálfstæði Quebec Það var eins og sprengju væri varpað inn í kanadísku kosningabaráttuna þegar ný bók eftir Jacques Parizeau, fyrrverandi fylkis- stjóra Quebec, kom út. Kristján Amgríms- son, fréttaritari Morgunblaðsins í Kanada, greinir frá áætlunum Parizeus um að lýsa einhliða yfir sjálfstæði Quebec. ÞÁVERANDI fylkisstjóri í Quebec í Kanada, Jacques Parizeau, hugð- ist lýsa einhliða yfir sjálfstæði fylk- isins einungis nokkrum dögum eftir almenna atkvæðagreiðslu í fylkinu í október 1995 um aðskilnað við Kanada, hefðu aðskilnaðarsinnar haft betur í atkvæðagreiðslunni. Kemur þetta fram í nýrri bók eftir Parizeau, sem kemur út á mánudag. Fyrir skömmu birtist útdráttur ur bókinni í dagblaðinu Le Soleil, sem gefið er út í Quebec-borg. Fyr- ir viku neitaði Parizeau því að hafa haft þetta í hyggju og sagði blaða- mann Le Soleil hafa rangtúlkað orð sín. Pólitísk sprengja Engu að síður hefur fregnin um skrif fylkisstjórans fyrrverandi virkað sem pólitísk sprengja í ný- hafinni kosningabaráttu fýrir þing- kosningar sem fara fram annan júní. Eru fréttaskýrendur á einu máli um að þetta verði flokki að- skilnaðarsinna á alríkisþinginu í Ottawa, Bloc Quebecois, erfíður ljár í þúfu. Flokkurinn er nú næstfjöl- mennastur á þingi og því í hlut- verki hinnar opinberu stjórnarand- stöðu. Sambandssinnar í Quebec-fylki, þar sem flestir íbúa eru frönsku- mælandi, báru nauman sigur úr býtum í atkvæðagreiðslu um að- skilnað, sem fram fór í október 1995, svo munaði innan við einu prósenti atkvæða. í atkvæða- greiðslunni voru kjósendur spurðir hvort þeir væru hlynntir því að Quebec-stjóm gengi til samninga- ERLENT Reuter JACQUES Parizeu, fyrrverandi fylkisstjóri Qu- ebec, kynnir nýja bók sína. Reuter JEAN Chretien, forsætisráðherra Kanada, ræð- ir málefni Quebec á þingi. viðræðna við Kanadastjórn um nýtt ríkjasamband. Parizeau var þá leið- togi Parti Quebecois, flokks aðskiln- aðarsinna á fýlkisþinginu, og fylkis- stjóri. Hann lét af báðum embætt- um eftir atkvæðagreiðsluna. í bókinni „Pour un Sovereign Quebec" (Fyrir sjálfstætt Quebec), sem er safn af ræðum og greinum eftir Parizeau, segir hann meðal annars frá samtali sem hann átti við Valery Giscard d’Estaing, fyrr- verandi Frakklandsforseta, í Frakk- landi 1995. Segir Parizeau að d’Estaing hafí útskýrt fýrir sér að næðu aðskilnaðarsinnar meirihluta í atkvæðagreiðslunni væri mikil- vægt að stjórnvöld í Quebec lýstu afdráttarlaust yfir sjálfstæði fylkis- ins innan fárra daga. Yrði þetta ekki gert gæti ekkert erlent ríki viðurkennt sjálfstæði Quebec. Ef yfirlýsingunni yrði frestað um hálft til eitt ár, eða gengið til samninga við Kanadastjórn um ríkjasamband gæti Frakkland ekkert aðhafst. Frakkland, eins og önnur ríki, gæti ekki viðurkennt áætlanir, það gæti einungis viðurkennt sjálfstætt ríki. Vænti Parizeau þess, að viðurkenn- ing frá Frökkum myndi leiða til viðurkenningar frá Bandaríkja- stjóm og það síðan greiða götuna fyrir alþjóðlegri viðurkenningu. Parizeau bætir því við að allar ræður sem hann hélt um samninga við Kanadastjóm hafi verið þannig orðaðar að möguleiki gæfist á ein- hliða sjálfstæðisyfirlýsingu. „Og ég hét því aldrei, hvorki á opinbemm vettvangi, né í einkasamtölum, að lýsa ekki einhliða yfir sjálfstæði," segir Parizeau í bók sinni. Neita allri vitneskju Bæði Lucien Bouchard, núver- andi fylkisstjóri í Quebec og leiðtogi Parti Quebecois, og Gilles Duceppe, leiðtogi Bloc Quebecois, voru nánir samstarfsmenn Parizeaus þegar hann var fýlkisstjóri, en þeir neita því nú báðir að hafa haft hugmynd um að Parizeau hafi haft í hyggju að lýsa einhliða yfir sjálfstæði. Sagði Duceppe við fréttamenn að þetta kæmi illa við hreyfingu að- skilnaðarsinna og því illa við kosn- ingabaráttu Bloc Quebecois nú. Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, segist efast um að Bouch- ard og Duceppe hafi ekki vitað um hugmyndir fylkisstjórans þáver- andi, og fréttaskýrandi blaðsins The Globe and Mail segir að þrátt fyrir afneitanir leiðtoga aðskilnaðarsinna nú leiki enginn vafi á því að þeir hafi verið reiðubúnir að ganga fljótt til verks og gera Quebec að sjálf- stæðu ríki hefðu þeir haft betur í atkvæðagreiðslunni. Rétt áður en hún var haldin hafí þáverandi al- þjóðamálaráðherra fylkisins ritað fulltrúum erlendra ríkja í Ottawa bréf þar sem hann hafí farið fram á að ríkin yrðu reiðubúin að viður- kenna sjálfstæði Quebec um leið og löggjafarsamkoma fylkisins lýsti yfir sjálfstæði þess. Fjórir frambjóðendur berjast um forsetaembættið í kosningunum í Iran 23. maí KOSNINGABARÁTTA í íran hófst um helgina, en forsetakosningar fara þar fram 23. maí. Tilkynnt hefur verið að fjórir verði í kjöri og þar af er sagt að Ali Akbar Nateq- Nouri, þingforseti, sé sigurstrang- legastur. Hann er forsvarsmaður íhaldssamra klerka sem hafa meiri- hluta á þingi. Nouri nýtur einnig stuðnings klerka almennt og tengist kaupmönnum Teheran-bazarsins sem löngum hafa þótt áhrifamiklir. Reiknað er með að Nouri muni halda áfram efnahagsumbótum Rafsanj- anis, núverandi forseta. Annar frambjóðandi, Mohammad Khatami, er fyrrverandi mennta- málaráðherra og er nú talið að hann verði skæðasti keppinautur Nouris. Hann nýtur stuðnings miðjumanna sem standa nærri Rafsanjani svo og íslamskra vinstri manna sem hafa með árunum orðið mun hófsamari í skoðunum en fyrstu árin eftir íslömsku byltinguna 1979. Þriðji frambjóðandinn heitir Mo- hammed Mohammadi Reyshahri. Hann hefur séð um árlega pílagríms- för írana til Saudi-Arabíu. Hann var áður upplýsingamálaráðherra, er sagður mjög íhaldssamur og vill að íran standi þétt um þær meginreglur sem byltingin boðaði. Loks er svo Reza Zavarei og er hann sá eini sem er ekki klerkur. Mikilvægar kosningar Sérfræðingum um íran ber saman um að þetta séu þýðingarmestu kosningar sem þar hafí verið haldn- ar þessi rúmu 18 ár sem landið hef- ur verið íslamskt lýðveldi. Þótt for- setinn sé ekki valdamesti maður landsins er ekki um það deilt að hann hefur mikil áhrif og menn leiða ekki svo glatt hjá sér tillögur hans, jafnvel ekki trúarleiðtoginn aya- tollah Khameini sem æðstur er. Valdatafl milli þríggja fylkinga Fjórir frambjóðendur berjast næstu daga um stuðning íranskra kjósenda, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir en samkvæmt írönskum lögum má Rafsanjani núverandi forseti ekki bjóða sig fram. Rafsanjani hefur þokað Iran frá ýmsu því sem Khomeini boð- aði á fyrstu árunum þótt allt hafi gerst mjög hægt. En sú markaðsstefna sem Rafsanjani hefur fylgt hefur þó skilað því að Miehel Camdessus, framkvæmdastjóri Al- þjóða gjaldeyrissjóðs- ins, lýsti nýlega ánægju með efnahags- stefnu írans sem væri að skila auknum hag- vexti og minnkandi verðbólgu. Því eru þessar kosn- ingar markverðar því það mun þá að líkindum koma í ljós hvort eftir- manni Rafsanjanis tekst að halda áfram á þeirri braut ellegar snúið Rafsanjani Khameini verður af þeim vegi sem gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir íran. Alls tilkynntu 238 manns að þeir vildu bjóða sig fram. Sérstakt ráð fór síðan rækilega yfír þann mikla skara og hlutu aðeins þessir fjórir náð fyrir augum þess. Af þessum 238 voru níu konur, þar af ein sem er dóttir ayatollah sem var aðsóps- mikill í byltingunni. Konurnar fóru mikinn á síðustu vikum en löngu var fyrirsjáanlegt að engin þeirra fengi að fara í framboð. Þær voru ekki einar um að fá neitun en ef að líkum lætur munu þó ýmsir Vesturlanda- menn beina sjónum meira að konun- um níu en þeim 223 karlmönnum, sem ekki komust í náðina, og telja þetta enn eitt kúgunarmerki írönsku klerkanna. Hverjir styðja hvern? í skoðanakönnun sem var birt í dagblaðinu Teheran Times daginn áður en kunngert var hverjir yrðu hinir opinberu frambjóðendur virtist Nouri njóta stuðnings 40,8%, Khat- ami 33,8%, 82,2% studdu Reyshahri og 17,2% skiptust á ýmsa aðra vænt- anlega frambjóðendur, voru óákveðnir eða svöruðu ekki. Þá velta menn fyrir sér hvert þess- ir fjórir muni helst sækja stuðning. Bent hefur verið á að kosningarnar í fyrra til íranska þingsins hafí ekki leitt fram neina eina fylkingu sem hefði mest völd. Þó sýnir ýmislegt að þrír hópar hafa komið fram sem láta mest að sér kveða. Það eru hægrimenn með tengsl við kaupsýslumenn og þar með tald- ir eru kaupmenn Bazarsins. Þeirra maður er Nouri. Önnur fylkingin er vinstrimenn en aðaltalsmaður þeirra er Mehdi Karrubi, fyrrverandi þingforseti. Þessi hópur vildi að Musavi fyrrver- andi forsætisráðherra byði sig fram en hann hafnaði því, að sögn vegna þess að hann reyndist ekki fá stuðn- ing frá Khameini, yfírklerki. Talið er að þessi fylking muni styðja Mo- hammed Khatami. Vinstrimenn hafa ekki viljað aukin tengsl við Vestur- lönd. Það ber þó að hafa í huga að vinstrimenn þessir eru ekki eins rót- tækir i skoðunum og var á fyrstu árum byltingarinnar. Þriðji hópurinn er svo miðju- menn. Trúlegt er að þessi hópur skiptist á milli Khatami og Nouri. Rafsaiyani áfram valdamikill Margir óttast að íran hverfi aftur inn í miðaldirnar þegar Rafsanjani hættir sem forseti. Þeir geta vænt- anlega huggað sig við það að hann mun ekki setjast í helgan stein þótt hann víki úr forsetastóli. Hann mun taka við mikilvægu embætti sem ráðgjafi Khameinis æðstaklerks. Vesturlandamenn líta auðvitað yfirleitt ekki svo á að neitt hafi skán- að í íran og fínnst þar ríkja sama ofstækið og svartnættið og var á fyrstu árum Khomeinis. Samt verður breytinga vart eink- um í efnahagsmálum sem sýna að íran er ekki lengur það lokaða land sem það var. Skrefín eru smá og næstum ósýnileg sem stigin hafa verið. En Khomeini mundi sennilega snúa sér við í gröfinni ef hann sæi þær breytingar sem þó hafa orðið í hans íslamska fyrirmyndarríki síðan hann hvarf til guðs síns. i i i \ I I . I s j

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.