Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Skækjan á norrænni leiklistar- hátíð Á LEIKLISTARHÁTÍÐINNI í Hallunda 21.-25. maí, verð- ur sýnd uppfærsla Þjóðleik- hússins á Leitt hún skyldi vera skækja eftir John Ford, í leik- stjórn Baltasars Kormáks. Löngu er uppselt á þær tvær sýningar sem fyrir- hugaðar eru á hátíðinni, 23. og 24. maí og er í athugun að hafa aukasýningu 24. maí, að deginum til, m.a. til þess að þeim íslendingum sem bú- settir eru í nágrenni Stokk- hólms, og ekki fengu miða, gefist kostur á að sjá sýning- una. Vitað _er til þess að áhugasamir íslendingar ætli að koma langar leiðir að til þess að sjá Skækjuna í Hal- lunda, segir í tilkynningu. Leitt hún skyldi vera skækja var frumsýnt á Smíða- verkstæði Þjóðleikhússins snemma á liðnu hausti og hefur gengfið síðan fyrir fullu húsi. Leikendur eru Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálms- dóttir, Steinn Ármann Magn- ússon, Stefán Jónsson, Edda Amljótsdóttir, Kristján Franklín Magnús, Ragnheiður Steindórsdóttir og Erlingur Gíslason. Höfundur leikmyndar er Stígur Steinþórsson, höfundar búninga Filippía Elísdóttir og Indriði Guðmundsson. Tónlist- arstjóri er Þorvaldur Bjami Þorvaldsson, ljósahönnuður Páll Ragnarsson. Einsöngstón- leikar Sig- rúnar Oskar SIGRÚN Ósk Ingadóttir söng- nemandi heldur tónleika í Ytri- Njarðvíkurkirlqu mánudaginn 19. maí kl. 20.30. Sigrún er að ljúka burtfararprófi frá skólanum og eru tónleikamir liður í því. Aðrir söngnemend- ur skólans munu einnig koma fram á tónleikunum. Sigrún er 4. nemandinn sem lýkur burtfararprófi frá Tón- listarskólanum í Keflavík í 40 ára sögu hans. Aðalkennari Sigrúnar hefur frá upphafi verið Ragnheiður Guðmunds- dóttir söngkennari. Ljóðalestur Harðar HÖRÐUR Gunnarsson les frumsamin ljóð í kaffihúsinu Ömmu í Réttarholti í Eldgömlu ísafold, Þingholtsstræti 5, í kvöld kl. 21. Ljóðin eru úr handriti sem Hörður nefnir Þögluböm. Hann sendi frá sér ljóðabókina Herbergi, 1994. Fjölskyldu- tónleikar BLÁSARASVEITIR Tónlist- arskóla Keflavíkur halda fjöl- skyldutónleika í Stapa á morg- un, mánudag, kl.14.00. Þijár lúðrasveitir, Léttsveit og djasshljómsveit koma fram undir stjóm Karenar Stur- laugssonj Sigrúnar Sævars- dóttur, Áka Asgeirssonar og Ólafs Jónssonar. Foreldrafé- lagið verður með kaffisölu. Söngur samlyndra hjóna Hjónin og söngvaramir Þóra Einarsdóttir og Bjöm Jónsson halda sína fyrstu tónleika saman í Gerðarsafni næstkomandi þriðjudag. Orrí Páll Ormarsson tók púlsinn á þeim af því tilefni en Þóra hélt á dögunum vel heppnaða tónleika í Lundúnum og Bjöm fer senn til Italíu þar sem hann mun sækja námskeið hjá sjálfri Kötju Ricciarelli. HJÓNIN Þóra Einarsdóttir og Björn Jónsson njóta þess að æfa saman og vera saman þessa dag- ana enda er starf þeirra þess eðlis að þau geta þurft að dveljast langtímum saman fjarri hvort öðru. ÓRA Einarsdóttir og Bjöm Jónsson eru hjón. Þau eru bæði söngvarar, sópran og tenór, og hafa hin síð- ari misseri verið að láta sífellt meira til sín taka í tónlistarlífinu hér á landi og í Englandi, þar sem þau búa. Engu að síður hafa þau aldrei haldið tónleika saman. Að vísu hafa hjónakomin komið fram á sömu tón- leikunum — en það er ekki það sama. Úr þessu verður bætt á þriðjudaginn kemur, 20. maí, ki. 20.30 í Lista- safni Kópavogs - Gerðarsafni. Tón- leikana hefur Jónas Ingimundarson skipulagt og leikur hann jafnframt með á píanó. „Þetta er kærkomið tækifæri," segir Bjöm, „en okkur hefur lengi langað til að halda tónleika saman. Einhverra hluta vegna höfum við yfirleitt verið að gera gjörólíka hluti og því æft hvort í sínu herberginu — jafnvel hvort í sínu landinu. Það hefur því verið gaman að fá tæki- færi til að æfa saman — og hitt- ast,“ bætir hann við og saman skella þau Þóra upp úr. „Jónas gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því hvílíkt góðverk hann er að vinna!“ Hjónin segja að efnisskrá tónleik- anna verði fjölbreytt — þar verði að finna einsöngslög og óperudúetta eftir Schubert, Strauss, Britten, Mascagni, Verdi og Puccini. Þóra og Bjöm námu bæði við Söngskólann í Reykjavík og Guild- hall School of Music and Drama í Lundúnum. í vetur sem leið söng Þóra hlutverk í Töfraflautunni eftir Mozart með Opera Factory, Brúð- kaupi Fígarós eftir sama tónskáld, Rosenkavalier eftir Strauss og í Orfeusi og Evridísi eftir Gluck í Ensku þjóðarópemnni. Björn söng aftur á móti í Perluköfurunum eftir Bizet og í Rigoletto eftir Verdi með Ensku ferðaóperunni. Þá söng Þóra í Jólaóratoríunni með Mótettukór Hallgrímskirkju og Björn í Messíasi eftir Hándel með Kór Langholts- kirkju um páskana. Lofsamlegir dómar Þar með er reyndar ekki öll sagan sögð því Þóra söng nýverið á Schu- bert-hátíð í Lundúnum og fékk lof- samlega dóma fyrir frammistöðuna í dagblaðinu Ham & High sem gefíð er út í Norður-Lundúnum. Þótti gagnrýnandanum „þroskuð og glæsi- leg“ rödd hennar njóta sín vel í verk- um Schuberts og ekki síður Walton- lögunum og íslensku sönglögunum, sem jafnframt voru á efnisskránni. Fannst honum túlkun hennar á síð- astnefndu lögunum svo „kraftmikil og tilfmningarík" að tungumálaerfið- leikamir hreinlega gleymdust. Næsta verkefni hjónanna verður að taka þátt í flutningi á Sköpun- inni eftir Haydn með Passíukómum á Akureyri 1. júní. En síðan skilja leiðir. Þóra heldur á ný til Eng- lands, þar sem hún mun efna til tónleika ásamt Jónasi Ingimundar- syni í Grimsby og Lundúnum í júní. A efnisskránni verður meðal annars ■nokkur fjöldi íslenskra sönglaga. „íslensk sönglög hafa yfirleitt fallið vel í kramið, þar sem ég hef sungið þau, og fyrir vikið er ég hvergi smeyk við að hafa þau á efnis- skránni. Við eigum svo mikið af fal- legum lögum að það væri synd að nýta ekki hvert tækifæri sem gefst til að kynna þau. Ef við gerum það ekki sjálf, hver gerir það þá?“ Reyndar stóð til að Björn yrði með í för en þar sem „hann fékk betra tilboð", svo sem Þóra upplýsir, verða þau Jónas „að bjarga sér“. Og vissulega sætir tilboðið sem Bjöm fékk tíðindum en honum hefur verið boðið að sækja námskeið hjá hinni nafnkunnu sópransöngkonu Kötju Ricciarelli og syngja í kjölfar- ið hlutverk Nemorínos í Ást- ardrykknum eftir Donizetti í sýningu sem hún gengst fyrir 30. júní við Gardavatn á Italíu. Snældan borgaði sig Forsaga málsins er sú að Bjöm fékk á liðnu ári Sigurði Demetz söngkennara hljómsnældu sem hann hafði skömmu áður tekið upp til dreifingar í kynningarskyni. Á henni er túlkun hans á hinum ýmsu óperu- artum. Hafði Sigurður engar vöflur á heldur sendi Ricciarelli snælduna. „Mér skilst að Ricciarelli hafi beðið Sigurð um að láta sig vita af nem- endum sem hann hefði trú á þegar þau hittust á Listahátíð í Reykjavík fyrir mörgum árum,“ segir Bjöm. Ricciarelli svaraði um hæl og bauð Bimi fyrrnefnt hlutverk. „Það er mikil viðurkenning fyrir mig að þess- ari konu, sem sungið hefur á móti öllum helstu tenórsöngvurum heims, skuli líka það sem ég er að gera,“ segir hann. „Nú er það bara undir mér komið að standa mig.“ Þetta verður í fyrsta sinn sem Bjöm spreytir sig á ítalskri grundu — þar sem óperuhjartað slær hvað örast. Hann gerir sér grein fyrir því að stöðu og virðingar Ricciarelli vegna muni kastljósið beinast að námskeiðinu og ekki síst sýning- unni. Þessi ferð gæti því, ef vel tekst til, átt eftir að vinda upp á sig. Svo langt leyfir hann sér á hinn bóginn ekki að hugsa ennþá. Námskeiðið hefst 15. júní næst- komandi, þannig að Bjöm hefur mánuð í viðbót til að búa sig undir átökin. Hann kveðst hafa þekkt Ástardrykkinn ágætlega, enda sé um ástsæla óperu að ræða, og kunn- að tvær aríur og tvo dúetta. „Það hjálpaði vissulega til en samt mun ég nýta hveija mínútu sem gefst til að æfa hlutverkið." Þegar námskeiðinu á Ítalíu lýkur ætla Bjöm og Þóra að fara á flakk um Evrópu og sækja tíma hjá fleiri söngkennurum. Hafa þau helst auga- stað á Sviss og Austurríki þessa dag- ana en ekkert er þó ákveðið. „Mark- miðið er fyrst og fremst að vikka sjóndeildarhringinn — kynnast fólki víðar en í Englandi," segir Þóra sem hefur ekki enn ákveðið hvað hún tek- ur sér fyrir hendur í haust. Líklegast telur hún þó að hún starfi áfram við Ensku þjóðaróperuna. í íslensku óperunni í haust í haust halda annirnar áfram hjá Bimi en í ágúst mun hann taka þátt í alþjóðlegri tónlistarkeppni, Queen Sonja, í Osló, sem að þessu sinni er helguð söngnum. Tvö hundruð söngvarar frá freklega þijátíu lönd- um munu hafa sóst eftir því að taka þátt í keppninni en úr þeim hópi voru fimmtíu valdir. Settu forsvars- menn keppninnar sig í samband við Björn eftir að hafa hlýtt á snælduna L góðu. Og enn kom snældan við sögu þegar Bjöm var á dögunum ráðinn til að syngja hlutverk við íslensku ópemna í haust en Garðar Cortes óperustjóri mun einnig hafa fengið hana í hendur. Þá segir Bjöm hann hafa fylgst með sér í Messíasi um páskana og í framhaldi af því hafí verið gengið til samninga. „Eg söng lítið hlutverk við íslensku óperuna meðan ég var enn í námi hér heima en þetta verður frumraun mín þar sem atvinnumanns í faginu. Þar með mun langþráður draumur rætast." Vorsýning MHÍ i VORSÝNINGU nemenda MHÍ lýkur á morgun, mánudag kl. 19. Sýningin er f húsnæði skólans S Laugarnesi og var opnuð 9. maí. í ár útskrifast óveiyu margir nemendur eða 52 úr sjö deildum. Þessi sýning myndlistarnema er stærsta samsýning sem haldin er hér á landi. Á þessu ári opnuðu nemendur nýtt nemendagallerí, Galleríið Nema hvað. Þessa dagana stend- ur yfir sýningin Örverk. Henni lýkur 31. maí og er opin alla I dagakl. 14-19.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.