Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 39

Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. MAÍ1997 39 FRETTIR Harmar mistök við fram- kvæmd samræmdra prófa MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun um samræmd próf frá K.Í.: „8- fulltrúaþing Kennarasam- bands íslands harmar þau mistök sem Rannsóknarstofnun uppeldis og menntamála gerir ár eftir ár við samningu og framkvæmd sam- ræmdra prófa í 10. bekk grunn- skóla. Það er neikvætt veganesti nemenda eftir 10 ára skólagöngu að fá niðurstöður úr prófum sem vegna mistaka í framkvæmd sýna ekki raunverulega getu þeirra í ákveðnum námsgreinum. Kennara- samband íslands beinir því til fram- haldsskóla að líta ekki á niðurstöð- ur samræmdra prófa sem einhliða mælistiku við inntöku nemenda i framhaldsnám. 8. fulltrúaþing Kennarasam- bands íslands beinir því til mennta- málaráðuneytisins að lög nr. 66/1995 um grunnskóla og reglu- gerð nr. 516/1996 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum verði endurskoðuð hvað varðar undanþágur og frávik frá prófatöku. Rýmka þarf reglur um undanþágur og frávik vegna samræmdra prófa þannig að nem- endur sem ekki falla undir 35., 26. og 48. greinar grunnskólalaga eigi kost á fleiri leiðum til að ljúka lög- bundnu grunnskólanámi. Leggja verður áherslu á að nemendur geti lokið grunnskólaprófi á styttri eða lengri tíma en þeim er skylt. Nem- endur eiga að hafa það val að geta tekið próf í einni eða fleiri sam- ræmdri grein í 8. eða 9. bekk í stað þess að þreyta öll fjögur prófin við lok 10. bekkjar eins og nú er skylt samkvæmt lögum. 8. fulltrúaþing Kennarasam- bands íslands telur að miðstýring menntamálaráðuneytisins í gegn- um samræmd próf móti um of allt skólastarf sérstaklega á unglinga- stigi og gangi í raun þvert á mark- mið aðalnámskrár um námsefni og kennslu við hæfi hvers og eins. Kennarasambandið telur að til- gangur samræmdra og staðlaðra prófa eigi að vera liður í mati á skólastarfi, skólaþróun og til öflun- ar upplýsinga vegna skólastarfs og skólarannsókna en ekki til að auka samanburð og samkeppni á milli skóla eða meta gæði skóla- starfs eingöngu. Samræmd próf í núverandi mynd sem skylt er að leggja fyrir alla nemendur í til- teknum árgöngum á sama tíma í öllum skólum setja skólastarfi þröngar skorður og dregur mjög úr námsframboði og fjölbreytni í kennsluháttum. Skólum og nem- endum þurfa að standa til boða samræmd lokapróf, samræmd könnunarpróf og stöðluð kunnáttu- próf í öllum námsgreinum. 8. fulltrúaþing Kennarasam- bands íslands leggur áherslu á að niðurstöður úr samræmdum prófum í einstökum skólum séu birtar þann- ig að þær verði ekki raktar til ein- stakra nemenda. Þess verði einnig gætt að óviðkomandi aðilar fái ekki afhentar upplýsingar um niðurstöð- ur samræmdra prófa sem rekja megi til einstakra nemenda. 8. full- trúaþing Kennarasambands íslands ítrekar að skilyrðislaust eigi fyrst að senda niðurstöður úr samræmd- um prófum til skóla og nemenda áður en þær eru birtar fjölmiðlum. Kennarasambandið átelur þau vinnubrögð að birta niðurstöður samræmdra prófa í fjölmiðlum áður en skólar og nemendur fá þær. Slíkt er virðingarleysi fýrir starfi skóla og nemenda. 8. fulltrúaþing Kennarasam- bands íslands leggur áherslu á að í boði verði fræðsla um samræmd próf fyrir skólastjómendur, kenn- ara og aðra sem málið varðar til að tryggja að markmiðinu með prófunum náist. Nauðsynlegt er að starfsfólk skóla og skólaskrifstofa geti veitt foreldrum og nemendum sem bestar upplýsingar um sam- ræmd próf og því þarf að tryggja þessum aðilum fræðslu um þau.“ SKRÚÐGANGA á vorhátíð Foreldrafélags Æfingaskólans. Æfingaskólinn í vorhátíðarskapi FORELDRAFÉLAG Æfingaskól- ans stóð fyrir vorhátíð í skólanum á uppstigningardag, 8. mai sl. „Hátíðin, sem haldin var í blíð- skaparveðri, hófst með fjöl- mennri skrúðgöngu um nágrenni skólans og sá lúðrasveit um að skapa réttu stemminguna. Að því loknu var fjölbreytt dagskrá í skólanum og á lóð skólans. Farið var í ýmsa útileiki, keppt var í þj ólreiðaþrautum og foreldrar og böm reyndu með sér í hjólreiða- LEIÐRÉTT Fermt á Möðruvöllum annan í hvítasunnu í YFIRLITI yfír fermingar um hvíta- sunnuna í blaðinu í gær segir að fermt verði í Möðruvallaklausturs- kirkju klukkan 10.30 á hvitasunnu- dag. Þama átti að standa annan í hvítasunnu. Frá þessari fermingu var einnig greint í frétt á Akur- eyrarsíðu og þar var réttilega sagt að fermt yrði á annan í hvítasunnu klukkan 10.30 að Möðruvöllum. keppni. Hægt var að gera góð kaup á flóamarkaði og í bakarii sem foreldrar sáu um. Einnig var hægt að freista gæfunnar á hluta- veltu. Loks sáu böm og foreldrar um veitingasölu og settu upp kaffihús í skólanum í tilefni dags- ins. Þá var stutt menningardag- skrá i sal skólans þar sem nem- endur léku á hyóðfæri og lásu frumsamin Ijóð. Sérstök vorhátíð- arnefnd á vegum foreldra sá um skipulagningu hátiðarinnar og sáu aliir bekkir skólans um ein- hveija þætti hennar,“ segir í fréttatilkynningu frá Foreldra- féiagi Æfingaskólans. Lífeyrisþegar fái að lágmarki 70 þús. kr. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun sem var sam- þykkt samhljóða á formannafundi Landssamtakanna Þroskahjálpar: „Ályktun formannafundar Landssamtakanna Þroskahjálpar haldins í Reykjavík 26. apríl 1997. Fundurinn skorar á rikisstjórn íslands að tryggja öllum elli- og örorkulífeyrisþegum 70.000 kr. í lágmarkslaun á mánuði. í nýgerðum kjarasamningum eru öllu vinnandi fólki tryggð 70.000 kr. lágmarkslaun. Landssamtökin Þroskahjálp telja það vera skyldu stjómvalda að sjá til þess að bóta- þegar njóti sömu kjarabóta og launafólk. Fundurinn lítur svo á að ríkis- stjómin hafí gefið þau fyrirheit í samningsgerðinni að bætur elli- og örorkulífeyrisþega skuli hækka á sama hátt og laun láglaunafólks." Kty AÐALFUNDUR ÞRÓUNARFÉLAGS REYKJAVfKUR verður haldinn að Hótel Borg föstudaginn 6. júní 1997 kl. 16:00 Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins skulu berast stjórn þess eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Stjórn hróunarfélags Reykjavíkur FASTEIGNA & SKIPASALA BÆJARHRAUNI 22, HAFNARFIRÐI, SÍMI 565 451T FAX 565 3270. OPIÐ KL. 9 - 18. Vantar — vantar fyrir fjársterka kaupendur, sem búnir eru að selja, einbýlis- eða raðhús á einni hæð. Góðar greiðslur í boði. Sumarhús til sölu Borgarfjörður. Nýkomið mjög vandað 50 fm nýtt fullbúið sumarhús auk 20 fm gott svefnloft á frábærum stað í Munaðarneslandinu. Útsýni. Verð: Tilboð. Borgarfjörður.Glæsilegt 63 fm nýlegt sumarhús auk 20 fm svefnlofts í kjarrivöxnu landi í landi Kolstaða. Hagstætt verð. Borgarfjörður. Mjög fallegt vel byggt 47 fm sumarhús auk 20 fm svefnlofts í fallegu landi Eskiholts, örstutt frá Borgarnesi. Hagstætt verð. Grímsnes. Glæsilegt nýtt vandað 70 fm sumarhús I landi Hraunborga. Örstutt í sundlaug, golfvöll, þjónustu miðstöð o.fl. Sjón er sögu ríkari. Hagstætt verð. Grímsnes. Gott ca 40 fm sumarhús í landi Hraunborga. 3 svefnherb. o.fl. Verð 2 millj. Vantar — vantar. Fyrir félagasamtök stóran og vandað an bústað innan 150 km fjarlægðar frá Fteykjavík. Land ið þarf helst að vera kjarrivaxið og með heitu vatni. Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. Fjöldi annarra sumarhúsa á söluskrá APOTEK QPIÐ ÖLL KVÖLP VIKUNNARTIL KL 21.00 HRINGBRAUT 1 19, -VIÐ IL HÚSIÐ. GARÐS APÓTEK Sogavegi 108 REYKJAVIKUR APÓTEK Austurstræti 16 eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Garðs Apótek STEINAR WAAGE SKOVERSLUN N Villtar tær í villtum mosa Nýjung gæðir BAMA skóna sérstökum kostum. Þeir hafa innbyggðan skógarmosa sem nemur til sín raka, er þægilegur, ferskur * og hefur góð áhrif á húðina. BAMA skór eru ffamúrskarandi. Þar má nefiia sérstaklega hina vel hönnuðu fótahvílu. Fætumir hvíla á þeim stuðningi, sem hið góða innlegg veitir. BAMA hefur einkaleyfi á þessum mosasóla, sem hefur náð miklum vinsældum í Þýskalandi og víðar. Auk þess em allar afurðir BAMA í sérflokki hvað gæði varðar. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN SÍMI 551 8519 STEINAR WAAGE SKOVERSLUN SÍMI 568 9212

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.