Morgunblaðið - 17.07.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Lagt til að vinnutímatilskipun ESB taki til launþega í starfsgreinum sem hafa verið á undanþágri
Breytingar munu
gilda hérlendis
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins gaf
í fyrradag út „hvítbók“,
þar sem lagt er til að
gildissvið vinnutímatilskipunar
sambandsins verði útvíkkað,
þannig að hún taki til launþega
í starfsgreinum sem til þessa hafa
verið undanþegnar ákvæðum til-
skipunarinnar. Þetta á meðal ann-
ars við um sjómenn, starfsfólk í
loft-, land- og sjóflutningum og
læknakandídata í sérnámi á
sjúkrahúsum.
Enn er aðeins um bráða-
birgðatillögur að ræða og mun
framkvæmdastjórnin leita álits
ráðherraráðs ESB, Evrópuþings-
ins og Evrópusamtaka atvinnu-
rekenda og launþega áður en hún
mótar endanlegar tillögur, sem
síðan verða lagðar fyrir ráðherr-
aráðið til samþykktar. Fram-
kvæmdastjórnin hefur óskað eftir
áliti og athugasemdum þessara
aðila fyrir októberlok. Embættis-
menn ESB höfðu óformlegt samr-
áð við aðila vinnumarkaðarins
áður en hvítbókin var samin.
Vinnutímatilskipunin gekk í
gildi hér á landi fyrr á árinu og
væntanlegar breytingar munu því
Framkvæmdastjóm Evrópusambandsins hefur
lagt til að vinnutímatilskipun sambandsins taki
til allra launþega, en ekki aðeins sumra eins
og nú háttar til. í umfjöllun Ólafs Þ. Stephen-
sen segir að þessar breytingar muni einnig
taka gildi hér á landi, nái þær fram að ganga.
einnig gilda á íslandi. Líkast til
myndu aðilar vinnumarkaðarins
semja um framkvæmd þeirra sín
á milli, líkt og gerðist síðastliðið
vor.
Yfirvinnufyrirtæki ekki
samkeppnisfær
Vinnutímatiiskipunin hefur
verið umdeild og reyndu brezk
stjórnvöld meðal annars að fá
henni hnekkt fyrir Evrópudóm-
stólnum í fyrra, en án árangurs.
Padraig Flynn, sem fer með at-
vinnu- og félagsmál í fram-
kvæmdastjórninni, sagði er hann
kynnti hvítbókina að allt frá því
vinnutímatilskipunin var sam-
EINBYLISHUS I HAFNARFIRÐI
Til sölu vandað hús á eftirsóttum stað við Sævang. Aðalhæð
135 fm,- tvær stofur, fjögur herbergi, eldhús og bað. 52 fm.
rúmgóður kjallari. Byggt 1954, stækkað 1970. Suðursvalir. Allt
í mjög góðu ástandi. Fagurt útsýni til sjávar yfir óbyggt
hraunsvæði. Skipti á minni eign í Hafnarfirði koma til greina.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
Óskast í vesturbænum, Þingholtum,
við Tjörnina eða Hlíðum
Staðgreiðsla í boði
2 fjársterkir aðilar óska eftir annars vegar glæsilegri og vandaðri íbúð. Má
vera upprunaleg. Verðhugmyndir 11-25 millj. Hins vegar sérðhæð eða
stórri blokkaríbúð á ofangreindum stöðum. Verðhugmynd 10-14 millj.
Nánari upplýsingar veita sölumenn Valhallar, Bárður, Eiríkur, Ingólfur eða
Þórarinn.
Vantar - Grafarvogur/Árbær
Vantar strax einbýli eða parhús. Fjársterkur kaupandi. Verðhugmynd 12-
18 millj.
Sérhæðir óskast
Traustur kaupandi að góðri sérhæð í Reykjavík eða Kópavogi. Verðhug-
mynd 9-13 millj. Góðar greiðslur.
3ja-4ra óskast í Reykjavík
Vantar strax fyrir ákveðna kaupendur íbúðir í vesturbæ, austurbæ,
miðbænum og Þingholtum. Sterkar greiðslur í boði fyrir réttar eignir. Allar
nánari uppiýsingar veita sölumenn okkar. Hafið samband. Það kostar
ekkert.
Áratuga reynsla vönduð vinnubrögð.
Valhöll fasteignasala,
sími 588 4477.
þykkt árið 1993 hefði fram-
kvæmdastjórnin leitazt við að
tryggja að heilsu og öryggi laun-
þega væri ekki ógnað vegna of
langs vinnutíma og ónógrar hvíld-
ar. „Það skýtur skökku við að
ákveðnir hópar launþega njóti
ekki þeirrar almennu verndar,
sem tilskipunin veitir, og það
verður að leiðrétta," sagði Flynn.
Hann sagði jafnframt að hann
ætti bágt með að trúa að fyrir-
tæki, sem þyrftu að treysta á að
starfsmenn þeirra ynnu _______
alltof langan vinnudag
mánuðum saman, gætu
verið samkeppnisfær á
alþjóðlega vísu. „Lág-
marksstaðlar varðandi
vernd heilsu og öryggis ......
launþega eru lykilþáttur í þeirri
viðleitni að bæta samkeppnisstöð-
una,“ sagði Flynn.
Miðað við meðaltal vinnu-
stunda á einu ári hjá
sjómönnum og fleirum
Vinnutímatilskipunin kveður
meðal annars á um að starfsmenn
skuli ekki vinna lengur en 48
stundir á viku, að yfirvinnu með-
talinni, að lágmarkshvíld sé 11
stundir á sólarhring, að sé vinnu-
dagurinn lengri en sex stundir
skuli starfsmenn eiga kost á
hvíldarhléi, að launþegar skuli
eiga a.m.k. einn fridag á viku,
að þeir skuli njóta a.m.k. fjögurra
vikna sumarleyfis á launum og
að fólk, sem vinnur á nóttunni,
skuli ekki vinna lengri vaktir en
átta stundir.
í hvítbókinni kemur fram að
ekki sé hægt að fella allar þær
starfsstéttir, sem til þessa hafa
verið utan gildissviðs tilskipunar-
innar, undir ákvæði hennar í einu
og öllu.
Framkvæmdastjórnin telur þó
að allir launþegar, sem ekki séu
„hreyfanlegir“ eigi að falla að
öllu leyti undir ákvæði tilskipun-
arinnar. Þetta á m.a. við um unga
lækna og starfsmenn
flugfélaga á jörðu niðri.
Laga þurfi núgildandi
undanþágur frá vinnutí-
matilskipuninni að að-
stæðum í viðkomandi _______
starfsgreinum.
Hins vegar leggur fram-
kvæmdastjórnin til að um „hreyf-
anlega" starfsmenn, til dæmis
flugliða og vörubílstjóra, og menn
sem starfa á sjó, til dæmis fiski-
menn, farmenn og starfsmenn
olíuborpalla, skuli gilda ákvæði
tilskipunarinnar um fjögurra vikna
greitt leyfi og átta stunda nætur-
vaktir. Þá skuli tryggja þessum
launþegum „viðunandi hvíldar-
tíma“ og tryggja að fjöldi vinnu-
stunda fari ekki fram úr hámark-
inu miðað við meðaltal á heilu
ári. Framkvæmdastjórnin telur að
um þessa hópa launþega þurfi að
setja sérstaka löggjöf, þar sem
reglur um störf þeirra rúmist ekki
Bretar reyndu
án árangurs
að hnekkja til-
skipuninni
Á viA um unga
iækna og
starfsmenn
flugfélaga
að öllu leyti innan ákvæða vinnu-
tímatilskipunarinnar.
Hægt að lifa
með þessu
Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, segir að
VSÍ hafi vitað að þessar tillögur
voru á leiðinni en hafi ekki kynnt
sér þær í smáatriðum. Hann seg-
ist telja líklegt að hægt verði að
semja um framkvæmd vinnutíma-
------- reglna fyrir nýja starfs-
hópa. Þótt ekki sé hægt
að framfylgja ýtrustu
reglum í vinnulotum,
megi semja um hvíld-
artíma í staðinn þannig
að vinnutíminn jafnist
út til lengri tíma. „Það getur því
vel verið að hægt sé að lifa við
þetta,“ segir Hannes.
Hann segir tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar þó vekja
upp margar spurningar, ekki sízt
um vinnu sjómanna. Að minnsta
kosti megi gera ráð fyrir að nýjar
reglur myndu auka skriffinnsku
hjá útgerðunum.
Vinnuveitendasambandið á að-
ild að Evrópusamtökum atvinnu-
rekenda og mun þannig að þessu
sinni geta komið athugasemdum
á framfæri við tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar, en er hin
upphaflega vinnutímatilskipun
var samin var ekki leitað eftir
íslenzkum sjónarmiðum, enda
hafði samningurinn um Evrópskt
efnahagssvæði þá ekki tekið gildi.
Hannes segist gera ráð fyrir að
jafnt útgerðarmenn sem sjómenn
muni hafa ýmislegt við hugmynd-
ir framkvæmdastjórnarinnar að
athuga.
Pottur brotinn í vinnuvernd
sjómanna
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, segist
hafa fylgzt með undirbúningi
hvítbókar framkvæmdastjórnar-
innar í gegnum Alþýðu-
sambandið og kynnt
málið í stjórn sambands-
ins, en ekki hafi verið
tekin afstaða til þess
enn sem komið er, enda
hafi enn ekki verið tekin
lokaákvörðun í málinu.
„Persónulega tel ég ástæðu til
að þetta sé skoðað af fullri einurð
og er reiðubúinn að koma að því,“
segir Sævar. „Okkur hefur fund-
izt að þegar verið er að setja
svona leikreglur, hvort sem er um
vinnutíma eða eitthvað annað,
verði sjómenn oftar en ekki út-
undan. Það höfum við oftar en
ekki verið mjög ósáttir við.“
Sævar segir ljóst að víða sé
pottur brotinn í vinnuverndarmál-
um sjómanna, ekki sízt varðandi
aðbúnað. „Hvað vinnutímatilskip-
unina varðar verður hún sjálfsagt
erfið í framkvæmd á fiskibátum.
Það er bezt að vera varkár og
gefa ekki fullyrðingar strax um
það hvernig þessir hlutir eigi að
vera eða ekki að vera,“ segir
hann.
Ungir læknar telja tilskipunina
gilda um sig nú þegar
Helgi H. Helgason, formaður
Félags ungra lækna, segir að ung-
ir læknar hafi litið svo á að núver-
andi vinnutímatilskipun ESB gildi
um störf þeirra. Eingöngu læknar
í sérfræðinámi hafi verið undan-
skildir ákvæðum hennar og ís-
lenzkir læknakandídatar fari hér
um bil allir í sérnám til útlanda.
Þessar tillögur framkvæmda-
stjórnarinnar styrki hins vegar
málstað ungra lækna, sem hafi
farið fram á að vinnutími þeirra
yrði lagaður að ákvæðum tilskip-
unarinnar.
Helgi segir að Bretland og ír-
land hafi á sínum tíma krafizt
þess að læknar í sérnámi yrðu
undanskildir vinnutímareglunum.
Flest önnur Evrópuríki hafi hins
vegar lagað vinnutíma þeirra að
ákvæðum tilskipunarinnar nú
þegar. Afleiðingin sé sú að Bret-
land sé ekki lengur samkeppnis-
fært við önnur ESB-ríki hvað
varðar vinnutíma ungra lækna og
skortur sé nú á læknum í sérnámi
þar í landi. Bretar hafi því sett
upp áætlun um að stytta vinnu-
tímann.
Að sögn Helga hefur gildistaka
vinnutímatilskipunarinnar hér á
landi á síðastliðnu vori hins vegar
enn sem komið er engu breytt um
vinnutíma ungra lækna. „Við höf-
um reynt að vinna í þessu máli
og meðal annars gengið á fund
heilbrigðisráðherra. Ungir læknar
vinna nú að meðaltali 70-90
stunda vinnuviku, en það er engin
vinna í gangi til að reyna að skipu-
leggja þetta þannig að það nái
yfir okkur,“ segir hann.
Helgi segir að FUL líti svo á
að jafnt aðstoðarlæknar og
deildarlæknar eigi heima undir
vinnutímatilskipuninni. Álitamál
hafi reyndar verið hvort aðstoðar-
læknar féllu undir ákvæði þeirra,
þar sem sumir hafi viljað túlka
það svo að þeir væru læknar í
sérnámi samkvæmt skilgreiningu
ESB. Nái tillögur framkvæmda-
stjórnarinnar fram að ganga sé
hins vegar ekki nokkur vafi í því
efni.
Helgi viðurkennir að erfitt geti
reynzt að breyta vinnufyrirkomu-
lagi á spítölum. Unglæknar gangi
nú 26 tíma vaktir og sé undir-
mannað í þeim störfum, sem þeir
sinna. „Við erum eins og aðrir
sjúkrahúslæknar í viðræðum við
ríkið um kaup og kjör og við höf-
um reynt að fá ríkið til að ræða
þetta mál. Síðastliðinn vetur var
undirhópur að störfum í einhveijar
vikur og lagði nákvæmlega fyrir
ríkið hvernig okkar vinnutíma
væri háttað. Síðan hefur ekkert
gerzt í málinu,“ segir Helgi.