Morgunblaðið - 17.07.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997 13
AKUREYRI
Ferðafélagið
Gönguferð
úr Kefla-
vík eftir
Látra-
strönd
FERÐAFÉLAG Akureyrar stendur
fyrir ferð í Keflavík og um Látra-
strönd nk. laugardag, 19. júlí.
Ekið verður til Grenivíkur og siglt
þaðan út í Keflavík. Gengið verður
inn Keflavíkurdal, farið yfir Uxa-
skarð og gengið inn eftir Látra-
strönd til Grenivíkur. í Keflavík er
eyðibýli við samnefnda vík austan
undir Gjögurtá, en Keflavík var af-
skekktasti bærinn í Fjörðum og var
þar stundum tvíbýli. Lending var ill
og helsta samgönguleið á landi um
Uxaskarð að Látrum. Skipbrots-
mannaskýli er nú í Keflavík en bær-
inn fór í eyði 1899. Þar bjó eitt sinn
Jón Loftsson og hélt sjómannaskóla,
sennilega þann fyrsta hér á landi.
Skrifstofa Ferðafélags Akureyrar
er opin alla virka daga frá kl. 16
til 19 þar sem skráning fer fram auk
þess sem allar nánari upplýsingar
fást um ferðina.
LISTA97
SUMAR
AKUREYRI
Djass á
heitum
fimmtudegi
TÓMAS R. Einarsson, kontra-
bassi, Tina Palmer, söngur,
Hilmar Jensson, gítar, og Ein-
ar Valur Scheving, trommur,
koma fram á djasskvöldi í
Deiglunni á fimmtudagkvöld-
ið, 17. júlí, og hefst það kl. 22.
Á tónleikunum verður að
mestu leikin ný djasstónlist
eftir Tómas R. Einarsson, en
mikið af henni er samið fyrir
kontrabassa og hljómsveit
þannig að bassinn er framar
en hlustendur eiga að venjast.
Tómas hefur spilað þessa tón-
list að undanförnum með
Mezzóforte-mönnum en er nú
með nýtt fólk í fylgdarliði sínu,
allt þekkta tónlistarmenn sem
sumir hafa margsinnis leikið á
Akureyri.
Tina Palmer er kanadísk og
kennir við Tónlistarskóla FÍH,
en hún er í hópi efnilegra
djasssöngvara í Kanada og er
um þessar mundir að hljóðrita
geislaplötu hér á landi með
þeim Hilmari og Pétri.
Myndlist
NÚ eru síðustu forvöð að sjá
sýningu Hanne Gravgaard frá
Danmörku í Deiglunni en henni
lýkur á fímmtudag. Hanne sýn-
ir myndir málaðar með akrýl á
striga. Myndefni hennar er eins
konar náttúruabstrakt eða
landslag sálarinnar.
Söguganga
MINJASAFNIÐ á Akureyri
býður gestum og gangnadi að
taka þátt í sögugöngu um
Oddeyrina næstkomandi
sunnudag, 20. júlí. Lagt verður
upp frá Gránufélagshúsunum,
Strandgötu 49, kl. 14. Gangan
tekur um eina og hálfa klukku-
stund, þátttakan er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
ÖRN Ingi með nýju sjónvarpstökuvélina.
• •
Orn Ingi Gíslason fjöllistamaður
Ný upptökuvél til
sj ónvarpsþáttagerðar
ÖRN Ingi Gíslason á Akureyri hefur
fest kaup á Digital sjónvarpstökuvél
af fullkominni gerð ásamt hljóðbún-
aði og sérhönnuðum ljóskösturum
fyrir vélina.
„Markmiðið með kaupum á þess-
ari vél er að fara út í sjónvarpsþátta-
gerð, heimildarmyndir, fræðslumynd-
ir og leiknar sjónvarpsmyndir,“ segir
Öm Ingi sem er tilbúinn að fara
hvert á land sem er og vinna fyrir
hvern sem er. Vélin skilar 850 línu
myndgæðum og segir hann vélina í
raun byltingu í gerð sjónvarpsefnis.
Örn Ingi hefur stundað myndlist
í um 30 ár og segir þá reynslu koma
sér afar vel ásamt þeirri hugmynda-
vinnu sem hann hefur stundað vegna
hátíða vítt og breitt um landið. Þá
hefur hann einnig verið umsjónar-
maður um 30 sjónvarpsþátta fyrir
Ríkisútvarpið á undanförnum árum
og gert um tug leikinna sjónvarps-
mynda og leikstýrt um 15 leikverk-
um á sviði með jafnmörgum leikfé-
lögum víða um land.
Einlit
frottébaðhandklæði
Sumarsæng 1
Margir fallegir litir og munstur. Fyllt með
i mjúkum polyestertrefjum. Þolir vélarþvott.
| Stærð 135x200 sm.
Mjúkt og notalegt 100% bómullarfrotté.
Fæst í mörgum fallegum litum.
sm:
Reykjavikurvegl 72
220 Hafnarfjðröur
565 5560
Holtagörðum
v/Hoitaveg
104 Reykjavik
588 7499
Baðhandklæði 65x130sm: 299,
af tréhúsgögnum,
plasthúsgögnum,
sessum fyrír sólstóla
og grillum!
i
' ' —' ' V * (1 ll'. 1 S BP
jp * >' / í i; rMsiri
’UiU ■.. :¥'V' ; ■ VsS&l’'M8 1 fl r-y -S" ’ - * ■