Morgunblaðið - 17.07.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997
LAIMDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Viðgerð á land-
græðsluflug-
vélinni lokið
Blönduósi - Flugvél Landgræðsl-
unnar, Páll Sveinsson, er komin í
gagnið á ný eftir að henni hlekktist
á í flugtaki á flugvellinum á Auð-
kúluheiði 28. júní sl. Flugvirkjar
Landhelgisgæslunnar luku við við-
gerð á flugvélinni í gærmorgun og
er einungis beðið eftir flugveðri til
að ljúka við að bera á þau 120 tonn
af áburði á heiðina sem eftir var
fyrir óhappið.
Stefán H. Sigfússon hjá Land-
græðslunni sagði í samtali við Morg-
unblaðið að gera hefði þurft við
hallastýri, vængenda og hjólabúnað.
Flugvirkjar hefðu komið til starfa á
sunnudag og verkinu lauk eins og
fyrr greinir í gærmorgun.
Um orsakir þessa óhapps sagði
Stefán að líklega hefði sprungið á
hægri hjólbarða flugvélarinnar í
flugtaki þegar véiin hafði farið um
300 metra eftir flugbrautinni og þá
einungis vantað um 10 hnúta upp
á flugtakshraða. Þegar hjólbarðinn
sprakk fór vélin út af brautinni að
vestanverðu en flugmönnum tókst
að ná henni inn á braut aftur. Þá
hefði hún farið út af að austanverðu
og þaðan aftur inn á braut og runn-
ið eftir það þversum á flugbraut og
stöðvast við brautarenda. Stefán
sagði að einungis væri eftir að dreifa
um 120 tonnum af áburði og iyki
því verki í dag ef veður leyfði. Eftir
það væru engin verkefni fyrirsjáan-
leg fyrir flugvélina það sem eftir
lifði sumars.
Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir
ODDUR Óskarsson umboðsmaður Heklu á Austurlandi afhendir
Ulfari Jónssyni lögregluþjóni á Egilsstöðum lyklana að nýja bíln-
um. Á myndinni eru einnig Finnbogi Eyjólfsson fulltrúi Heklu
og Jens Hilmarsson lögregluþjónn á Egilsstöðum.
Nýr lögreglubíll
á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Á miðvikudag var
lögreglunni á Egilsstöðum afhentur
nýr bíll til afnota af gerðinni Mitsub-
ishi Spacewagon sem Hekla er með
umboð fyrir. Hekla er um þessar
mundir að afhenda Iögreglunni víða
um land fyrstu bílana af þessari
gerð skv. samningi við Ríkiskaup.
Bílamir eru með sítengdu aldrifi
og sérstaklega hannaðir fyrir hrað-
akstur, akstur í hálku og þjöppuðum
snjó og við önnur erfið skilyrði.
Úlfar Jónsson lögregluþjónn á Eg-
ilsstöðum, sem ók bílnum frá
Reykjavík lét vel af gripnum, sagði
gott að umgangast hann, hann
væri rúmgóður og bílstjórinn sæti
hátt. Sagði hann mjög mikilvægt
að lögreglubílar færu vel með menn,
enda eyddu hann og starfsfélagar
hans dijúgum hluta vinnutímans
undir stýri.
_____STEINAR WAAGE
f SKÓVERSLUN \
Marc O’Polo
Tegund: 1930
Verð: 3.995,;
Litir: Bláir, hvítir og beige
Stærðir: 36-41
Tegund: 1945
Tilboð
Verð nú 1.995,-
verð áður: 3-.995,-
Litur: Beige
Stærðir: 36-41
5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR POSTSENDUM SAMDA.GURS
STEINAR WAAGE
SKÓVERSIUN ^
SlMI 551 8519 </■
Toppskórinn steinarwaage
. immakmmm k fb v f r i 11 ni
• Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 5521212.
SKÓVERSLUN ^
SlMI 568 9212
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir
Sigldu í kjölfar
Ingólfs Amarsonar
Hornafirði - Til Homafjarðar
komu um 10 skútur í tengslum við
víkingahátíðina í Hafnarfirði. Von
var á þeim fleimm en vegna veð-
urs fóra sumar ekki lengra en til
Færeyja. Norðmennimir í ferð-
innu komu ekki tómhentir til
Hafnar. Homfirðingum færðu
þeir stein frá Rivedal í Dalsfirði í
Noregi þaðan sem sagan segir að
Ingólfur Amarson hafi komið.
Komu þeir siglandi með steininn
frá Rivedal Iíkt og Ingólfur forð-
um og fannst þeim við hæfi að
koma steininum fyrir hér þar sem
talið er að hann hafi fyrst komið
að landi. Steinninn var afhjúpaður
með viðhöfn og var honum valinn
staður á tanga við innsiglinguna
við Homafjarðarhöfn. Allt í kring-
um minnisvarðann hafa verið lagð-
ir steinar sem komu víðsvegar að
í Noregi og skipveijamair tóku
einnig með sér yfir hafið.
Bogfimi á
Húsavík
BOGFIMI verður kynnt í sam-
komusal Borgarhólsskóla á
Húsavík fímmtudaginn 17. júlí
frá kl. 17 til 22 og á laugardag
frá kl. 14 til 18. Leiðbeinandi
er Rúnar Þór Björnsson en
hann kynntist bogfimi fyrst •
árið 1980 og keppti í þeirri
grein hér heima og erlendis
með fötluðum í nokkur ár.
Hann býr nú í Danmörku og
æfir þar bogfimi með boga-
klúbbnum Arcus í Óðinsvéum.
Honum til aðstoðar á kynning-
unni verða synir hans, Baldvin
Dagur, Georg Styrmir og Björn
Heiðar en þeir eru á aldrinum
6-10 ára og eru allir í boga-
klúbbnum Arcus og hafa tekið '
þátt í keppnum fyrir börn.
Bogfimi er íþrótt sem á sér
langa hefð og hana stunda
þúsundir manna um allan
heim, en hér á landi hefur bog-
fimi verið stunduð hjá íþrótta-
félögum fatiaðra á Akureyri
og í Reykjavík. Bogfimi hentar
öllum, fólki á öllum aldri kon-
um og körlum, fatiaðir og
ófatlaðir keppa hlið við hlið
ásamt börnum sem skjóta að 1
vísu af styttra færi.
Á kynningunni verður hægt
að reyna mismunandi boga,
langboga að hætti Hróa hatt-
ar, compound boga sem hér
eru nefndir tryssubogar auk
hefðbundinna boga sem notað-
ir eru í keppnum hér á landi.
Markmiðið með kynningunni
er að stofna bogaklúbb á Húsa-
vík sem yrði þá fyrsti sjálf-
stæði bogaklúbbur landsins, en !
þeir klúbbar sem nú eru starf-
andi eru innan íþróttafélaga
fatlaðra, þótt þeir séu öllum
opnir.
Reynist áhugi nægur á
Húsavík verður haldið nám-
skeið í bogfimi þar sem fólki
gefst kostur á að fræðast
meira um íþróttina auk þess
sem ráðlagt verður um kaup á
útbúnaði.
Gilsstofa endurbyggð
GILSSTOFAN, hin nýja stjórnstöð Glaumbæjarsafnsins,
komin á endanlegan aðseturstað.
A SAFNADAGINN hinn 13. júlí var
opnuð með viðhöfn hin svonefnda
Gilsstofa, sem nú er væntanlega
komin á þann stað þar sem hún mun
standa til frambúðar.
Saga þessa sérstaka húss er
merkileg einkum fyrir þá sök hversu
víðförult það hefur verið, en upphaf
þess var að árið 1849 reisti Ólafur
Briem timþurmeistari á Grund í
Eyjafírði stofu fyrir bróður sinn
Eggert, að Espihóli í sömu sveit.
Árið 1861 varð Eggert sýslumað-
ur Skagfirðinga og er hann flutti tók
hann stofuna með sér og með við-
komu á Hofsósi voru viðir stofunnar
fluttir að Hjaltastöðum þar sem
Eggert bjó til ársins 1872. Þá var
stofan aftur tekin niður og viðir
hennar fluttir á ísum yfir Héraðs-
vötn að Reynistað þar sem hún var
enn byggð og stóð til ársins 1884.
Frá árinu 1883 til 1891 var stofan
sýsluskrifstofa fyrir Skagafjörð, en
einnig notuð sem samkomuhús fyrir
ýmsar skemmtanir og mannfagnaði.
Árið 1884 varð Jóhannes Olafs-
son, faðir dr. Alexanders háskóla-
rektors, sýslumaður Skagfírðinga og
sat hann að Gili í Borgarsveit og
var þá stofan flutt að Gili og stóð
þar til 1891 er hún var flutt til Sauð-
árkróks, þar sem hún fékk nýtt hlut-
verk sem verslunar- og íbúðarhús-
næði, og var nú farið að nefna hana
Gilsstofu eftir dvöl sína að Gili í
Borgarsveit.
Á Sauðárkróki stóð Gilsstofa til
ársins 1985, er hún var enn rifin
og fiutt að Kringlumýri í Blönduhlíð
í næsta nágrenni við Hjaltastaði þar
sem hún var upphaflega reist í
Skagafirði. Samvinna tókst svo á
milli Sigurðar Hansen bónda - á
Kringlumýri og Sigríðar Sigurðar-
dóttur safnvarðar í Glaumbæ eftir
viðræður við Þór Magnússon þjóð-
minjavörð og Hjörleif Stefánsson
arkitekt, um að endurreisa Gilsstof-
una í Glaumbæ, þar sem hún mundi
þjóna sem stjórnstöð fyrir starfsemi
safnsins.
Við opnunina flutti sr. Gísli Gunn-
arsson ávarp og blessunarorð, en
Sigriður Sigurðardóttir safnvörður
rakti á skemmtilegan hátt ferðasögu
hússins, en benti í ræðu sinni einnig
á að langferðir Gilsstofunnar gerðu
sögu hennar einstaka, en þær hefðu
einnig orðið til þess að upprunaleg-
um viðum hefði fækkað og einnig
hefði innra skipulag hússins tekið
breytingum miðað við aðstæður og
notkun hverju sinni.
Þá tóku til máls Jón Guðmundsson
fyrrverandi oddviti héraðsnefndar
og Hjörleifur Stefánsson arkitekt og
færði hann húsinu að gjöf tvær
myndir af báðum þeim húsum, sem
flutt hafa verið og sett niður á safna-
svæðínu í Glaumbæ, eins og þau
voru er endurgerð var ákveðin, það
er Gilsstofunni og Áshúsinu sem
tekið var í notkun fyrir nokkrum
árum.
Yfirsmiður var Friðrik Rúnar
Friðriksson en fyrirtæki hans Lamb-
eyri hf. annaðist endurgerð hússins.
Að lokum þágu gestir kaffiveit-
ingar í boði safnsins.