Morgunblaðið - 17.07.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1997 17
NEYTENDUR
UM BORÐ í flugvélum Sviss Air er boðið upp á
mat sem eldaður er úr lífrænt ræktuðu hráefni.
BÖRNIN vi\ja helst kjúkling.
Flugeldhús Flugleiða útbýr sex þúsund matarbakka á dag
Fiskurinn
vinsælastur
og íslenska
vatnið í tísku
JULI er annasamur mánuður hjá
starfsfólki Flugeldhúss Flugleiða
í Keflavík og um 6.000 matar-
bakkar eru útbúnir þar dag
hvern. Aukningin hefur verið
stöðug undanfarin fimm ár og
framleiðslan farið úr 600.000
bökkum á ári i 1,3-1,4 milljónir
bakka.
„Við þurfum að vanda valið á
hráefni og grundvallaratriði er
að hafa það vel þekkt. Fiskurinn
er eftirsóttastur bæði hjá útlend-
ingum og íslendingum," segir Jón
G. Sigurðsson, rekstrarstjóri
Flugeldhúss Flugleiða í Keflavík.
„Það má segja að Islendingar
hafi tekið fiskinn í sátt. Það er
afar sjaldgæft að flugfélög geti
boðið upp á ferskan fisk í þeim
mæli sem við gerum og reyndar
eigum við heimsmet í neyslu
fersks fisks um borð í flugvélum.
Að minnsta kosti i helmingi tilvika
bjóðum við upp á ferskan fisk.“
íslenska vatnið vinsælt
Jón segir að matseðlinum sé
breytt mánaðarlega, en annars
séu matseðlar kynntir til heils árs
í senn og þá eru valdir úr þeirri
kynningu matseðlar sem ganga
þijá hringi yfir árið. „Útlendingar
eru forvitnir um íslenskar vörur
og það er mikið beðið um íslenskt
vatn um borð. Fólk ætlast einfald-
lega til að það sé á boðstólum."
Jón segir að fólk hafi dregið úr
neyslu áfengra drykkja um borð
og nú sé vatnið eftirsótt og
ávaxtasafar. „Þetta hefur í raun
snúist við og það er eins og fólk
sé í auknum mæli að átta sig á
því að hæfileg drykkja á öðru en
áfengi er æskileg og skilar sér í
betri líðan þegar lent er.“
Kanadamenn vilja
íslenskt skyr
Flugeldhúsið kaupir eftirrétt-
ina sem boðið er upp á, bæði hér
heima og erlendis. Að sögn Jóns
á það reyndar við um annað hrá-
efni líka. Hann segir að fólk sé
áhugasamt um íslenska mat-
reiðslu og nefnir sem dæmi að
leigflugfélagið Canada 3.000 hafi
sett fram þá kröfu í sumar að
bjóða upp á skyr. „Farþegar
Canada 3.000 fá skólaskyr á
ákveðnum leiðum og forsvars-
menn flugfélagsins hafa einnig
beðið um íslenskar skyrkökur frá
Búðardal þó þær séu tvisvar sinn-
um dýrari en aðrir eftirréttir sem
í boði eru. Þetta leiguflugfélag
er með 17 lendingar í viku í Kefla-
vík, að minnsta kosti i júlímán-
uði, og við áætlum að selja þeim
í kringum 140-150.000 máltíðir
þetta árið. Þetta flugfélag virðist
leitast við að hafa fæðuna sem
heilsusamlegasta og íslenski fisk-
urinn er númer eitt hjá farþegum
Canada 3.000. Samkvæmt könn-
unum sem gerðar hafa verið um
borð komum við hjá Flugeldhúsi
Flugleiða best út af öllum þeim
stöðum sem Canada 3.000 flýgur
til í heiminum. Þessar niðurstöður
styrkja okkur í þeirri trú að við
séum á réttri leið.“
Létt fæði þriðji valkosturinn
á Saga Class
Töluvert hefur aukist að far-
þegar biðji um sérfæði, grænmet-
isrétti, barnamat og nokkuð er
um séróskir vegna ofnæmis.
„Þetta eru í kringum 30-40.000
matarbakkar á ári. Frá og með
1. maí síðastliðnum fórum við að
bjóða upp á þriðja valið á Saga
Class þar sem boðið er upp á létt-
ari mat þar sem minna er notað
af salti, fitu og sykri í matreiðsl-
unni,“ segir Jón. „Það hefur
mælst vel fyrir hjá farþegum."
Hann bendir á að það sé almenn
stefna fyrirtækisins að stilla
notkun salts, sykurs og fitu í hóf
og ef til vill verði slíkt val einnig
kostur fyrir farþega á almennu
farrými þegar fram í sækir.
„Þetta er hins vegar vandrataður
vegur því farþegar eru í fríi og
• FORRAÐAMENN leigu-
flugfélagsins Canada 3.000
báðu sérstaklega um skóla-
skyr og skyrtertur. Sam-
kvæmt könnunum sem gerð-
ar hafa verið um borð er ís-
lenski fiskurinn í fyrsta sæti
hjá Kanadamönnum.
Svínakjöts-
útsala í Bónus
HAFIN er svínakjötsútsala í Bónus
og nemur lækkunin á kjöti 25-35%.
Sem dæmi um verð má nefna að
svínakótilettur kosta nú 699 krónur
kílóið, svínagrillkótilettur eru á 749
krónur kílóið og svínasnitsel á 757
krónur kílóið. Einnig verður kílóið
af kartöflum selt á 19 krónur í lausa-
sölu í dag.
Lagerútsala
Þá hefst einnig í dag lagerútsala
í Bónus Holtagörðum. Útsöluvarn-
ingurinn verður í gámi fyrir utan
verslunina og allir hlutir þar eru
seldir á 97 krónur. Þar má til dæm-
is finna potta, peysur, nærföt,
sokkabuxur, skó og plastvöru.
10-11 verslanirnar
Kjúklingar
á 489 krónur
kílóið
í DAG munu kjúklingar fást á tilboðs-
verði hjá 10-11 verslununum. Kílóið
af frosnum kjúklingum verður selt á
489 krónur og er um 10 tonn að ræða.
Harbo furuhúsgögn
Hartman plasthúsgögn
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Sími 5 I I 2200
HAGKAUP
HÚSASMIÐJAN
vilja margir hverjir ekki vera að
spara við sig hitaeiningarnar í
sumarleyfinu. Við höfum hins
vegar trú á að þetta sjónarmið
með hollustu um borð verði sí-
fellt meira áberandi.
Svissneska flugfélagið Swiss
Air hefur til dæmis auglýst stíft
að undanförnu að um borð sé
framreiddur matur úr lifrænt
ræktuðu hráefni.“ Þegar börn
eru annars vegar segir Jón að
kjúklingur sé ofarlega á vin-
sældalistanum. „Við höfum leitað
álits barna, heimsótt íslenska
skólakrakka og borið undir þá
ýmsa matseðla."
- Hvað bjóðið þið oftast í
morgunmat um borð?
„Þar höfum við verið að breyta
til og fært okkur frá eggjum í
pönnukökur sem eru þá fylltar
með skinku til dæmis. Þetta er
okkar viðleitni til að draga úr
notkun kólesterólríkra fæðuteg-
unda. A hinn bóginn sýnist okkur
sem farþegar vilji fá heitan
morgunverð í flugi og egg séu
ofarlega á vinsældalistanum,
jafnvel þó þeir borði aldrei slíkan
morgunverð heima hjá sér.“
Shellstöðvarnar
FLUGLEIÐIR
BIFREIÐASKOÖUN HF
Tækniva!
HansFetífíín
mmim, mmm
As+ t<S
® TOYOTA
MEGASTORE
ÚTILÍF
ISLANDSBANKI