Morgunblaðið - 31.07.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 31.07.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jafnréttisráðstefna í Lettlandi Sr. Auði Eir meinuð af- not af kirkju ÓVÍST er hvort sr. Auður Eir fái af- not af kirkjunni í Valmiera í Lett- landi í ágúst þar sem hún mun stjórna kvennamessu í tengslum við jafnréttisráðstefnu. Fái Auður Eir ekki inni í kirkjunni verður messan haldin utandyra. Undanfarin ár hafa kvenprestar ekki verið vígðir í Lettlandi og konur hafa átt erfitt uppdráttar innan lút- ersku kirkjunnar þar. Jafnréttisráðstefhan er haldin dagana 7.-10. ágúst undir yfirskrift- inni Konur og karlar tala saman. Um 1.300 manns frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum sækja ráð- stefnuna, þar af um 50 íslendingar. Á ráðstefnunni verður rætt um stöðu jafnréttismála á öllum sviðum mannlífsins og hefur verið leitast við að fá sérfræðinga til að miðla af þekkingu sinni. Af íslands hálfu eru aðalfyrirlesarar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor, Guðrún Agn- arsdóttir læknir og dr. Sigrún Stef- ánsdóttir fjölmiðlafræðingur. ---------------------- Ljósleiðari fór í sundur SÍMASTRENGUR fór í sundur í gær í ánni Klifandi mUli Víkur í Mýr- dal og HvolsvaUar. Alnetssamband við Ameríku fer um Ijósleiðara í strengnum en vegna þess að ljósleið- ari leitar strax eftir sambandi annars staðar urðu notendur aðeins fyrir smátöf. Símasamband rofnaði ekki heldur vegna þess að það fer strax norðurleiðina ef rofnar á suður- hringnum. Ástæða þess að strengur- inn fór í sundur er að áin er straum- harðari en áður. Morgunblaðið/Tom Gibbons FORSETI íslands hitti George Schultz, fyrrverandi utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í garðveislu hjá Dorothy Cartwright. Frá vinstri: Charolette Maillard Swig, prótokollmeistari San Franc- iscoborgar og unnusta Schultz, George Schultz, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson. Morgunblaðið/Andrew de Vries í HÁDEGISVERÐARBOÐI hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Oz í San Francisco, sem haldið var í gær í tjaldi á tennisvelli San Francisco tennisklúbbsins, sem er uppi á þaki byggingarinnar þar sem skrifstofur Oz eru til húsa. Hér er forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, að spjalia við Skúla Mogensen, einn eigenda Oz . Forseti fslands hittir athafnamenn og viðskiptajöfra í Kalifornfu Oz hefur náð ótrúlega langt FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og fylgdarlið hans flugu á þriðjudagskvöld frá Utah til San Francisco í Bandaríkjunum. I fyrrakvöld hélt Dorothy Cartwright, sem er af íslenskum ættum, garðveislu fyrir forseta- hjónin. Þangað var boðið fólki af íslenskum ættum, ýmsum fyrir- mönnum og fólki sem hefur sér- stök tengsl við Island. í gær var morgunverðarfundur með fólki úr viðskiptalífinu til kynningar á Is- landi og undir hádegi voru höfuð- stöðvar hugbúnaðarfyrirtækisins Oz heimsóttar. Þar var síðan efnt til hádegisverðar með fulltrúum ýmissa stórfyrirtækja sem eiga viðskipti við Oz eða eru að semja um slíkt. Heimsóknina í Oz bar hæst Ólafur Ragnar segir heimsókn- ina í höfuðstöðvar Oz tvímælalaust það sem hæst bar í gær. „Mér fannst fróðlegt og ánægjulegt að kynnast því hve Oz nýtur mikils álits hér í höfuðstöðvum hugbún- aðariðnaðarins í heiminum. Við hittum fulltrúa nokkurra stærstu fyrirtækja heims sem hafa þegar efnt til samvinnu við Oz vegna þess að fyrirtækið sé í fremstu röð þeirra sem eru að skapa nýjar víddir í samskiptum einstaklinga, fyrirtækja og þjóða í gegnum tölvutengingar á nýrri öld. Þama voru einstaklingar sem fjárfesta fyrir milljarða dollara á hverju ári, m.a. fulltrúi frá Intel, sem er ásamt Microsoft tvímælalaust stærsta fyrirtæki í veröldinni í þessari grein. Intel er að efna til langtímasamvinnu við Oz vegna þess að þar er talið að þetta ís- lenska fyrirtæki sé í fremstu röð, einkum og sér í lagi vegna þeirrar miklu sköpunargáfu sem Oz kem- ur með inn í þróun þessarar tækni,“ sagði Ólafur Ragnar. Höfða-fundurinn upphaf breyttrar heimsmyndar Forsetinn sagði einnig að hon- um hefði þótt vænt um þá viður- kenningu sem fólgin var í nær- veru George Schultz, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem kom bæði til garðveislunnar í fyrrakvöld og morgunverðarfund- arins í gær. „Það var gaman að ræða við hann um leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs á Islandi. Hann sagði mér að hann hefði eitt sinn spurt Gorbatsjov hvenær hann teldi að hin breytta heims- mynd hefði byrjað og eins og Schultz sagði þá hikaði Gorb- atsjov ekki heldur svaraði að bragði, að auðvitað hefði Reykja- vík verið upphafið að hinni breyttu heimsmynd. Fundurinn skipaði einstæðan sess í sögunni. Við áttum einnig ánægjulegar samræður við Helga Tómasson sem nýtur álits og frægðar um öll Bandaríkin fyrir stjórn sína á San Francisco ballettinum," sagði Ólafur Ragnar. Dagkrá í Seattle á föstudag Síðdegis í gær flaug forsetinn til Seattle þar sem heimsókninni verður fram haldið á fóstudag eftir að forsetahjónin hafa heimsótt vinafólk sitt í Tacoma. Helgarpósturinn prentaður í prent- smiðju Morgunblaðsins HELGARPÓSTURINN verður prentaður í dag í prentsmiðju Árvak- urs hf. sem gefur úr Morgunblaðið. Hallgrímur Geirsson, framkvæmda- stjóri Árvakurs, sagði að stjórnend- ur Helgarpóstsins hefðu í gærmorg- un óskað eftir því að prentsmiðjan prentaði blaðið og gengið hefði verið frá því í gær. Prentsmiðjan tæki að sér prentun á blöðum svo fremi sem það raskaði ekki prentun á Morgun- blaðinu og DV og viðskiptin við Helgarpóstinn væru með sama hætti og við aðra viðskiptavini sem leituðu eftir prentun. Prentað væri sam- kvæmt verðskrá sem gerir ráð fyrir staðgreiðslu. Helgarpósturinn hefur verið í við- skiptum við prentsmiðjuna Odda en blaðið var prentað hjá prentsmiðjunni ísafold í síðustu viku vegna ágrein- ings við Odda um prentkostnað. „Okkar mat var að það væri hvorki heppilegt fyrir Helgarpóstinn né ísafoldarprentsmiðju að blaðið yrði prentað þar í Ijósi atburða und- anfarinna daga. Við höfum verið í viðskiptum við ísafold en forráða- menn prentsmiðjunnar hafa ekki viljað ljá máls á lengri samningi en frá blaði til blaðs,“ sagði Páll Vil- hjálmsson, ritstjóri og einn eigenda Helgarpóstsins. Páll sagði að þar sem þetta hefði borið að með stuttum fyrirvara hefði aðeins verið gerður samningur við prentsmiðju Morgunblaðsins um prentun á þessu eina blaði. Nær fjögurra sólarhringa ferð með hesta til Noregs , Morgunblaðið/ValdimarKristinsson ÍSLENSKU landsliðsmennirnir í hestaíþréttum eru komnir á mótsstað heimsmeistaramótsins í Seljord í Noregi en bíða enn hesta sinna sem eru væntanlegir síðdegis í dag. HESTAR íslenska landsliðsins í hestaíþróttum eru væntanlegir á mótsstað heimsmeistaramóts ís- lenskra hesta í Seljord í Noregi um fjögurleytið að norskum tíma í dag eftir eitt lengsta ferðalag sem farið hefur verið með hross héðan á þessi mót. Hestarnir voru kyrrsettir í Hannover þar sem átti að tollaf- greiða og greiða sjö hundruð þús- und krónur íslenskar í tolla en fylgdarmennimir, Atli Guðmunds- son og Páll Bragi Hólmarsson, voru með eitthvað innan við hundrað þúsund krónur á sér í lausafé. Ætl- unin hafði verið að taka út fé til greiðslu tolla með greiðslukorti en þar sem bönkum var lokað um há- degi í Hannover reyndist það ekki mögulegt. Stóð því allt fast þar til flutningsaðilinn, Ingo Muller, lagði út upphæðina. Þegar rætt var við Atla síðdegis í gær voru þeir í þann mund að leggja af stað áleiðis til Hirtshals í Danmörku þar sem taka átti ferju til Noregs, væntanlega í bítið f morgun. Sagði Atli að ferjan væri fjóra tíma á leiðinni og síðan tæki við tveggja tíma akstur á mótsstað- inn. Flogið var með hestana til Lúx- emborgar aðfaranótt mánudagsins og hafa þeir því verið um þrjá og hálfan sólarhring á ferðinni þegar þeir koma loks á áfangastað. Atli sagði að beðið hefði verið með hestana rúman sólarhring í Lúxemborg til að hvíla þá eftir flug- ferðina en sér hefði sýnst það óþarfi svo hressir sem þeir hefðu verið við komuna þangað. Þegar hestamir vom kyrrsettir í Hannover héldu þeir til á búgarði flutningsaðilans, Ingos Múllers, en fylgdarmennimir þorðu ekki að hreyfa þá af bflnum vegna smithættu, ekki heldur að koma nálægt öðmm hestum eða hesthúsum. Hestamir hafa verið fóðraðir og þeim brynnt á bensín- stöðvum á leiðinni. Upphaflega stóð til að flytja hest- ana beint til Noregs með flugi en það brást á síðustu stundu og varð því að leita til Cargolux sem flýgur til Lúxemborgar. Hestar í haughúsi Aðrir liðsmenn en þeir Atli og Páll Bragi eru komnir á mótsstað og sagði einn þeirra, Sigurbjörn Bárðarson, að aðstaðan í Seljord væri öll hin besta. Hestar íslenska liðsins verða að venju hafðir afsíðis fjarri öðmm keppnishrossum vegna smithættu og sagði Sigurbjörn að þeir yrðu hýstir í gömlu haughúsi. Sigurbjörn var hæstánægður með haughúsið sem er með eins metra þykka veggi sem tryggir hæfilegan svala. Hver hestur hefur sér stíu og aðstaða er til að beita þeim utan við húsið og sex mínútur tekur að ganga á mótssvæðið. Þá sagði Sigurbjörn að öll að- staða á mótssvæðinu væri hin besta, vellimir virtust mjög góðir og að- staða fyrir áhorfendur sömuleiðis. Þarna væru reiðhallir og annar góð- ur húsakostur sem nýttist vel á mótinu og ennfremur væri upphit- unaraðstaða mjög góð. „Vel var tek- ið á móti okkur við komuna og var viðmót Norðmanna afar gott,“ sagði Sigurbjörn að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.