Morgunblaðið - 31.07.1997, Page 8

Morgunblaðið - 31.07.1997, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Siavarúlvcgur ÞETTA er ekkert okkur í Hafró að kenna, þetta er allt út af þessu lygilega góðæri hans Dabba... Vestmanna- eyjar vin- sælastar ÞJÓÐHÁTÍÐIN í Vestmannaeyjum verður íjölsótt um helgina ef marka má bókanir með flugvélum og áætianabflum. ÞJÓÐHÁTÍÐ í Vestmannaeyjum virðist hafa einna mesta aðdráttar- aflið um verslunarmannahelgina, samkvæmt upplýsingum frá Flug- félagi íslands, íslandsflugi og BSI. Langmesta sætaframboðið er til Eyja og hefur því verið mest selt þangað. Þá er útlit fyrir marg- menni á Egilsstöðum, Akureyri og Höfn í Homafirði, en nánast er uppselt í öll flug á þessa staði. A BSÍ kemur Galtalækur á eftir Vestmannaeyjum og nokkuð hefur verið spurt um Þórsmörk. Aðsókn á aðra áfangastaði er eins og um venjulega helgi. Skiptast á skin og skúrir Meira hefur verið hringt á veður- stofuna en gengur og gerist að sögn Harðar Þórðarsonar veður- fræðings og er fólk að forvitnast um veðurútlit helgarinnar. Það lít- ur hins vegar út fyrir að skin og skúrir muni skiptast milli lands- hluta og því ekki á vísan að róa, vilji fólk elta góða veðrið. Nesjavallavirkjun Borgarráð samþykkir rafmagnssamning BORGARRAÐ hefur samþykkt fyrir sitt leyti drög að rafmagns- samningi milli Hitaveitu Reykja- víkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar vegna sölu á raforku til Landsvirkjunar frá Nesjavöllum. Samningurinn gildir til 1. nóvember árið 2018 en fellur þá úr gildi án uppsagnar. Gert er ráð fyrir að frá 1. októ- ber árið 1998 til 1. október árið 2000 skuli samningsbundið verð á kílówattstund vera 79% af samn- ingsbundnu verði á hverjum tíma samkvæmt rafmagnssamningi Landsvirkjunar og álversins á Grundartanga en frá 1. október ár- ið 2000 til 1. ágúst árið 2008 skal greiða 16 bandarísk mill fyrir hluta rafmagnsins. Skal Landsvirkjun tilkynna Hitaveitu Reykjavíkur í byrjun hvers mánaðar um samningsbund- ið verð til Grundartanga mánuðinn á undan og skulu Hitaveitunni af- hent viðhlítandi gögn og upplýsing- ar um hvemig verðið er ákvarðað. Hvor aðili um sig getur óskað eftir viðræðum um endurskoðun á orku- sölu eða magni til Landsvirkjunar frá janúar árið 2011 með hliðsjón af reynslu af rekstri Nesjavallavirkj- unar. Endurskoðun hugsanleg I minnisblaði með samningnum er tekið fram að i tengslum við út- gáfu á virkjanaleyfi fyrir Nesja- vallavirkjun hafi iðnaðarráðuneytið bent á að unnið væri að breyting- um á skipan raforkumála, sem ráð- gert sé að feli í sér aðskilnað vinnslu, flutnings, dreifingar og sölu á rafmagni til að koma á sam- keppni í raforkuvinnslu- og sölu. Tekið er fram að komi til slíkra breytinga sem fyrirsjáanlega leiddu til röskunar á jafnvægi samningsins milli Landsvirkjunar og Reykjavíkurborgar skuli taka upp viðræður um leiðréttingu með tilÚti til magns og/eða verðs. Borgarráð hefur jafnframt sam- þykkt drög að samrekstrarsamn- ingi milli Landsvirkjunar og Hita- veitu Reykjavíkur og drög að sam- komulagi um skiptingu raforku- kaupa Rafmagnsveitu Reykjavíkur hjá Landsvirkjun og Hitaveitu Reykjavíkur. Stuðlað að bættu aðgengi fyrir fatlaða Getum orðið fyrirmynd annarra þjóða MÁLEFNI fatlaðra hafa löngum átt fastan sess í þjóðfélagsumræðunni hér á landi og í byrjun þessa árs gerðu Samband íslenski'a sveit- arfélaga og félagsmálaráðuneytið með sér samkomulag þess efnis að sveitarfélögin myndu í sam- vinnu við félagsmálaráðuneytið annast aðgengismál fatlaðra. Samningurinn gildir til loka árs 1998 og í tenglum við hann var Ólafur Jensson ráðinn til starfa af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ólafur hefur lengi starfað að málefnum fatlaðra og þekkir því vel til þeirra, en hann hefur einnig mikla reynslu á sviði byggingarþjónustu, ráðgjafar og upplýsingarþjónustu. - Ilvernig er staðið að málmn fatiaðra íþjóðfélaginu í dag? „Ég verð því miður að segja að mér finnst ekki nógu mikið tillit tekið til fatlaðra hér á landi, en hugsunarháttur manna hefur þó breyst í gegnum tíðina og ég tel að okkur miði í rétta átt. Eg vona að átakið sem nú er í gangi opni augu fólks fyrir málefnum fatl- aðra, en samningur Samband ís- lenskra sveitarfélaga og félags- málaráðuneytisins er stórkostleg framþróun og honum ber að fagna. Lögð er mikil áhersla á að sveitarfélögin sjálf geri átak hvert í sinni sveit en einnig að ailir aðrir, t.d. verslunareigendur og vinnuveitendur, leggi sitt af mörkum til þess að aðgengi fyrir fatlaða verði sem best. Verkefnið er annars mjög margþætt og Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett það markmið að aðgengi verði bætt íyrir alla, ekki eingöngu fatlaða, en verið er að undirbúa ráð- stefnu þar sem þetta mál verður tekið föstum tökum.“ - Hvernig fmnst þér málefni fatlaðra á Islandi standa í saman- burði við aðrar þjóðir? „Ég held að Island standi al- veg þokkalega í samanburði við aðrar þjóðir, en þar sem ég þekki til standa Bandaríkja- menn þó öðrum framar. Þróunin á íslandi er hins vegar í rétta átt og ég tel að ef rétt verði haldið á spilunum og allir leggi þessu átaki lið gæti ísland orðið fyrir- mynd annarra þjóða í kringum aldamót." - Nú hefur þú unnið í fjölda- mörg ár að málefnum fatlaðra á Islandi. Hversu mikil- vægt er fyrir fatlaða að eiga sitt eigið íþróttasamband? „Það er mjög mikil- vægt því auk þess að efla tengslin á milli ýmissa íþróttafélaga innanlands mynd- ast góð tengsl við erlenda aðila þegar haldin eru Norðurlanda- mót, Eyrópumeistaramót, heims- leikar, Ólympíuleikar o.s.frv. í þau tólf ár sem ég gegndi formennsku Iþróttasambands fatlaðra - frá 1984 til 1996 - lagði ég ríka áherslu á að ís- landsmót og aðrir viðburðir á vegum sambandsins væru haldn- ir úti á landi til þess að vekja at- hygli á málefnum fatlaðra. Ég tel að það hafi tekist mjög vel og skilningur manna á því að fatlað- ir þurfi sérstaka aðstöðu hefur aukist. Ef við lítum til að mynda á Ólafur Jensson ► Ólafur er fæddur í Reykja- vík 8. september 1934. Hann lauk gagnfræðiprófi frá Gagn- fræðiskóla Austurbæjar en fór eftir það í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann út- skrifaðist með sveinspróf í vél- virkjun árið 1954. Ólafur starfaði sem vélvirki næstu fimm árin en var þá ráðinn til Byggingarþjónustu Arkitekta- félags Islands þar sem hann vann allt til ársins 1991. Ólaf- ur hefur í rúma tvo áratugi unnið ötullega að málefnum fatlaðra á íslandi og auk þess að hafa um nokkurt skeið átt sæti í Ólympíunefnd fatlaðra gegndi hann formennsku hjá Iþróttasambandi fatlaðra í 12 ár. Ólafur er kvæntur Maríu Guðmundsdóttur og eiga þau fjögur uppkomin börn. kannanir sem gerðar hafa verið í Vestur-Evrópu og Bandaríkjun- um og heimfærum þær upp á Is- land, sjáum við að með því að starfrækja hér sérstakt íþrótta- samband fyrir fatlaða spörum við um 180-200 milljónir króna á ári hverju í sjúkrakostnað, ýmiss konar stofnanakostnað og lyfja- kostnað. Það heldur mörgum fötluðum hreinlega gangandi, bæði andlega og líkamlega, að geta stundað íþróttir. Svo megum við heldur ekki gleyma því að þegar við tölum um fatlaða erum við ekki eingöngu að tala um hreyfihamlaða, eins og margir virðast halda, heldur einnig þroskahefta, blinda, sjónskerta, heyrnarlausa o.s.frv." - Ertu bjartsýnn á að málefn- um fatlaðra verði sinnt af krafti í framtíðinni? „Já, ég er það. Að vissu leyti má segja að bylting hafi orðið á málefnum fatlaðra í maí þegar samþykkt voru á Alþingi ný skipulags- og byggingarlög sem kveða á um að sveitafélögin verði að leita ráða sérfræðinga í að- gengismálum áður en byggingar- leyfi eru veitt. Þetta er mikilvægt skref í bar- áttu okkar fyrir bættu aðgengi og ef þessi þróun heldur áfram tel ég að fatlaðir þurfi ekki að kviða framtíðinni.“ „Okkur miðar í rétta átt“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.