Morgunblaðið - 31.07.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 31.07.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Glópagull upp úr borholu Vaðbrekku, Jökuldal - Rann- sóknarboranir standa nú yfir vegna virkjunar Jökulsár á Brú við Kára- hnjúka á vegum Landsvirkjunar. Búið er að bora tvær borholur af fimm sem boraðar verða í sumar á stíflustæði við Kárahnjúka og gengur borvinnan mjög vel, en reiknað er með að hún standi fram í september og alls fáist milli átta og níu hundruð metrar af borkjarna upp úr holunum fimm samtals. Holurnar sem búið er að bora eru um eitt hundrað metrar hvor og eru þær austan við Fremri- Kárahnjúk. Að sögn Ágústs Guð- mundssonar jarðfræðings fengust upp úr þessum tveimur holum um tvö hundruð metrar af borkjarna og fannst meðal annars svokallað glópagull í þeim. Hinar holurnar þtjár, sem fyrir- hugað er að bora, verða tvö hundr- uð metrar á dýpt hver, þær eru syðst á gljúfurbarmi Dimmu- gljúfra, ein fyrir austan Jökulsána en hinar tvær fyrir norðan hana. Byijað er að bora holuna austan við Jökulsá og að sögn Johnnys Símonarsonar, forstjóra hjá Rækt- unarsambandi Flóa og Skeiða, sem sér um boranir fyrir Landsvirkjun, gengur vinnan við holuna mjög vel og var borinn kominn á um fimm- tíu metra dýpi er fréttaritari kom við hjá bormönnunum í byrjun vik- unnar. Holan er á gljúfurbarmin- um syðst í Dimmugljúfrum og er op hennar um 130 metrum yfir yfirborði Jökulsár, snarbrött skriða og hengiflug er af borstæðinu niður að ánni Á fyrirhuguðu stíflustæði Holan sem er verið að bora nú er á fyrirhuguðu stíflustæði, komi til virkjunar, og sést glöggt á stað- setningu hennar að fyrirhuguð stífla kæmi mestöll sunnan Dimmu- gljúfra og mun virkjunin þess Mbl/Sigurður Aðalsteinsson BORSTÆÐIÐ, sem nú er unnið á, er í norðanverðum Fremri-Kárahnjúk, nokk- uð tæpt á gljúfurbarmin- um. Holan er á gljúfur- barminum syðst í Dimmu- gljúfrum og er op hennar um 130 metrum yfir yfir- borði Jökulsár. Á minni myndinni virða Ágúst Guð- mundsson jarðfræðingur og Johnny Símonarson borsljóri fyrir sér bor- kjarnana sem komnir eru upp úr holunni. vegna ekki skemma þá hrikalegu náttúrusmíð sem Dimmugljúfur eru. Hins vegar mun virkjunin, ef af henni verður, auðvelda aðgang ferðamanna mjög að þessari mikil- fenglegu náttúrusmíð sem fáir ferðamenn hafa litið augum hingað til, bæði vegna þess að samgöngur munu batna að gljúfrunum og síðan mun Jökulsá á Brú verða vatnslaus í gljúfrunum og þá verður hægt að ferðast eftir þeim mestallt árið. Þar sem gljúfrin eru dýpst eru þau um 170 metra djúp og um 50 metra breið, það er langt neðan við fyrirhugað stíflustæði rétt sunnan Hafrahvamma. Flestir ferðamenn sem hafa komið að gljúfrunum hing- að til hafa komið að Hafrahvömm- um sem gljúfrin hafa stundum verið kennd við og eru utan við Dimmu- gljúfur. Bergstálið á móti Hafra- hvömmunum er um 200 metrar. Þegar lokið verður við að bora holuna á austurbarminum verður borinn fluttur norður fyrir Jökulsá um Brúardali að norðurbarminum þar sem lokið verður við borun í sumar með tveimur tvö hundruð metra holum á stíflustæðinu, ann- arri tæplega hundrað metrum yfir vatnsborði Jökulsár, hinni rúmum hundrað metrum yfir vatnsborði árinnar, sagði Ágúst og verður því verki væntanlega lokið í bytjun september ef áætlanir standast. HELGARWILBOB SUMARHÚSAFLÖNTm OPIÐ FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG 8-19 LOKAD UM VERSLUNARMANNAHELGINA BIRKI STAFAFURA 35 PLÖNTUR í BK. ÁÐUR KR. 1.180- 40 PLÖNTUR í BK. ÁÐUR KR. 1.290- AÐEINS KR.540- LOÐVÍÐIR 2,0L. PT. KR.m- NÚ KR.59- MYRTUVÍÐIR 2,0L. PT. LAPPAVÍÐIR 2,0L. PT. KÖRFUVÍÐIR 2,0L. PT. KR. 490- KR. 490- KR.490- Sekkj apípuleikur í Önundarfirði MorgunDiaoio/ngm Flateyri - Það er með ýmsum hætti sem menn heimsækja Flat- eyri. Sumir koma akandi, aðrir koma hjólandi. Svo eru það hinir sem koma siglandi. Nýverið lá bundin við festar skúta ein frá Skotlandi með feðga um borð, sem voru á siglingu um Vest- firði. Þeir gerðu stuttan stans á Flateyri, skoðuðu sig um í bæn- um og héldu svo áleiðis á skút- unni með stefnu á Patreksfjörð. Það vakti athygli þeirra sem fylgdust með skútunni sigla út fjörðinn að sonurinn tók upp sekkjapípu og lék á hana meðan þeir sigldu út stilltan Önundar- fjörðinn. Morgunblaðið/Egill Egilsson LÁRA Samira Benjnouh (t.v.) og Inga Dagmar Karlsdóttir með Flateyri í baksýn. Mannfræðinemar MÖRG ÖNNUR FRÁBÆR TILBOÐ í GANGI PLÖNTUSALAN í FOSSVOGI Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-18. Sími 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG á Flateyri Flateyri - Nýverið luku rannsókn- um sínum tveir mannfræðinemar, sem dvalið hafa á Flateyri um tveggja vikna skeið, vegna rann- sókna sinna. Mannfræðinemarnir, þær Lára Samira Benjnouh og Inga Dagmar Karlsdóttir, tóku viðtöl við fólk sem bjó á Flateyri þegar snjó- flóðið féll á sínum tíma. I rannsókn- um sínum tóku þær mið af áhrifa- mætti snjóflóðsins og einnig hvern- ig áhrif það hefði að búa við hættu stóran hluta ársins. Hér er um að ræða það sem kallað er eigindleg rannsókn. Þær segja að rannsóknin hafi gengið vel og að Flateyringar hafí verið mjög opinskáir og já- kvæðir í garð þeirra. Verkefni þeirra, sem er sjálfstætt, var styrkt af nýsköpunarsjóði námsmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.