Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 15

Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ NEYTEIMDUR FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 15 Hollt og gott nesti í tjaldútileguna Ekkí bara hollusta heldur líka hagkvæmni Á MORGUN flykkist fólk út úr bænum enda þá upp runnin ein mesta ferðamannahelgi ársins. Guðrún Þóra Hjaltadóttir næring- arráðgjafi hitti okkur í einum stór- markaði í vikunni til að kaupa nesti fyrir útileguna. Um var að ræða fjögurra manna fjölskyldu þar sem annað barnið var ungling- ur. Guðrún benti á að fólk væri ekki að velta mikið fyrir sér holl- ustu um verslunarmannahelgina þótt auðvitað sakaði ekki að hafa hana á bak við eyrað þá sem endra- nær. Auk þess er víða spáð rign- ingu og því ekki allir sem hafa tök á að grilla stórsteikur í tjaldútileg- unni. „Af þessu þurfum við að taka mið,“ sagði hún . Trefjaríkt brauð „Ég mæli t.d. með því að fólk taki með sér trefjaríkt brauð sem fyllir betur í maga en hvítt brauð. Líklega þarf að kaupa að minnsta kosti tvö stór brauð fyrir helgina ef um fjögurra manna fjölskyldu er að ræða nú eða bara skella tveimur næringarríkum brauðum í ofninn heima,“ segir Guðrún Þóra. Hún mælir síðan með sígildu smjöri eða smjörva í útileguna. „Það geri ég vegna þess að þessi fituminni viðbit verða lin ef þau eru ekki í ísskáp í nokkra daga. Alla jafna myndi ég ráðleggja fólki fituminna viðbit en verslunar- mannahelgin er undantekning.“ Þegar árbíturinn er annars vegar bendir Guðrún Þóra á létt engja- þykkni sé tilvalið og sex korna þykkmjólk. „Þótt stundum geti verið hagkvæmt að kaupa inn i stórum skömmtum borgar sig að hafa jógúrtið í litlum dollum þegar fara á í tjald.“ Ostur án viðbits - Hvað með ost? „Jú, endilega, hann verður að vera með í útileguna og þá er hagkvæmast að kaupa hann tilbú- inn í sneiðum svo fólk lendi ekki í einhverju veseni ef það gleymir ostaskeranum. Það er allt í lagi að hafa hann 26% feitan ef fólk sleppir til dæmis viðbitinu undir. Sjálf set ég alltaf pínulítið marmel- aði undir,“ upplýsir hún. Guðrún Þóra velur líka 18% feitan smurost sem hún segir góðan í útileguna því hann sé mátulega mjúkur þótt hann standi í kæliboxinu í nokkra daga. Guðrún sleppir mjólkinni að þessu sinni þótt hún segist alla jafna leggja áherslu á mjólkur- drykkju. „Ég held að það sé svo mikið vesen að vera með hálfar mjólkurfernur í útilegum og mjólk- ina þar að auki hálfvolga. í þessu tilfelli hefði ég bara meðferðis birgðir af hreinum appelsínusafa og öðrum hreinum safa.“ Hún bendir á að djús sem er vatns- og sykurblandaður sé ekki nærri eins hollur og næringarríkur og því velji hún hreinan safa. - Er ekki nauðsynlegt að kaupa gos fyrir unglinginn? „Líklega eru margir sem kaupa gos fyrir svona ferðir þótt vert sé að minna á að vatnið er alltaf gott. Ef gos færi í körfuna færi tegundin eftir því hvað unglingur- inn vill drekka og ég myndi kannski ráðleggja honum bragð- bætt sódavatn.“ Létt pítusósa sparar helming fitu Þá er komið að kjötinu. „Það er spáð rigningu um helgina og best að gera innkaupin með það í huga. Þótt fískur sé góður grillaður fínnst mér ástæða til að sleppa honum í Morgunblaðið/Kristinn GUÐRÚN Þóra segist velja álegg í umbúðum, sem hægt er að loka aftur, þegar hún kaupir inn fyrir útileguna. TILBÚIN! útilegunni nema veitt sé á staðnum. Píta verður fyrir valinu og hún er hituð á grillinu. Létt pítusósa fékk að fljóta með enda segir Guðrún Þóra að hún sé góð og með því að kaupa létta pítusósa segist hún spara um helming í fitu. 12-15% feitt nautahakk fer í körfuna því Guðrún Þóra segir gott að búa til buff úr því sem hún kryddar með grísku hvítlaukskryddi. „Ef hakkið er fituminna verða buffin þurr og ólystug." Buffunum er stungið í pítuna með ferska grænmetinu. „Það er nægilegt úrval af fersku íslensku grænmeti núna og því al- veg tilvalið að kippa með sér tómöt- um, agúrkum og öðru girnilegu grænmeti. „Svo myndi ég kaupa kjúkling, skera hann niður heima í eldhúsi og krydda áður en haldið væri í útileguna. Þá þarf ekki að taka kryddskápinn með og hægt að skella kjúklingnum beint á grill- ið.“ Guðrún Þóra segist helst ekki kaupa kjöt sem sé selt tilbúið í kryddlegi. „Ég vil sjálf ráða þvi hvernig ég krydda kjötið mitt og myndi auðvitað krydda það eða leggja í maríneringu áður en farið væri af stað. Lambakótilettur og grísakótilettur urðu fyrir valinu því ef hellidemba gerir vart við sig má bara draga fram prímusinn og steikja þær á pönnu . Gleymið majónessalatinu - Hvað með túnfisksalat og kæfu? - „Alls ekki majónessalat í úti- leguna. Það fer ekki vel á því að geyma slík salöt úti í náttúrunni. Þau þurfa að vera í ísskáp annars kunna gerlar að hreiðra um sig þar og valda okkur skaða. Kæfa er hins vegar kjörin í útileguna og þá í boxi sem hægt er að loka vel. Það sama á við um kjötálegg. Ég myndi passa að það væri í dós ekki bréfi svo auðvelt væri að loka umbúðunum vel aftur.“ Og þá er komið að ávöxtunum. „Engin spurning, nóg af þeim, til dæmis epli, perur og vínber,“ segir hún og tínir í körfuna. Síðan snýr hún sér að kartöflunum. „Á þessum árstíma á fólk að borða nóg af nýjum íslenskum kartöflum. Þær eru afburða C-vítamínríkar og fullt af steinefnum í þeim. Ég myndi alls ekki hafa þær í álpappír heldur sjóða þær eða skella beint á grillið. í álpappír mauksoðna kartöflurnar og verða ólystugar." Bitafiskur sem snakk - Hvað með sætindi fyrir fólkið? „Lítið“ segir hún ákveðin en bætir við að það sé auðvitað allt í lagi að fá sér eitthvað eftir mat. „Borðið samt ekki sætindi á fastandi maga. Það hleypir insúlíni upp úr öllu valdi og kallar á meiri sætindi.“ Hún valdi síðan súkkul- aðihúðað heilhveitikex og súkkul- aðibitakökur en gekk rösklega framhjá sælgætisrekkunum og þóttist ekki sjá hikið á okkur hin- um. - Smá súkkulaði? „Það er miklu sniðugra að kaupa bara bitafisk fyrir fjölskylduna að narta í milli mála. Flestum fínnst íslenskur harðfiskur líka hið mesta lostæti.“ Kartöfluflögur og ídýfur? „Ég held ekki. Það er bara sóða- skapur að vera að vesenast með ídýfur í tjaldi og á betur við heima í stofu.“ Guðrún Þóra segir nauðsynlegt að hafa heitt á brúsa þegar kvöldar og rigningin búin að bleyta vel í fólki. „Heitt kakó með sykurpúðum er alveg frábært þegar hrollur læð- ist að fólki og síðan færi skyndi- kaffi líka í körfuna.“ - Fengu vítamín og lýsi að fljóta með í körfuna? „Ekki um þessa helgi. Ég myndi ekki nenna að burðast með það með mér. Strax og heim er komið seilist fjölskyldan auðvitað eftir lýs- inu og tekur væna skeið.“ Uppþvottalögur þarf að fljóta með og viskustykki því það er miklu umhverfísvænna að nota plastdiska og glös í stað þess að vera með þessar vörur úr einnota pappa. Og ekki gleyma eldhúsrúllunni eða hnífapörum! Munið að svartur ruslapoki er nauðsynlegur. Góða ferð. © © Sersending af GSM-símum á ótrúlegu verði!!! Aðeins sigr. Áður kr. 34.900,- • Fæst í fjölmörgum litum • Þyngd 21 Og • Símanúmera- birting • 70 tíma hleðsla (200 tíma fáanleg) • Möguleiki á fax/modem- tengingu m 9 stgr. flður kr. 59.900,- • Þyngd 169g • 85 tíma hleðsla (2ja vikna hleðsla fáanleg) • 100 númera símaskrá • Símanúmerabirting • Möguleiki á fax/modem- tengingu • Tekur bæði stórt og lítið símakort bömmi PHILIPS býður fyrst fyrirtækja 1 árs alábyrgð (kaskó-tryggingu) á l GSM-símum. Nú skiptir ekki máli hvar þú ert staddur í GSM-heiminum ef PHILIPS GSM-síminn þinn verður fyrir óhappi. Það skiptir heldur ekki máli hvað amar að símanum - PHILIPS útvegar þér nýjan síma innan 24 tfma. Heimilistæki hf TÆKNI-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.