Morgunblaðið - 31.07.1997, Page 19

Morgunblaðið - 31.07.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 19 Snjóflóð á skíðasvæði í Astralíu TALIÐ er að tugir manna hafi lent í snjóflóði á vinsæl- asta skíðasvæði Ástralíu, Thredbo, í gær. Haft var eftir talsmanni lögreglunnar að sennilega hefðu einhveijir far- ist, en fregnir um dauðsföll eða slys á fólki fengust ekki staðfestar. Flóðið hreif með sér að minnsta kosti tvo skíða- kofa. Hápunktur skíðavertíð- arinnar stendur nú yfir í Ástr- alíu og þúsundir gesta dvelja á skíðasvæðinu, sem er stað- sett í Fannarfjöllum í New South Wales ríki. 20% hjóna eiga eitt barn EINUNGIS fimmtu hver hjón í Kína eiga aðeins eitt bam, þrátt fyrir stefnu stjórnvalda þar að lútandi. Haft er eftir kínverskum embættismanni að talan komi ekki á óvart, en talsmenn alþjóðlegra mann- fjöldastofnana lýstu furðu sinni á því að stefna stjórn- valda hefði ekki meiri áhrif. 19 farast í árekstri NÍTJÁN manns fórust í árekstri fólksflutningabifreið- ar og jeppa í bænum Kuring- hat í Nepal í gær. Fimmtán létust á slysstað og fjórir eftir að komið var á sjúkrahús. Morðingi tekinn af lífi ROBERT West, 35 ára gamall maður frá Flórída í Bandaríkj- unum, var tekinn af lífi í Huntsville-ríkisfangelsinu í Texas á þriðjudag. Hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á Deanna Klaus, 22 ára þjón- ustustúlku. West játaði á sig verknaðinn, og áður en honum var gefinn banvænn lyfja- skammtur baðst hann fyrir- gefningar á þeim þjáningum sem hann hefði valdið fólki. Þetta var í 25. sinn sem dauða- dómi er framfylgt í Texas á þessu ári. Banna fjár- veitingar til einræktunar VÍSINDANEFND fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings sam- þykkti á þriðjudag lög sem banna fjárveitingar til rann- sókna á einræktun á fólki. Samkvæmt lögunum er bann- að að nota almannafé til að gera tilraunir með flutning á frumum til þess að búa til mannsfóstur. Ekki er lagt bann við áframhaldandi fjár- veitingum til rannsókna á ein- rækt plantna og dýra, né ann- arskonar erfðarannsókna. Taylor vinn- ur stórsigur FLOKKUR Charles Taylors, fyrrverandi stríðsherra og nú- verandi forseta Líberíu, vann stórsigur á laugardag í fyrstu þingkosningunum í landinu eftir sjö ára borgarastyrjöld, sem hófst árið 1989. ERLENT Reuter Fimm farast í Colorado GÍFURLEGT úrhelli olli Hóðum í bænum Fort Collins í Colorado- ríki í Bandaríkjunum í fyrrinótt og varð fimm manns að bana. Tuttugu manns var saknað og mörg hundruð misstu heimili sín. Fort Collins er um 100 km norður af Denver, en viðvörun vegna flóðahættu hefur verið gefin út í austurhluta ríkisins. Úrkoma mældist allt að 170 miHimetrum á fimm klukkustundum aðfara- nótt þriðjudags, en á þessu svæði er meðaltalsársúrkoma um 400 millimetrar. YAMAHA NEO „skutla“ 50cc kr. 329.000. Skútuvogi 12a, sími 581 2530. Sóltjöla Bakpokar Svefnpokar | Vindsængur -s einbreiðar „Loft" einungrunar- dýna Einangnmardýna Fyrir svefnpoka. 50x190 sm. Þótt og hlý. Mjög tótt. 590,- Skeifunni13 Noröurtanga 3 Reykjavíkurvegi 72 108Reykjavik 600Akureyri 220 Hafnarfjörður 568 7499 462 6662 565 5560 Mjúk eins og vindsæng en tekur mun minna pláss. Þegar dýnunni er rúllaö út fyllist hún sjálfkrafa af lofti og þegar henni er rúllað saman aftur tæmist loftiö aftur úr henni. Bráösniöug lausn. Stærð 180x50 sm. 1.990,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.