Morgunblaðið - 31.07.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1997 23
LISTIR
Að mynda flöt
Halldór
Forni sýnir á
Eyrarbakka
í TILEFNI af 100 ára afmæli
Eyrarbakkahrepps sýnir Hall-
dór Forni verk sín á Vesturbúð-
arhólnum við samkomuhúsið
Stað og í Veitingahúsinu Kaffí
Lefolii á Eyrarbakka 1.-31.
ágúst.
í tilkynningu segir m.a.:
„Árið 1994 hlaut Halldór 1.
verðlaun í flokki ungra mynd-
höggvara fyrir tveggja tonna
steinmynd sína, Hörpu valkyij-
unnar, í alþjóðlegri högg-
myndasamkeppni í Mið-Frakk-
landi.“
Sýningin á Eyrarbakka er
fyrsta einkasýning Halldórs, en
hann hefur tekið þátt í þremur
samsýningum.
MYNPOST
Tuttugu fcrmctrar,
Vcsturgata lOa
k j a 11 a r i
TEIKNINGAR í ÞRÍVÍDD
PÉTUR MAGNÚSSON
Opið fimmtudaga-sunnudaga kl.
15-18 til 3. ágúst, aðgangur ókeypis.
í INNSETNINGU Péturs Magn-
ússonar eru tvær veggteikningar
af útlínumyndum kassaforma í
þrívídd, samsettar úr járni. Vegg-
flöturinn, sem afmarkar bakhlið
kassanna með útlínuteikningu, er
ljósmyndaður og myndirnar felldar
inn í upprunalegt snið. Veggurinn
sem bakgrunnur verkanna er dreg-
inn fram á sjónarsviðið og eru ljós-
myndirnar þannig forsenda sýning-
arinnar.
Pétur dregur athyglina að tvívíð-
um fleti veggjarins með hliðstæðum
ljósmyndum. Yfirborð veggjana má
því líkja við skreytikennt myndefni.
Áferð ljósmyndanna í tilteknu rými
er óijúfanlegur hluti af verkinu og
sýna þær yfirborð veggsniða sem
útlínur teikningana mynda. Ljós-
myndirnar koma á þann hátt ekki
í staðinn fyrir veggflötinn sem bak-
grunn teikninganna. Framsetning
verkanna einkennist af hlutleysi og
er útfærsla þeirra unnin í samhengi
við staðinn.
Skýr þrívíddarkennd teikning-
anna úr járni á tvívíðum fleti er
byggt á einföldum sniðum og er
innan ákveðinna takmarka. Pétur
leitar hinsvegar út fyrir hin sam-
þykktu form með því að hjúpa/af-
hjúpa þann stað sem verkið hangir
á og í því felst styrkur sýningarinn-
ar.
Hulda Ágústsdóttir
Ljúfir tónar og leikgleði
TÓNLIST
Listasf ni Sigurjóns
Ólafssonar
KAMMERTÓNLEIKAR
Hlíf ogFreyr Siguijónsböm og
Kristinn Öm Kristinsson fluttu verk
eftir Carl Stamitz, Bohuslav Martinú,
César Cui og Franz Doppler. Þriðju-
dagurinn 29. júlí 1997.
SAGT er að Bæheimur hafi verið
og sé enn tónlistarskóli Evrópu og
víst er að margir heimssnillingar,
hljóðfæraleikarar og tónskáld, eiga
rætur sínar með þjóðunum þarna
suður frá. Eitt af því sem einkennir
tónlist þessara þjóða er leikgleðin.
Fjörmikil túlkun á sér líklega rætur
í galsafengnum og ástríðuþrungn-
um dönsum. Stamitz-flölskyldan og
þá fyrst og fremt Johann, sem um
langt tímabil starfaði við hirð kjör-
furstans í Mannheim, markaði upp-
haf hinnar eiginlegu sinfóníuhljóm-
sveitar og þeirra vinnubragða að
bjóta upp tematísk vinnubrögð og
skipta tónbrotunum á milli hljóð-
færa, nokkuð sem ekki tíðkaðist í
barokktónlist. Þá er og að minnast
á hið fræga „cresendo", sem jafnvel
faðir Mozarts varaði son sinn við
að nota. Johann Stamitz dró til sín
hæfileikamenn og stjórnaði hljóm-
sveit er var mönnuð bestu hljóð-
færaleikurum Evrópu. Tveir synir
hans, Carl og Anton, voru virtir
tónlistarmenn, sérstaklega þó Carl,
fyrir ljóðræna og líflega tónlist, sem
oft stóð nærri ítalskri, hvað stíl
snerti. Eitt af þeim formum sem
Carl notaði hvað mest var „concert-
ante“-sinfónían og eftir hann liggja
um 30 slík verk, flest rituð fyrir tvö
einleiks strengjahljóðfæri.
Tónleikarnir hófust á sónötu nr.
1, op. 14, fyrir flautu, fiðlu og semb-
al (píanó) eftir Carl Stamitz og var
þessi elskulega tónlist mjög vel flutt
og samleikur Freys og Hlífar oft
glampandi fagur og leikandi. Madr-
igal-sónatan, fyrir flautu, fiðlu og
píanó, eftir Matinú, er eins og mörg
verka þessa fjörmikla tónskálds
„músikantískt" fjörugt og oft
skemmtilega auðugt af ýmiss konar
sniðugum uppátækjum, sem oft er
unnið úr á skemmtilegan máta. Þau
eru oft býsna erfið í samspili og
jafnvel á köflum tæknilega erfið og
gefa góðum hljóðfæraleikurum
skemmtileg tækifæri í fjörugum
leik. Það var í heild nokkuð gott
jafnvægi í samleik tríósins en á eft-
ir þessu fjörlega verki komu fimm
smáverk eftir César Cui, rómantísk
og fallega unnin, er voru einstak-
lega vel flutt.
Seinna verkið eftir Martinú, són-
ata fyrir flautu, fiðlu og píanó, var
mjög í sama anda og fyrra verkið,
og var í heildina vel flutt, enda er
verkið einstaklega skemmtilegt.
Tónleikunum lauk með Ameríska
dúettinum eftir Franz Doppler, þar
sem hann leikur sér m.a. með
bandaríska þjóðsönginn og hið
fræga Dixi-lag suðuríkjamanna og
fléttar um þessi lög eins konar til-
brigðum. Þetta verk, eins reyndar
einnig verkin eftir Martinú, er gætt
„músikantískri" leikgleði en er ekki
viðamikill tónskáldskapur. Slík verk
þarf að leika af mikilli snilld og var
margt í leik tríósins í anda þessarar
„virtúósa" tónlistar.
Hlíf og Kristinn starfa hér heima
en Freyr fer fyrir mönnum suður á
Spáni og var því gaman að heyra
hann leika þessa ljúfu og leikglöðu
tónlist og vita af því, að Spánveijar
njóta þess að við Islendingar eigum
góða tónlistarmenn-.
Jón Ásgeirsson
PÉTUR Magnússon, Án titils, 1997. Járn.
Sumarhátíð
HEIMSKLÚBBSINS
í VALHÖLL, ÞINGVÖLLUM,
SUNNUDAGINN 3. ÁGÚST
Heimsklúbbur Ingólfs efnir til sumarfagnaðar með vinum
og ferðafélögum ársins og fyrri ára á Þingvöllum sunnudaginn
3. ágúst. Ef veður leyfir verður komið saman við sumarhús
Ingólfs skammt frá Valhöll niðri við vatnið, þar sem hann
býður gesti velkomna með fordrykk kl. 17.30.
Kl. 18.45 verður gengið til Valhallar og sest að snæðingi og
skemmtun, tónlist og létt rabb með ferðasöguívafi. Þríréttaður
kvöldverður og dans með undirleik vinsællar hljómsveitar.
Verð aðeins kr. 2.000. Rútuferð með Þingvallaleið frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík og til baka kl. 23.00.
Góðir ferðafélagar í heimsreisum, hnattreisum út og suður,
Karíbahafssiglingum og Dóminíkanaferðum, Ítalíuferðum
og öðrum skemmtilegum uppátækjum Heimsklúbbsins,
látið ykkur ekki vanta, ræktið vináttuna og lífsgleðina.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Heimsklúbbsins,
Prímu í síma 562 0400 fyrir 31. júlí.
Skemmtinefndin.
Austurstræti 17,
4. hæð, 101 Reykjavík,
simi 562 0400, fax 562 6564
Hjá okkur færðu heimilstækin í
29" PHILIPS sjónvarpstæki með Super Black
Line flötum skjá, Nicam Stereo, 70W
heimabíómagnara, 5 hátölurum, valmyndakerfi
og fjarstýringu. Allar aðgerðir á skjá.
SAMSUNG örbylgjuofn
1.000W - Digital - 22 Lítra
6 sjálfvirk kerfi og barnalæsing
VESTFROST kæliskápur
Hæð 155 cm. Breídd 59.5 cm,
Kælir 195 Itr. Frystir 78 Itr.
EDESA Þvottavél L 84
13 þvottakerfi - 800 sn.
Sparnaðarkerfi, flýtiþvottakerfi
vinduöryggi,
HITACHI videotæki
Show View, 2 hausar, 6 upptökukerfi,
2 scart tengi, Index leitunarkerfi og fjarstýring.
CfyrMtir koma (fjyráiir tfál
Greiðslukjör við allra hsefi
Wð erum I neesta
á íslandi
Stærsta hetmilis-og raftækjaverslunarkeðja i Evrópu
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
VERIÐ VELKOMIN í VER5LUN OKKAR
PHILIPS
sjónvarpstæki
.