Morgunblaðið - 31.07.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1997 25
Endurskipulagning fjöl-
skyldudeildar Félagsmála
stofnunar Reykjavíkur
FJÖLSKYLDUDEILD Félags-
málastofnunar Reylqavíkurborgar
sinnir margvíslegri þjónustu við fjöl-
skyldur og einstaklinga undir 67 ára
aldri. Helstu verkefni deildarinnar
eru félagsleg ráðgjöf, íjárhagsað-
stoð, þjónusta við böm og unglinga,
félagsleg heimaþjónusta, þjónusta
við fatlaða, húsnæðismál, aðstoð við
áfengissjúka og vímuvamir.
í samþykkt borgarstjórnar fyrir
félagsmálaráð frá 1967 segir í 7.
grein að „höfuðmarkmið allrar fé-
lagslegrar þjónustu skuli í því fólg-
ið að gera mönnum kleift að sigr-
ast á erfiðleikum og verða sjálf-
bjarga".
Starfsmenn fjölskyldudeildar em
176 talsins. Meginþjónusta deildar-
innar fer fram á hverfaskrifstofum
sem staðsettar era í:
Skógarhlíð 6, en þar fer fram
þjónusta við þá Reykvíkinga sem
búa vestan Kringlumýrarbrautar,
póstnúmer 101 og 105.
Suðurlandsbraut 32, sem sinnir
þjónustu við þá sem.búa í austurbæ
Reykjavíkur að undanskildu Breið-
holtshverfi, póstnúmer, 103, 104,
108^ 110, 112.
Alfabakka 12 sem sinnir þjón-
ustu við þá Reykvíkinga sem búa
í Breiðholti, póstnúmer 109 og 111.
Alls leituðu 4492 fjölskyldur/ein-
staklingar aðstoðar hverfaskrifstof-
anna árið 1996.
Á árinu 1996 var ráðist í að
endurskipuleggja fjölskyldudeildina
og hafa þær breytingar sem sam-
þykktar voru komið til framkvæmda
nú á vormánuðum ársins 1997.
Þörfin fyrir endurskipulagningu
fjölskyldudeildar hefur verið augljós
um nokkurra ára skeið. Eftirspurn
eftir þjónustunni hefur aukist og
deildin vaxið og þróast í samræmi
við fyrirliggjandi þörf. Aðdraganda
endurskipulagningarinnar má rekja
aftur til ársins 1993, en þá fékk
félagsmálaráð sérstakan ráðgjafa
til að gera úttekt á skipulagi og
Það er von okkar,
segir Ellý A. Þor-
steinsdóttir,
að breytingarnar leiði
til betri og
markvissari þjónustu.
vinnuaðferðum deildarinnar. Á
haustmánuðum 1995 var síðan
skipaður vinnuhópur innan stofnun-
arinnar sem hafði það verkefni að
gera tillögur að breytingum á skipu-
lagi fjölskyldudeildar og verkaskipt-
ingu einstakra deilda og um ábyrgð-
arsvið yfirmanna þeirra. Þann 28.
júní 1996 samþykkti félagsmálaráð
framkomnar tillögur sérstaks
starfshóps um endurskipulagningu.
í framhaldi af þeirri vinnu voru síð-
an, haustið 1996, skipaðir alls 8
vinnuhópar innan fjölskyldudeildar
sem störfuðu að nánari útfærslu á
endurskipulagningunni.
Meginmarkmið endurskipuiagn-
ingarinnar eru:
• að skjólstæðingar stofnunarinn-
ar fái betri þjónustu
• að efla þjónustu hverfaskrifstofa
• að bæta upplýsingastreymi inn-
an deildarinnar
• að endurskoða starfsemi sviða
• að gera stefnumótunar- og þró-
unarstarf markvissara
• að starfskraftar stofnunarinnar
nýtist betur og starfsmenn verði
ánægðari
Með breytingunum er skipulag
fjölskyldudeildar einfaldað mjög og
næstu undirmönnum yfirmanns
Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar
Heimili Sérþjónusta
Verkefni Staðir Verkefni Verkefni Verkefni
Félagsleg ráðgjöf Sólvailagata Þjón. við fatlaða Sálfræðilegl Frxðsla
Fjárhagsaðstoð Hraunberg Hcimaþjónusta mat Námskeið
Húsnsðismál Laugarásvcgur Forsjármál Þjónusta við Handleiðsla
Bamaverndarmál Álfaland Fósturmál hvcrfi og Hópvinna
Ráðgjðf við fatlaða Akurgerði Vistunarmál stoð- Stuðnings-
Ráðgjöf við áfcngissj. Keilufell Stuðningsfjölsk. þjónustusvið hópar
Ráðgjöf við ungl. Amtm.stígur Liðveisla Umbótastarf
Félagsleg Ásvallagata Tilsjón Stjómun Samfélags-
heimaþjónusta Búðargerði Vemd heimili allra vinna
Almenn Tilsjónarsambýli aðkeyptrar
skrifstofustörf Timabundin sálfræði-
einkaheimili vinnu
Samrxmingaradili
i unglingamálum
FLISPEYSU
TILBOÐ
1 STK.
DRESS
MANN
ATH: LAUGARDAG OPIÐ 9.00 -14.00
Atb Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730.
Fax 562-9731
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK
fjölskyldudeildar
fækkað úr þrettán í
sex. Þannig er deildinni
nú skipt niður í sex
megineiningar, þtjár
hverfaskrifstofur, sem
fyrir vora, og þrjú ný
svið, forvarnarsvið,
sjálfræðisvið og stoð-
þjónustusvið til stuðn-
ings þeirri starfsemi
sem fram fer á hverfa-
skrifstofunum eins og
sjá má á meðfylgjandi
skipuriti.
Fjölskyldudeild
Félagsmála-
stofnunar
Hugmyndafræðin að baki þess-
um breytingum byggir á þeirri
meginstefnu um heildarsýn sem öll
starfsemi Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar hefur reyndar
hvílt á frá upphafí. Með þessum
breytingum er hin almenna félags-
þjónusta færð í meira mæli en áður
út á hverfaskrifstofurnar. Þeir sem
á þjónustunni þurfa að halda geta
nú sótt til viðkomandi hverfaskrif-
stofu án tillits til þess hvort um sé
að ræða vanda vegna unglings eða
barns, vanda vegna áfengis eða
vímuefnamála og/eða aðstoð vegna
félagslegrar heima-
þjónustu. Þannig hafa
verkefni og starfs-
menn þriggja verk-
þátta sem áður voru
unnin á sérsviðum inn-
an fjölskyldudeildar
verið færð út á hverfa-
skrifstofurnar. Það eru
áfengismál, félagsleg
heimaþjónusta og
unglingadeild, þar með
talin útideild.
Eftir sem áður verð-
ur þó um ákveðna sér-
hæfingu að ræða milli
starfsmanna, en hún
birtist ekki á þann hátt
að fjölskyldur og ein-
staklingar í vanda þurfi að leita til
mismunandi deilda eftir því hvernig
vandinn birtist.
Endurskipulagningu deildarinnar
er nú að mestu lokið og er það von
okkar að með þessum breytingum
verði þjónusta ijölskyldudeildar
betri og markvissari fyrir þær fjöl-
skyldur og einstaklinga í Reykjavík
sem þurfa á aðstoð að halda.
Höfundur eryfirmaður
fjölskyldudeildar
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur
Ellý A.
Þorsteinsdóttir
FERÐAVÖRUR
Göngu- og hjólatjald, 2 manna Camoufiage tjald,
2 manna, aðeins 2 kg, vandað og verð aðeins kr. 3.900,
vatnsvarið, kr. 8.900, stgr. kr. 8.455. stgr. kr. 3.705.
• Jakkar úr öndunarefni,
vatnsheldir frá kr. 5.400
• Fleecepeysur
verð frá kr. 4.200
• Tjöld2manna
verð frá kr. 3.900
• 2 manna göngutjald 2 kg
á aðeins kr. 8.900
• Svefnpokar verð frá kr. 4.400
• Bakpokar65l
verð frá kr. 6.400
• Sjálfuppblásnar dýnur
verð frá kr. 7.900
• Ferðadýnur verð frá kr. 980
• Legghlífar verð frá kr. 1.490
• Göngustafirverðfrákr. 1.850
SALOMON
GÖNGUSKÓR
Nabuk leður Goretex kr. 16.80C
Leður Cordura Goretex frá kr. 10.400
Gönguskór lágir frá kr. 6.900
Ein stœrsta
sportverslun
landsins!
Armuli 40
Símar 553 5320
568 8860
l^rslunirí